Morgunblaðið - 12.08.2000, Page 48

Morgunblaðið - 12.08.2000, Page 48
48 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 > —.......-........... UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ Að vita eða vita ekki í NÝBIRTRI grein hér í Mbl, fagnaði ég nýbreytninni, sem í því fólst, að Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnun- ar svaraði grein, sem ég hafði áður birt hér í blaðinu. Þetta hafði ekki gerst fyrr og ég hef þar á ofan fylgst með hvernig það hefur nánast verið regla, að gagnrýnisröddum, - 'sem birst hafa opin- berlega, hefur ekki verið ansað af hálfu stofnunarinnar. Grein Jóhanns leyfi ég mér að líta á sem vísbendingu um stefnubreytingu í þessu efni og þar þurfa að koma til umræðu enn mikilvægari mál en það, sem umrædd svargrein hans fjallaði aðallega um. Satt best að segja á það við um mann eins og mig, sem þetta skrifa, og árum saman hef fylgst grannt með tiltækri opinberri um- ræðu um fiskveiðistjórn og fisk- veiðiráðgjöf, að furðu mína hefur vakið, hvernig Hafrannsóknastofn- un fær að vera algerlega stikkfrí ' vfrá því að gefa nokkrar skýringar á þróun síðustu vikna, mánaða og ára á því sviði, þar sem henni er fengið svo þjóðhagslega mikilvægt aðalhlutverk. Stofnunin er látin komast upp með að segja frá því eins og sjálfsögðum hlut, að 200.000 tonn af þorski hafi horfið af Islandsmiðum á einu ári. Hún þarf ekki að segja frá því, hvaða þorskur þetta var, ungþorskur, stórþorskur, einhverjir tilteknir ár- gangar, staðbundnir þorskstofnar eða þess háttar. Sú skýring er látin duga, að þessi þorskur hafi aldrei verið til nema í hinum óskeikulu reiknivélum og gagnagrunnum stofnunarinnar. Stofnunin þarf heldur engu að svara góðum og gildum spurningum um í hverju felist árangurinn af öllu friðunar- vafstri stofnunarinnar undanfarna tvo áratugi. í a.m.k. tveimur grein- um hér í Mbl. hefur verið vakin at- Jón Sigurðsson hygli á samfelldu und- anhaldi með minnk- andi afla af botn- fisktegundum, hvort heldur sem litið er til síðasta áratugar eða tímans frá 1984, þegar kvótasetning var upp tekin. Fullt forræði íslendinga á 200 mílna fiskveiðilögsögu og brottrekstur nær allra erlendra skipa úr landhelginni, hefur undir vísindalegri ráð- gjöf, sem sífellt er meira mark tekið á, fært okkur síminnk- andi veiðiheimildir. Þessu á þjóðin að taka þegjandi og án skýringa á því, hvað eiginlega er að gerast, frá þeim, sem ættu að vita það. Er við unandi, að árangur af þorskastríð- unum og öllum þeim pólitísku sigr- um, sem þar voru taldir vinnast, sé minni en enginn? Málið er einfaldlega afgreitt með því, að inni á Hafró sé besta þekk- ingin, sem við höfum og við hana verðum við að styðjast. Hafi nýleg- ur leiðari Mbl. komist rétt inn í kollinn á mér, var þetta innmatur- inn í honum. Staðhæfingar úr svörtum kössum Hafró fá að ráða umræðunni og stofnunin þarf engu að svara. Engu máli skiptir hversu gildar spurningar eru lagðar fram. Stofnunin er ósnertanleg og ráðu- neytið virðist heldur ekki ætlast til, að hún svari neinu. Staðhæfingar Hafró hafa þar á ofan lagt undir sig fjölmiðlana. Efasemdir fá þar lítið rými. Fyrir skömmu skrifaði blaðamaður Mbl., efalaust í góðri trú, í viðhorfsgrein, að þorskstofninn við Nýfundnaland hafi hrunið vegna ofveiði. Honum er vorkunn, því að þessari staðhæf- ingu hefur verið miskunnarlaust beitt af Hafró og öllum helstu páfum fiskirannsókna við Norður- Atlantshaf, sem grýlu í viðskiptum við stjórnmálamenn og þeir heykst við í hnjáliðunum. Að sönnu var þessi þorskur ofveiddur, en eftir mínum bestu upplýsingum hvarf Reykingar alkóhólista í Bandaríkjunum reykja 90% þeirra sem sjá um áfengisráðgjöf. Góðar fyrirmyndir? Alls ekld. Hér á landi hefur SÁA tekið stórt skref með því að banna reykingar á Vogi en enn er langt í land hjá alkóhólistum. Viðurkennt er að alkóhólistar eiga við erfiðan sjúkdóm að etja, lifshættulegan, en samkvæmt niður- stöðum bandaríska ~N)laðsins Professional Counselor eru reyking- ar tíu sinnum líklegri til að drepa Ráðgjöf Þetta er hvatning til alkóhólista, segir Guð- jdn Bergmann, um að hugsa málið og gerast Guðjón Bergmann , enn betri fyrirmyndir -------------------------- í samfélaginu. manneskju en alkóhól. Sjúkdómar tengdir reykingum eru engu hætt- uminni en sjúkdómar tengdir alkó- hólisma og leggja oft gífurlega erfið- leika á fjölskyldur hér á landi. Varla ^er til sú fjölskylda sem ekki hefur ,'engið í gegnum þá sorg sem fylgir Kvótinn Ég skora á Hafró og sjávarútvegsráðherra, segir Jdn Sigurðsson, að gefa landsmönnum skýringar á mannamáli á þeim óviðunandi árangri, sem hin vís- indalega fískveiði- ráðgjöf hefur skilað undanfarin ár og raunar áratugi, í síminnkandi afla af botnfiski. þar á Nýfundnalandsmiðum hálf milljón tonna af þorski, sem ekki var veiddur og enginn veit hvað varð af. Hann týndist eins og þessi tvö hundruð þúsund tonn, sem okk- ur er núna boðið upp á, að séu horfin af íslandsmiðum. Og var það ekki lítil milljón tonna af þorski, sem týndist með sama hætti í Bar- entshafinu? Hin einfalda og auð- gefna skýring um oíveiði, sem þessir fiskifræðingar beittu eins lengi og þeim var stætt á því, þarf þess vegna ekki að vera alveg rétt, a.m.k. ekki ein og sér. Ályktun leikmanns, sem horfir á þetta af áhuga, en álengdar, getur ekki verið nema ein. Allur þessi týndi þorskur er ekki vottur um það, sem menn vita, heldur til marks um hitt, sem þeir vita ekki. Fræðingarnir vita einfaldlega ekki meira en svo um efnið, að eitt rek- ur sig á annars horn í útkomunni. Týndur fiskur, veiddur fiskur, sem átti ekki að vera til, meiri friðun, takmarkaðri afli og minni fiski- stofnar. Hvernig má þetta vera? Það er ekkert við það að athuga að vita ekki. Það á meira að segja að vera aðal hvers vísindamanns að efast sífellt um það, sem hann telur sig vita þar til hann getur kynnt þekkingu sína sem óbrigðula. Að þykjast vita og hlusta ekki á efa- semdir er vís leið til ófara. Og veit Hafró, að þorskstofninn, eða öllu heldur miðað við mín fyrri skrif, þorskstofnarnir við Island, hafi minnkað um 200.000 tonn? Að sjálfsögðu veit stofnunin það ekki og skekkjumörkin gætu verið miklu stærri en þau 10%, sem for- stöðumaður stofnunarinnar lofaði, þegar skýrt var frá þessum 200 þús. tonnum, sem höfðu týnst. Hann lofaði líka einum þremur næstu árgöngum þorsks svo stór- um, að auka megi þorskkvóta strax á næsta ári. Víst er vonandi, að hann hafi rétt fyrir sér, en það er svo best, að þeir árgangar týnist ekki líka. Kunningi minn sagði mér á dög- unum frá vinafólki sínu, sem hafði verið á skemmtiferð í Jökulfjörð- um. Þar var rennt færum og stóð vænn þoskur óðara á hverju járni. Mér er til efs, að Hafró fylgist grannt með þorski í Jökulfjörðum, en þar kynnu að vera einhver af þessum 200.000 tonnum, sem reiknimódel Hafró hafa týnt. Svona sögur heyrast reyndar hvaðanæva af landinu um þessar mundir. Ég vil ljúka þessari grein með áskorun á Hafró og sjávarútvegs- ráðherra að gefa landsmönnum skýringar á mannamáli á þeim óviðunandi árangri, sem hin vís- indalega fiskveiðiráðgjöf hefur skilað undanfarin ár og raunar ára- tugi, í síminnkandi afla af botnfiski. Slíkum áskorunum hefur til þessa ekki verið ansað, hvað þá sinnt, en ég verð að lifa með mínum áhuga- sömu lesendum í voninni um að dropinn holi steininn. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri. reykingatengdum sjúk- dómum, hvort sem um er að ræða krabbamein, lungnaþembu, krans- æðastíflu eða annað. Stofnendur AA Einnig er mikilvægt að huga að því að þótt Bill og Bob, stofnendur AA-samtakanna, hafí verið frábærar fyrir- myndir á mörgum svið- um voru þeir forfallnir reykingamenn og lét- ust báðir af þeim sök- um. Þeir hefðu verið manna fyrstir til að við- urkenna að þeir voru ekki fullkomnir enda kemur það margoft fram í fræð- unum. Reginmisskilningur margra alkóhólista er að þeir séu hólpnir þegar þeir eru hættir að drekka. Reykingamar eru líka fíkn sem þarf að yfirvinna til þess að geta tekið full- an þátt í lífinu. Svörin er að finna í æðruleysisbæninni: „Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ Þessi grein er hvatning til alkóhól- ista um að hugsa málið og gerast enn betri fyrirmyndir í samfélaginu. Náttúran er hlutlaus. Allir geta hætt að reykja. Við sjáum dæmi þess á hverjum einasta degi. Höfundur erjógakennari og tóbaks- varnarráðgjafi. ISLENSKT MAL í síðasta þætti minntist Sigur- steinn Hersveinsson á orðið flóra, ofnotkun þess og mis- notkun. Eg lofaðist þá til að auka þar einhverju við, og er best að koma því frá, þó að ekki geti ég leyst allan vanda í því sambandi. í 717. þætti hafði ég minnst á þetta, mjög í sama dúr og Sigursteinn, og léttir mér það heldur en ekki leikinn, og eyk ég svo leti mína, eins og Halldór Kiljan Laxness hefði verið vís til að segja. En útúr- dúr fylgir eða formáli: Eitt er það uppátæki tungu- málanna að f í latínu samsvarar stundum b í germönskum mál- um. Þegar latínumenn sögðu fero, segjum við „ég ber (byrði)“: frater í latínu er bróð- ir hérnamegin, en latneska orð- ið fraternitas = bræðralag er þekkt með smábreytingum í ýmsum Evrópumálum. Þá er það fyrirbæri nefnt flos í latínu sem blóm heitir á tungu okkar. Flos er karlkyns í lat., eignarf. floris, fleirt. flores. Mörg orð eru samstofna því, og verður hér látið við nema að nefna sjálfa blómgyðju þeirra Rómverja er Flora hét. Svo kom, að þetta orð barst um víð- an völl tungnanna og tók að merkja jurtaríki, gróðurríki. Stefán kennari (skólameistari) samdi grundvallarrit og heitir Flóra Islands. I dansk- og ensk- íslenskum orðabókum finn ég ekki annað en flora þýði gróður- ríki á tilteknum stað eða tíma. Dýraríkið hefur sumstaðar fengið nafnið fána (fauna), og er það að rekja til eins af guðum Rómverja. Sá hét Faunus. Orð- ið fána heyrist sjaldan eða sést með íslendingum. En af hverju er ég að þessu? Jú, ég heyrði um daginn að það væri fjöl- breytt „skemmtanaflóra“ í Reykjavík, og ég hef heyrt um ýmsar aðrar „flórur“ af ólíkleg- asta tagi, og svo langt gekk að maður nokkur talaði um fjöl- breytta „dýraflóru". Og þá finnst mér að ruglingur í nátt- úrunnar ríki sé kominn yfir mörkin. Vafalaust hefur ein- hver heyrt nefnda *mannílóru. Hvaðan skyldi allt þetta „flóru- Umsjónarmaður Gísli Jónsson 1070.þáttur tal“ vera komið? Nú vantar mig fræðslu. Flóra (Flora) er kvenheiti bæði hérlendis og erlendis, til mikilla muna eldra með sumum útlendum þjóðum. Gömlum konum í minni sveit mislíkaði, þegar það var tekið upp, og minnti þær á fjósverk, enda óvanar að sjá konur á borð við Floru McDonald eða Floru Robson, rétt eins og sveitungi okkar Þorsteinn Þrastarson „kenndi ekki hvað fogli“ dúfan var í Ufsakirkju, að því að hann var „óvanur að sjá heilagan anda“. ★ En fleira jók leti mína um þessar mundir, svo að eiginlega má segja, að ég sé í sumarfríi í þessum þætti. Rétt þegar ég ætlaði að fara að skrifa um „söluaðila“ enn og aftur, tók Víkverji þessa blaðs af mér ómakið (þriðjud. 10. júlí) . Eg stel þessu frá honum: „Það fer óendanlega í taug- arnar á Víkverja hve orðið aðili er misnotað í íslenzkunni. Orðið söluaðili tröllríður auglýsingum í öllum fjölmiðlum. Orðið aðili er þarna algjörlega óþarft. Orð- ið seljandi segir allt sem þarf. Víkverji hefur áður bent á orð- skrípið samkeppnisaðili sem notað er í stað keppinautar og gerir svo enn, enda er góð vísa sjaldan of oft kveðin. Af sama toga er ofnotkun á sögninni að framkvæma. Oftar en ekki heyrði Víkverji í lýsing- um á kappleikjum í boltaíþrótt- um að þessi eða hinn fram- kvæmi vítaspyrnuna eða framkvæmi innkastið." ★ Nú, nú. „Þegar ein báran rís, þá er önnur stök,“ sagði glapyrt kona í minni sveit fyrir löngu. Fæ ég nú sent eftirfarandi les- mál undir fyrirsögninni Limra Anglicana, og ég læt það bara fljóta. Það meiðir engan: Hann Jón, sera að studdist við staf, stakk sér í djúpin á kaf, íglóbölumhringum svam hann heimsbyggðir kringum og hefði ekki þurft nokkum staf. Kvenkynsorðið eir merkir náð eða hlífð, og í gamalli vísu kemur fyrir „eirar vanur“ = hlífðarlaus. Ef engu er hlíft, eira menn engu. Gyðja, sem hlífði mönnum og verndaði þá, nefndist Eir. Það kann að vera annað heiti Friggjar, konu Oð- ins. Á síðustu árum er þetta orðið kvenheiti. Eir hefur afar sjaldan verið fyrri hluti manna- nafna, en þó kemur það fyrir. Ekkert slíkt karlheiti hef ég fundið. En kvenheitið Eirný er ævagamalt, en hefur alltaf verið sjaldgæft. Nú á allra síðustu árum, en ekki á næstu grösum, hafa bæst við tvö kvenmannsnöfn, samsett af Eir. Bernharð Haraldsson, fyrrverandi skóla- meistari Verkmenntaskólans á Akureyri, kom til mín færandi hendi og sagði mér nöfn tveggja meyja sem báðar eru fæddar eftir 1990. Þær heita Eirdís Heiður og Eirfinna Mánadís. Áður vissi ég að mannanafnanefnd hafði sam- þykkt nafnið Eirdís og Heiður er alþekkt og ævafornt, en nafnið Eirfinna vissi ég ekki um fyrr. En svona er nú heim- urinn skrýtinn að hin eina Eir- finna sem til er (að ég held) er ekki nær okkur en austur í Beijing (Peking). ★ Vilfríður vestan kvað: Það er heilmikið farið að hlýna frá himinum sólgeislar skína ogbænduráTröðum þeirbíðaíröðum og bjóða fram smáfugla sína. Sigli eg áfram, sigli eg enn. -Sigrinumfáirhrósa.- Til eru höppin tvenn og þrenn, taka mun eg lending senn. - í djúpinu glitrar gullið rauða og ljósa. (Ámi Pálsson 1878-1952.) ★ Þegar þessi þáttur var farinn í vinnslu barst mér afbragðs- gott bréf um orðið flóra frá Herði Kristinssyni grasafræð- ingi. Það birtist hér í þáttunum innan skamms.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.