Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ættingjar bresku flugliðanna voru við minningarathöfn á sunnudag
Sorglegum
kafla í ættar-
sögunni lokið
BRESKU flugliðarnir fjórir sem
fórust f flugslysi á hálendinu á milli
Öxnadals og Eyjafjarðar 1941 voru
lagðir til hinstu hvflu í Fossvogs-
kirkjugarði á sunnudag. Leiðangur
björgunarsveitarmanna úr breska
flughernum á Skotlandi og ís-
lenskra björgunarsveitarmanna
flutti líkamsleifar mannanna til
byggða í síðustu viku.
Meðal viðstaddra voru ættingjar
hinna látnu og sendiherrar Bret-
lands og Þýskalands. Að Iokinni
minningarathöfn voru fjórir blóm-
sveigar lagðir að legsteinum flug-
liðanna fjögurra á meðan Nimrod-
flugvél og Sea King-þyrlu frá
breska flughernum var flogið hjá í
virðingarskyni.
Voru að sækja félaga sína
Flugvél fjórmenninganna,
sprengjuflugvél af Fairy Battle-
gerð, var á leið suður frá Melgerð-
ismelum í Eyjafirði þegar hún fórst.
Flugmaðurinn Arthur Round og
Reginald Hopkins, sem voru góðir
vinir úr 98. flugsveit, höfðu farið
frá flugvellinum á Kaldraðarnesi
um morguninn 26. maí til að sækja
tvo úr áhöfn flugvélarinnar sem
verið höfðu á spítalaskipi er lá við
bryggju á Akureyri. Þeir Henry
Talbot og Keith Garrett höfðu lent í
bflslysi en voru nú tilbúnir til heim-
ferðar.
Round og Hopkins lentu á Mel-
gerðismelum um hádegisbilið, tóku
Talbot og Garrett um borð og sneru
til baka. Flugvélin hvarf á bakaleið-
inni en fannst eftir mikla leit á jökli
á hálendinu milli Öxnadals og Eyja-
fjarðar. Það var ekki fyrr en nú að
fært þótti að koma líkamsleifum
flugliðanna til byggða, tæplega 60
árum eftir slysið.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hermenn vottuðu hinum látnu flugliðum virðingu sína.
Það er kaldhæðnisleg staðreynd
að Arthur Round átti alls ekki að
vera flugmaður í þessari feigðarför
heldur góðvinur hans, Tom Robson.
Hann var hins vegar lasinn þennan
dag og bauðst Round til að hlaupa í
skarðið. Robson giftist síðar ís-
lenskri kærustu Rounds, Siggu, og
settist með henni að í Suður-Afríku,
eins og kom fram í Morgunblaðinu
á sunnudag.
„Hann var yndislegur drengur"
Bróðir Henry Talbot, John, sem
var tvítugur þegar 24 ára gamall
bróðir hans fórst, kom til Islands
frá Englandi ásamt syni sínum,
Henry. „Ég bjóst aldrei við að h'ta
þennan dag. Meðan á athöfninni
stóð hugsaði ég um bróður minn, ég
geri það alltaf. Hann var yndisleg-
ur dreugur," sagði hann. Móðir
þeirra fékk tvö skeyti sama dag ár-
ið 1941 með tilkynningum um að
beggja sona hennar væri saknað.
Viku síðar bárust henni þær fréttir
að John hefði lifað af er orrustu-
skipið Juno fórst í orrustu við eyna
Krít í Miðjarðarhafi.
Að sögn Arthurs Fickling, syst-
ursonar Rounds flugmanns, hvfldu
örlög hans þungt á móður hans og
systkinum hennar. Sagði hann að
með komu sinni og frænda sinna
þriggja væri þessum sorglega kafla
í ættarsögunni lokið.
Samráðsfundur forsætisráðherra Norðurlanda og Eystrasaltslanda
ESB-aðild og
sjiíkddmavarnir
efst á baugi
Morgunblaðið/Golli
Vel fór á með norrænu forsætisráðherrunum en eftir fundinn í gær
gengu þeir um borgina og fengu sér bjór.
Pfirau. Morgunblaðið.
ÞAÐ var sól og blíða í Eistlandi í
gær þegar forsætisráðherrar Norð-
urlandanna fimm og Eystrasalts-
ríkjanna þriggja komu saman á
formlegum samráðsfundi í strand-
bænum Párnu við Rígaflóa. Ráð-
herramir hittust á gömlum herra-
garði, Villa Amende, og áður en
fundurinn hófst fengu þeir sér
gönguferð í góða veðrinu um mið-
bæinn og ströndina undir leiðsögn
Marts Laars, forsætisráðherra
Eistlands.
Að sögn Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra var meginefni fund-
arins staðan í stækkunarferli
Evrópusambandsins og var m.a.
rætt hvernig málin kunna að þróast
undir forustu Frakka í Evrópusam-
bandinu og væntanlegrar forustu
Svía. Davíð sagði að Eystrasalts-
löndin, sem öll hafa stótt um aðild
að ESB, teldu sig vera komin í
þokkalega stöðu við að uppfylla
fjöldamörk skilyrði, sem ESB hefur
sett í efnahagsmálum, umhverfis-
málum og varðandi löggjöf, fyrir að-
ild en Evrópusambandið eigi eftir
að gera upp við sig hve hratt verður
farið í aðildarviðræðum við þau
Austur-Evrópuríki sem voru í svo-
kölluðum fyrsta hópi þjóða. Davíð
sagði t.d. ljóst að aðildarviðræður
við Pólland yrðu mjög erfiðar vegna
þess að þeir væru ekki búnir að laga
sín innri mál að kröfum ESB með
sama hætti og t.d. Eystrasaltslönd-
in. Á blaðamannafundi, sem haldinn
var utan dyra eftir fund forsætis-
ráðherranna, sögðust forsætisráð-
herrar Eystrasaltslandanna allir
vera sáttir við það hvernig aðildar-
viðræður þeirra við ESB gengju.
Eistland er í áðurnefndum fyrsta
hópi en Andris Berzins, forsætis-
ráðherra Lettlands, sagði að þær
þjóðir sem væru ékki í fyrsta við-
ræðuhópnum væru að sumu leyti
betur settar þar sem þær gætu
byggt á reynslu hinna. Bæði
Berzins og Andrius Kubilius, for-
sætisráðherra Litháens, sögðust
binda miklar vonir við að á væntan-
legri formennskutíð Svía í Evrópu-
sambandinu myndu aðildarmálin fá
aukið vægi og að árið 2002 yrði
væntanlega búið að leggja grunninn
að aðildarviðræðum.
Eystrasaltsríki í næsta
aðildarhópi NATO?
Ráðherrarnir voru spurðir um
hugsanlega aðild Eystrasaltsríkj-
anna að NATO, en þau hafa sótt þar
um inngöngu. Norrænu ráðherr-
amir sögðu að lönd ættu sjálf að
ákveða hvernig þau vildu haga sín-
um varnarmálum og Davíð Oddsson
sagði að íslendingar styddu inn-
göngu Eystrasaltslandanna. Andr-
ius Kubilius sagði að Eystrasalts-
löndin vildu fá aðild að NATO eins
fljótt og auðið væri. Hann sagði að
eitt þessara ríkja að minnsta kosti
ætti að vera í hópi þeirra ríkja sem
næst fá aðild að bandalaginu. Það
væri mjög mikilvægt, ekki aðeins út
frá hagsmunum þessa svæðis held-
ur út frá öryggishagsmunum Evr-
ópu.
Ráðherrarnir ræddu einnig um
evruna, sameiginlega mynt Evrópu-
ríkja, og á blaðamannafundinum
eftir ráðherrafundinn lýstu þeir all-
ir þeirri von að aðild Dana að Efna-
hags- og myntbandalagi Evrópu,
EMU, og þar með að evrunni, sam-
eiginlegum gjaldmiðli Evrópu,
verði samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu eftir réttan mánuð, en ljóst
er af skoðanakönnunum að þar
verður mjótt á mununum. Forsæt-
isráðherrar Eystrasaltslandanna
sögðu m.a. að þetta mál gæti haft
áhrif á stækkun Evrópusambands-
ins því ef aðild Dana að EMU yrði
felld myndi að gefa efasemdar-
mönnum um ESB-aðild þessara
landa byr undir báða vængi.
Davíð Oddsson sagði á blaða-
mannafundinum að þetta mál hefði
ekki bein áhrif á ísland en ef Danir
felldu aðild að EMU myndi það til
skamms tíma veikja Evrópusam-
bandið og evruna og það hefði
óheppileg áhrif. Davíð sagði við
Morgunblaðið að íslensk stjórnvöld
teldu að það væri hagfellt fyrir ís-
lendinga að áætlun um sameigin-
lega mynt Evrópu gengi eftir fyrst
ákveðið var að hrinda henni af
stokkunum og að gengi hennar
næði að styrkjast. Lágt gengi evr-
unnar nú gerði mörgum þjóðum erf-
itt fyrir, þar á meðal íslendingum.
Áður en fundur forsætisráðherr-
anna hófst í gærmorgun stóð Jens
Stoltenberg, forsætisráðherra Nor-
egs, úti á grasflötinni utan við Villa
Amende og talaði í farsímann. Hann
reyndist hafa verið að tala við
Vladímír Pútín, forseta Rússlands,
og upplýsti á blaðamannafundinum
að þeir hefðu ákveðið að auka sam-
vinnu milli Noregs og Rússlands
með það að markmiði að koma í veg
fyrir slys á borð við það þegar
kjarnorkukafbáturinn Kúrsk sökk í
Barentshafi fyrir skömmu, og auka
skilvirkni aðgerða og upplýsinga-
gjöf þegar slíkan vanda bæri að
höndum. Sagðist Stoltenberg
myndu hitta Pútín á fundi í næstu
viku og einnig myndi hann hitta
rússneska forsætisráðherrann í lok
september til að ræða þessi mál.
Ráðherrarnir ræddu ekki um
Kúrsk-málið á formlega fundinum
en það bar á góma á óformlegum
hádegisverðarfundi þeirra. Davíð
Oddsson sagði að þar hefðu menn
lýst áhyggjum af þeirri hrörnun
sem virtist eiga sér stað í Rússlandi,
ekki aðeins í varnarkerfi landsins
heldur einnig á ýmsum mannvirkj-
um, svo sem sjónvarpsturninum
sem brann um helgina. Efnahagur
landsins hefði skroppið saman þrátt
fyrir fólksfjölda og náttúruauðævi.
„Menn hafa áhyggjur af þessari
þróun, og raunar mikla samúð með
Rússum. Framþróun í Rússlandi er
afskaplega mikilvæg í þessum
heimshluta. Menn taka eftir því að
hér á þessu svæði hefur orðið mjög
hröð framþróun og vöxtur og það
hefðu átt að vera skilyrði fyrir sams
konar þróun í Rússlandi en það hef-
ur ekki gerst. Varðandi kafbátinn
þá finnast mönnum viðbrögð Rússa
ekki aðeins til marks um að þeir séu
að dragast aftur úr í þróuninni held-
ur einnig að þeir séu ekki búnir að
komast út úr þeim viðhorfum sem
ríktu á sovéttímanum," sagði Davíð.
Ráðherrarnir ræddu um árangur
af starfí hóps sem fjallar um leiðir
til að berjast gegn smitsjúkdómum,
svo sem berklum og alnæmi, sem
settur var á stofn á fundi Eystra-
saltsráðins fyrr á þessu ári að frum-
kvæði Norðmanna. Haraldur
Briem, sóttvarnalæknir hjá land-
læknisembættinu, er í þessum hópi
sem fulltrúi íslendinga. Jens Stolt-
enberg sagði að allir vildu sjá opn-
ari Evrópu, meiri viðskipti og ferða-
lög milli landanna en jafnframt
vildu menn berjast gegn smitsjúk-
dómum til að tryggja að þeir
breiddust ekki út í kjölfar aukinna
samskipta.
Þjónusta númer eitt!
Audi A6 2400,
f.skrd. 21.01.1999, ekin 32
þ. km. 17" álfelgur, sóllúga,
leöurínnrétting, spoiler, blár,
ssk. Verð kr 3.690.
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu, sfmi 569 5500.
Opnunarcími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16 ,
BÍLAÞINGðEKLU
Mvmcr o'rtf f nofv?vw t>(lvm!
Laugavegi 174,105 Reykjavlk. slmi 569-5500
www.bilathinq.is • www.bilathing.is