Morgunblaðið - 29.08.2000, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá stofnfundi Landssambands íslenskra fiskiskipaeigenda, LÍF, sem
haldinn var á Kænunni í Hafnarfirði.
Vilja stjórn físk-
veiða í takt við lög
Landssamband íslenskra fískiskipa-
eigenda, LÍF, var stofnað um helgina
LANDSSAMBAND íslenskra fiski-
skipaeigenda, LÍF, hyggst berjast
fyrir því að framkvæmd fiskveiði-
stjórnunar verði færð í takt við gild-
andi lög, en samtökin voru formlega
stofnuð á laugardag. Þá segja sam-
tökin að starfsemi Kvótaþings brjóti
í bága við bókhalds- og skattalög.
Alls sóttu um 30 manns stofnfund
samtakanna, en að sögn Guðbjörns
Jónssonar, sem kjörinn var formað-
ur samtakanna á fundinum, eru
skráðir félagar nú á bilinu 80 til 90.
„Það var mikill hugur í fundarmönn-
um og samstaða góð og málefnalegar
og skemmtilegar umræður.“
Helstu baráttumál LÍF eru að
sögn Guðbjörns að ná til baka afla-
heimildum sem hafa á undanförnum
árum færst af bátum yfír á togarana.
„Þannig viljum við koma fram-
kvæmd fiskveiðistjómunar í takt við
gildandi lög en markmið þeirra er
uppbygging atvinnu og byggðar í
landinu. Hinsvegar hefur stjórnunin
haft þveröfug áhrif hingað til. Afla-
heimildum hefur verið haldið í lok-
aðri úthlutun til örfárra aðila. Þetta
hefur viðgengist þvert ofan í ákvörð-
un Hæstaréttar í Valdimarsdómn-
um, um að þessari reglu verði ekki
haldið til frambúðar.
Reyndar auglýsi ég eftir einhverj-
um þætti í stjórn fiskveiða sem
stenst Iög.“
LÍF hefur í bréfi til sjávarútvegs-
ráðherra óskað eftir að hann gefi upp
þau lög eða samþykktir sem Alþingi
hefur sett til gjaldtöku fyrir leigu og
sölu aflaheimilda. „Fiskistofnamir
era í eigu þjóðarinnar og því þarf Al-
þingi að gefa samþykki sitt fyrir sölu
eða leigu. Við höfum hinsvegar engin
viðbrögð fengið frá ráðuneytinu.“
Guðbjöm segir starfsemi Kvóta-
þings íslands einnig vera margfalt
brot á landslögum. „Kvótaþing er
ekki ennþá farið að starfa eftir þeim
lögum sem því voru sett og brýtur í
bága við bæði bókhalds- og skatta-
lög. Einn af brotaþáttum Kvótaþings
er að tilgreina ekki virðisaukaskatt
af því leigugjaldi sem innheimt er
vegna kvótaviðskipta. Útvegsmenn,
sem leigja til sín aflaheimildir, hafa
vegna þessa verið að greiða mun
hærri virðisaukaskatt en þeim raun-
veralega ber,“ segir Guðbjöm.
Fyrirhugaðar veiðar Japana á búrhval og skorureyði
Japanskur hvalveiðibátur leggur úr höfn í Shimonoseki í iok júlí.
Reuters
Sæta harðri gagn-
rýni þjóðarleiðtoga
ÁÆTLANIR japanskra hvalveiði-
manna á Kyrrahafi um að veiða ekki
aðeins hrefnu við Suðurskautslandið
og í norðurhluta Kyrrahafs heldur
einnig búrhvali og tegund er nefnist
skorureyður í Kyrrahafi hafa valdið
hörðum mótmælum víða um heim.
Bandaríkjamenn, sem era með búr-
hvalinn á lista yfir tegundir í útrým-
ingarhættu, hafa jafnvel hótað Jap-
önum viðskiptarefsingum. En rök
Japana era m.a. að þeir þurfi að
kanna hvort ástæðan fyrir uppgangi
stofna búrhvala og skorareyða stafi
af því að hvalirnir éti fisk sem fiski-
menn þjóðarinnar myndu ella kló-
festa, að sögn dagblaðsins The
Washington Post. Vísindaráð Al-
þjóða hvalveiðiráðsins, IWC, segir á
hinn bóginn að hægðarleikur sé að
afla slíkra upplýsinga án þess að
drepa fjölda dýra.
Fulltrúar umhverfisverndarsam-
taka segja að talning á hvölum sé
byggð á afar vafasömum aðferðum,
um ágiskanir sé að ræða, og krefjast
þess að hvalastofnarnir verði látnir
njóta vafans, þeir séu alls ekki veidd-
ir. Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, og Helen Clark, forsætisráð-
herra Nýja-Sjálands, hafa öll lýst yf-
ir eindreginni andstöðu sinni við
fyrirhugaðar veiðar Japana á stór-
hvelum og ritað þeim bréf til að tjá
vanþóknun sína. Madeleine Ál-
bright, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, gagnrýndi hvalveiðarnar
óbeint á samkomu sem haldin var
henni til heiðurs í Japan í sl. mánuði,
að sögn The Washington Post.
„Ekki fer milli mála að Japanar
era að brjóta gegn vilja almennings-
álitsins í heiminum," sagði Joseph
Liebennan, varaforsetaefni demó-
krata, í bréfi í byrjun mánaðarins.
Þar krafðist hann þess að gripið yrði
til viðskiptalegi'a refsiaðgerða til að
„vemda þessi glæsilegu dýr fyrir
frekari slátrun".
En Japanar þrjóskast við og
harðneita að hætta við áformin.
Margir þeirra segja að veiðibannið
sé byggt á tilfmningasemi og spyrja
hvaða dýr megi þá yfírleitt éta ef
ekki megi nýta hvali. Að sögn heim-
ildarmanns í stjórnsýslunni var það
sjálfur forsætisráðherrann, Yoshiro
Mori, sem samþykkti að hafnar yrði
veiðar á umræddum stórhvelum.
„Þetta er spurning um grandvallar-
atriði, um þjóðarstolt,“ sagði em-
bættismaðurinn.
Margir líta svo á að Japanar noti
hugtakið vísindaveiðar sem skálka-
skjól til að stunda áfram veiðar í at-
vinnuskyni. Hvalkjöt er mjög eftir-
sótt á japönskum mörkuðum en
stjórnvöld fullyrða að hagnaðurinn
af kjötsölunni renni allur til rann-
sóknanna. Löng hefð er fyrir neyslu
hvalafurða í landinu.
Deilt um gæði
norska laxins
Osló. Morgunblaðið.
„ÞAD verður að afnema laxasam-
komulag Noregs og Evrópusam-
bandsins. Þann hefur enga þýðingu
lengur, en hann hefur haft neikvæð
áhrif á gæði laxins,“ segir Peder
Hyldtoft, framkvæmdastjóri sam-
taka fiskiðnaðarins og útflytjenda.
Hyldtoft segir í samtali við norska
blaðið Aftenposten að gæðum eldis-
laxins fari hrakandi og það eigi ekki
aðeins við um þann norska. Samn-
ingurinn við EB hafi orðið til þess að
framleiðendur hafi hugsað minna um
gæði en áður. „Samkvæmt samn-
ingnum ræðst verðið ekki af gæðum
laxins og ekki er hægt að verðleggja
hann eftir því hvort gæði era mikil
eða slök. Það má ekki selja fiskinn
undir lámarksverði, þrátt fyrir að
gæðin séu lítil. Nú líður markaður-
inn fyrir mjög hátt verð og lítið fram-
boð,“ segir hann. Hann segir að lax-
inn, sem sé framleiddur nú sé ekki
eins góður og fyrir fimm til tíu áram
og það stafi af dýrapróteinum í fóðr-
inu, það sé öðravísi blandað en áður.
Laxinn vaxi hraðai- af nýja fóðrinu,
en það leiðir til þess að fitan dreifist
öðruvísi á holdið en áður, en þetta sé
ekki sérstakt norskt vandamál, það
þekkist víðar.
„Við höfum rætt þetta mikið við
norska framleiðendur og ég skil ekki
að þeir skuli ekki hafa gert neitt í
málinu. Það vantar hreinskilni í
svona málum, en við göngum hrein-
lega á vegg eins og það sé algjört
leyndarmál hvert innihald fóðursins
er og þá fer mann að grana ýmis-
legt,“ segir Hyldtoft.
„Það er alltaf sama sagan, þegar
verð á norska laxinum er of hátt, þá
fáum við kvartanir," segir Tarald Siv-
ertsen, framkvæmdastjóri samtaka
laxeldismanna í Noregi. Hann segir
ennfremur að séu gæðin slök sé það
hinum dönsku reykhúsum að kenna,
en ekki norskum framleiðendum.
„Það er bara verðið sem skiptir
máli fyrir kaupendur á laxinum. Þeir
hafa aldrei verið tilbúnir til að borga
fyrir gæði. En ég skil þá, því mark-
aðurinn fyrir lax hefur verið þeim
mjög erfiður. Hvað næringargildi
varðar hafa gæði aldrei verið meiri
en nú, en sé talað um lit eða fituhlut-
fall má alveg ræða málið,“ segir
Sivertsen.
Framkvæmdastjóri Hydro Sea-
food segir að meiri spenna sé á
markaðnum en áður, en slíkt eigi
einnig við um önnur matvæli. Margir
kaupendur taki fram hvernig gæði
þeir viljí og við óskum þeirra sé orð-
ið. Vidar Julien, upplýsingafulltrúi
Nutreeo Aqua Culture, sem meðal
annars á fóðurframleiðandann
Skretting, segir að ekki sé um neitt
leyndarmála að ræða, allt verði gefið
upp. „Við getum sjálfsagt bætt okk-
ur, en þetta snýst um matvælaöryggi
og í því tilfelli verður allt að vera
ljóst. Hann segir að framleiðandinn
muni nú veita upplýsingar um inni-
hald fóðursins og hvernig það sé
framleitt á heimasíðu fyrirtækisins.
Stöðvið hvala-
dráp Japana
UM LEIÐ og Clinton forseti undir-
ritaði lög um vemdun úthafanna
juku Japanar hvalveiðar sínar á
norðurhluta Kyrrahafs. Japanar
hunsa óskir frá Clinton forseta,
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands og íleiri þjóðarleiðtogum og
ætla að ganga lengra en að veiða
hrefnur, þeir ætla nú einnig að
veiða búrhvali og skorareyðar.
Vísindaveiðar Japana hófust
1987 og þá veiddu þeir um það bil
300 hrefnur, nú veiða þeir að jafn-
aði um 440 hrefnur á ári í höfunum
við Suðurskautslandið. Árið 1994
færðu þeir út kvíamar í þessum
banvænu rannsóknum sínum og
fóra að veiða á norðurhluta Kyrra-
hafs þar sem þeir veiða nú um 100
hrefnur árlega. Fyrir skömmu
sögðu þeir frá áformum sínum um
að veiða 10 búrhvali og 50 skora-
reyðar.
Alþjóðahvalveiðiráðið, IWC,
bannaði hvalveiðar í atvinnuskyni
um miðbik níunda áratugarins.
Japanar nýttu sér þá undanþágur í
samningnum og hófu banvænar
rannsóknir í höfunum við Suður-
skautslandið. Flest aðildarríki IWC
gengu í Uð með Bandaríkjunum og
beittu sér gegn því að hvalir væra
drepnir í rannsóknaskyni og sam-
þykktar hafa verið fjölmargar
ályktanir - síðast í Ástralíu í júlí -
Norman Y. Minota
er viðskiptamála-
ráðherra Bandríkj-
anna og eftirfarandi
grein eftir hann
birtist í dagblaðinu
The Washington Post
á sunnudaginn.
þar sem Japanar vora hvattir til að
binda enda á rannsóknaverkefnið.
Þau rök Japana að drepa verði
alla þessa hvali til að safna vísinda-
legum upplýsingum era út í hött.
Félagar í vísindanefnd IWC hafa
margoft gagnrýnt forsendumar
fyrir hvalveiðum Japana. Banda-
ríkjamenn og sendinefndh’ fleiri
þjóða hafa jafnvel boðið Japönum
vísindalega aðstoð við að gera rann-
sóknir og safna gögnunum sem sóst
er eftir án þess að drepa dýrin.
Annað sem veldur áhyggjum er
að kjötið sem fellur til vegna veið-
anna ratar á markaði í Japan og
matseðla veitingahúsanna. Vísinda-
veiðar Japana ógna ekki einvörð-
ungu hvölum, sem ekki hafa þurft
að óttast byssur hvalveiðimanna
síðan 1987, þær ógna einnig alþjóð-
legu banni við hvalveiðum í at-
vinnuskyni. Við óttumst að færi
Japanar út kvíamar og fari líka að
veiða stórhveU sé markmiðið að
hvetja til þess að skrefið verði tekið
til fulls og atvinnuveiðar hafnar á
ný-
Ríkisstjóm Clintons og Gore og
fleiri ríkisstjómir beita sér af mikl-
um krafti gegn nýjustu hugmynd-
um Japana um að veiða búrhvaU og
skorureyðar. Japanar hafa vahð
þann kost að hunsa þessi tilmæli og
við eram þess vegna að íhuga ráð-
stafanir, þ. á m. viðskiptalegar að-
gerðir í samræmi við Pelly-ákvæði
laganna varðandi vemdun fiski-
manna frá 1967. Innan skamms
mun ég verða að ákveða hvort ég
bið forsetann að íhuga að beita við-
skiptalegum refsiaðgerðum gegn
Japönum.
Bæði Bandaríkjamenn og Jap-
anar eiga sér hefð fyrir hvalveiðum.
í fornfrægum hvalveiðimiðstöðvum
okkar hafa hvalaskoðunarbátar
komið í stað hvalveiðibáta, þetta
kemur hvölunum sjálfum til góða
og byggðarlögum sem áður áttu allt
sitt veiðunum.
Það er orðið tímabært fyrir Jap-
ana að leyfa þessum stórkostlegu
dýram að ná sér aftur á strik eftir
margra áratuga veiðar.