Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ný borgararéttindaskrá Evropusambandsins Pólitísk yfírlysing eða bindandi sáttmáli? Berlín. Reuters. ROMAN Herzog, fyrrverandi for- seti Þýzkalands, segir að ríkis- stjórnir hinna 15 aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) verði að taka ákvörðun um hvort evrópskur sáttmáli um borgaraleg réttindi, sem hann hefur tekið þátt í að móta, eigi að vera lagalega bindandi eður ei. „Ljóst er að Evrópa [les: ESB] er sífellt að verða máttugri og eftir því sem henni vex ásmegin verður að setja henni reglur um grund- vallarréttindi borgaranna," sagði Herzog á blaðamannafundi með Joschka Fischer, utanríkisráð- herra Þýzkalands, í Berlín á föstu- dag. Herzog er formaður sérfræð- inganefndar, sem unnið hefur að gerð slíkrar borgararéttindaskrár. „Ráðherraráð sambandsins verður að taka ákvörðun um hvort réttindaskráin verði pólitísk yfir- lýsing eða verði lagalega bind- andi,“ sagði hann. Hópurinn sem væri að móta þétta plagg væri að reyna að orða það þannig, að það geti verið hvort sem er - pólitísk yfirlýsing eða bindandi sáttmáli - án þess að þurfa endurskoðunar við. Brezkir ráðamenn hafa lýst því yfir að þeir vilji að borgara- réttindaskráin, sem til stendur að verði gengið endanlega frá á leið- togafundi ESB í Nizza í Suður- Frakklandi í desember, verði póli- tísk yfirlýsing sem sé samantekt á gildandi réttindum, frekar en að bæta nýjum bindandi reglum við þær sem fyrir eru. Málamiðlun Herzog sagði að það uppkast sem nú lægi fyrir að réttinda- skránni væri málamiðlun milli sjónarmiða þeirra, sem vildu að slíkt skjal innihaldi ákvæði um fé- lagsleg réttindi - Frakkar vilja þetta - og þeirra sem vilja þetta ekki - eins og Breta. Sagðist Herzog sannfærður um að skráin hlyti góðar undirtektir á leiðtoga- fundinum í desember. Leiðtogar ESB-ríkjanna sam- þykktu á fundi sínum í Köln, við lok formennskumisseris Þýzka- lands vorið 1999, að semja skyldi skjal sem gæti orðið ígildi mann- réttindakafla ESB-stjórnarskrár og ætti að byggjast á Mannrétt- indasáttmála Evrópu. Herzog tók þó skýrt fram á Roman Herzog, fv. forseti Þýzkalands (t.v.), og utanríkisráðherrann Joschka Fischer upplýstu fjölmiðlafólk í Berlín um stöðu mála við samn- ingu réttindaskrár fyrir borgara ESB. blaðamannafundinum að ekki bæri að líta á þennan texta sem vísi að stjórnarskrá evrópsks sambands- ríkis, eins og efahyggjumenn um Evrópusamrunann, einkum meðal brezkra íhaldsmanna, hafa gjarnan gert. Fischer, sem í maí sl. kom af stað mikilli umræðu um framtíð Evrópusamrunans með því að út- mála framtíðarsýn um evrópskt sambandsríki, sagði að aðeins tím- inn gæti leitt í ljós hvernig borgararétt- indaskráin pass- aði inn í hugsan- lega framtíðar- stjórnarskrá ESB. Prodi sagður þrýsta á um snör enda- A lok Austurrfkisdeilunnar Ottast neikvæð áhrif á EMU- afstöðu Dana EVROPA^ Brusscl. The Daily Telegraph. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins (ESB) reynir nú að þrýsta á um að einangrunaraðgerð- um ESB-ríkjanna gegn Austurríki verði hætt sem fyrst, vegna ótta um að þessi meðhöndlun Austurríkis skapi sambandinu svo óvinsæla ímynd í Danmörku að hún gæti gert að engu vonir um að Danir samþykki að taka upp evruna í þjóðar- atkvæðagreiðslu eftir mánuð. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, hefur sjálfur látið til sín taka í málinu með því að óska eftir því að frágangi skýrslu „vitringanefndarinnar“ svokölluðu, sem falið var að gera óháða úttekt á stöðu mannréttinda- og lýðræðis- mála í Austurríki, verði flýtt, svo að binda megi endahnútinn á Austur- ríkisdeiluna áður en Danir ganga að kjörborðinu um þátttöku í Efna- hags- og myntbandalaginu (EMU) hinn 28. september. Kemur þetta fram í danska blaðinu Berlingske Ti- dende. Prodi setti sig í samband við hina þriggja manna „vitringanefnd" og gaf tii kynna að felldi nefndin nei- kvæðan dóm um ástandið í Austur- ríki yrði slíkt til að spilla fyrir fram- gangi Evrópu- samrunans. Eins og kunnugt er hófust einangrun- araðgerðir ESB- ríkjanna 14 gegn Ættu að kjósa árið 2004 Varsjá, Bratislava. AFP, Keuters. PÓLVERJAR og aðrar þjóðir í Mið- og Austur-Evrópu sem eru á leið inn í Evrópusambandið (ESB), ættu að fá að kjósa í næstu Evrópuþing- kosningum árið 2004 sem fullgildir ESB-borgarar. Þetta er álit Nicole Fontaine, forseta Evrópuþingsins. „Við hjá Evrópuþinginu vonum að næstu Evrópuþingskosningar árið 2004 fari fram með þátttöku nokkurra umsóknarríkjanna, þar á meðal Póllands," tjáði Fontaine blaðamönnum í Varsjá í gær, eftir viðræður hennar við pólska for- sætisráðherrann Jerzy Busek. Sagði Fontaine að það væri fram- kvæmanlegt, að Pólland fengi inn- göngu f ESB árið 2003, eins og þar- lend stjórnvöld stefna að. Ráðamenn ESB-ríkjanna hafa flestir ekki viljað festa neina dag- setningu fyrir næstu stækkunar- lotu sambandsins. Ólikt Fontaine vildi þýzki utanríkisráðherrann Joschka Fischer, staddur í vinnu- heimsókn í Slóvakfu, ekki láta hafa neitt eftir sér um það hvenær hann teldi raunhæft að af næstu stækk- un sambandsins verði. Sagði Fisch- er það vera grundvallarforsendu fyrir því að hægt verði að taka inn ný aðildarrfki að komnar verði til framkvæmda þær breytingar á stofnanakerfi og ákvarðanatöku ESB sem lengi hefur verið unnið að. Austurríki í byrjun febrúar sl., í mótmælaskyni við að hinn umdeildi Frelsisflokkur (FPÖ) skyldi fá aðild að ríkisstjórninni í Vín. Er Prodi sagður hafa tjáð nefnd- inni, sem Martti Ahtisaari fv. Finn- landsforseti fer fyrir, að aðgerðirnar gegn Austurríki gætu styrkt stöðu þeirra sem reka áróður gegn EMU- aðild Danmerkur og jafnvel gert út- slagið um að Danir höfnuðu evrunni. I höfuðstöðvum ESB í Brussel þykir mikið undir því komið að Dan- ir samþykki að taka upp evruna, ef takast á að endurreisa traust á Evrópumyntinni og ryðja brautina fyrir inngöngu Bretlands í mynt- bandalagið. Bráðabirgðaniðurstaða jafnvel í vikunni „Vitringanefndin“ kom saman í gær og hóf að gera uppkast að loka- skýrslu sinni. Hún hafði áður ákveð- ið að engar frekari vettvangsheim- sóknir til Austurríkis væru nauðsynlegar. Er reiknað með því að skýrslan verði frágengin eftir tvær til þrjár vikur, en að sögn heimildarmanna Daily Telegraph innan framkvæmdastjómarinnar má jafnvel vænta þess að nefndin upplýsi um bráðabirgðaniðurstöður sínar strax næsta föstudag og lýsi því yfir að mannréttindi og lýðræði í Austurríki séu við beztu heilsu og því mæli nefndin með því að refsiað- gerðunum verði hætt. Er þess vænzt að „vitringamir“ álykti sem svo, að meðhöndlun inn- flytjenda- og flóttamannamála í Austurríki sé vel innan þeirra marka sem tíðkast annars staðar í ESB. Þeir hafi ekki fundið neinar vísbend- ingar um brot stjómvalda á Mann- réttindasáttmála Evrópu. Öðru máli gegni um þann kafla skýrslu nefndarinnar, sem fjallar um „pólitískt eðli“ Frelsisflokksins. Reikna megi með því að þar verði tónnin öllu gagnrýnni, en þó telji nefndarmenn ekki tilefni til að lýsa flokkin siðferðislega óhæfan til að fara með völd í aðildarríki sam- bandsins. Það verður síðan komið undir frönsku stjóminni, sem gegnir for- mennsku í ESB þetta misserið, hvert næsta skref verður í málinu. I í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.