Morgunblaðið - 29.08.2000, Side 28
28' ÞRIÐ J'U D AGUR 29.' ÁGÚST 2000
MOBGUNBLAÐIÐ
ERLENT
A Miklar skemmdir á Ostankino-sjónvarpsturniiium í Moskvu
Astæða eldsvoðans
sögð skammhlaup og
skortur á viðhaldi
Moskva. AP, AFP, Reuters, Daily Telegraph.
TALSMENN slökkviliðsins í
Moskvu greindu frá því síðdegis í
gær að búið væri að slökkva eld
sem upp kom í Ostankino-sjón-
varpsturninum í Moskvu á sunnu-
dag. Turninn skemmdist verulega
í eldinum og hafa yfirvöld lýst því
yfír að svo kunni að fara að turn-
inn hrynji. Slökkviliðsmenn höfðu
þó, að sögn fréttastofu BBC, náð
að bera út lík fjögurra einstakl-
inga sem fórust í eldhafinu eftir að
hafa fest í einni af lyftum turnsins
í 270 metra hæð.
Ostankino-sjónvarpsturninn er
540 metrar á hæð og annað hæsta
mannvirkið á heimsvísu - á eftir
CN-turninum í Toronto í Kanada.
Hann hefur undanfarin 33 ár verið
eitt helsta kennileiti og vinsælasti
ferðamannastaður borgarinnar.
Skammhlaup er talið hafa valdið
eldinum sem varð fyrst vart um
hálffjögurleytið á sunnudag og
voru upptök eldsins rúma 100
metra fyrir ofan útsýnispall og
veitingastað á snúningsöxli, sem er
um 340 metra frá jörðu. Ekki urðu
nein alvarleg slys á gestum, sem
tókst að forða sér út áður en eld-
urinn læsti sig niður eftir turnin-
um, þótt nokkrir hafi þurft á að-
stoð að halda vegna minni háttar
meiðsla.
Fjórir fórust
Þrír slökkviliðsmenn og starfs-
maður lyftu fórust hins vegar í
eldsvoðanum er þeir festust í 270
metra hæð í einni af fjórum lyftum
sjónvarpsturnsins. Gengu björgun-
arstörf erfiðlega, en slökkviliðs-
mennirnir voru á leið upp að eld-
stað í lyftunni er rafmagn fór af.
Turninn, sem er tvisvar sinnum
hærri en hinn franski Eiffel-turn,
er of hár til að slökkviliðsmenn
hafi geta notað hefðbundnar að-
ferðir við störf sín og urðu þeir
ýmist að fara fótgangandi upp í
Ostankino-turninn með slökkvi-
búnað sinn, eða nota þyrlur sem
úðuðu sérstöku efni á turninn er
hefta átti frekari útbreiðslu elds-
ins.
Á þriðja hundrað slökkviliðs-
manna unnu dag sem nótt við að
ráða niðurlögum eldsins og hafði
BBC eftir einum yfirmanna
slökkviliðsins að hitinn væri slíkur
að stigar í turninum svignuðu.
Heldur þótti hafa dregið úr
brunanum á sunnudagskvöldið, en
um miðnætti hafði eldurinn engu
að sfður náð að læsa sig í um
helming byggingarinnar. Innviðir
loguðu þá víða, reykur og hiti
fylltu ganga og svo virtist sem
eldvarnir sjónvarpsturnsins kæmu
að litlu sem engu gagni. Það var
síðan um miðjan dag í gær að
slökkviliðsmenn, sem segja efsta
hluta turnsins gjöreyðilagðan, til-
Aðstæður til björgunarstarfa voru erfiðar og urðu slökkviliðsmenn m.a.
að klífa upp hundruð stiga með búnað sinn áður en þeir náðu á eldstað.
Reuters
Þyrlur voru notaðar til að hefta útbreiðslu eldsins sem upp kom í Ost-
ankino-sjónvarpsturninum í Moskvu á sunnudag.
kynntu að þeir hefðu náð stjórn á
útbreiðslu eldsins þótt enn mætti
sjá eldglæringar á stöku stað.
Vegna þeirra miklu skemmda
sem orðið hafa á sjónvarpsturnin-
um er talin viss hætta á að hann
kunni að hrynja og því mun e.t.v.
reynast nauðsynlegt að rífa hann.
Fjöldi stálkapla, sem notaðir voru
til að veita Ostankino-turninum
nauðsynlegan stuðning eru illa
skemmdir eftir brunann, auk þess
sem efsta spíra turnsins hefur
svignað eina tvo metra út frá
miðju. Sagði Viktor Klinkin, tals-
maður slökkviliðsins, öryggissveit-
ir áhyggjufullar vegna þessa.
„Ég get engan fullvissað um að
turnbyggingin taki ekki einhverj-
um breytingum," sagði Klinkin.
Hafa yfirvöld lýst svæðið í allt að
700 metra fjarlægð frá turninum
bannsvæði og hefur þurft að
bægja frá þúsundum manna sem
safnast hafa saman til að fylgjast
með brunanum.
Ostankino-sjónvarpsturninn var
reistur á árunum 1960-1967 í til-
efni af 50 ára afmæli byltingarinn-
ar 1917 og þótti hann einstakt
dæmi um tækniþekkingu Sovét-
manna.
Algjört sjónvarpsleysi
Á undanförnum árum hefur út-
sendingarbúnaði fyrir bæði sjón-
varp og útvarp, sem og ýmsum
öðrum sendibúnaði, verið komið
fyrir á turninum í síauknu magni.
Turninum sjálfum hefur hins veg-
ar ekki verið við haldið og var ör-
BRUNINN I OSTANKINO-TURNINUM í MOSKVU
Siökkviliðsmenn greindu frá því í gær að tekist hefði að ráða
niðurlögum eldsins. Enn er þó óttast að turninn kunni að hrynja.
Lokað . 'LW
Ostankino-turninn
Eifflel-tuminn,
París (300m)
REUTERS ^
-540 metrar
Fullhæð
-100-450 metrar
Á þessu svæði
brann eldur
- 334 metrar
Veitingastaðurinn ___V Ostankinö*
Sjöundi himinn
- 271 metrar
2 til 4 fastir
ílyftu
Ostankino sjónvarpsturninn
-136 metrar
Burðarkaplar World Trade Center,
skemmdiraf NewYorkf4,7mJ ‘
völdum elds
yggiskerfi hans því í mörgu ábóta-
vant. „Það er nokkuð ljóst að
öryggis- og brunavarnakerfí turns-
ins var úrelt,“ sagði Edvard
Sagalaíjev, yfirmaður samtaka
rússneskra sjónvarps- og útvarps-
fyrirtækja, í viðtali við ITAR-
Tass-fréttastofuna.
íbúar Moskvu búa nú við algjört
sjónvarpsleysi, utan þá fáu sem
aðgang hafa að kapalstöðvum, en
útsendingar 12 sjónvarpsstöðva
féllu niður í kjölfar eldsvoðans,
auk þess sem truflanir urðu á
útsendingum myndbandsefnis og
útvarps, sem og samskiptabún-
aði lögreglu og sjúkrahúsa.
Utsendingar hófust þó fljótlega
á ný með aðstoð gervihnatta, sem
gagnast öðrum héruðum landsins.
Talið er hins vegar að nokkrir
dagar muni líða þar til Moskvu-
búar hafi aðgang að sjónvarpi á
ný. Að sögn fíeuters-fréttastof-
unnar telja rússneskir sálfræðing-
ar að búast megi við aukinni
taugaveiklun meðal margra í kjöl-
far sjónvarpsleysisins.
„Það verður erfitt að vera án
sjónvarpsins," sagði Anna, einn af
ellilífeyrisþegum Moskvu. „Þetta
er ein leið fyrir okkur til að
gleyma öllum þeim hörmungum
sem dunið hafa yfir Rússland og
liggja svo þungt á fólki. Mér finnst
eitthvað vanta.“
Vladímír Pútín, forseti Rúss-
lands, sem sætti mikilli gagnrýni
fyrir sein viðbrögð er kafbáturinn
Kúrsk sökk nýlega, var sneggri að
grípa í taumana að þessu sinni.
Sagði hann slæmar efnahagsað-
stæður í landinu eiga stóran þátt í
brunanum, en stjórnvöld í Rúss-
landi hafa áður varað við þeim
hættum sem lélegu viðhaldi og
slæmum efnahag landsins fylgi. Of
lítið sé lagt í viðhald á flugvélum,
jafnt sem lyftum, og því sé öryggi
víða í lágmarki.
Nú fyrr á árinu lýsti ráðuneytið
sem sér um neyðaraðstoð á vegum
rússnesku ríkisstjórnarinnar því
til að mynda yfir að slysagildrur
væri nú víða að finna í Rússlandi
vegna lélegs viðhalds og gamals
búnaðar.
Hagamýs á Svalbarða
bera hættulegt smit
KOMIÐ hefur í ljós að hagamýs á
Svalbarða bera með sér sníkilsmit
sem getur verið banvænt, að því
er greint er frá á fréttavef breska
ríkisútvarpsins, BBC. Hafa yfir-
völd ákveðið að bjóða öllum börn-
um á eyjunum blóðrannsókn, en
segja að frekari aðgerða sé þörf
til þess að draga úr hættunni.
Tveir vísindamenn munu þegar
hafa smitast af sníklinum, sem
getur valdið banvænum lifrar-
sjúkdómi. Hafði annar þeirra
unnið á því svæði þar sem smit-
hætta er mest í aðeins einn dag.
Yfirmaður umhverfisverndarmála
á eyjunum, Carl Erik Kilander,
sagði við fréttavef BBC að menn
hefðu áhyggjur af málinu en væru
„ekki skelfdir“ því sá hópur fólks
sem væri í hættu væri lítill. íbúar
á Svalbarða eru innan við 3.000,
en um 14 þúsund ferðamenn
heimsækja eyjarnar árlega.
I ljós kom í fyrra að hagamýs
voru hýslar fyrir bandorm sem á
seinni hluta ævi sinnar lifir í
hundum og refum og öðrum dýr-
um af hundakyni. Dýr smitast af
orminum með því að éta mýsnar.
Egg bandormsins ganga niður af
dýrunum og geta síðan borist í
fólk, t.d. ef það strýkur dýrunum.
Eggin berast í lifrina, klekjast út
og geta þar myndað blöðrur sem
geta verið banvænar ef þær eru
ekki fjarlægðar.
Meðgöngutími sjúkdómsins
getur verið allt að 15 ár. Hefur
um 100 fyrrverandi námsmönn-
um, sem stunduðu rannsóknir á
Svalbarða, verið skrifað og þeir
varaðir við og mælt með því að
þeir gangist undir blóðrannsókn.
Ibúar eyjanna hafa verið beðnir
um að þvo hendur sínar eftir að
hafa snert hunda eða refi og sjóða
vatn sem kemur úr ám og lækj-
um.
Vísindamenn eru beðnir um að
nota hanska þegar þeir með-
höndla refi.
Hafa allir hundar í stærsta
bænum á eyjunum, Longyear-
byen, verið rannsakaðir. Flestir
eru þeir sleðahundar. Sníkillinn
mun líka geta lifað í köttum, en
þeir eru bannaðir á Svalbarða
þótt vitað sé að nokkrir séu
haldnir í rússnesku bækistöðinni
Barentsburg.
Engin formleg aðvörun hefur
verið gefin út fyrir ferðamenn, en
Kilander sagði að huga þyrfti að
því að gefa út slíka aðvörun.