Morgunblaðið - 29.08.2000, Page 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
MORGTJNBLAÐIÐ
ERLENT
Þrír Israelar
féllu fyrir kúl-
um samherja
Nablus á Vesturbakkanum. AFP.
Clinton Bandaríkjaforseti heimsækir Afríkulönd
Clinton var vel fagnað í nígeríska bænum Ushafa. Hann er klæddur kufli er höfðingi staðarins gaf honum.
Hvetur til málamiðl-
unar í Búrúndí
Arusha. AP, Reuters.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti og
Nelson Mandela, fyrrverandi forseti
Suður-Afríku, reyndu í gær í samein-
ingu að blása nýju lífi í tilraunir til að
binda enda á þjóðernisátök í Afríku-
ríkinu Búrúndí. Átökin hafa staðið í
sjö ár og kostað um 200.000 manns
lffið. Clinton hyggst koma við í Kaíró
á heimleiðinni frá Afríku og eiga
fund með Hosni Mubarak Egypta-
landsforseta um friðarsamninga
Israela og Palestínumanna.
„Þið og aðeins þið getið ákveðið
hvort börnin ykkar munu eiga bjarta
fi-amtíð,“ sagði Clinton er hann
ávarpaði tólf afríska þjóðarleiðtoga
sem taka þátt í friðarviðræðunum
um Búrúndí sem eru haldnar í Ar-
usha í Tanzaníu og Mandela stýrir.
Tvær þjóðir berjast um völdin í Búr-
úndí,annars vegar Hútúar, sem eru
mun fjölmennari og hins vegar Túts-
ar er hafa nú töglin og hagldirnar í
stjórn landsins.
Samkomulag virtist vera í höfn en
forseti Búrúndí krafðist þess skyndi-
lega í gær að gerðar yrðu breytingar
á skilmálum um valdahlutfóll. Clint-
on hvatti til þess að fundin yrði mála-
miðlun og hét því að Bandaríkja-
menn myndu veita aðstoð við lausn
ýmissa vandamála, þ. á m. alnæmis-
faraldursins sem er alvarleg ógn á
þessum slóðum.
Svo fór að fimm af alls tíu hópum
Tútsa undirrituðu friðarsamning auk
níu samtaka sem vitað var að myndu
styðja samkomulagið. En stjómvöld
bentu á að sumir vopnaðir hópar
hafa ekki tekið þátt í samningavið-
ræðunum og því óvíst um árangur-
inn. Var því ákveðið að undirrita
samninginn ekki við hátíðlega athöfn
í viðurvist Clintons en þess í stað var
tækifærið notað til að hylla Mandela.
Fyrir fundinn í Arusha var tekið á
móti Clinton og Chelsea Clinton,
dóttur forsetans, í borginni með
listamönnum er börðu bumbur á al-
þjóðaflugvellinum Kilimanjaro.
Bandaríski forsetinn hóf Afríku-
ferð sína á laugardag er hann kom til
fjölmennasta lands Afríku, Nígeríu,
þar sem hann ávarpaði meðal annars
þingið. Hann hrósaði Nígeríumönn-
um fyrir þær framfarir sem orðið
hafa í lýðræðisátt í landinu.
PALESTÍNUMENN sögðu í gær
að þeir mundu draga fyrir dóm-
stóla einn eftirlýstasta hryðju-
verkamann í Israel, eftir að þeir
tóku hann höndum í kjölfar mis-
heppnaðrar tilraunar ísraela til að
ná honum. Þrír ísraelskir hermenn
féllu, að því er virðist fyrir byssu-
kúlum eigin liðsmanna, í tilraun-
inni.
Hryðjuverkamaðurinn, Mahmud
Abu Hannud, er leiðtogi í Hamas-
samtökunum og er eftirlýstur fyrir
fjölda hryðjuverka sem hafa orðið
tugum Israela að bana. Hann
særðist en náði að flýja eftir
skotbardaga við ísraelska úrvals-
sveit í þorpinu Assira á Vestur-
bakkanum á laugardagskvöldið.
Israelskir fjölmiðlar hafa harm-
að fall hermannanna þriggja, sem
talið er að hafi orðið fyrir kúlum
úr byssum liðsmanna sinna, og
ísraelskir embættismenn hafa
krafist þess að Abu Hannud verði
afhentur ísraelskum yfirvöldum.
Samkvæmt Óslóarsamkomulagi
Israela og Palestínumanna, sem
Hamas-samtökin eru eindregið
andvíg, þarf hvorugur að afhenda
hinum grunaða afbrotamenn sem
nást.
Hamas-liðar segja að Yasser
Arafat, forseti heimastjórnar Pal-
estínumanna, hafi fullvissað þá um
að Abu Hannud, sem er á sjúkra-
húsi með skotsár á baki og öxl,
verði áfram í haldi Palestínu-
manna. Palestínskur öryggisdóm-
stóll mun rétta í máli hans um leið
og palestínska lögreglan hefur lok-
ið rannsókn málsins og Abu Hann-
ud grær sára sinna, að sögn
dómsmálaráðherra Palestínu-
manna.
Kæruleysi og mistök
í árásinni á laugardagskvöld
handtóku ísraelskir hermenn fjóra
Hamas-liða, og hafa palestínskar
öryggissveitir síðan handtekið átta
á norðurhluta Vesturbakkans.
ísraelski herinn hefur hafið rann-
sókn á dauða hermannanna
þriggja, en ísraelsk blöð kenna um
kæruleysi og mistökum úrvals-
sveitarinnar. Fyrir hálfum mánuði
var aldraður Palestínumaður skot-
inn til bana af liðsmönnum sömu
sveitar í næturárás í öðru þorpi á
V esturbakkanum.
„Eina leiðin til að lýsa því sem
gerðist á laugardagskvöldið er gá-
leysi, gáleysi og aftur gáleysi,"
sagði dagblaðið Yediot Ahrohnot,
og sagði atburðinn jaðra við að
vera „þjóðaráfall".
Ströng öryggisgæsla er á
sjúkrahúsinu í bænum Nablus á
Vesturbakkanum þar sem Abu
Hannud dvelur. Herma fregnir að
starfsfólk sjúkrahússins óttist að
ísraelskir leyniþjónustumenn muni
reyna að ráða hann af dögum, og
allt sem kemur nálægt honum er
vandlega skoðað, þ.á m. matur.
Abu Hannud er hetja í augum
margra Palestínumanna. Hann
slapp úr palestínsku fangelsi 1995
með því að telja fangavörðinn á
hugmyndir sínar um herskáa isl-
amska andspyrnuhreyfingu.
Leitin að merki um vitsmunalíf í himingeimnum
Hin langa, háværa þögn
Reuters
Leitin að vitsmunalifi úti í geimnum verður hert mjög þegar teknir
verða í notkun nýir og öflugir sjónaukar sem sýndir eru hér á myndinni.
Paul Allen, annar af stofnendum Microsoft-fyrirtækisins, lagði í byrjun
ágúst fram 11,5 milljónir dollara, um 900 milljónir kr., til verksins.
eftir Gwynne Dyer
ÞÚ getur farið út að næturlagi, jafn-
vel í Austin, Texas, bent á hana og
sagt að umhverfis þessa stjörnu
gangi reikistjarna," sagði dr. William
Cochran, stjörnufræðideild Texashá-
skóla. Epsilon Eridani. Stjaman, sem
hér um ræðir, er ekki sérstaklega
björt en hún er mjög nálægt jörðu. Af
þeim sökum er hægt að greina hana
með berum augum. Stjömur með
reikistjömum hafa ekki áður verið
uppgötvaðar svona nálægt okkur - en
þá er á það að líta að þangað til 1995
þekktust engar stjömur sem höfðu
reiidstjömur umhverfis sig.
Á þeim tíma vissu menn ekki betur
en að það væra fáar eða engar aðrar
plánetur til, og töldu að allt líf væri
sjaldgæft í himingeimnum. Fyrir ut-
an hið níu-reikistjamakerfi, sem om-
ar sér við hitann frá sólinni okkar,
höfðum við aldrei séð reikistjömu.
Allar aðrar stjömur voru of langt í
burtu til að við gætum séð nokkuð
jafnsmátt og reikistjömu umhverfis
þær.
Þá þróuðu stjörnufræðingar tækni
til að koma auga á reikistjörnur (þó
aðeins mjög stórar) umhverfis aðrar
stjömur, og flóðgáttirnar opnuðust.
Á síðastliðnum fimm áram hafa 40
nýjar reikistjömur verið uppgötvað-
ar, allar gasrisar af sömu stærðar-
gráðu og Júpíter, stærsta pláneta
sólkerfis okkar.
24. heimsþing Alþjóða stjömu-
fræðisambandsins var haldið 7.-10.
ágúst í Manchester á Englandi. Þar
var greint frá tíu reikistjömum til
viðbótar, að meðtalinni þeirri sem
starfshópur Copchrans uppgötvaði
umhverfis Epsilon Eridani.
„Þetta er mjög spennandi uppgötv-
un,“ sagði dr. Geoff Marcy, sem til-
heyrir starfshópi í Berkeleyháskóla
er vinnur við að uppgötva plánetur,
„vegna þess að hún er aðeins tíu ljós-
ár í burtu. Einhvem tímann á næstu
hundrað eða tvö hundrað áram verð-
ur hún ein af fyrstu reikistjömunum
sem mannkynið heimsækir.“ Og það
er á reikistjömum, ekki stjörnum,
sem við kynnum að finna líf í líkingu
við það sem er á jörðinni.
Nýjar reikistjörnur
Fimmtíu nýjar reikistjömur á að-
eins fimm áram, sem allar hafa verið
uppgötvaðar með tækni sem er mjög
þung í vöfum og getur eingöngu
greint fyi-irferðarmiklar plánetur á
tiltölulega nálægum, hraðskreiðum
brautum sem snúa íleti sínum meira
og minna að okkur - og það tók
margra ára þolinmæðisverk að finna
þær. En Berkeley-hópurinn tilkynnti
í Manehester að hann hefði skoðað
aftur stjörnur sem vitað væri að
hefðu eina reikistjömu - og í fimm af
tólf tilfellum fundu þeir aðra reiki-
stjömu umhverfis stjörnuna.
Það lítur út fyrir að það sé alvana-
legt í himingeimnum að umhverfis
stjömur gangi hópur reikistjarna. Þó
að sú tækni sem við höfum yfir að
ráða geri okkur ekki ennþá kleift að
greina smærri, grýttar plánetur, eins
og jörðina, umhverfis aðrar stjömur,
þá virðist það samt verða líklegra
með hverjum deginum sem líður að
það mynstur sem við þekkjum frá
sólkerfi okkar, með mörgum gasris-
um á ytri brautum og nokkrum
minni, byggilegri plánetum nær hita
sólarinnar, sé nær sanni.
„Vetrarbrautin hefur sannarlega
að geyma milljarða plánetukerfa,"
sagði Geoff Marcy. „Eflaust era til
margir hálfvolgir heimar sem geta
fóstrað flókna lífræna efnafræði, sem
leiðir til framleiðslu á sameindum
sem keppa hver við aðra um orku og
bjargráð. Frækomum lífs er sáð í
slíku umhverfi, og ekki er ástæða til
að efast um að flóknari lífsform fylgi
á eftir.“
Það sem Marcy á við er að yfirborð
allra reikistjarna sem geta fóstrað líf
(hvorki of heitt né of kalt) ver ður þak-
ið lífrænum efnasamböndum sem
svífa um í geimnum í gríðarlegu
magni. Þróunin hneigist síðan í þá átt
að það kviknar ekki aðeins líf, heldur
einnig vitsmunalíf að lokum.
Svo að ef hentugar plánetur era á
hverju strái, og líf er ekki sjaldgæft
heldur almennt á þeim - hvar era þá
allir?
Þessi ráðgáta hefur orðið æ flókn-
ari síðan SETI-verkefnið (Search for
Extra-Terrestrial Intelligence eða
Leit að vitsmunalffi í alheiminum) var
sett af stað á áttunda áratugnum.
Fylgst hefur verið með öllum þeim
tíðnisviðum rafsegulbylgna sem lík-
leg þykja til að geta náð árangri til að
nema merki um vitsmunalíf á öðram
plánetum. Árangurinn? Þögn. Ann-
aðhvort er engin vitræn vera þama
uppi, eða þær hafa einhverra hluta
vegna hljótt um sig.
Hugsanlegar skýringar
Þrjár hugsanlegar skýringar
kunna að vera á þessu, sem hver um
sig gæti kollvarpað hugmyndum okk-
ar um okkar eigin stöðu í alheiminum.
Einn möguleikinn er sá að vits-
munaverar á háu tæknistigi verði til
fyrir furðulega tilviljun en séu ekki
afleiðing náttúralegrar þróunar. Ef
svo er þá bíður okkar heill heimur úti
í geimnum með vænlegum svæðum
til búsetu en enga vitræna fram-
byggja, og í fjarlægri framtíð er vel
hugsanlegt að mannkynið muni
byggja „Vetrarbrautar-ríki“ í líkingu
við það sem var svo vinsælt í fyrstu
vísindaskáldsögunum.
Annar möguleikinn, og heldur
dapurlegri, er sá að þótt vitrænt líf
skjóti upp kollinum öðra hverju, þá
endist það aldrei lengi: tegundir sem
þróa tækni gereyða sjálfum sér mjög
fljótt. Það gæti útskýrt þögnina, því
að ef meðalskeið hátæknisiðmenn-
ingar er aðeins nokkur hundrað ár,
og jafnvel þótt milljarðar hentugra
plánetna séu í Vetrarbrautinni, þá
væri að meðaltali aðeins ein sið-
menning (eða engin) til á hverjum
tíma.
Þriðji og dapurlegasti möguleikinn
er sá að það séu vissulega mai-gar vit-
rænar tegundir í Vetrarbrautinni, en
þær gáfaðri láti lítið á sér bera. Ef þú
hefur enga hugmynd um hvað er
þama úti - eða ef þú veist hvað er
þarna og það hræðir úr þér líftórana
- þá er það síðasta sem þú gerir að
draga að þér athyglina með því að
gera öllum alheiminum staðsetningu
þína heyrinkunna.
Þetta era óraunveralegar hugleið-
ingar og allir þrír möguleikamir virð-
ast mjög ólíklegir - en samt sem áður
hlýtur einn af þeim að vera réttur.
Þekking okkar á alheiminum er enn-
þá afar takmörkuð og nema því að-
eins að mannkynið gjöreyði sjálfu sér
þá munu komandi kynslóðir senni-
lega slá okkur saman við Tyrkjaveldi,
tímabO Tang-keisaraættarinnar í
Kína og Rómaveldi sem upphafi sið-
menningar. En nú era spennandi
tímar til að vera til.
Gwynne Dyer er búsettur íLundún-
um og vinnur sem sjálfstætt starf-
andi blaðamaður. Hann birtir blaða-
greinar í 45 löndum.