Morgunblaðið - 29.08.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 65
-I
MYNPBÖNP
Nætur-
vargar
Leðurblökurnar
(Bats)
Drama
'k
Leikstjóri: Louis Morneau. Handrit:
John Logan. Aðalhlutverk: Lou
Diamond Phillips, Dina Meyer og
Bob Gunton. (92 mín.) Bandaríkin,
1999. Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
ALLT frá því að doktorinn ungi
Victor Frankenstein fylltist of-
drambi og fékk síðan að kenna á því
hafa hryllingssög-
ur varað menn við
afleiðingum þess
að taka fram fyrir
hendurnar á móður
náttúru. í Leður-
blökunum segir frá
afdrifaríkum mis-
tökum ^ af þessu
tagi. í viðleitni
sinni til að smíða
ósigrandi stríðstól nær siðlaus vís-
indamaður á mála hjá ríkisstjórninni
að skapa svo háþróaða tegund leður-
blakna að heiminum stafar ógn af.
fTí er hins vegar aldrei svarað hvers
vegna hernaðarbákn sem þegar ræð-
ur yfir fjölbreytilegu vopnabúri ger-
eyðingarvopna telur sig þurfa á
stjórnlausum mannætublökum að
halda. Þá eiga áhorfendur að taka
það gott og gilt að fegurðardís á tvit-
ugsaldri sé lærðasti leðurblökufræð-
ingur heimsins. Söguþráðurinn er
annars sorglegt samansafn úrsér-
genginna hugmynda og ekki hjálpar
að leikaraliðið getur hvorki leikið né
talað án þess að skapa samstundis
einhvern óræðan hjúp ótrúverðug-
leika umhverfis atburðarásina. Þetta
er einhver versta hryllingsmynd
sem rekið hefur á fjörur mynd-
bandaleiganna um nokkurt skeið.
Tárin kreist
fram
Hausthjarta
(The Autumn Heart)
D r a m a
★★
Leikstjóri: Steven Maler. Handrit:
Davidlee Wilson. Aðalhlutverk:
Tyne Daly, Ally Sheedy. (106 mín.)
Bandaríkin, 1999. Háskólabíó. Öll-
um leyfð.
HAUSTHJARTA er fjölskyldu-
drama sem segir frá Ann Thomas,
miðaldra verkakonu sem barist hef-
ur í bökkum við að
sjá dætrum sínum
þremur farborða
frá því að hún skildi
við eiginmanninn.
Hann flutti hins
vegar burt og fékk
forræði yfir syni
þeirra. Þegar Ánn
veikist alvarlega
sendir hún dætur
sínar til þess að hafa uppi á bróðurn-
um sem þær ekki þekkja. Bilið sem
myndast hefur milli hinna tvístruðu
fjölskyldumeðlima reynist hins veg-
ar ekki aðeins tilfinningalegt heldur
einnig stéttarlegt. Dæturnar hafa al-
ist upp við kröpp kjör í verkamanna-
bæ á meðan bróðir þeirra er nem-
andi í Harvard-háskóla. Myndin
lýsir ágætlega ólíkum bakgrunni
persónanna og persónusköpunin
sjálf er jarðbundin og raunsæ.
Sheedy leikur ágætlega og aðrir
leikarar standa sig vel. Hins vegar er
söguþráðurinn sem slíkur nokkuð
fyrirsjáanlegur og sérstaklega eru
tárakreistingaratriðin útreiknuð.
Það getur því verið gott að leggjast
undir feld á rigningardegi með kvik-
niynd á borð við þessa, en hún skilur
samt sem áður sáralítið eftir sig.
Heiða Jóhannsdóttir
FÓLK í FRÉTTUM
James heldur tímamótatónleika í Kína
James-liðar hafa lagt Kína að fótum sér - a.m.k. tíu þúsund Kínverja.
Uppréttir áhorfendur
EITT SINN sungu Manchester
rokkararnir í James og skipuðu
fólki að setjast niður í laginu „Sit
Down“ en það er æði trúlegt að sá
söngur hafi hljómað sem öfugmæli
á tónleikum sem þeir héldu nýverið
á í Kína. Tónleikamir em nú taldir
tímamótatónleikar fyrir þær sakir
að þetta er í fyrsta sinn sem tón-
leikagestir fengu að standa upp-
réttir og almennt sleppa fram af sér
beislinu samkvæmt vestrænum sið
á tónleikum með vestrænum popp-
umm. Hingað til hafa kínversk yfir-
völd lagt mikið upp úr því að ung-
lýðurinn haldi stillingu sinni og sitji
yfirvegaður í sætum sínum en á
Heineken Beat-tónlistarhátíðinni,
sem haldin var í Ritan garðinum í
Beijing-borg var slakað á hinum
ströngu agareglum, hinum 10 þús-
und ungmennum sem mættir voru
til mikillar undmnar og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Þessi fram-
faraviðburður vakti þvílíka athygli
í Kina að sýndur var nær tveggja og
hálfrar stundar þáttur frá tónlistar-
hátíðinni í Kínverska sjónvarpinu.f
umfjöllun Beijing Evening News,
eins útbreiddasta dagblaðs Kfna,
segir að hið sprengikröftuga and-
rúmsloft sem bresku rokkararnir í
James mynduðu á tónleikunum hafi
loksins gefið kínversku þjóðinni
hugmynd um hversu kröftugur og
ástríðufullur tjáningarmiðill rokk-
tónlistin getur verið þegar hún er
flutt á ALVÖRU tónleikum.
Nú er rétti tíminn...
Vilt þú margfalda lestrarhraðann og auka afköst í námi?
Vilt þú stórauka afköst þín í starfi um alla framtíð
Nú er rétti tíminn til að fara á hraðlestrarnámskeíð, ef þú
vilt ná frábærum árangri í vetur. Námskeið hefst 31. ágúst.
Skráning er í síma 565 9500
ÍIRAÐLESTRARSKÓLINN
www.hradlestrarskolinn.is
Nú skolast allt út
Vegna vatnstjóns
15-50% afsláttur
ayn
Opið
---------«*r-----
Skeifunni • Grensásvegi 3
Sími: 533 1414 • Fax:533 1479 • www.evro.is
vg>mbl.is
-ALLTAf= eiTTHV'AO NÝTT
Súrefnisvönir
Karin Herzog
Silliouctte