Morgunblaðið - 29.08.2000, Page 66

Morgunblaðið - 29.08.2000, Page 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM ERLENDAH oooooo z ★★★☆ PÁLL ÓSKAR - tónlistar- maður pælir í nýjustu plötu Robbie Williams Sing When You’re Winning. Ekkert mál fyrir Robbie Williams ÞETTA er góð plata. Öðruvísi mér áður brá, en Robbie Williams er kominn til að vera. Ég held að það sé einsdæmi að nokkur tónlistar- maður lifi það af að vera í stráka- bandi (Take That), takist að rísa upp á afturlappirnar og sanna sig sem söngvari, lagasmiður, texta- smiður og frábær „performer". Hann er líka svo góður leikari, að ég gæti trúað honum í hvaða hlutverki sem er, dramatísku eða ekki. Plötu- umslagið er t.d. kapítuli út af fyrir sig: Þemað er breskur fótbolti, og allir fylgifiskar hans. Nema hvað, Robbie Williams er ALLIR á fót- boltavellinum, leikmennirnir, áhorf- endur, löggur o.s.frv. (Þetta er tækni sem notuð hefur verið af Chris Cunningham í myndböndum Aphex Twin). Robbie er ein af fáum poppstjörnum sem gæti gert svona plötuumslag og svona splatter- myndbönd eins og við fyrstu smá- skífuna „Rock D.J.“, þar sem hann húðflettir sjálfan sig og kastar inn- yflum sínum í súpermódel á rúllu- skautum, allt til að ná athygli þeirra! Algjör snilld. Og lögin? Jú, Robbie var það heppinn að hitta sálufélaga sinn, Guy Chambers, um það leyti er sóló- ferill hans var að hefjast. Guy þessi er afburða lagasmiður, hljóðfæra- leikari, útsetjari og húmoristi, það er auðheyrt. Saman semja þeir nær öll lögin á þessari plötu, eins og á fyrri verkum Robbies. Þeir eru náttúrulega Bretar, þannig að það örlar á íhaldssemi hér og þar. Laga- smíðarnar eru svona nokkurs konar poppað léttrokk, ofurlítið gamal- dags kannski stundum - og gamli 70’s David Bowie fílingurinn er ekki fjarri góðu gamni, sérstaklega í ballöðunum. (Allir vildu „Space Oddity“ kveðið hafa.) Það er allt í lagi að semja gamaldags músík, ef útkoman er GÓÐ. Ég er reyndar ósköp lítill rokkari inni í mér, en lög- in hans Robbie eru lúmsk - og plat- an verður betri við hverja hlustun. Bestu plöturnar eru alltaf svoleiðis. Ég fíla það bara svo vel hvað Maestro / ÞITT FE HVAR SEM ÞÚ ERT „Ég er í heildina ákaflega glaður yfir gengi Robbies," segir Páll Óskar í dómnum um Sing When You’re Winning. Robbie er að taka mikla ábyrgð með textum sínum. Hann gerir sér grein fyrir því núna, að þegar hann opnar munninn leggja milljónir manna við hlustir. Hann syngur því um kær- leikann, (Let Love Be Your En- ergy) sjálfsskoðun, (Better Man) og ást (Love Calling Earth) - og gerir það alla leið. Hann er alltaf að bæta sig sem söngvari, og hann er mun sterkari ballöðusöngvari en rokk- söngvari. Röddin hans er eiginlega of „mjó“ fyrir rokk, en framkoman vegur það alveg upp. Bestu lögin eru „Rock D.J.“, „If It’s Hurting You“, og „Better Man“. *>*!!*+ slaginni > Ég er í heildina ákaflega glaður yfir gengi Robbies, og nú er bara spurn- ing hvernig þessari plötu verður tekið utan heimalandsins, en hann er náttúrulega súperstjarna í Bret- landi. Lagasafn hans er allavega farið að verða nokkuð traustvekj- andi, mikið af klassískum flottum popplögum: „Angels", „Strong", „Let Me Entertain You“, „She’s the One“ og svo „No Regrets", sem ég elska mest af öllu. Svo má hann Robbie eiga það að hann kann nú að velja kærustur á réttum tíma, svona rétt í þann mund sem platan er að koma út. En það er nú líka hluti af leiknum. Gulir fjölmiðlar og popp- stjörnur væru ekkert án hvort ann- ars. Annars held ég bara að Geri og Robbie eigi bara mjög vel saman - þau eru bæði sæt og fyndin, með „framkomuna" á réttum stað, for- ríkar breskar poppstjörnur sem sparka í rassa og tókst báðum að lifa af unglingahljómsveitirnar sem þau voru í. Ætli þau hafi kynnst á EA fundi? (Entertainers Anonymus!) Hey, P.S. - það er hægt að sjá óklippta útgáfu af „ógeðslega“ myndbandinu „Rock D.J“ á heima- síðunni www.robbiewilliams.com. - Allir þangað! Virðum , _uti vistar tuna.. barna og unglmga KUI'.h'.'I tl M. I. M ■ Ul U U J Pt JI. B f Bruce Willis fær Emmy-verðlaun Besti gesta- leikarinn BRUCE WILLIS vann sín önnur Emmy-verðlaun um helgina þegar hann var útnefndur besti leikarinn í gestahlutverki gamanþátta fyrir leik sinn í þremur Vina-þáttum. Það má því með sanni segja að góðverkin borgi sig á endanum því Willis lét sem kunnugt er þóknun sína fyrir verkið renna óskipta til Bjóðum upp á 3 tegundir: 2 billj., 4 billj. og 8 billj. APÓTEKIN FRÍHÖFNIN Uppl. í síma 567 3534 VISA VAKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA (slandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ISLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavik. Sími 525 2000. Stoltur Brúsi. Reuters góðgerðarmála. Kappinn vann sín fyrstu Emmy-verðlaun árið 1987 fyrir aðalhlutverk sitt í þáttunum Moonlighting þar sem hann lék á móti Cybil Sheppard. Umrædd Emmy-verðlaunaaf- hending helgarinnar sneri þó að mestu að tæknilegum hliðum sjónvarpsþáttaframleiðslunnar en hin eiginlega Emmy-verðlaunaaf- hending fer fram hinn 10. septem- ber næstkomandi. KIAILARATILBOÐI 3 þrúgur á verði 2 Greitt er fyrir þær dýrari Skeifunni 11 D og Kringlunni S: 533-1020 Yfir 30 tegundir! Tilboði lýkur 3. sepL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.