Morgunblaðið - 30.08.2000, Blaðsíða 26
2Í) MtMlKTrÐAGUR 30. ÁGÚST' '2ÖÓ0
MÖKGCIN6LAÐIÐ
Nissan patrol GS SE, áry. i, M3þ,5 o. dökk-
græiín verfl 2.3Í.É íkv. lán 2.275, bein sala.
Mmc Palero disel árfl. 98, km 55 b.. siiiur, ssk.,
33", álfe, brettak op fl., verfl 2.990.000.
Toyota Landcruser GX. árg., 84, km 197 þ. vín-
rauöur, 5 a 3B"dekk og II, verö 2.750.000 ákv, lán
750 þ„ ath. skipti.
Toyota hilux d/c bensin, árg.. 94, kmiBOb,
5 g, dökkarænn, 36" álfegar, his og 1 verfl 1,590.000.
ákv. 550 b„ ath skipti, TOPP BlLL.
Subaro Legacy stw, árg., 98, km 35 b, siifur.
sskjlle, verö 1.740.000 ákv. lán 1.150.000.
Opel Zalira 1,8, árg., 2008, km 4 h„ dökkgræno,
ssk, álle, krók og fl„ verð 1.090.000 ath. skipti.
Subaro Legasy outback, árg. 99, kmiog,
vinrauður, ssk, álfe, sólog. og fl„ verfl 2.75010,
vil disel jeppa.
Bmw 31 Bi, árg, 92, km 101 |r„ ranöor, 5 g, verð
890.000, ath. skiprí 1. eigandi aullmoli.
Vantar bíla á skrá
LISTIR
Höfuðborgin
skelfur
Þing hagyrðinga eru jafnan viðburðarík
enda liggur þar enginn á meiningu sinni.
Uppskeran er eftir því. Pétur Blöndal
innbyrti dúll, gamanmál, kvæðastemmur,
söng og skanderingar á landsmóti
hagyrðinga sem fram fór í höfuðborginni
um helgina.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Ólína Þorvarðardóttir lesa vísur sem bár-
ust í samkeppni kvöldsins.
Hlaða úr stökum bólginn bing,
byltast ljóðaelfur.
Hagyrðingar halda þing,
höfuðborgin skelfur.
Það fer vel á því að hefja umfjöllun
um landsmót hagyrðinga á framan-
greindri ferskeytlu eftir Asjón.
Landsmótið, sem var hið tólfta í röð-
inni, fór fram í Reykjavík og var sótt
af á annað hundrað hagyrðingum og
vísnavinum. Ólína Þorvarðardóttir
var skelegg sem mótsstjóri og var að
vonum að samdar væru vísur um
hana. Bjöm Loftsson orti:
Sjá menn héma saumabrík,
sú er flestum kostum rík,
ósk mín verður ávallt slík
að öll við verðum henni lík.
Steinn Hermannsson sá fleira
ánægjulegt við mótsstjómina:
Sæta kroppinn sé ég þinn,
semviðblasirhéðan,
finn þá gráa fiðringinn
faraummigaðneðan.
Sigurður Sigurðarson úr Grafar-
holti flutti fróðlegt og skemmtilegt
erindi um Guðmund dúllara. Það
skyggði á samkomuna þegar til-
kynnt var sviplegt fráfall eiginkonu
hans, Halldóra Einarsdóttur, fyrr
þennan dag, en hún hafði unnið ötul-
lega að undirbúningi hagyrðinga-
mótsins. Var hennar minnst með því
að viðstaddir risu úr sætum. Guð-
mundur G. Þórarinsson var ræðu-
maður kvöldsins og fjallaði um vís-
una og tunguna. Helgi Hjörvar flutti
ávarp menningkrþorgar. Sá síðast-
nefndi mætti heldur seint þar sem
hann var á tónleikum með Röddum
Evrópu og bar því við að þær hefðu
aldrei ætlað að þagna. Var af þeim
sökum kastað fram:
Listínni máttí hann lengi fagna
og láta dálítið bera á sér;
evrópskar raddir sem aldrei þagna
erutíl vandræðahér.
Menningarborgin var eitt af yrkis-
efnum kvöldsins og sýndist sitt
hverjum. Sumir lofuðu framtakið á
meðan aðrir gagmýndu það á
kersknisfullan hátt. Bjöm Loftsson
orti:
Menningin æðir inn á torg
ogeftirhverrigötu.
Andinn hellist yfir borg
eins og hland úr fótu.
Ur annam átt barst:
Ríkust af hamingju, ríkust af sorg,
ríkust af gleði og böli,
á menningamóttu í menningarborg
var menningin blandin öli.
Ekki er svo haldið hagyrðingamót
að stjórnmál beri ekki á góma. I það
minnsta stjórnmálamenn. Asjón
orti:
Núer.oss um tungu tregt,
tii þín Davíð þakkir sendum.
Góðærið er geigvænlegt,
guð má vita hvar við lendum.
Heiðrún Jónsdóttir var fulltrúi
Vesturlands í landsliði hagyrðinga
og var gert að yrkja um tjörnina.
Hún veigraði sér við því:
Davíð og ég við mæðumst í mörgu
ogmálshöfumvömina,
Okkur fmnst komið að Ingibjörgu
aðyrkjaumtjömina.
Morgunblaðið/Pétur Blöndal
Hlustað af andakt.
Rannveig Helgadóttir, Jórunn Helgadóttir og Bjargey Amórsdóttir.
Jói í Stapa, fulltrúi Norðurlands,
lét hins vegar ekki segja sér það
tvisvar.
Tjömin hefur tígn að bera,
töfrablæja um hana iýkur.
Borgarstolt mun stöðugt vera
stærsti spegill Reykjavíkur.
Hann svaraði því líka hvar synd-
lausa væri að fínna í mannheimum:
Vonska heimsins verður tæpast ýkt
á vegi allra tálsnörumar freista
en ungabam fær aldrei syndir drýgt
öðmm tel ég vafamál að treysta.
Heiðrún gerði syndumnum skil:
Þeirra vegna ei þarf að kvíða
því mér virðist heims um stjá
að finnast muni vondir víða
og væsi sjaldnast neitt um þá.
Sjálfslýsingar eru jafnan fastur
liður á hagyrðingaþingum enda hag-
yrðingar kurteisir menn með af-
brigðum og vanir að kynna sig á
mannamótum. Mótsstjórinn Olína
Þoi-varðardóttir reið á vaðið:
Af andstæðunum er ég rík,
einfari í pólitík,
eiginlega engri lík
en uppalin í Reykjavík.
Jón Ingvar Jónsson var fulltrái
Reykvíkinga og orti:
Holdi og anda mínum má
ogmætuúrvalskyni
helst í kmkku kynnast hjá
KáraStefánssyni.
Næsta vísa kynnir sig sjálf:
Kennt hef ég bömum í ótal ár
ekki hef meiri framavon,
Austfirðingur í húð og hár
og heití Birgir Stefánsson.
Eysteinn Gíslason frá Breiða-
íjat'ðareyjum var hógværðin upp-
máluð:
Streymir mörg úr mínum barka
mærðarþulaekkigóð
og það er aldrei orð að marka
efégferaðsemjaljóð.
Pétur Kristbergsson er gjörvileg-
ur maður sem byrjaði ekki að semja
vísur fyrr en hann var kominn fast að
sjötugu:
Ég er ljúfur það langt að sést,
hef líkama ofvaxinn hlotið.
Af honum hafa meyjar mest
minnstahlutansnotið.
Ekkert hagyrðingamót stendur
undir nafni ef Andrés Valberg er þar
ekki viðstaddur:
Sem Egill skalli er ég sterkur,
andagiftin semhjáNjáli,
eins og Snorri er ég merkur,
sem ástarskáid ég Uldst Páli.
Gestir landsmótsins fengu að
spreyta sig á fyrripörtum. Þar á
meðal var:
Utí á sundum aldan kröpp
ærslast kinnung bátsins við.
Eysteinn G. Gíslason úr Skáleyj-
um botnaði:
Slappast hönd og linast löpp,
ég lyppast niðrí kjalsogið.
Jói í Stapa gaf ekki sitt eftir:
Berist hún að kaldri klöpp
hvítfyssandi er hennar skrið.
Fleiri fyrripartar voru bornir á
borð:
Hagyrðingar hefja þing,
háttnúklingjaskálum.
Bjargey Arnórsdóttir frá Hofs-
stöðum botnaði:
Yrkja og syngja oddhending,
una skringimálum.
Þá Sigurður H. Richter:
Kyssi ég slyngur kvenpening
kræfur í dyngjumálum.
Þá var það fyrriparturinn:
Orðsviðleilduna sér
ýmsir hérísalnum.
Halldór Blöndal ýjaði að því að
hagyrðingum gæti fatast flugið:
Oft á skrítnu flugi fer
fálkinnáeftirvalnum.
Baldur Jónasson átti nóg eftir:
Það er ljóst að eitthvað er
enníkvæðamalnum.
Það á vel við að ljúka umfjöllun-
inni á uppörvunarorðum Svanhvítar
Ingvarsdóttur svona þegar skamm-
degið fer að færast yfir:
Þegarhallaaðhaustífer
húmiðtekurvöldin.
Þáergottaðgamnasér
við glens og rím á kvöldin.
Þó að komi kaldi á norðan
og kannske um jólin verði hríð,
við skulum sækja í sálarforðann
sumaryl í mótgangstíð.