Morgunblaðið - 30.08.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
Tallinn.
í fundarherbergi
eistnesku ríkis-
stjórnarinnar hef-
ur verið tekið upp
fullkomið tölvu-
kerfi þar sem ráð-
herrar hafa hver
sinn skjá og þurfa
ekki að fletta í
blöðum. Mart La-
ar sýnir Davíð
Oddssyni hvernig
hann stjórnar
tölvukerfínu og
Guðmundur
Árnason skrif-
stofustjóri og
Kristján Andri
Stefánsson, deild-
arstjóri í for-
sætisráðuneytinu,
fylgjast með.
Davíð Oddsson áritar bók sína Nokkrir góðir dagar án
Guðnýjar í landsbókasafninu í Tallinn.
Lennart Meri, forseti Eistlands, tók á móti Davíð Oddssym
og íylgdarliði hans í forsetahöllinni í Tallinn.
málasamband við Eystrasaltslöndin
þrjú í ágúst 1991. Þá var Lennart
Meri utanríkisráðherra Eistlands og
hann kom ásamt utanríkisráðherr-
um Lettlands og Litháens og skrif-
aði undir samning um stjómmála-
samband við ísland í Höfða. Davíð
var nýtekinn við embætti forsætis-
ráðherra þegar þessir atburðir gerð-
ust.
Það var greinilegt að þeim Davíð
og Meri er vel til vina þegar þeir hitt-
ust í forsetahöllinni í gærmorgun.
Davíð sagði eftir fundinn að tengsl
Meris við íslenska ráðamenn hefðu
alla tíð verið mjög náin og öðruvísi
en venja væri til. Davíð sagði að þeir
Meri hefðu oft hist áður og rætt sam-
an og þekktu því vel hvor annan.
„Þegar hann kvaddi mig nú gerði
hann það með þeim orðum að biðja
mig að skila góðri kveðju til allra
okkar sameiginlegu vina. Þetta er
nokkuð óvenjulegt þegar þjóðhöfð-
ingi á í hlut,“ sagði Davíð við Morg-
unblaðið.
íslenskar bækur í Tallinn
Davíð opnaði einnig í gær sýningu
á íslenskum bókum í landsbókasafn-
inu í Tallinn. Komelíus Sigmunds-
son, sendiherra í Finnlandi, hafði
milligöngu um að íslenskir bókaút-
gefendur gáfu nærri 400 bækur til
safnsins og þar hefur þeim verið
komið fyrir í Norðurlandadeildinni.
Þetta eru bækur af ýmsu tagi, bæði
fræðibækur og skáldsögur, auk bóka
um ísland á finnsku. Meðal bókanna
var smásagnasafn Davíðs, Nokkrir
góðir dagar án Guðnýjar, og áritaði
höfundurinn bókina fyrir starfs-
menn safnsins.
Það vakti athygli íslensku gest-
anna að eistnesk kona, Lemme Saut-
as, kynnti íslenska bókasafnið á lýta-
lausri íslensku. Það kom í ljós að
Sautas hefur dvalið á Islandi frá ár-
inu 1996, lærði íslensku í Háskóla Is-
lands og starfar þar sem tónlistar-
kennari. Hún hefur einnig þýtt
íslensk skáldverk á eistnesku og um
þessar mundir er að koma út þýðing
hennar á Sögunni af bláa hattinum
eftir Andra Snæ Magnason.
„Eistnesk erfðagreining“
Mart Laar, sem er sagnfræðingur
að mennt, fór með íslensku forsætis-
ráðherrahjónin í gönguferð um
gamla bæinn í Tallinn í gær. Þetta er
þriðja heimsókn Davíðs til Eistlands.
Hann kom þangað fyrst sem borgar-
fulltrúi í Reykjavík fyrii- um tveimur
áratugum og aftur árið 1996. Hann
sagði að á þessum tíma hefðu orðið
gríðarlegar breytingar í landinu.
„Fyrir 20 árum var flest hér í niður-
níðslu, enda voru þeir þá undir járn-
hæl (Sovétríkjanna). Það hefur einn-
ig margt breyst frá því ég kom
hingað síðast, því þeir hafa gert upp
gríðarmikið af húsum, það er mun
meira vöruúrval í búðum og þróunin
Opinber heimsókn íslensku forsætisráð-
herrahjónanna til Eistlands hófst 1 gær-
morgun þegar Mart Laar forsætisráðherra
Eistlands tók á móti Davíð Oddssyni í
eistneska stjórnarráðinu í Tallinn, höfuð-
>S*!S
I þrengstu götu Tallinn. Mart Laar forsætisráðherra gekk með íslensku
forsætisráðherrahjónunum um gamla bæinn.
hér virðist vera í réttum farvegi,"
sagði hann við Morgunblaðið.
Eistlendingar flytja í einhverjum
mæli timbur og fisk til vinnslu til Is-
lands og dótturfyrirtæki Eimskips í
Lettlandi, MGH, rekur einnig skrif-
stofu í Tallinn. Þá skrifstofu heim-
sótti Davíð Oddsson í gær. Hann leit
einnig við hjá fyrirtæki sem nefnist
Palmatin og framleiðir bjálkahús og
tók m.a. þátt í útboði á húsum sem
setja á upp á Suðurlandi fyrir þá sem
misstu hús sín í jarðskjálftunum í
sumar. Fyrirtækið hefur mikinn
áhuga á að komast í viðskipti við Is-
lendinga og hefur selt og sett upp
eitt hús á íslandi.
Einnig hitti Davíð að máli fulltrúa
eistneskrar stofnunar sem hefur í
undirbúningi að setja upp gagna-
grunn á heilbrigðissviði og horfa
mjög til íslands og íslenskrar
erfðagreiningar sem fyrirmyndar og
hafa verið í sambandi við íslensk
stjórnvöld og íslenska erfðagrein-
ingu á undanfömum mánuðum.
Davíð lýsti fyrir þeim lögunum sem
sett vom um gagnagrunn á heil-
brigðissviði og helstu ágreiningsmál-
unum sem uppi hafa verið á Islandi
vegna þeirra.
Heimsókn Davíðs Oddssonar og
Ástríðar Thorarensen lýkur form-
lega í dag.
borg landsins. Guðmundur Sv. Hermanns-
son og Kjartan Þorbjörnsson ljósmyndari
fylgdust með heimsókninni.
FORSÆTISRÁÐHERRARNIR
áttu stuttan fund og við upphaf hans
minntist Laar stuðnings Islendinga
við Eistlendinga í sjálfstæðisbaráttu
þeirra og líkti þeim við ísbrjóta.
Ræddu þeir m.a. ræddu framtíð
Eistlands og þróun Evrópusam-
vinnu en Laar gerði Davíð einnig
grein fyrir stöðu mála varðandi um-
sókn Eista að Evrópusambandinu.
Þá ræddu forsætisráðherrarnir um-
sókn Eistlands um aðild að Atlants-
hafsbandalaginu, NATO, en Eystra-
saltsríkin þrjú sækja fast aðild að
þessum stofnunum báðum.
Islendingar hafa ávallt stutt aðild
Eystrasaltsrikjanna og annarra
þjóða Austur-Evrópu að NATO og á
blaðamannafundi sem Davíð og Laar
héldu eftir fund þeirra sagði Davíð
að það væru að hans mati söguleg
mistök ef NATO notaði ekki það
tækifæri sem gæfist þegar næst yrði
fjallað um stækkun bandalagsins ár-
ið 2002 og tæki nýfrjálsum ríkjum
opnum örmum. Davíð sagði að þótt
íslendingar hefðu ekki úrslitaáhrif á
þær ákvarðanir sem teknar eru inn-
an bandalagsins, þá hefðu þeir þar
þýðingarmikinn atkvæðisrétt og
raunar haft áhrif á það á leiðtoga-
fundi NATO í Madríd á sínum tíma,
að fleiri löndum var boðin aðild en til
stóð í upphafi.
Davíð sagði við blaðamenn að
hann teldi að möguleikar Eistlend-
inga á að fá aðild að NATO ættu að
vera góðir. Þeir hefðu tekið til í sín-
um ranni og mannréttindi og réttar-
öryggi væru nú tryggð þar. Þá teldu
Eystrasaltsríkin að þau yrðu einnig
tilbúin til inngöngu í Evrópubanda-
lagið upp úr árinu 2002.
Vinir á íslandi
Á blaðamannafundinum lagði La-
ar áherslu á stjómmálaleg tengsl
landanna og sagði að íslendingar
hefðu leikið þýðingarmikið hlutverk
við endurreisn lýðræðis í Eystra-
saltslöndunum. Island varð íyrsta
ríkið til að taka upp formlegt stjórn-
0 Landslagsráðgjöf
^ mm ___ _ _ = Landslagsarkitekt hjálpar þér að
BJVI'VALl/V útfæra hugmyndirnar. Kynntu
Söludeild í Fornalundi Þér ókeypis landslagsráðgjöf
Breiðhöfða 3 • Sfmi 585 5050 á WWW.bmvalla.ÍS
www.bmvalla.is
Meðal vina
í Eistlandi