Morgunblaðið - 30.08.2000, Blaðsíða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞVÍ SÓÐALEGRA ELDHÚS - ÞVÍ BETRIMATUR
Forvitnilegar bækur
’ttVMi Mtf ftntHrmM •** tf nf
-tttmri tmum. m ttv ntt intt
Don DeLillo
Sigur og
niður-
læging
Underworld, skáldsaga eftir Don
DeLiIlo. Simon & Schuster gefur út.
827 síður. Kostaði um 1.200 kr. hjá
Amazon.
DON DELILLO er með helstu
rithöfundum vestan hafs af yngri
kynslóðinni og hefur skrifað nokkr-
ar forvitnilegar bækur. Oftar en
ekki er viðfangsefni hans Bandaríki
nútímans og atburðir seinni tíma,
eins og til að mynda sögulega
skáldsagan Libra, sem segir sögu
forsetamorðingjans Oswalds frá
óvenjulegu sjónarhorni. I Und-
erworld er öllu
meira undir því í
henni rekur De-
Lillo sögu Banda-
ríkjanna frá 3.
október 1951 til
vorra daga. Bókin
er þó ekkí sagn-
fræðirit; DeLillo
segir frá fólki sem
tekur út þroska sinn
á þessum tíma og í
gegnum líf þess birt-
ist bandarískt þjóðfé-
lag, menningar- og
stjórnmálasaga.
Bókin hefst á fræg-
um hafnaboltaleik í
New York og boltinn
sem þar kemur við sögu
er eins konar leiðistef í
gegnum bókina, fyrir sumum
tákn um sigurhögg leiksins, en fyr-
ir annarri aðalpersónu bókarinnar
tákn um ósigur og niðurlægingu
þess sem kastaði. Bandarísk blöð
slógu sigurhögginu upp og kölluðu
höggið sem heyrðist um heim allan,
en það er gráglettni sögunnar að
sama dag sprengdu Sovétmenn
fyrstu kjarnasprengju sína og víg-
búnaðarkapphlaupið var hafið.
Sögupersónur bókarinnar eru
fjölmargar og sumar úr banda-
rískri sögu eins og til að mynda J.
Edgar Hoover, forstöðumaður
alríkislögreglunnar og Lenny
Bruce, háðfuglinn beiski. Höfuð-
persónurnar eru þó Nick Shay, sem
hefur atvinnu af því hvernig best
megi koma fyrir rusli, og listakon-
an Klara Sax. Þau áttu ástarfundi
fyrir langa löngu og hittast aftur
áratugum síðar þar sem hún er að
breyta safni aflagðra sprengjuvéla í
útilistaverk.
Skemmtilegur stíll er á bókinni,
ýmist í fyrstu persónu eða þriðju,
hlaupið fram og aftur í tíma og klif-
un eykur áhrifagildi margra þátt-
anna. Bókin er ekki auðveld aflestr-
ar, gerir talsverðar kröfur til
lesandans, en það erfiði gefur vel af
sér og óhætt að telja Underworld
með helstu skáldsögum síðustu ára
vestan hafs.
Árni Matthíasson
Ilmurinn úr eldhúsinu
Umdeild bók vestan hafs er Kitchen Confídential eftir Anthony
Bourdain. Árni Matthíasson las bók Bourdains sem minnti hann á
aðra eldri, Down and Out in Paris and London eftir George Orwell.
FYRIR STUTTU kom út vestan hafs
bókin Kitchen Confidential eftir
Anthony Bourdain þar sem hann
segir frá starfi sínu sem matreiðslu-
maður í New York og reyndar víðar.
Ekki þurfti lengi að lesa f bókinni til
að önnur bók, öllu eldri, rifiaðist
upp, Down and Out in Paris and
London, sem segir á eftirminnilegan
hátt frá lífinu í eldhúsum Parísar á
árunum fyrir seinna stríð. Báðar eru
bækumar opinskáar, segja báðar
frá ókræsilegum mannsöfnuði sem
drekkur og hórast á milli þess sem
hann eldar himneskar máltíðir.
Átakanlegar lýsingar
Down and Out in Paris and
London kom út f janúar 1933 en
Orwell skrifaði fyrsta hluta hennar
haustið 1930. í handritum að bók-
inni má sjá að Orwell skrifaði X sem
nafn höfundar en ákvað á síðustu
stundu að skrifa bókina undir rithöf-
undarnafni sínu. I bókinni segir
Orwell frá lífi fátæklinga í París og
London, en Parísarkaflamir em
merkilegir fyrir þær sakir að hann
vann fyrir sér sem vikapiltur í eld-
húsum sumra helstu veitingahúsa
Parísar á þeim tíma fyrir sultarlaun.
Lýsingar Orwells á lífinu í undir-
heimum Parísar em átakanlegar en
forvitnilegar lýsingar á því hvemig
var að vinna í fínum eldhúsum þar
sem menn óðu úrganginn f ökkla f
eldhúsinu og fúndu rottur
skjótast yfir
Anthony Bourdain
fætur sér
í sorpinu. Orwell lýsir
starfsfólkinu í eldhúsunum sem
sérkennilegu samsafni fólks með
fjölbreytilega persónubresti.
Frásögn Orwells hefst í Rue Du
Coq D’Or, stræti í einu af fátækra-
hverfum Parísar, en hann dvaldi
meðal allsleysingja þar í borg í
nokkra mánuði, deildi með þeim
kjörum, ósigmm og niðurlægingu.
Hann fékkst við ýmsa snúninga þar
til hann fékk vinnu í veitingahúsum
og vann sig smám saman „upp“, æv-
inlega neðstur í metorðastiganum
sem ómenntaður launaþræll, en
veitingahúsin urðu smám saman
fínni. Þau vom þó eins og kalkaðar
grafir, því Orwell segist hafa komist
að því að eftir því sem veitingahúsið
þótti betra, maturinn í því ljúffeng-
ara og dýrara augakonfekt var
sorpið og óþrifnaðurinn í eldhúsinu
meiri og nær hámarki í einu besta
veitingahúsi Parísar á þeim ámm,
en lýsingin á úrgangi í ökkla hér að
framan á einmitt við um það.
Beittur penni og hreinskiptinn
Anthony Bourdain er yfir-
matreiðslumaður á veitingahúsinu
Brasserie Les Halles í New York
sem er hátt skrifað hjá matgæðing-
um. Hann er líka beittur penni og
hreinskiptinn, svo hreinskiptinn
reyndar að mörgum þótti nóg um og
er víst að útgáfa þessarar bókar afl-
aði honum marga óvina í veitinga-
húsarekstri.
Bourdain segir frá ann-
arri hlið á veitingahúsa-
rekstri en George Orwell
og þótt ástandið sé langt í
frá eins hrikalegt og það
var í veitingahúsum París-
ar á millistríðsámnum
svipar lýsingum þeirra
óþægilega saman á köfl-
um. Enda má segja að
þegar mest gengur á í
eldhúsinu og húsið er
fullt af gestum sem allir
bíða óþreyjufullir eftir
mat sínum velti menn
ekki alltaf fyrir sér
hreinlætiskröfum eða
heilbrigðiseftirliti og ilmurinn
úr eldhúsinu verður síst lokkandi.
Af lýsingu Bourdains af fyrstu ár-
um hans í matreiðslunni má skilja að
matreiðslumenn á áttunda ára-
tugnum, þegar hann var að bijótast
áfram, hafi verið dreggjar þjóðfé-
lagsins og sitthvað ófagurt átt sér
stað í eldhúsinu þegar gestirnir sáu
ekki til. Bourdain
skrifar það ekki síst á
vinnutímann og hið
gríðarlega álag sem er
á matreiðslumönnun-
um þegar mest er að
gera í eldhúsinu; að-
staða þeirra er yfirleitt
í lakara lagi, sífelld
hætta af heitum pott-
um og pönnum og bit-
hvöss eggvopn út um
allt. Reyndar má telja
kraftaverk að enginn
skuli hafa látið lífið í
mörgum þeim ævintýr-
um sem Bourdain segir
fráíbókinni.
Aldrei panta fisk á
mánudögum
Kitchen Confidential byijaði í
raun sem löng grein í New Yorker-
timaritinu en í henni lýsti Bourdain
því meðal annars hvers vegna aldrei
ætti að panta fisk á mánudögum og
hvers vegna það gæti verið beinlínis
lífshættulegt að fá sér kræklinga,
hollandaise-sósu, djúpsteikta sjávar-
rétti, sverðfisk, vel steikt kjöt og svo
má lengi telja. Hann flettir ofan af
George Orwell
allskyns smáatriðum sem matsvein-
ar og eigendur veitingahúsa nota til
að hagnast aðeins meira, hvemig
brauðið sem ekki gengur út á einu
borði er borið fram á því næsta, af-
gangar vikunnar verða að helgar-
hlaðborði og svo framvegis.
Þessi grein varð kveikjan að bók-
inni Kitchen Confidential sem vakið
hefur mikla athygli og gert Bourda-
in að einum umdeildasta matreiðslu-
manni New York. í bókinni er grein-
in orðin að Iöngum kafla, en framan
við hann hefur Bourdain skeytt frá-
sögn af því hvers vegna hann leidd-
ist út í matreiðsluna, segir frá nám-
inu í CIA-stofnuninni f New York
sem var þá helsti matreiðsluskóli
Bandaríkjanna og aftan við bætir
hann frekari hryllingssögum af upp-
eldi hans í eldhúsinu.
Á sjöunda hundrað
rétta á einu kvöldi
Bourdain segir frá því af hrein-
skilni hvemig starfið leiddi hann út í
áfengisdrykkju og síð-
an í ýmis önnur fíkni-
efni, kókaín og heróín
og hvaðeina. Hann
sigraðist á fíkninni að
lokum að því er hann
rekur í bókinni, en
ekki gat hann sigrast á
spennufíkninni, þeirri
löngun að taka þátt í
æðinu sem rekstur á
eldhúsi í vinsælu veit-
ingahúsi er þar sem
elda þarf á sjöunda
hundrað rétta á einu
kvöldi. Bók Bourdains
var almennt illa tekið
af samstarfsfélögum
hans og varla nema
von. í bókinni kemur
fram að hann hafi unnið á fjölmörg-
um veitingahúsum, en í raun svipi
þeim mjög saman; starfsfólk að stór-
um hluta ólöglegir innflytjendur eða
góðkunningjar lögreglunnar og öll
samskipti sífellt á háa c-inu. Ekki er
laust við að eftir lesturinn finnist
lesanda ótrúlegt að þessum ósam-
stæða hópi skuli takast að koma
saman sómasamlegum mat, hvað þá
lostæti og ódáinsveigum.
Forvitnilegar bækur
Innblásið
ævintýri
Cryptonomicon, skáldsaga eftir
Neil Stephenson. Random House
gefur út í Arrow-kiljuröð sinni
2000.918 síðna kilja. Kostaði 1.595
kr. í Máli og menningu.
NEIL Stephenson sló í gegn
með vísindaskáldsögu sinni Snow
Crash sem segir frá þrjótum sem
finna leið til þess að láta vitund
manns hrynja líkt og stýrikerfi
tölvu. Sú bók var mikil flugelda-
sýning hugmynda og höfðaði líkast
til helst til tölvuáhugamanna þótt
lesa mætti hana sem nokkuð hefð-
bundna spennusögu. Þá bók sem
hér er gerð að umtalsefni er og
hægt að lesa sem spennusögu, en
þeir sem fengið hafa nasasjón af
stærðfræði og/eða stærðfræðisögu,
þekkja eitthvað til dulritunar og
tövutækni almennt, eiga eftir að
finna í bókinni óteljandi tilvísanir
og útúrdúra og beitta gamansemi.
Áhugamenn um stríðssögu fá
nokkuð fyrir sinn snúð og svo
mætti reyndar lengi telja því
Stephenson er einkar lagið að
flétta saman ólíklegustu þætti
þekkingar.
Ekki er gott að rekja söguþráð-
inn en sögusviðið nær frá dulritun-
arbúðum Breta í Blenchely Park
til Höfuðskeljahæðar í frumskóg-
um Filippseyja, segir frá frumherj-
um í dulritunarfræðum, leynifélagi,
þýskum kafbátahernaði, stríðs-
glæpum Japana, nasistagulli, há-
tækni í gagnaflutningum, veffé og
svo má áfram telja. Cryptonomicon
er þrekvirki sem margir hafa líkt
við doðranta Pynchons, en Steph-
enson er ólíkt agaðri rithöfundur
og ekki eins gefinn fyrir innihalds-
laust vitundarflæði og Pynchon.
Hann er aftur á móti gefinn fyrir
upplýsingar og smáatriði og upp-
lýsingar um smáatriði. Þannig er á
hverri síðu eitthvað umhugsunar-
vert og grúi ónauðsynlegra smá-
atriða sem ekki er hægt að vera
án. Ekki spillir að bókin er drep-
fyndin, þótt víða sé hún svo átak-
anleg að lesandi fær tár í augun.
Eins og sjá má í upphafi þessa
texta er bókin ríflega 900 síður og
þegar við bætist að letrið er smátt
sést kannski hve bókin er mikil að
vöxtum. Engu er þó í henni ofauk-
ið, hún er skrifuð af svo innblásinni
lipurð að unun er að lesa og suma
kafla les maður aftur og aftur. Sjá
til að mynda lýsingu á fundi með
soldáninum af Kinakutta eða af
endajaxlsaðgerð söguhetjunnar
sem notuð er til að undirstrika
mun á samböndum kynjanna.
Reyndar stóð ég mig að því undir
lokin að skammta mér 50 síður á
dag, til að treina bókina sem mest.
Síðustu fregnir herma að von sé á
framhaldi og vonandi að það verði
jafn magnað og ekki minna að
vöxtum.
Árni Matthíasson