Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ljósmynd/Gunnar Þór Hallgrímsson
Fjallvákur á
sveimi yfir
Nauthólsvík
SJALDGÆFUR ránfugl hefur
gert sig heimakominn í Nauthóls-
vík. Þegar fuglafræðingar frá
Náttúrufræðistofnun skoðuðu
| fuglinn siðastliðinn föstudag kom
í ljós að þetta er ungur fjallvák-
j ur. Fylgdust þeir með honum á
músavciðum fram eftir degi.
Ólíkt mörgum þeim flækings-
ránfuglum sem sést hafa hér á
landi hefur fuglinn haldið sig við
Nauthólsvíkina það sem af er
i þessari viku og hafa fuglaskoðar-
ar fengið kjörið tækifæri til að
skoða hann.
Fjallvákurinn er talinn vera
kominn frá Skandinavíu eins og
flestir þeir sjaldgæfu fuglar sem
sést hafa að undanförnu. Þeim
sem hafa áhuga á að fylgjast með
kornum sjaldgæfra fugla er bent
á vikulegar fuglafréttir á heima-
síðu Náttúrufræðistofnunar ís-
lands, www.ni.is
Ólafsfjörður
Sekt ef
börnin eru
sótt of seint
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
ÓLAFSF JARÐARBÆR
ákvað á dögunum að sekta þá
foreldra og/eða forráðamenn
sem sækja börn eftir að um-
sömdum vistunartíma á Leik-
hólum lýkur.
Sektin nemur 400 krónum í
hvert sinn sem slíkt gerist og
verður sektin innheimt með
leikskólagjöldunum. Eitthvað
mun hafa borið á því að for-
eldrar sæki börnin of seint,
þótt ekki sé það mjög áber-
andi. Fyrstu innheimtuseðl-
arnir með sektum fóru í dreif-
ingu í vikunni.
Samningaviðræður hafnar á milli grunnskólakennara og sveitarfélaga
Krefjast hækkunar byrjun-
arlauna úr 110 í 180 þúsund
EIN meginkrafa grunnskólakennara í komandi
kjarasamningum er að byrjunarlaun grunn-
skólakennara hækki í 180 þúsund krónur á
mánuði en skv. gildandi samningum hækka þau
í 110 þúsund 1. desember nk. Kjarasamningar
grunnskólakennara og sveitarfélaganna renna
út um næstu áramót.
Samninganefndir Félags grunnskólakennara
og launanefndar sveitarfélaga komu saman til
fyrsta samningafundarins vegna endurnýjunar
kjarasamninga í gær.
A fundinum lögðu samningsaðilar fram meg-
ináherslur sínar og kröfur í kjaramálum.
Sammála um að reyna að ljúka
samningum fyrir áramót
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, formaður Félags
grunnskólakennara, segir að í kröfugerð kenn-
ara sé tekið mið af skoðanakönnun sem gerð
var meðal kennara í mars sl.
Stefnt er að því að halda samningafundi viku-
lega á næstunni auk funda í smærri hópum.
„Við leggjum áherslu á að koma okkur upp
sameiginlegum markmiðum með gerð kjara-
samningsins. Báðir hóparnir leggja áherslu á
að samningsgerðinni verði lokið fyrir lok samn-
ingstímabilsins um næstu áramót,“ sagði Guð-
rún Ebba.
Hún sagði að á næstu fundum myndu samn-
ingsaðilar reyna að koma sér niður á sameigin-
leg markmið í samningunum og einnig ætti að
meta áhrif aðalnámskrár grunnskóla á starfs-
umhverfi grunnskólakennara.
Meðal annarra atriða í kröfugerð grunnskóla-
kennara er áhersla á starf umsjónarkennara í
skólum. „Umsjónarkennarar gegna lykilhlut-
verki í starfi nemenda og er lögð mikil áhersla
á gott samstarf á milli foreldra og umsjónar-
kennara og að upplýsingastreymi til foreldra sé
gott, því við vitum að gott samstarf á milli
skóla og heimila getur verið lykillinn að farsælu
starfi og skólagöngu nemenda," sagði hún.
Atkvæðagreiðsla
framhaldsskólakennara hafín
Atkvæðagreiðsla meðal framhaldsskólakenn-
ara og stjórnenda í framhaldsskólum um boðun
verkfalls frá og með 7. nóvember hófst í gær.
Kjörgögn hafa verið send trúnaðarmönnum
sem eru umboðsmenn kjörstjórnar í hverjum
skóla. 1.279 félagsmenn eru á kjörskrá. At-
kvæðagreiðslan stendur yfir til 16. október.
Stefnt er að því að talning atkvæða fari fram
laugardaginn 21. október.
Tónleikar
í Kennedy
Center
New York. Morgunbladiö.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
var að koma sér fyrir á sviðinu í
Kennedy Center í Washington til að
æfa fyrir tónleika þar þegar mynd-
in var tekin í gærkvöldi. Eggert
Pálsson pákuleikari sést hér raða
sleglum si'nuin og gera klárt fyrir
átök kvöldsins.
Valt ut í fjöru
MAÐUR og kona sluppu ómeidd að
telja má úr bílveltu skammt frá Ós-
brú í Bíldudal í gærkvöldi.
Vegurinn liggur við fjöruborðið og
valt bfllinn út í fjöruna og hafnaði
þar á þakinu í fjörugrjótinu. Fólkið
var í bílbeltum og má telja víst að
þau hafi bjargað miklu í þessu tilfelli.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlutabréf
deCODE
lækka
um 17%
GENGI hlutabréfa í deCODE Gene-
tics, móðurfyiirtæki íslenskrar
erfðagreiningar, lækkaði um 17% á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðnum í
Bandaríkjunum í gær. Gengi bréf-
anna við lok viðskipta var 20,125
Bandaríkjadalir en var 24,25 dalir við
lok viðskipta daginn áður. Þetta er
lægsta gengi bréfanna til þessa.
Gengi hlutabréfa deCODE lækkaði
einnig á evrópska hlutabréfamark-
aðnum Easdaq í gær en ekki eins
mikið og í Bandaríkjunum. Loka-
gengi bréfanna á Easdaq var 24,00
Bandaríkjadalir en síðasta viðskipta-
gengi þeirra áður var 24,80 dalir.
Lækkunin þar var því 3,2%. Viðskipt-
in á Easdaq voru einungis með 1.000
hluti en hins vegar voru viðskipti með
315.400 hluti í Bandaríkjunum.
Stofnkostnaður vegna nýs svæðisskípulags höfuðborgarsvæðisins
Framkvæmdir munu
kosta 181 milljarð
STOFNKOSTNAÐUR vegna
helstu framkvæmda, sem nauðsyn-
legt er að ráðast í vegna nýs svæðis-
skipulags fyrir höfuðborgarsvæðið,
er um 131 milljarður króna.
Arleg fjárfesting er þannig 5,7
milljarðar króna eða um 1% af
vergri þjóðarframleiðslu.
Svæðisskipulagið á að gilda til
ársins 2024. Gert er ráð fyrir að íbú-
um svæðisins fjölgi um 60 þúsund á
þessu tímabili.
í skýrslu um skipulagið segir:
„Kostnaðaráætlunin var byggð upp
með það í huga að geta borið saman
mismunandi skipulagstillögur, frek-
ar en til að gefa heildaryfirlit yfir op-
inbera fjárfestingu á svæðinu og
tekur aðeins til þjóðvega, almennra
vega, dagheimila, grunnskóla,
hjúkrunarheimila og elliheimila.
Þannig er undanskilinn stofnkostn-
aður orkuveitu, vatns- og fráveitu-
kerfa.“
Til viðbótar þessu er gert ráð fyrir
að það þurfi 6 milljarða vegna frek-
ari endurbóta á vegakerfinu ef hald:
á uppi núverandi þjónustustigi þess
I skýrslunni kemur fram að þörfn
fyrir fjárfestingar á höfuðborgar
svæðinu muni að miklu leyti ver:
undir áhrifum annarra þátta utai
svæðisskipulagsins, svo sem sam
söfnunar þjóðarinnar á höfuðborg
arsvæðið og þjóðfélagslegrar þróun
ar, sem leiðir til hlutfallslegra
fjölgunar eldri borgara.
■ Gert ráð fyrir/16
í dag
l*SlMIR
sstooR
•••••*99*9<m99WW9WW99WWW9WW9W ••••••• ••••••••
Eiði Smára Guðjohnsen líkt við
David Beckham/Bl
Tékkar brotlentu
á Möltu í heimsmeistaraleik/B6
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is