Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 4

Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Rafræn viðskipti jafnmikil hér og í Danmörku og Finnlandi RAFRÆN viðskipti á Netinu eru jafnmikil eða meiri hér á landi en í Finnlandi og Danmörku, sem þó eru í fremstu röð á þessu sviði. Þetta er niður- staða könnunar sem Samtök atvinnulífsins gerði meðal aðildarfyrirtækja sinna. Hannes G. Sigurðs- son, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, gerði grein fyrir niðurstöðunum á ársfundi samtakanna í gær. Hannes sagði að tilkoma Netsins hefði á örfáum árum leitt til mikilla breytinga á viðskiptaháttum. Viðskipti á Netinu hefðu verið að aukast hratt að undanfömu. Vöxturinn væri örastur í viðskiptum á milli fyrirtækja, en viðskipti fyrirtækja við ein- staklinga þróuðust hægar. Því væri spáð að við- skipti milli fyrirtækja ættu eftir að vaxa gríðarlega á næstu árum og að þau yrðu a.m.k. tífalt meiri, í fjárhæðum talið, en viðskipti milli fyrirtækja og einstaklinga. Hannes sagði að Finnar væru frumkvöðlar í notkun nýrrar upplýsingatækni og stæðu hvað fremstir meðal þjóða í rafrænum viðskiptum. Könnun á notkun fyrirtækja í Finnlandi og Dan- mörku með fleiri en 20 starfsmenn hefði leitt í ljós að yfir helmingur fyrirtækjanna notaði Netið til vörupantana árið 1999, en hlutfallið hefði verið 15% árið 1997. 40% fyrirtækjanna fengu pantanir gegnum Netið 1999, samanborið við 7% árið 1997. Helmingur fyrirtækja stundar rafræn viðskipti Samtök atvinnulífsins gerðu nýverið könnun meðal 920 aðildarfyrirtækja sinna á rafrænum við- skiptum. 404 fyrirtæki svöruðu, en þau eru sam- tals með um 30.000 starfsmenn og endurspegla vel atvinnulífið í heild. Niðurstaða könnunarinnar var að 45% fyrir- tækjanna notuðu Netið til vörupantana. 37% seldu öðrum fyrirtækjum vöru eða þjónustu og þriðj- ungur seldi neytendum vöru eða þjónustu gegn um Netið. Notkunin var mest í hugbúnaðargeiranum, hót- el- og veitingarekstri, samgöngum og fjarskiptum og fjármálaþjónustu eða á bilinu 60-75%. Ekki var mikill munur á notkuninni eftir stærð fyrirtækj- anna. Þegar beitt er sömu flokkun og gert var í könn- ununum í Finnlandi og Danmörku, þ.e. fyrirtæki með fleiri en 20 starfsmenn, er niðurstaðan sú að 53% stærri íslenskra fyrirtækja nota Netið til inn- kaupa, en hlutfallið var 50% í hinum löndunum. 39% íslenskra fyrirtækja selja öðrum fyrirtækjum í gegnum netið meðan hlutfallið er 40% í Dan- mörku og Finnlandi. Þriðjungur íslenskra fyrir- tækja selur neytendum í gegnum Netið, en 40% í hinum löndunum. „Samanburður við fyrrnefndar kannanir í Finnl- andi og Danmörku leiðir í ljós að útbreiðsla nýrra viðskiptahátta er jafnmikil eða meiri á Islandi og meðal þeirra Evrópuþjóða sem taldar eru standa fremst 1 þessu efni. Það má því draga þá ályktun af þessari könnun að íslensk fyrirtæki standa fylli- lega þeim fyrirtækjum í þeim ríkjum, sem fremst standa við upptöku og innleiðingar nýrrar tækni og viðskiptahátta, á sporði “ sagði Hannes. Gæsluvarð- hald fram- lengt HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um framleng- ingu á gæsluvarðhaldi yfir konu sem grunuð er um að hafa orðið manni að bana í húsi við Leifsgötu seinnihluta júlímánaðar í sumar. Gæsluvarðhald- ið er framlengt til 14. nóvember næstkomandi. Þá hefur Hæstiréttur einnig stað- fest úrskurð héraðsdóms um fram- lengt gæsluvarðhald yfir rúmenskum manni sem hefur játað að hafa framið sjö innbrot hér á landi í sumar. Heild- arverðmæti þýfisins er áætlað um 25 milljónir kr. og hefur aðeins hluti þess komið í leitirnar en fyrir liggur að hluti þýfisins hefur verið sendur til Rúmeníu. Úrskurðurinn er kveðinn upp á grundvelli b. og c. liða 103. gr. laga 19/1991 þess efnis að ætla megi að kærði reyni að komast úr landi eða að hann haldi áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið. Fallist er á kröfu lögreglustjórans í Reykjavík um að ákærði sæti gæsluvarðhaldi uns dóm- ur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til fóstudagsins 3. nóvember. --------------- Titlar sig- héraðsdóms- lögmann án leyfís SÝSLUMAÐURINN í Hafnarfirði hefur nú til meðferðar mál lögfræð- ings sem í heimildarleysi notaði tit- ilinn héraðsdómslögmaður við und- irritun innheimtubréfa. Lögfræð- ingurinn missti fyrir nokkrum árum málafærsluréttindi sín er bú hans var tekið til gjaldþrotaskipta. Lögfræðingurinn titlar sig samt sem áður héraðsdómslögmann en slíkt er brot á lögum. Gerði Lög- mannafélag íslands athugasemd við dómsmálaráðuneytið vegna þessa hátternis mannsins. Rannsókn er á lokastigi hjá emb- ætti sýslumannsins í Hafnarfirði. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um framhald málsins. Kaupás hf. hefur keypt Húsgagnahöllina og Intersport Morgunblaðið/Jim Smart F.v. Gylfi Arnbjörnsson, stjórnarformaður Kaupáss, Jón Hjartarson, stjórnarformaður og fulltrúi seljenda, og Þorsteinn Pálsson, forstjóri Kaupáss, handsala kaupsamninginn. Nýr stórmarkaður fyrir hugaður á Bíldshöfða KAUPÁS hf. og eigendur Hús- gagnahallarinnar, Intersport og fasteignarinnar Bíldshöfði 20 komust í gær að samkomulagi um kaup Kaupáss á öllum rekstri og húseign fyrrgreindra félaga. Af- hending eignanna verður um næstu áramót. Við þessi kaup eignast núverandi eigendur hlut í Kaupási, sem rekur sem kunnugt er verslunarkeðjurnar Nóatún, 11-11, KÁ-verslanir og Kosta- kaup. Þorsteinn Pálsson, forstjóri Kaupáss, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi, þegar hann var spurð- ur um markmið kaupanna, að fyr- irtækið hefði upphaflega verið stofnað til að reka verslanir. „Þarna er um að ræða tvö fyrir- tæki sem eru mjög áhugaverð verslunarfélög og falla vel að þeirri stefnu okkar að vera í blönduðum rekstri verslana. Að auki er húsið eitt af þremur stærstu verslunarhúsum á íslandi. Þar sáum við færi á að opna blandaðan stórmarkað, ásamt þeim verslunum sem þar eru, og hugsanlega að nýta það enn frek- ar til að opna fleiri verslanir," sagði Þorsteinn. Ástæða þess að eigendur Hús- gagnahallarinnar og Intersport selja, að sögn Þorsteins, er að þeir Iíta svo á að með þátttöku f rekstri Kaupáss, séu þeir að efla sín fyrir- tæki til framtíðar. Húsgagnahöllin og Intersport hafa verið leiðandi fyrirtæki hvort á si'nu sviði. Húsgagnahöllin hefur verið starfandi í tæp 40 ár og hef- ur umboð fyrir þekkt vörumerki á borð við IDÉ möbler, LA-Z-BOY, Broyhill og Serta-rúm. Intersport tók til starfa hér á landi fyrir rúmum tveimur árum þegar verslun var opnuð á Bílds- höfða 20 og er hluti af alþjóðlegri keðju íþróttavöruverslana, sem er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum. Intersport starfrækir um 4.500 verslanir um allan heim, stofnað árið 1957, en höfuðstöðv- arnar eru í Sviss. Að sögn Þorsteins hefur rekstur félaganna gengið mjög vel undan- farin ár og verður engin breyting á rekstri og stjórnun þeirra. ÖIl- um starfsmönnum verður boðið áframhaldandi starf hjá nýjum eigendum og áfram verða verslan- ir í húsinu undir nöfnum Hús- gagnahallarinnar og Intersport. Stórmarkaður með mat- og sérvöru Á næsta ári mun fara fram end- urskipulagning á húsnæðinu á Bfldshöfða 20 en húsnæðið er alls um 15 þúsund fermetrar að flatar- máli. Við þá endurskipulagningu er ætlun Kaupáss að opna þar stórmarkað með matvöru og sér- vöru, með svipuðu sniði og stór- markað KÁ á Selfossi. Aðspurður sagði Þorsteinn að nafn á þeim markaði hefði ekki verið ákveðið. Þá er gert ráð fyrir að fleiri verslanir og veitingastaðir muni verða þar til húsa í framtíðinni. Geisladiskataska / Skipulagsmappa t Penni Námsmannalínudebetkort i Bílprófsstyrkir Námsmannalínureikningur / Netklúbbur Framfærslulán / Lægri yfirdráttarvextir Námsstyrkir / Námslokalán / Tölvukaupalán ISIC afsláttarkort / Heimilisbankinn ® BÚNAÐARBANKINN Tmustur banki námsmannalinan J Eignir lífeyris- sjóða jukust EIGNIR lífeyrissjóða jukust um 110 milljarða króna á ár- inu 1999 og námu 517 millj- örðum króna í árslok. Aukn- ingin er 27% sem jafngildir 20% raunaukningu á árinu miðað við hækkun vísitölu neysluverðs, að' því er fram kemur í skýrslu Fjármálaeft- irlitsins um rekstur og af- komu lífeyrissjóðanna á árinu 1999. Fram kemur að ráðstöfun- arfé í lífeyrissjóðakerfinu í heild nam 149,3 milljörðum króna á síðasta ári, saman- borið við 129,7 milljarða króna árið áður. Hrein raun- ávöxtun nam 12% á árinu miðað við vísitölu neyslu- verðs, en var 7,4% árið 1998. Iðgjöld jukust einnig mjög mikið milli ára eða úr 36,7 milljörðum kr. árið 1998 í 49 milljarða króna í fyrra. Gjald- færður lífeyrir var 16,3 millj- arðar kr. í fyrra og jókst um tæpan milljarð króna frá ár- inu áður. Þá kemur fram að lífeyris- sjóðum fækkaði úr 66 í 60 á árinu 1999 og fyrirsjáanleg var frekari fækkun um síðast- liðin áramót og um mitt þetta ár um fjóra sjóði til viðbótar. Af sjóðunum sextíu sem starfandi voru um áramót tóku 13 ekki lengur við ið- gjöldum og voru því full- starfandi sjóðir 47. Af þessum sextíu eru 46 lífeyrissjóðir án ábyrgðar annarra og 14 með ábyrgð annarra. Holtavörðuheiði Slæm umgengni í sælu- húsinu STARFSMENN Vegagerðarinnar í Borgarnesi hafa að undanförnu í- trekað orðið varir við slæma um- gengni fólks í sæluhúsinu á Holta- vörðuheiði, sem Vegagerðin hefur eftirlit með. Að sögn Bjarna Johansen, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar, keyrði um þverbak í síðustu viku þegar Vegagerðarmenn urðu varir við það að fólk hafði gengið örna sinna inni í sæluhúsinu. I sömu ferð sáu starfsmenn Vegagerðar- innar að teljarakassi við veginn, sem stendur nálægt húsinu, hafði verið eyðilagður. „Það er alveg hörmulegt að hugsa til þess hvernig fólk gengur þarna um. Við höfum rætt það í okkar hópi að eðlilegast væri að leggja að minnsta kosti þetta hús niður. Sæluhúsið hefur ekki sömu þýðingu og það hafði á sínum tíma. Þegar svona vandamál koma upp flýtir það fyrir slíkum ákvörðun- um. Við erum að missa þolinmæðina gagnvart þessari umgengni,“ sagði Bjarni. Fyrir nokkrum árum gafst Vegagerðin upp á að hafa fjar- skiptabúnað í sæluhúsinu, þar sem honum var ítrekað stolið eða hann skemmdur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.