Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Þingmaður
vill sam-
göngubætur á
VestQörðum
GUÐJÓN A. Kristjánsson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, hefur lagt
fram á Alþingi tillögu til þings-
ályktunar um varanlegar samgöngu-
bætur á Vestfjörðum. Vill Guðjón
Amar að samgönguráðherra verði
falið að kanna hagkvæmni þess að
gera jarðgöng úr botni ísafjarðar
undir Kollafjarðarheiði annars vegar
og undir Eyrarfjall hins vegar, úr
Mjóafirði í Isafjarðardjúpi yfir í ísa-
fjarðarbotn. Ennfremur að könnuð
verði hagkvæmni þess að þvera
Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufu-
fjörð á Barðaströnd.
í greinargerð með tillögunni segir
að samgöngur á Vestfjörðum standi
mjög í vegi fyrir frekari framþróun á
svæðinu. Það eigi sérstaklega við á
veturna þegar vegir séu iðulega
ófærir eða illfærir um langa tíma
vegna snjóþyngsla og óveðra. Telur
flutningsmaður að gerð jarðganga sé
í raun eina leiðin til að tryggja vetr-
arsamgöngur til og frá Vestfjörðum
og innan svæðisins.
„Flutningsmaður er eindregið
þeirrar skoðunar að jarðgöng sem
stytta vegalengdir milli staða og
leysa okkur undan snjómokstri á erf-
iðum fjallvegum sé sú lausn sem
stefna beri að þegar leita skal leiða
sem talist geta varanlegar sam-
göngubætur. Þetta á auðvitað best
við á snjóþyngstu fjallvegum lands-
ins, t.d. á Vestfjörðum. Það hefur
einnig sýnt sig að þverun fjarða bæði
styttir vegalengdir og færir vega-
stæði af snjóþungum hættusvæð-
um,“ segir í greinargerðinni.
-----------------
Hámarksverð
olíuvara af-
numið 1992
FRAM kom í máli Valgerðar Sverr-
isdóttur, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, á Alþingi í gær að hún
hefði nýverið ritað Samkeppnis-
stofnun bréf þar sem hún óskaði
þess að verðlagning olíufélaganna
yi-ði athuguð og orsakir verðhækk-
ana á olíu og bensíni skýrðar, auk
þess sem kannað yrði hvort um sam-
ráð kunni að vera milli olíufélaganna
um verðákvarðanir. Sagði Valgerð-
ur að vinna við þessa athugun væri
þegar hafin.
Kristján Pálsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hafði borið fram
fyrirspum til ráðherrans um sam-
keppni olíufélaganna en tilefni fyrir-
spurnarinnar voru þær verðhækk-
anir sem orðið hafa að undanförnu á
þessum markaði. Furðaði Kristján
sig á því að verð á olíu og bensíni
skyldi alltaf vera nákvæmlega það
sama hjá stóru olíufélögunum þrem-
ur.
Ríkar ástæður þurfa að vera til
að gripið verði til íhlutunar
Kristján spurði viðskiptaráðherra
m.a. um það hvernig væri háttað eft-
irliti samkeppnisyfirvalda með verð-
lagningu olíufélaganna á eldsneyti.
Valgerður rifjaði upp að hámar-
ksverð á olíuvörum hefði verið num-
ið úr gildi 1. apríl 1992. Sagði hún að
frá þeim tíma hefðu verðlagsyfir-
völd og nú samkeppnisyfirvöld ekki
haft bein afskipti af verðlagningu ol-
íufélaganna. Benti hún á að skv.
samkeppnislögum þyrftu að vera til
staðar mjög ríkar ástæður til þess
að samkeppnisyfirvöld grípi til
íhlutunar í verðlagningu fyrirtækja.
Til þess hefði enn ekki komið.
Valgerður sagði ennfremur að á
fákeppnismarkaði eins og olíumark-
aðnum gæti sama verð hjá olíufélög-
unum bæði verið til marks um að
virk samkeppni ríkti og að félögin
hefðu með sér samráð. Olíufélögin
hefðu alfarið hafnað því að þau hafi
með sér samráð og annað hefði ekki
verið sýnt fram á.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Valgerður Sverrisdóttir svarar fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar á Alþingi í gær.
Sameining ríkisbanka rædd við upphaf þingfundar
Ötímabært að velta fyrir
sér beitingu lagaheimildar
HUGSANLEG sameining Lands-
banka og Búnaðarbanka kom til
umræðu við upphaf þingfundar á
Alþingi í gær en þá kvaddi Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingar, sér hljóðs um störf
þingsins. Spurði hann viðskiptar-
áðherra hvort hún teldi ekki ráð að
nota nú lagaheimild sem hún hefði
til að biðja Samkeppnisstofnun um
að kanna fyrirfram hvort samein-
ing bankanna stríddi gegn sam-
keppnislögum. Sagði Össur að það
lægi nefnilega fyrir að við samein-
ingu þessara tveggja ríkisbanka
yrði til „ofurbanki" sem hefði
sennilega næstum 60% hlutdeild á
viðskiptabankamarkaði. Hætta
væri á að slíkur banki teldist mark-
aðsráðandi skv. samkeppnislögum
og óhætt væri því að segja að áhöld
væru um það hvort sameiningin
stæðist gildandi lög.
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, bar til
baka þá staðhæfingu Össurar að
stjórnvöld hefðu staðfest að fram
færu nú viðræður um sameiningu
bankanna. Sagði hún enga ákvörð-
un hafa verið tekna um það að sam-
eina bankana. Spurning Össurar
væri ótímabær á meðan svo væri.
Sagðist hún ekki geta svarað því
hvenær tíðinda væri að vænta af
þessum málum, en þess yrði vart
lengi að bíða.
Menntamálaráðherra segir drög að nýju
lagafrumvarpi um Rfldsútvarpið liggja fyrir
Segir engan ágreining
vera um næstu skref
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra greindi frá því á Alþingi í
gær að fram hefðu farið samræður
milli hans og Halldórs Ásgrímsson-
ar utanríkisráðherra og formanns
Framsóknarflokksins um rekstrar-
form Ríkisútvarpsins. Sagði hann
þessar samræður hafa verið með
þeim hætti að hann ætti ekki von á
öðru en samkomulag næðist milli
stjórnarflokkanna um framtíðar-
skipan mála í Efstaleitinu. Rifjaði
ráðherra jafnframt upp að hann
hefði margoft lýst þeirri skoðun
sinni að hlutafélagaformið væri
heppilegast.
Það var Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaður Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboðs, sem gerði mál-
efni RÚV að umtalsefni í utandag-
skrárumræðu. Hún gagnrýndi að
enn skyldi eiga að draga saman í
rekstri þess ef marka mætti frum-
varp til fjárlaga. Sagði Kolbrún að
því færi fjarri að afnotagjöld RÚV
hefðu hækkað í samræmi við
neysluverðsvísitölu og velti fyrir
sér hvernig stofnunin ætti að upp-
fylla skyldur sínar við þessar að-
stæður, sem kallaðar hefðu verið
„fjárhagsleg spennitreyja“.
Kolbrún sagði vilja menntamála-
ráðherra til að breyta rekstrar-
formi Ríkisútvarpsins liggja fyrir.
Hún vildi hins vegar vita hvort
samkomulag hefði verið gert milli
stjórnarflokkanna um þau mál og
hún lýsti ennfremur eftir boðuðu
frumvarpi um Ríkisútvarpið.
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra sagðist skilja orð Kol-
brúnar þannig að hún vildi hækkun
afnotagjalda RÚV. Hann sagði að
við núverandi verðbólguaðstæður
væri lítið svigrúm til slíkra aðgerða
og benti á að ríkisstjómin hefði nú
einmitt legið undir ámæli fyrir
ALÞINGI
þensluvaldandi aðgerðir í efna-
hagsmálum.
Björn kvaðst áður hafa lýst
þeirri skoðun sinni að þrjár leiðir
væru einkum færar til að standa að
fjármögnun Ríkisútvarpsins. Að
viðhalda áfram núverandi afnota-
gjaldakerfi, að þeggja á ákveðinn
nefskatt fyrir RÚV og í þriðja lagi
að það fengi sínar fjárveitingar af
fjárlögum og yrðu þá tekjur þess
innheimtar í almennu skattkerfi
ríkisins. Sagðist ráðherra einna
helst hallast að síðustu leiðinni og
upplýsti að hann hefði látið kanna
þann kost sérstaklega.
„Það frumvarp sem ég hef hugað
að varðandi Ríkisútvarpið liggur í
sjálfu sér fyrir í drögum á mínum
vegum, og það hafa farið fram við-
ræður á milli mín og formanns
Framsóknarflokksins um næstu
skref í málinu. Við erum að ræða
það mál en það hefur ekki neitt
komið fram í okkar samtölum sem
segir mér að það náist ekki sam-
komulag á milli stjórnarflokkanna í
þessu máli,“ sagði Björn. Lét hann
þess getið að hann liti ekki svo á að
ágreiningur væri milli flokkanna og
að hann teldi víst að þeir kæmust
að sameiginlegri niðurstöðu.
I framhaldi af orðum ráðherra
varpaði Einar Már Sigurðarson,
Samfylkingu, þeirri spurningu til
fulltrúa Framsóknarflokksins
hvort rétt væri að enginn ágrein-
ingur væri um RÚV. Páll Magnús-
son svaraði því til að framsóknar-
menn væru ekki andsnúnir
breytingum á formi Ríkisútvarps-
ins þó að þeir höfnuðu einkavæð-
ingu þess. Sagði Páll einnig eðlilegt
að velta fyrir sér hvort ríkið ætti að
standa í rekstri dægurmálaútvarps.
Arni Gunnarsson, flokksbróðú’
Páls, tók í sama streng. Sagðist
hann þó viss um að fyrir því væri
afgerandi meirihluti á Alþingi að
RUV verði áfram ríkisútvarp.
Sagði Ámi að ná þyrfti þverpóli-
tískri sátt um RUV enda væri
stofnuninni lítill greiði gerður með
því að sífellt væri verið að gera
stofnunina að þrætuepli á Alþingi.
Illutafélagaformið
fýsilegur kostur?
Ögmundur Jónasson, Vinstri
grænum, velti því fyrir sér í fram-
haldinu hvort Framsóknarflokkur-
inn væri að komast á þá skoðun að
hlutafélagavæða ætti RÚV og þau
Svanfríður Jónasdóttir, Samfylk-
ingu, og Steingrímur J. Sigfússon,
VG, gagnrýndu mjög bein og óbein
afskipti menntamálaráðherra af
Ríkisútvarpinu, sem sá síðarnefndi
sagði beinlínis miða að því að veikja
stofnunina.
Sigríður Anna Þórðardóttir og
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki, lýstu hins vegar þeirri
skoðun sinni að hlutafélagaformið
væri fýsilegur kostur í stöðunni.
Lét Sigríður þess getið að hún teldi
endurskoðun laga um Ríkisútvarp-
ið löngu tímabæra og m.a. ætti að
leggja niður útvarpsráð enda ætti
það engan rétt á sér við breyttar
aðstæður.
Stofnað
verðisér-
stakt laga-
ráð á veg-
um Alþingis
LAGT er til að sett verði á
stofn sérstakt lagaráð á veg-
um Alþingis í frumvarpi sem
þrír þingmenn Samfylkingar
hafa lagt fram á Alþingi. Yrði
lagaráð þetta skipað af for-
seta Alþingis til fjögurra ára í
senn og hefði það hlutverk að
setja samræmdar reglur um
samningu lagafrumvarpa og
annan undirbúning löggjafar-
mála. Ennfremur gera flutn-
ingsmenn ráð fyrir að lagaráð
verði Alþingi og stjórnarráð-
inu til ráðgjafar um undirbún-
ing löggjafar, um það hvort
frumvörp standast stjórnar-
skrá eða alþjóðasamninga
sem ísland er bundið af eða
hvort á frumvörpum eru laga-
tæknilegir ágallar.
Bryndís Hlöðversdóttir,
þingmaður Samfylkingar í
Reykjavík, er fyrsti flutnings-
maður frumvarpsins. Fram
kemur í greinargerð að það sé
lagt fram nú í framhaldi af
skýrslu sem rædd var á þingi
síðasta vetur um starfsskil-
yrði stjórnvalda, eftirlit með
starfsemi þeirra og viðurlög
með réttarbrotum í
stjórnsýslunni. I skýrslunni,
sem unnin var af nefnd er laut
forystu Páls Hreinssonar,
dósents við Háskóla Islands,
hafi komið fram að annars
staðar á Norðurlöndunum sé
það liður í starfsemi ráðun-
eyta að starfrækja sérstakar
lagaskrifstofur sem hafl það
hlutverk að fara yfir stjórnar-
frumvörp og kanna m.a. hvort
á þeim séu lagatæknilegir ág-
allar eða hvort þau samræm-
ast stjórnarskrá. Þetta sé
hins vegar ekki reyndin á Isl-
andi.
I skýrslunni komi ennfrem-
ur fram að miklu fleiri hnökr-
ar séu á íslenskri löggjöf en á
löggjöf annarra norrænna
ríkja, t.d. misræmi eða
árekstrar milli lagaákvæða,
prentvillur og óskýr texti.
Telja flutningsmenn að þörf
sé á markvissum úrbótum á
þessu sviði og því sé frum-
varpið lagt fram. Þeir segja
hins vegar að ástæða þess að
lagt er til að sú leið sé farin að
stofna lagaráð en ekki laga-
skrifstofu við Stjórnarráð Is-
lands, sem hefði sama hlut-
verk með höndum, sé fyrst og
fremst sú að með þessu fyrir-
komulagi væri verið að
styrkja þátt Alþingis í laga-
setningunni.
Alþingi
Dagskrá
FUNDUR hefst í Alþingi í dag kl.
10.30. Á dagskrá fundarins eru eft-
irfarandi mál:
1. Neytendalán. 1. umræða.
2. Grundvöllur nýrrar fiskveiði-
sljórnar. Fyrri umræða.
3. Stjórn fiskveiða. 1. umræða.
4. Stjórn fiskveiða. 1. umræða.
5. Þátttaka íslands í Alþjóðahval-
veiðiráðinu. Fyrri umræða.
6. Fjárfesting erlendra aðila í at-
vinnurekstri. 1. umræða.
7. Almannatryggingar. 1. umræða.
8. Varanlegar samgöngubætur á
Vestfjörðum. Fyrri umræða.
9. Könnun á umfangi vændis. Fyrri
umræða.
10. Landsvegir á hálendi íslands.
Fyrri umræða.
11. Loftferðir. 1. umræða.
12. Jarðalög. 1. umræða.
13. Tekjuskattur og eignarskattur.
1. umræða.
14. Almannatryggingar. 1. um-
ræða.