Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Þingmaður vill sam- göngubætur á VestQörðum GUÐJÓN A. Kristjánsson, þingmað- ur Frjálslynda flokksins, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um varanlegar samgöngu- bætur á Vestfjörðum. Vill Guðjón Amar að samgönguráðherra verði falið að kanna hagkvæmni þess að gera jarðgöng úr botni ísafjarðar undir Kollafjarðarheiði annars vegar og undir Eyrarfjall hins vegar, úr Mjóafirði í Isafjarðardjúpi yfir í ísa- fjarðarbotn. Ennfremur að könnuð verði hagkvæmni þess að þvera Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufu- fjörð á Barðaströnd. í greinargerð með tillögunni segir að samgöngur á Vestfjörðum standi mjög í vegi fyrir frekari framþróun á svæðinu. Það eigi sérstaklega við á veturna þegar vegir séu iðulega ófærir eða illfærir um langa tíma vegna snjóþyngsla og óveðra. Telur flutningsmaður að gerð jarðganga sé í raun eina leiðin til að tryggja vetr- arsamgöngur til og frá Vestfjörðum og innan svæðisins. „Flutningsmaður er eindregið þeirrar skoðunar að jarðgöng sem stytta vegalengdir milli staða og leysa okkur undan snjómokstri á erf- iðum fjallvegum sé sú lausn sem stefna beri að þegar leita skal leiða sem talist geta varanlegar sam- göngubætur. Þetta á auðvitað best við á snjóþyngstu fjallvegum lands- ins, t.d. á Vestfjörðum. Það hefur einnig sýnt sig að þverun fjarða bæði styttir vegalengdir og færir vega- stæði af snjóþungum hættusvæð- um,“ segir í greinargerðinni. ----------------- Hámarksverð olíuvara af- numið 1992 FRAM kom í máli Valgerðar Sverr- isdóttur, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, á Alþingi í gær að hún hefði nýverið ritað Samkeppnis- stofnun bréf þar sem hún óskaði þess að verðlagning olíufélaganna yi-ði athuguð og orsakir verðhækk- ana á olíu og bensíni skýrðar, auk þess sem kannað yrði hvort um sam- ráð kunni að vera milli olíufélaganna um verðákvarðanir. Sagði Valgerð- ur að vinna við þessa athugun væri þegar hafin. Kristján Pálsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hafði borið fram fyrirspum til ráðherrans um sam- keppni olíufélaganna en tilefni fyrir- spurnarinnar voru þær verðhækk- anir sem orðið hafa að undanförnu á þessum markaði. Furðaði Kristján sig á því að verð á olíu og bensíni skyldi alltaf vera nákvæmlega það sama hjá stóru olíufélögunum þrem- ur. Ríkar ástæður þurfa að vera til að gripið verði til íhlutunar Kristján spurði viðskiptaráðherra m.a. um það hvernig væri háttað eft- irliti samkeppnisyfirvalda með verð- lagningu olíufélaganna á eldsneyti. Valgerður rifjaði upp að hámar- ksverð á olíuvörum hefði verið num- ið úr gildi 1. apríl 1992. Sagði hún að frá þeim tíma hefðu verðlagsyfir- völd og nú samkeppnisyfirvöld ekki haft bein afskipti af verðlagningu ol- íufélaganna. Benti hún á að skv. samkeppnislögum þyrftu að vera til staðar mjög ríkar ástæður til þess að samkeppnisyfirvöld grípi til íhlutunar í verðlagningu fyrirtækja. Til þess hefði enn ekki komið. Valgerður sagði ennfremur að á fákeppnismarkaði eins og olíumark- aðnum gæti sama verð hjá olíufélög- unum bæði verið til marks um að virk samkeppni ríkti og að félögin hefðu með sér samráð. Olíufélögin hefðu alfarið hafnað því að þau hafi með sér samráð og annað hefði ekki verið sýnt fram á. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Valgerður Sverrisdóttir svarar fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar á Alþingi í gær. Sameining ríkisbanka rædd við upphaf þingfundar Ötímabært að velta fyrir sér beitingu lagaheimildar HUGSANLEG sameining Lands- banka og Búnaðarbanka kom til umræðu við upphaf þingfundar á Alþingi í gær en þá kvaddi Össur Skarphéðinsson, formaður Sam- fylkingar, sér hljóðs um störf þingsins. Spurði hann viðskiptar- áðherra hvort hún teldi ekki ráð að nota nú lagaheimild sem hún hefði til að biðja Samkeppnisstofnun um að kanna fyrirfram hvort samein- ing bankanna stríddi gegn sam- keppnislögum. Sagði Össur að það lægi nefnilega fyrir að við samein- ingu þessara tveggja ríkisbanka yrði til „ofurbanki" sem hefði sennilega næstum 60% hlutdeild á viðskiptabankamarkaði. Hætta væri á að slíkur banki teldist mark- aðsráðandi skv. samkeppnislögum og óhætt væri því að segja að áhöld væru um það hvort sameiningin stæðist gildandi lög. Valgerður Sverrisdóttir, við- skipta- og iðnaðarráðherra, bar til baka þá staðhæfingu Össurar að stjórnvöld hefðu staðfest að fram færu nú viðræður um sameiningu bankanna. Sagði hún enga ákvörð- un hafa verið tekna um það að sam- eina bankana. Spurning Össurar væri ótímabær á meðan svo væri. Sagðist hún ekki geta svarað því hvenær tíðinda væri að vænta af þessum málum, en þess yrði vart lengi að bíða. Menntamálaráðherra segir drög að nýju lagafrumvarpi um Rfldsútvarpið liggja fyrir Segir engan ágreining vera um næstu skref BJÖRN Bjarnason menntamála- ráðherra greindi frá því á Alþingi í gær að fram hefðu farið samræður milli hans og Halldórs Ásgrímsson- ar utanríkisráðherra og formanns Framsóknarflokksins um rekstrar- form Ríkisútvarpsins. Sagði hann þessar samræður hafa verið með þeim hætti að hann ætti ekki von á öðru en samkomulag næðist milli stjórnarflokkanna um framtíðar- skipan mála í Efstaleitinu. Rifjaði ráðherra jafnframt upp að hann hefði margoft lýst þeirri skoðun sinni að hlutafélagaformið væri heppilegast. Það var Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem gerði mál- efni RÚV að umtalsefni í utandag- skrárumræðu. Hún gagnrýndi að enn skyldi eiga að draga saman í rekstri þess ef marka mætti frum- varp til fjárlaga. Sagði Kolbrún að því færi fjarri að afnotagjöld RÚV hefðu hækkað í samræmi við neysluverðsvísitölu og velti fyrir sér hvernig stofnunin ætti að upp- fylla skyldur sínar við þessar að- stæður, sem kallaðar hefðu verið „fjárhagsleg spennitreyja“. Kolbrún sagði vilja menntamála- ráðherra til að breyta rekstrar- formi Ríkisútvarpsins liggja fyrir. Hún vildi hins vegar vita hvort samkomulag hefði verið gert milli stjórnarflokkanna um þau mál og hún lýsti ennfremur eftir boðuðu frumvarpi um Ríkisútvarpið. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra sagðist skilja orð Kol- brúnar þannig að hún vildi hækkun afnotagjalda RÚV. Hann sagði að við núverandi verðbólguaðstæður væri lítið svigrúm til slíkra aðgerða og benti á að ríkisstjómin hefði nú einmitt legið undir ámæli fyrir ALÞINGI þensluvaldandi aðgerðir í efna- hagsmálum. Björn kvaðst áður hafa lýst þeirri skoðun sinni að þrjár leiðir væru einkum færar til að standa að fjármögnun Ríkisútvarpsins. Að viðhalda áfram núverandi afnota- gjaldakerfi, að þeggja á ákveðinn nefskatt fyrir RÚV og í þriðja lagi að það fengi sínar fjárveitingar af fjárlögum og yrðu þá tekjur þess innheimtar í almennu skattkerfi ríkisins. Sagðist ráðherra einna helst hallast að síðustu leiðinni og upplýsti að hann hefði látið kanna þann kost sérstaklega. „Það frumvarp sem ég hef hugað að varðandi Ríkisútvarpið liggur í sjálfu sér fyrir í drögum á mínum vegum, og það hafa farið fram við- ræður á milli mín og formanns Framsóknarflokksins um næstu skref í málinu. Við erum að ræða það mál en það hefur ekki neitt komið fram í okkar samtölum sem segir mér að það náist ekki sam- komulag á milli stjórnarflokkanna í þessu máli,“ sagði Björn. Lét hann þess getið að hann liti ekki svo á að ágreiningur væri milli flokkanna og að hann teldi víst að þeir kæmust að sameiginlegri niðurstöðu. I framhaldi af orðum ráðherra varpaði Einar Már Sigurðarson, Samfylkingu, þeirri spurningu til fulltrúa Framsóknarflokksins hvort rétt væri að enginn ágrein- ingur væri um RÚV. Páll Magnús- son svaraði því til að framsóknar- menn væru ekki andsnúnir breytingum á formi Ríkisútvarps- ins þó að þeir höfnuðu einkavæð- ingu þess. Sagði Páll einnig eðlilegt að velta fyrir sér hvort ríkið ætti að standa í rekstri dægurmálaútvarps. Arni Gunnarsson, flokksbróðú’ Páls, tók í sama streng. Sagðist hann þó viss um að fyrir því væri afgerandi meirihluti á Alþingi að RUV verði áfram ríkisútvarp. Sagði Ámi að ná þyrfti þverpóli- tískri sátt um RUV enda væri stofnuninni lítill greiði gerður með því að sífellt væri verið að gera stofnunina að þrætuepli á Alþingi. Illutafélagaformið fýsilegur kostur? Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, velti því fyrir sér í fram- haldinu hvort Framsóknarflokkur- inn væri að komast á þá skoðun að hlutafélagavæða ætti RÚV og þau Svanfríður Jónasdóttir, Samfylk- ingu, og Steingrímur J. Sigfússon, VG, gagnrýndu mjög bein og óbein afskipti menntamálaráðherra af Ríkisútvarpinu, sem sá síðarnefndi sagði beinlínis miða að því að veikja stofnunina. Sigríður Anna Þórðardóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Sjálf- stæðisflokki, lýstu hins vegar þeirri skoðun sinni að hlutafélagaformið væri fýsilegur kostur í stöðunni. Lét Sigríður þess getið að hún teldi endurskoðun laga um Ríkisútvarp- ið löngu tímabæra og m.a. ætti að leggja niður útvarpsráð enda ætti það engan rétt á sér við breyttar aðstæður. Stofnað verðisér- stakt laga- ráð á veg- um Alþingis LAGT er til að sett verði á stofn sérstakt lagaráð á veg- um Alþingis í frumvarpi sem þrír þingmenn Samfylkingar hafa lagt fram á Alþingi. Yrði lagaráð þetta skipað af for- seta Alþingis til fjögurra ára í senn og hefði það hlutverk að setja samræmdar reglur um samningu lagafrumvarpa og annan undirbúning löggjafar- mála. Ennfremur gera flutn- ingsmenn ráð fyrir að lagaráð verði Alþingi og stjórnarráð- inu til ráðgjafar um undirbún- ing löggjafar, um það hvort frumvörp standast stjórnar- skrá eða alþjóðasamninga sem ísland er bundið af eða hvort á frumvörpum eru laga- tæknilegir ágallar. Bryndís Hlöðversdóttir, þingmaður Samfylkingar í Reykjavík, er fyrsti flutnings- maður frumvarpsins. Fram kemur í greinargerð að það sé lagt fram nú í framhaldi af skýrslu sem rædd var á þingi síðasta vetur um starfsskil- yrði stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög með réttarbrotum í stjórnsýslunni. I skýrslunni, sem unnin var af nefnd er laut forystu Páls Hreinssonar, dósents við Háskóla Islands, hafi komið fram að annars staðar á Norðurlöndunum sé það liður í starfsemi ráðun- eyta að starfrækja sérstakar lagaskrifstofur sem hafl það hlutverk að fara yfir stjórnar- frumvörp og kanna m.a. hvort á þeim séu lagatæknilegir ág- allar eða hvort þau samræm- ast stjórnarskrá. Þetta sé hins vegar ekki reyndin á Isl- andi. I skýrslunni komi ennfrem- ur fram að miklu fleiri hnökr- ar séu á íslenskri löggjöf en á löggjöf annarra norrænna ríkja, t.d. misræmi eða árekstrar milli lagaákvæða, prentvillur og óskýr texti. Telja flutningsmenn að þörf sé á markvissum úrbótum á þessu sviði og því sé frum- varpið lagt fram. Þeir segja hins vegar að ástæða þess að lagt er til að sú leið sé farin að stofna lagaráð en ekki laga- skrifstofu við Stjórnarráð Is- lands, sem hefði sama hlut- verk með höndum, sé fyrst og fremst sú að með þessu fyrir- komulagi væri verið að styrkja þátt Alþingis í laga- setningunni. Alþingi Dagskrá FUNDUR hefst í Alþingi í dag kl. 10.30. Á dagskrá fundarins eru eft- irfarandi mál: 1. Neytendalán. 1. umræða. 2. Grundvöllur nýrrar fiskveiði- sljórnar. Fyrri umræða. 3. Stjórn fiskveiða. 1. umræða. 4. Stjórn fiskveiða. 1. umræða. 5. Þátttaka íslands í Alþjóðahval- veiðiráðinu. Fyrri umræða. 6. Fjárfesting erlendra aðila í at- vinnurekstri. 1. umræða. 7. Almannatryggingar. 1. umræða. 8. Varanlegar samgöngubætur á Vestfjörðum. Fyrri umræða. 9. Könnun á umfangi vændis. Fyrri umræða. 10. Landsvegir á hálendi íslands. Fyrri umræða. 11. Loftferðir. 1. umræða. 12. Jarðalög. 1. umræða. 13. Tekjuskattur og eignarskattur. 1. umræða. 14. Almannatryggingar. 1. um- ræða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.