Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Vel gengur að leggja nÝ.ía veginn yfír Þverárfjall
Stórvirk tæki vinna
allan sólarhringinn
Morgunblaðið/Helgi Bjamason
Tækin sem eru að störfum á Þverárfjalli eru öflug og mennirnir dugleg-
ir. Lagning vegarins er í kapp við veturinn.
Eftirlitsmaður í heimsókn. Stefán Reynisson (til hægri), eftirlitsmaður
Vegagerðarinnar, og Grétar Ólafsson, verkstjóri hjá Suðurverki, á
vinnusvæðinu á háfjalli Þverárfjalls.
Sextán ungmenni
hljóta Hvatn-
ingarverðlaun
forseta Islands
LAGNING nýs vegar yfir Þverár-
fjall, milli Sauðárkróks og Blöndu-
óss, gengur vel. Vinnuflokkur Suð-
urverks hf. hefur látið hendur
standa fram úr ermum og á rúmum
mánuði hefur hann lokið við að aka
út rúmlega þriðjungi allra undirfyll-
inga.
Aformað er að byggja nýjan veg
milli Sauðárkróks og Skagastrand-
arvegar í Austur-Húnavatnssýslu.
Er þetta alls um 38 km leið og er yfír
tvo fjallvegi að fara, Þverárfjall og
Laxárdalsheiði. Með tilkomu vegar-
ins styttist leiðin milli Sauðárkróks
og Blönduóss um 30 km, verður um
46 km í stað 76 þegar farið er um
Vatnsskarð. Aðeins hefur verið tek-
in ákvörðun um lagningu fyrsta
áfanga leiðarinnar, um 12 km á
Þverárfjalli, frá Skagavegi í Laxár-
dal ytri að Þverá í Norðurárdal.
Verkið var boðið út og voru tilboð
langt undir kostnaðaráætlun Vega-
gerðarinnar.
Kom verkið í hlut Suðurverks hf. í
Reykjavík og hófst fyrirtækið handa
fyrir rúmum mánuði. Ekki hafa ver-
ið teknar ákvarðanir um framhald
verksins, það er að segja um leiðina
frá Skagavegi yfir Laxárdalsheiði að
Sauðárkróki og leiðina niður Norð-
urárdal að Skagastrandarvegi.
Ljúka sigköflunum
fyrir veturinn
Suðurverk er með sextán manna
vinnuflokk á fjallinu, þrjá trukka,
tvær ýtur og eina stóra gröfu. Er
unnið á vöktum allan sólarhringinn.
Mennirnir voru að vinna við undir-
fyllingar, á háfjallinu, þegar blaða-
maður leit á aðstæður.
Grétar Óiafsson verkstjóri er
ánægður með ganginn á verkinu.
Segir að á þeim rúma mánuði sem
þeir hafa verið að sé búið að aka út
um 35% allra undirfyllinga. Kapps-
málið hafi verið að ljúka sem mest
sigköflum fyrir veturinn, það er að
segja undirfyllingum yfir mýrasund.
Vegurinn verði síðan látinn síga í
vetur þannig að hægt verði að halda
áfram næsta sumar. Segir Grétar að
það sé langt komið. „Tækin eru ekki
mörg en þau eru öflug. Það gengur
því mikið undan mönnunum," segir
hann.
Síðan verður haldið áfram í vetur,
á meðan veður leyfir, og þráðurinn
tekinn upp næsta vor. Stefnt er að
því aðljúka verkinu sem mest á
næsta sumri, þótt ekki þurfi að skila
því fyrr en 2002. Vinnuflokkurinn
hefur fengið ágætis veður þótt það
hafi snjóað þegar blaðamaður var á
ferðinni enda þá verið að vinna í 320
metra hæð á háfjallinu. Grétar segir
að rigningar hafi aðeins tafið þá, en
ekki teljandi. Hann segir þó ekki á
vísan að róa með veðrið úr þessu og
þeir verði að pakka saman og fara
annað þegar veturinn gangi í garð
fyrir alvöru.
Góð hönnun
Vegurinn yfir Þverárfjall á að
vera heilsársvegur og lagður
bundnu slitlagi. Ekki hafa allir verið
sannfærðir um að hann yrði fær allt
árið þar sem þarna eru frægar
snjóakistur. Grétar lýsir þeirri
skoðun sinni að vel hafi tekist til við
hönnun vegarins og að hann ætti að
geta verið opinn allt árið.
Telur hann að vegurinn verði mik-
ið notaður en getur þess að það verði
ekki fyrr en framhaldi hans Ijúki. I
Norðurárdal, vestan heiðarinnar,
tekur við einbreiður vegur sem þarf
að byggja upp frá grunni. Ekki hef-
ur verið tryggt fjármagn í lagningu
hans og ekki heldur vegarins frá
Skagavegi til Sauðárkróks en hann
er raunar betri en vesturhlutinn.
FORSETI íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, veitti sextán
ungmennum viðurkenninguna
„Hvatningu forseta Islands til ung-
ra Islendinga“ í opinberri heim-
sókn sinni um Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu. Viðurkenning-
arnar voru afhentar á samkomu í
Laugagerðisskóla og á fjölskyldu-
hátfðum í Rifi í Ólafsvík og Félags-
heimilinu í Stykkishólmi.
Viðurkenninguna hlutu að þessu
sinni:
Daði Hjálmarsson, 14 ára, frá
Rifi. Hann hefur sýnt hugrekki og
dugnað þrátt fyrir erfið veikindi.
Meðan hann gekkst undir meðferð
á sjúkrahúsi var hann í daglegu
sambandi við bekkjarsystkini sín
og kennara með aðstoð fjarskipta-
búnaðar.
Guðmundur Margeir Skúlason,
14 ára, frá Hallkelsstaðahlíð. Hann
er mikill íþróttamaður og hefur
hlotið fjölda verðlauna fyrir kúlu-
varp, hestamennsku og fleiri
íþróttagreinar, bæði í heimabyggð
og á landsvísu.
Guðni Heiðar Valentínusson, 15
ára, frá Stykkishólmi. Guðni hefur
sigrast á erfiðum veikindum og
leggur nú mikið kapp á íþróttaiðk-
un. Hann lék í fyrra með úrvals-
deildarliði Snæfellsness í körfu-
bolta og í sumar með
drengjalandsliði íslands.
Gunnhildur Jónsdóttir, 12 ára,
frá Kolviðarnesi. Gunnhildur er
mikill námsmaður og samviskusöm
í öllum greinum, þá sérstaklega
stærðfræði. Hún hefur einnig náð
góðum árangri í íþróttum, einkum
hlaupagreinum og sundi.
Gyða Kristjánsdóttir, 11 ára, frá
Ölkeldu. Hún hefur sýnt með góðri
framkomu og ljúfu viðmóti hvern-
ig hægt er að hafa jákvæð áhrif á
umhverfi sitt, Gyða hefur einnig
náð góðum árangri í námi og
íþróttum.
Hallmar Reimarsson, 16 ára, frá
Ólafsvík. Hallmar hefur glímt við
erfið og langvinn veikindi en ávallt
sýnt æðruleysi, kjark og dugnað. í
erfiðri læknismeðferð hefur
bjartsýni einkennt viðhorf hans.
Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, 16
ára, frá Stykkishólmi. Hún hefur
ætíð verið til fyrirmyndar í námi
og félagsstörfum og æft íþróttir
með góðum árangri frá unga aldri.
Hrefna lék með unglingalandsliði
Islands á Smáþjóðaleikunum auk
þess að stunda tónlistarnám og
vera í forystu í skátastarfi í Stykk-
ishólmi.
Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir, 16
ára, frá Ólafsvik. Hún hefur skilað
frábærum námsárangri samhliða
námi í Tónlistarskóla Ólafsvíkur
og leikið með lúðrasveit Snæfells-
bæjar. Jóhanna hefur einnig tekið
virkan þátt í starfi leikfélagsins.
Jóhanna Ómarsdóttir, 17 ára,
frá Stykkishólmi. Hún hefur þrátt
fyrir örorku og mikil veikindi sýnt
hvernig kjarkur og atorka geta
skilað góðum árangri. Jóhanna
hefur náð góðum árangri í tónlist-
arnámi og stundað nám sitt með
prýði.
Kristín Lilja Friðriksdóttir, 15
ára, frá Grundarfirði. Hún hefur
náð góðum árangri í námi og
íþróttum og staðið sig vel í tónlist-
arnámi.
Lára María Harðardóttir, 16
ára, frá Stykkishólmi. Hún hefur
ætíð náð góðum árangri í námi auk
þess að vera virk í skátastarfi og
leggja stund á nám í píanóleik og á
blásturshljóðfæri.
Rúnar Olason, 14 ára, frá Stykk-
ishólmi. Rúnar glímir við al-
varlegan nýrnasjúkdóm en hefur
þrátt fyrir veikindin verið öðrum
fyrirmynd um jákvæð lífsviðhorf
og vilja til að sigrast á mótlæti.
Sóley Fjalarsdóttir, 16 ára, frá
Hcllissandi. Hún hefur verið í
landsliðsúrvali í kvennaknatt-
spyrnu unglinga en einnig keppt í
hlaupum, spjótkasti og stökki bæði
fyrir heimafélag sitt og hérað-
ssambandið.
Sædís Alda Karlsdóttir, 12 ára,
frá Grundarfirði. Hún hefur náð
góðum árangri í íþróttum og námi
og sýnt glaðlega og jákvæða fram-
komu.
Þorbjörg Dagný Kristbjörns-
dóttir, 12 ára, frá Hraunsmúla.
Hún hefur hlotið fjölda verðlauna
fyrir afburða námsárangur.
Þorkell Máni Þorkelsson, 15 ára,
frá Grundarfirði. Þorkell hefur
sýnt góða tónlistarhæfileika, út-
sett lög og lært á hljómborð og or-
gel auk þess að sýna góðan náms-
árangur á öðrum sviðum.
Greiðslur ríkisins á erlendum skuldum dusra ekki til að lækka heildarskuldir landsmanna
Skuldastaða þjóðar-
búsins heldur
áfram að versna
í ÞJÓÐHAGSÁÆTLUN fyrir árið
2001, sem Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra lagði fram við upphaf Al-
þingis, er gert ráð fyrir því að hrein
skuldastaða þjóðarbúsins verði í lok
árs um 78% af landsframleiðslu eða
1114 prósentustigi hærri en um síð-
ustu áramót. Ennfremur er reiknað
með að hrein skuldastaða verði um
85% af landsframleiðslu fyrir lok
næsta árs.
Segir í þjóðhagsáætlun að þessi
skuldastaða stafi af miklum við-
skiptahalla og lántökum til fjárfest-
inga á erlendu áhættufjármagni en
að sögn Þórðar Friðjónssonar, for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar, eru Is-
lendingar, aðallega lífeyrissjóðimir,
í auknum mæli farnir að fjárfesta í
hlutabréfum erlendis og eru þær
fjárfestingar jafnan fjármagnaðar
með erlendum lántökum. Hækkun
skuldastöðu þjóðarbúsins á milli ára
helst því í hendur við meiri við-
skiptahalla og lántökur til fjárfesÞ
inga í erlendu áhættufjármagni. I
þessu sambandi má geta þess að í
þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir því
að viðskiptahallinn nemi 54 milljörð-
um króna á þessu ári og að sögn
Þórðar Friðjónssonar er búist við að
hallinn verði um 57 milljarðar við lok
næsta árs.
Jflög aukin einkaneysla
„Astæða viðskiptahallans er sú að
þjóðarútgjöldin eru meiri en þjóðar-
tekjurnar og þar að baki liggur ann-
ars vegar mikil aukning einkaneyslu
á undanförnum árum og hins vegar
mikil fjárfesting," segir Þórður í
samtali við Morgunblaðið og bendir
á aðspurður að þarna sé einkum um
að ræða fjárfestingar einkafyrir-
tækja í atvinnulífinu sem taki í því
skyni erlend lán í gegnum fjármála-
stofnanir hér á landi. Bætir hann því
við að framan af hagvaxtarskeiðinu,
sem hófst árið 1994, hafi fjárfesting-
ar átt meiri sök á hallanum en eftir
því sem liðið hafi á hagvaxtarskeiðið
hafi einkaneyslan verið ríkari þáttur
í hallanum. 1 þjóðhagsáætlun er gert
ráð fyrir því að einkaneysla vaxi um
ríflega 2'h % á næsta ári og sagt að
það sé í takt við aukningu í kaup-
mætti ráðstöfunartekna. Þá er gert
ráð fyrir að samneysla aukist um 3%
á næsta ári sem sé heldur minna en
áætlað sé á árinu 2000 og að fjárfest-
ing dragist saman um IV2 %. „Á
þessum forsendum verður vöxtur
þjóðarútgjalda í heild [á næsta ári]
mun minni en á þessu ári eða 1,7%,“
segir í þjóðhagsáætlun en til saman-
burðar stefnir í rúmlega 5% aukn-
ingu þeirra á þessu ári. „Þótt þannig
hægi verulega á vexti þjóðarút-
gjalda samkvæmt spánni minnkar
viðskiptahallinn ekki, einkum vegna
minni fiskafla og hærri vaxta-
greiðslna af erlendum lánum.“
Vegna þessa halla á viðskiptajöfnuði
segir í þjóðhagsáætluninni að helsta
verkefni hagstjórnar verði að koma
á betra jafnvægi í utanríkisviðskipt-
um landsins, þ.e. að koma á betra
samræmi milli þjóðarútgjalda og
þjóðartekna. í þjóðhagsáætlun er
gert ráð fyrir 3,8% hækkun vísitölu
neysluverðs frá upphafi til loka árs
2000 og að hækkun á milli áranna
1999 og 2000 verði 5%. Aukinheldur
er gert ráð fyrir að verulega dragi
úr vexti innlendrar eftirspurnar og í
samræmi við þær horfur er spáð að
heldur dragi úr verðbólgu á næsta
ári. Reiknað er með að verðlag
hækki um ríflega 3% frá upphafi til
loka árs 2001 en 4% á milli áranna
2000 og 2001. Þá er áætlað að at-
vinnuleysi í ár verði um 1W%> á
þessu ári og kemur fram að það hafi
ekki verið minna síðan í byrjun ára-
tugarins. „Þótt reiknað sé með að
hægi á hagvexti á næsta ári er búist
við að atvinnuleysi verði áfram inn-
an við 2%.“ Er gert ráð fyrir því að
landsframleiðslan aukist um 1,6% á
næsta ári samanborið við 3,6% á
þessu ári.
Að lokum má geta þess að fram
kemur í þjóðhagsáætlun að horfur
séu á að tekjuafgangur ríkis og
sveitarfélaga nemi rúmum 19 millj-
örðum króna á þessu ári samkvæmt
uppgjöri Þjóðhagsstofnunar eða
2,8% af landsframleiðslu. Á hinn
bóginn er gert ráð fyrir tæplega I8V2
milljarðs króna afgangi árið 2001.