Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Vel gengur að leggja nÝ.ía veginn yfír Þverárfjall Stórvirk tæki vinna allan sólarhringinn Morgunblaðið/Helgi Bjamason Tækin sem eru að störfum á Þverárfjalli eru öflug og mennirnir dugleg- ir. Lagning vegarins er í kapp við veturinn. Eftirlitsmaður í heimsókn. Stefán Reynisson (til hægri), eftirlitsmaður Vegagerðarinnar, og Grétar Ólafsson, verkstjóri hjá Suðurverki, á vinnusvæðinu á háfjalli Þverárfjalls. Sextán ungmenni hljóta Hvatn- ingarverðlaun forseta Islands LAGNING nýs vegar yfir Þverár- fjall, milli Sauðárkróks og Blöndu- óss, gengur vel. Vinnuflokkur Suð- urverks hf. hefur látið hendur standa fram úr ermum og á rúmum mánuði hefur hann lokið við að aka út rúmlega þriðjungi allra undirfyll- inga. Aformað er að byggja nýjan veg milli Sauðárkróks og Skagastrand- arvegar í Austur-Húnavatnssýslu. Er þetta alls um 38 km leið og er yfír tvo fjallvegi að fara, Þverárfjall og Laxárdalsheiði. Með tilkomu vegar- ins styttist leiðin milli Sauðárkróks og Blönduóss um 30 km, verður um 46 km í stað 76 þegar farið er um Vatnsskarð. Aðeins hefur verið tek- in ákvörðun um lagningu fyrsta áfanga leiðarinnar, um 12 km á Þverárfjalli, frá Skagavegi í Laxár- dal ytri að Þverá í Norðurárdal. Verkið var boðið út og voru tilboð langt undir kostnaðaráætlun Vega- gerðarinnar. Kom verkið í hlut Suðurverks hf. í Reykjavík og hófst fyrirtækið handa fyrir rúmum mánuði. Ekki hafa ver- ið teknar ákvarðanir um framhald verksins, það er að segja um leiðina frá Skagavegi yfir Laxárdalsheiði að Sauðárkróki og leiðina niður Norð- urárdal að Skagastrandarvegi. Ljúka sigköflunum fyrir veturinn Suðurverk er með sextán manna vinnuflokk á fjallinu, þrjá trukka, tvær ýtur og eina stóra gröfu. Er unnið á vöktum allan sólarhringinn. Mennirnir voru að vinna við undir- fyllingar, á háfjallinu, þegar blaða- maður leit á aðstæður. Grétar Óiafsson verkstjóri er ánægður með ganginn á verkinu. Segir að á þeim rúma mánuði sem þeir hafa verið að sé búið að aka út um 35% allra undirfyllinga. Kapps- málið hafi verið að ljúka sem mest sigköflum fyrir veturinn, það er að segja undirfyllingum yfir mýrasund. Vegurinn verði síðan látinn síga í vetur þannig að hægt verði að halda áfram næsta sumar. Segir Grétar að það sé langt komið. „Tækin eru ekki mörg en þau eru öflug. Það gengur því mikið undan mönnunum," segir hann. Síðan verður haldið áfram í vetur, á meðan veður leyfir, og þráðurinn tekinn upp næsta vor. Stefnt er að því aðljúka verkinu sem mest á næsta sumri, þótt ekki þurfi að skila því fyrr en 2002. Vinnuflokkurinn hefur fengið ágætis veður þótt það hafi snjóað þegar blaðamaður var á ferðinni enda þá verið að vinna í 320 metra hæð á háfjallinu. Grétar segir að rigningar hafi aðeins tafið þá, en ekki teljandi. Hann segir þó ekki á vísan að róa með veðrið úr þessu og þeir verði að pakka saman og fara annað þegar veturinn gangi í garð fyrir alvöru. Góð hönnun Vegurinn yfir Þverárfjall á að vera heilsársvegur og lagður bundnu slitlagi. Ekki hafa allir verið sannfærðir um að hann yrði fær allt árið þar sem þarna eru frægar snjóakistur. Grétar lýsir þeirri skoðun sinni að vel hafi tekist til við hönnun vegarins og að hann ætti að geta verið opinn allt árið. Telur hann að vegurinn verði mik- ið notaður en getur þess að það verði ekki fyrr en framhaldi hans Ijúki. I Norðurárdal, vestan heiðarinnar, tekur við einbreiður vegur sem þarf að byggja upp frá grunni. Ekki hef- ur verið tryggt fjármagn í lagningu hans og ekki heldur vegarins frá Skagavegi til Sauðárkróks en hann er raunar betri en vesturhlutinn. FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, veitti sextán ungmennum viðurkenninguna „Hvatningu forseta Islands til ung- ra Islendinga“ í opinberri heim- sókn sinni um Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu. Viðurkenning- arnar voru afhentar á samkomu í Laugagerðisskóla og á fjölskyldu- hátfðum í Rifi í Ólafsvík og Félags- heimilinu í Stykkishólmi. Viðurkenninguna hlutu að þessu sinni: Daði Hjálmarsson, 14 ára, frá Rifi. Hann hefur sýnt hugrekki og dugnað þrátt fyrir erfið veikindi. Meðan hann gekkst undir meðferð á sjúkrahúsi var hann í daglegu sambandi við bekkjarsystkini sín og kennara með aðstoð fjarskipta- búnaðar. Guðmundur Margeir Skúlason, 14 ára, frá Hallkelsstaðahlíð. Hann er mikill íþróttamaður og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir kúlu- varp, hestamennsku og fleiri íþróttagreinar, bæði í heimabyggð og á landsvísu. Guðni Heiðar Valentínusson, 15 ára, frá Stykkishólmi. Guðni hefur sigrast á erfiðum veikindum og leggur nú mikið kapp á íþróttaiðk- un. Hann lék í fyrra með úrvals- deildarliði Snæfellsness í körfu- bolta og í sumar með drengjalandsliði íslands. Gunnhildur Jónsdóttir, 12 ára, frá Kolviðarnesi. Gunnhildur er mikill námsmaður og samviskusöm í öllum greinum, þá sérstaklega stærðfræði. Hún hefur einnig náð góðum árangri í íþróttum, einkum hlaupagreinum og sundi. Gyða Kristjánsdóttir, 11 ára, frá Ölkeldu. Hún hefur sýnt með góðri framkomu og ljúfu viðmóti hvern- ig hægt er að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt, Gyða hefur einnig náð góðum árangri í námi og íþróttum. Hallmar Reimarsson, 16 ára, frá Ólafsvík. Hallmar hefur glímt við erfið og langvinn veikindi en ávallt sýnt æðruleysi, kjark og dugnað. í erfiðri læknismeðferð hefur bjartsýni einkennt viðhorf hans. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, 16 ára, frá Stykkishólmi. Hún hefur ætíð verið til fyrirmyndar í námi og félagsstörfum og æft íþróttir með góðum árangri frá unga aldri. Hrefna lék með unglingalandsliði Islands á Smáþjóðaleikunum auk þess að stunda tónlistarnám og vera í forystu í skátastarfi í Stykk- ishólmi. Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir, 16 ára, frá Ólafsvik. Hún hefur skilað frábærum námsárangri samhliða námi í Tónlistarskóla Ólafsvíkur og leikið með lúðrasveit Snæfells- bæjar. Jóhanna hefur einnig tekið virkan þátt í starfi leikfélagsins. Jóhanna Ómarsdóttir, 17 ára, frá Stykkishólmi. Hún hefur þrátt fyrir örorku og mikil veikindi sýnt hvernig kjarkur og atorka geta skilað góðum árangri. Jóhanna hefur náð góðum árangri í tónlist- arnámi og stundað nám sitt með prýði. Kristín Lilja Friðriksdóttir, 15 ára, frá Grundarfirði. Hún hefur náð góðum árangri í námi og íþróttum og staðið sig vel í tónlist- arnámi. Lára María Harðardóttir, 16 ára, frá Stykkishólmi. Hún hefur ætíð náð góðum árangri í námi auk þess að vera virk í skátastarfi og leggja stund á nám í píanóleik og á blásturshljóðfæri. Rúnar Olason, 14 ára, frá Stykk- ishólmi. Rúnar glímir við al- varlegan nýrnasjúkdóm en hefur þrátt fyrir veikindin verið öðrum fyrirmynd um jákvæð lífsviðhorf og vilja til að sigrast á mótlæti. Sóley Fjalarsdóttir, 16 ára, frá Hcllissandi. Hún hefur verið í landsliðsúrvali í kvennaknatt- spyrnu unglinga en einnig keppt í hlaupum, spjótkasti og stökki bæði fyrir heimafélag sitt og hérað- ssambandið. Sædís Alda Karlsdóttir, 12 ára, frá Grundarfirði. Hún hefur náð góðum árangri í íþróttum og námi og sýnt glaðlega og jákvæða fram- komu. Þorbjörg Dagný Kristbjörns- dóttir, 12 ára, frá Hraunsmúla. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir afburða námsárangur. Þorkell Máni Þorkelsson, 15 ára, frá Grundarfirði. Þorkell hefur sýnt góða tónlistarhæfileika, út- sett lög og lært á hljómborð og or- gel auk þess að sýna góðan náms- árangur á öðrum sviðum. Greiðslur ríkisins á erlendum skuldum dusra ekki til að lækka heildarskuldir landsmanna Skuldastaða þjóðar- búsins heldur áfram að versna í ÞJÓÐHAGSÁÆTLUN fyrir árið 2001, sem Davíð Oddsson forsætis- ráðherra lagði fram við upphaf Al- þingis, er gert ráð fyrir því að hrein skuldastaða þjóðarbúsins verði í lok árs um 78% af landsframleiðslu eða 1114 prósentustigi hærri en um síð- ustu áramót. Ennfremur er reiknað með að hrein skuldastaða verði um 85% af landsframleiðslu fyrir lok næsta árs. Segir í þjóðhagsáætlun að þessi skuldastaða stafi af miklum við- skiptahalla og lántökum til fjárfest- inga á erlendu áhættufjármagni en að sögn Þórðar Friðjónssonar, for- stjóra Þjóðhagsstofnunar, eru Is- lendingar, aðallega lífeyrissjóðimir, í auknum mæli farnir að fjárfesta í hlutabréfum erlendis og eru þær fjárfestingar jafnan fjármagnaðar með erlendum lántökum. Hækkun skuldastöðu þjóðarbúsins á milli ára helst því í hendur við meiri við- skiptahalla og lántökur til fjárfesÞ inga í erlendu áhættufjármagni. I þessu sambandi má geta þess að í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir því að viðskiptahallinn nemi 54 milljörð- um króna á þessu ári og að sögn Þórðar Friðjónssonar er búist við að hallinn verði um 57 milljarðar við lok næsta árs. Jflög aukin einkaneysla „Astæða viðskiptahallans er sú að þjóðarútgjöldin eru meiri en þjóðar- tekjurnar og þar að baki liggur ann- ars vegar mikil aukning einkaneyslu á undanförnum árum og hins vegar mikil fjárfesting," segir Þórður í samtali við Morgunblaðið og bendir á aðspurður að þarna sé einkum um að ræða fjárfestingar einkafyrir- tækja í atvinnulífinu sem taki í því skyni erlend lán í gegnum fjármála- stofnanir hér á landi. Bætir hann því við að framan af hagvaxtarskeiðinu, sem hófst árið 1994, hafi fjárfesting- ar átt meiri sök á hallanum en eftir því sem liðið hafi á hagvaxtarskeiðið hafi einkaneyslan verið ríkari þáttur í hallanum. 1 þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir því að einkaneysla vaxi um ríflega 2'h % á næsta ári og sagt að það sé í takt við aukningu í kaup- mætti ráðstöfunartekna. Þá er gert ráð fyrir að samneysla aukist um 3% á næsta ári sem sé heldur minna en áætlað sé á árinu 2000 og að fjárfest- ing dragist saman um IV2 %. „Á þessum forsendum verður vöxtur þjóðarútgjalda í heild [á næsta ári] mun minni en á þessu ári eða 1,7%,“ segir í þjóðhagsáætlun en til saman- burðar stefnir í rúmlega 5% aukn- ingu þeirra á þessu ári. „Þótt þannig hægi verulega á vexti þjóðarút- gjalda samkvæmt spánni minnkar viðskiptahallinn ekki, einkum vegna minni fiskafla og hærri vaxta- greiðslna af erlendum lánum.“ Vegna þessa halla á viðskiptajöfnuði segir í þjóðhagsáætluninni að helsta verkefni hagstjórnar verði að koma á betra jafnvægi í utanríkisviðskipt- um landsins, þ.e. að koma á betra samræmi milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna. í þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir 3,8% hækkun vísitölu neysluverðs frá upphafi til loka árs 2000 og að hækkun á milli áranna 1999 og 2000 verði 5%. Aukinheldur er gert ráð fyrir að verulega dragi úr vexti innlendrar eftirspurnar og í samræmi við þær horfur er spáð að heldur dragi úr verðbólgu á næsta ári. Reiknað er með að verðlag hækki um ríflega 3% frá upphafi til loka árs 2001 en 4% á milli áranna 2000 og 2001. Þá er áætlað að at- vinnuleysi í ár verði um 1W%> á þessu ári og kemur fram að það hafi ekki verið minna síðan í byrjun ára- tugarins. „Þótt reiknað sé með að hægi á hagvexti á næsta ári er búist við að atvinnuleysi verði áfram inn- an við 2%.“ Er gert ráð fyrir því að landsframleiðslan aukist um 1,6% á næsta ári samanborið við 3,6% á þessu ári. Að lokum má geta þess að fram kemur í þjóðhagsáætlun að horfur séu á að tekjuafgangur ríkis og sveitarfélaga nemi rúmum 19 millj- örðum króna á þessu ári samkvæmt uppgjöri Þjóðhagsstofnunar eða 2,8% af landsframleiðslu. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir tæplega I8V2 milljarðs króna afgangi árið 2001.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.