Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Drög að tillögum um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins voru kynnt á opnum fundi
Kjalames-~C~Í
\ r //—^
Svæðisskipulag
sveitarfélaganna
á höfuðborgarsvæðinu
til ársins 2024
Brimnes
Kollofjörður___j
Mosfell
Álfsnes
6,
SELTJARNARNES
ÚÍfarsfell
, Alftanes
O, \
BESSASTAÐAHREPPUR S
J'Jorðlinga
í "0» '
Vatos-
€ndi
HAFNARFJ
Straums■
vík
SKÝRINGAR:
Núverandi byggð \
Áður ákveðin byggð \
H Ný byggðarsvæði til 2018 \
Ný byggðarsvæði 2018-2024 \
... v
HH Ný byggðarsvæði, iðnaðar og hafn^rsvæði
Opin svæði til sérstakra nota "" \
Hamranes
svæðisskipulags höfuðborgarsvæð-
isins. Gert er ráð fyrir að íbúum á
svæðinu muni fjölga um 60 þúsund á
næstu 24 árum og því brýnt að
mynduð sé heildarstefna í skipu-
lagsmálum og hafa drög að þeirri
stefnu nú verið kynnt. Trausti
Hafliðason kynnti sér málið.
flytjast úr þeim hverfum sem
þau eru í í dag, sem leiðir af
sér fækkun starfa þar. Því
þarf í raun að finna svaeði fyr-
ir um 51 þúsund störf, þó
vöxtur í atvinnustarfsemi á
höfuðborgarsvæðinu á skipu-
lagstímanum verði aðeins um
39 þúsund störf.
Skrifstofu- og þjónustu-
störf vestan Elliðaáa
Ný sérhæfð störf, þ.e.
skrifstofu- og þjónustustörf,
verða staðsett vestan Elliða-
áa á svæðum þar sem í dag er
iðnaður, verkstæði og
geymslur. Þar sem slík störf
þurfa minna rými en störf í
iðnaði og á verkstæðum er
gert ráð fyrir aukningu starfa
á þessu svæði.
Gert er ráð fyrir að iðnað-
ur, verkstæði og geymslur á
svæði vestan Eilliðaáar flytj-
ist á önnur svæði á höfuð-
borgarsvæðinu. Sum þessara
fyrirtækja munu flytjast á
svæði sérstaklega hugsuð
fyrir iðnað, verkstæði og
geymslur en önnur verða í
blandaðri byggð með íbúðum
og annarri atvinnustarfsemi.
Gert er ráð fyrir að ný störf í
smásöluverslun verði bæði á
íbúðasvæðum og í sérstökum
kjörnum. Þá er reiknað með
því að öll önnur ný störf dreif-
ist á byggð svæði með nýjum
íbúðarhvefum.
Áhersla á
blandaða byggð
Samvinnunefndin leggur
áherslu á það að byggðin
verði blönduð, þ.e. að íbúðum
verði blandað saman við
hverfísverslanir, skrifstofu-
byggingar og mismunandi
þjónustustofnanir og er því
horfið frá uppbyggingu svo-
kallaðra svefnbæja eða
hverfa.
Blönduðu byggðahverfun-
um er skipt í þrjá mismun-
andi þéttleika:
• 40% íbúðanna eru í
svokallaðri hverfisgerð 1, þar
sem helmingur íbúða er í
hárri og þéttri byggð, þ.e.
húsum sem eru 4 hæðir eða
meira, og er gert ráð fyrir 60
íbúðum á hektara. Hinn
helmingur íbúðanna er lág en
þétt byggð, þ.e. í húsum sem
eru 2 til 4 hæðir og eru um 30
íbúðir á hektara.
• 40% íbúðanna eru í
hverfisgerð 2, þar sem helm-
ingur íbúða er í lágri en þéttri
byggð (2-4 hæðir) með 30
íbúðum á hektara og hinn
helmingurinn er í lágri en
dreifðri byggð, með 15 íbúðir
á hektara.
• Þau 20% sem eftir eru
verða í hverfisgerð 3, þar sem
allar íbúðir verða í lágri og
dreifðri byggð (1-2 hæðir)
með 14 íbúðir á hvern hekt-
ara.
í hverfunum verða hverfis-
verslanir, ýmiss konar skrif-
stofur, kennslustofnanir á
grunnskóla- og framhalds-
skólastigi ásamt opinberri
þjónustu og einkaþjónustu.
Gamli miðbærinn mynd-
ar meginkjarnann
Flatarþörf fyrir hverfis-
gerð 1 er um 400 hektrarar,
fyrir hverfisgerð 2 um 600
hektarar og um 360 hektarar
fyrir hverfisgerð 3. Gert er
ráð fyrir að hverfisgerð 1
verði mest næst kjörnunum
og aðalleiðum almennings-
vagna en að hverfisgerð 3
verði meira í jaðarbyggðum
og hverfisgerð 2 á milli
þeirra.
í skýrslunni um svæðis-
skipulagið er gert ráð fyrir
fjórum tegundum af kjarna-
svæðum og þau skilgreind í
samræmi við þau upplönd
sem þau þjóna. Gamli mið-
bærinn í Reykjavík ásamt
Kringlunni og svæðinu með-
fram Suðurlandsbraut og
Skeifunni myndar meginkjar-
nann, en meginkjaminn er
miðstöð fyrir svæðisbundna
starfsemi og starfsemi sem
þjónar landinu í heild. Þar er
átt við m.a. ríkisstjórn,
hæstarétt, mikinn hluta náms
á háskólastigi, rannsóknar-
starfsemi og valinn hluta við-
skiptalífsins.
Samkvæmt skipulaginu er
gengið út frá því að Smárinn
og Mjóddin renni saman og
myndi svokallaðan svæðis-
kjarna, sem liggur vel við um-
ferðarmannvirkjum með bein
tengsl við Reykjanesbraut. I
svæðiskjarnanum er t.d. ýmis
þjónusta og verslun sem á að
þjóna öllu höfuðborgarsvæð-
inu, en einnig bæjarhlutum,
hverfum og nánasta um-
hverfi.
Auk þessa er gert ráð fyrir
að í Hafnarfirði, Mosfellsbæ,
Garðabæ og Kópavogi verði
svokallaðir hverfiskjarnar,
sem þjóna hverfum og bæjar-
hlutum með framboði á vör-
um til daglegrar notkunar
ásamt meira vöruúrvali og
þjóna einnig nánasta um-
vherfi. Þá er gert ráð fyrir
nokkrum svæðisbundnum
þjónustukjörnum í Borgar-
holti, Árbæ og Keldnaholti,
sem og á Geldinganesi, Sel-
tjarnarnesi og Álftanesi.
Þessir kjarnar þjóna viðkom-
andi íbúðahverfum aðallega
með framboði af vörum til
daglegrar notkunar.
FJÖLDI íbúða á höfuðborg-
arsvæðinu mun aukast um 33
þúsund á næstu 24 árum, eða
úr 62 þúsund í 95 þúsund
íbúðir. Gert er ráð fyrir að
rúmlega 7 þúsund íbúðir
verði byggðar með þéttingu
byggðar innan núverandi
hverfa, sem er meira en 10%
af núverandi byggð. Þetta
kom fram á kynningarfundi
um svæðisskipulag höfuð-
borgarsvæðisins, sem haldinn
var á Grand Hótel í gær-
kvöldi, en um 100 manns
sóttu fundinn.
I skýrslu um drög að tillög-
um svæðisskipulagsins er
skipulaginu skipt í tvo áfanga
og miðast fyrri áfanginn við
tímabilið frá 2000 til 2018, en
sá síðari frá 2018 til 2024.
Gert er ráð fyrir að 26 þús-
und nýjar íbúðir muni rísa
innan höfuðborgarsvæðisins í
fyrri áfanganum en 7 þúsund
í síðari áfangum. Áætlað er
að íbúafjöldi á höfuðborgar-
svæðinu muni aukast um 60
þúsund á þessum 24 árum eða
úr 170 þúsund í 230 þúsund.
Nýtt hverfi við Úlfarsfell
I fyrri áfanganum, þ.e. frá
2000 til 2018, er gert ráð fyrir
mestri uppbyggingu á svæð-
inu milli Mosfellsbæjar og
Hafnarfjarðar. Eins og áður
kom fram verða 7 þúsund
íbúðir byggðar með þéttingu
byggðar, en þær 26 þúsund
íbúðir sem eftir standa munu
m.a. rísa á nýjum landssvæð-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Þær munu rísa í nýju hverfi á
Geldinganesi í Reykjavík, við
Úlfarsfell og Helgafell í Mos-
fellsbæ, við Gálgahraun og
Hnoðraholt í Garðabæ, úti á
Álftanesi, sem og í kringum
Urriðakotsvatn í Hafnarfirði,
þar sem nú er golfvöllur Golf-
klúbbs Setbergs.
Miðað er við að í fyrri
áfanga verði svæði þau sem
tekin verða til byggðaþróun-
ar milli Mosfellsbæjar og
Hafnarfjarðar, því sem næst
fullbyggð.
Gert ráð fyrir
byggð í Vatnsmýrinni
í öðrum áfanga er gert ráð
fyrir að uppbygging geti farið
Hvað er
svæðisskipulag?
SVÆÐISSKIPULAG höfuð-
borgarsvæðisins tekur til
byggðaþróunar, landnotk-
unar, umhverfismála, sam-
gangna og veitukerfa auk
þess að samfélagsleg þróun
á svæðinu er skoðuð sér-
staklega. Skipulagssvæðið
afmarkast af sveitarfélags-
mörkum Kjósarhrepps í
norðri og sveitarfélags-
mörkum Hafnarfjarðar í
suðri.
Átta sveitarfélög áttu
frumkvæði að svæðisskipu-
laginu og annast sérstök
samvinnunefnd gerð þess,
en hvert sveitarfélag á tvo
fulltrúa í nefndinni. Sveit-
arfélögin eru: Reykjavík,
Seltjarnarnes, Kópavogur,
Garðabær, Bessastaða-
hreppur, Hafnarfjörður,
Mosfellsbær og Kjósar-
hreppur.
Svæðisskipuiag er gert til
minnst 12 ára, en svæðis-
skipulag höfuðborgarsvæð-
isins nær til ársins 2024 og
er skipt í tvo áfanga varð-
andi byggðaþróun eða 2000
til 2018 og 2018 til 2024.
Samkvæmt skipulag-
sreglugerð er markmið
svæðisskipulags að taka
mið af efnahagslegum, fé-
lagslegum og menningar-
legum þörfum, heilbrigði
og öryggi og hagkvæmri og
skynsamlegri nýtingu lands
og landsgæða með sjálf-
bæra þróun að leiðarljósi.
fram á Álfsnesi í Reykjavík,
við Hamranes og Vatnshlíð í
suðurhluta Hafnarfjarðar og
á svæði Reykjavíkurflugvall-
ar. Þó samkvæmt svæðis-
skipulaginu, sem nær til árs-
ins 2024, sé aðeins gert ráð
fyrir 7 þúsund nýjum íbúðum
í síðari áfanga skipulagsins er
tekið fram að í Álfsnesi sé
rúm fyrir 7 þúsund nýjar
íbúðir, á byggingarsvæðun-
um í suðurhíuta Hafnarfjarð-
ar rúmist 7 þúsund í viðbót og
í Vatnsmýrinni rúmist 5 þús-
und íbúðir.
Samkvæmt drögunum er
gert ráð fyrir byggð í Vatns-
mýrinni eftir árið 2018 en Ár-
ni Þór Sigurðsson, sem sæti á
Samvinnunefnd um svæðis-
skipulag á höfuðborgarsvæð-
inu, sagði að nefndin myndi
ekki skila frá sér endanlegum
tillögum fyrr en ákvörðun
hefði verið tekin um framtíð
Reykjavíkurflugvallar.
Iðnaðar- og hafnarsvæði
á Geldinganesi
Samkvæmt drögunum er
sunnanvert Geldingames og
svæðið austan við Gufunes
hugsað sem iðnaðar- og hafn-
arsvæði, sem og nokkuð stórt
svæði í suðurhluta Hafnar-
fjarðar gegnt Álverinu í
Straumsvík og Hvaleyrar-
velli.
Samfara aukinni fólksfjölg-
un á höfuðborgarsvæðinu á
næstu árum er reiknað með
því að störfum muni fjölga
um 39 þúsund, en árið 1997
voru 97 þúsund störf á svæð-
inu en árið 2024 er gert ráð
fyrir því að þau verði um 135
þúsund.
Þörfin fyrir störf í nýjum
hverfum er ekki einungis
vegna fólksfjölgunar, heldur
einnig vegna aukinnar flatar-
þarfar fyrir hvern starfs-
mann. Samkvæmt skýrslunni
munu um 12 þúsund störf
Höfuðborgarsvædi
Gert ráð
fyrir 10%
þéttingu
byggðar
Árið 1998 hófu sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu samstarf um gerð