Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 18

Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/BFH Böðvar og Björn í síðdegissólinni, Sellandafjall fylgist með verkinu. Einu sinni var Smári Mývatnssveit - Þeir Böðvar Jónsson á Gautlöndum og Björn Guðmunds- son í Hólabraut mættust í haustlit- unum sunnan undir Sandfelli, suður frá Stöng í Mývatnssveit, á leið sem liggur frá Stöng suður hjá Engidal í Bárðdælahreppi. Þeir hafa margs að minnast frá liðinni tíð þegar Björn var framkvæmdasijóri Rækt- unarsambandsins Smára og Böðvar stjórnarformaður. Smári var ræktunarsamband búnaðarfélaganna í Laxárdal, Reykjadal og Mývatnssveit, það var stofnað 1947 og var Pétur Jónsson í Reynihlíð fyrsti formaður þess. Fé- lagið eignaðist sína fyrstu jarðýtu 1949 og var hún af Cletrack-gerð. Smári var með allumsvifamikinn rekstur vinnuvéla, einkum á ár- unum 1965 til ’70. Björn Guðmundsson frá Arkarlæk í Skil- mannahreppi gekk til liðs við félag- ið 1955 er hann varð meðeigandi og framkvæmdastjóri fram til ársins 1971. Böðvar Jónsson var stjórnar- formaður á árunum 1960-71 þegar félagið var með sín stærstu verk- efni, nefnilega við byggingu Kísilið- junnar með jarðýtur og skurðgröfukrana. Félaginu var slit- ið 1988 og eignum skipt milli eig- enda. Ræktunarsamböndin komu með stórvirkari vinnuvélar en áður höfðu þekkst, einkum til þurrkunar lands og túnvinnslu. Stærsta tún- verkefni rs. Smára var Hofsstaða- heiðin í Mývatnssveit þar sem brot- ið var mólendi um 70 ha. Er enn að á lítilli ýtu Björn á Stöng, eins og hann var oft nefndur, mun hafa farið 15 ára að vinna á jarðvinnsluvélum hjá rs. Flóa og Skeiða. I dag, 54 árum síð- ar, er Björn enn að, með litla ýtu sem hann eignaðist 1979. Hann er í góðum félagsskap með Sigga á Stöng, Hlöðveri Pétri á Björgnm og Marteini á Hálsi við að byggja upp góðan sumarveg suður móana í átt- ina að Stórási. Þeir vinna þannig að fyrst aka þeir mold íhjólförin, sem eru all- djúpur grafningur, og fylla þau næstum, síðan setja þeir malarlag ofan á og er þá kominn góður veg- ur jafnhár mólendinu og engin hætta á uppblæstri. Þetta er hið snyrtilegasta verk, sem þessara manna er von og vísa. Leiðin er mjög vel þess virði að bregða sér um sumardag, því víð- áttan er mikil og sjónarhornið sér- stakt. Smám saman reytist úr Fjall- vegasjóði til lagfæringa á slóðinni, langur vegur er þó eftir. Mikil þörf er á að Fjallvegasjóður verði efldur til að geta annað brýnni þörf fyrir þokkalegar fjallaslóðir víða um land. Utanvegaakstur myndi minnka verulega í óbyggðum ef grafningsslóðir væru víðar teknar og byggðar upp á sama hátt og hér hefur verið gert svo myndarlega. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Horft af Hrísmýrarkletti yfir hið nýja hringtorg. Nýtt hringtorg á Suðurlandsvegi Selfossi - Unnið er við frágang á hringtorgi á Suðurlandsvegi vestan Selfoss skammt frá Biskups- tungnabraut. Af nýja hringtorginu verður unnt að aka inn í Ár- bæjarhverfi um Árbæjarveg annars vegar og hins vegar inn á Hrísmýri og að athafnasvæði Steypustöðvar Suðurlands og fleiri fyrirtækja. Hið nýja hringtorg mun hægja á um- ferð og auka öryggi vegfarenda. Það er verktakafyrirtæki Sigurðar Karlssonar, Verktækni á Selfossi, sem annast frágang hringtorgsins. Sýsluskrifstofan í Stykkishólmi í nýju húsi Stykkishólmi - Sýslumaður Snæfell- inga hefur flutt starfsemi sína í nýtt og glæsilegt hús í Stykkishólmi. Bygging hússins hefur gengið mjög vel. Fyrstu skóflustungu að húsinu tók Þorsteinn Pálsson, þáverandi dómsmálaráðherra, 28. janúar 1999. Samið var við Trésmíðaverkstæði Pálmars Einarssonar í Grundarfirði um byggingu hússins, en það fyrir- tæki átti lægsta tilboð í verkið. Byggingaframkvæmdir hófust á vor- mánuðum árið 1999 og nú er húsið tilbúið og starfsemin flutt inn. Húsið er teiknað á Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga. Húsið er á tveimur hæðum og alls um 789 fermetrar að stærð. A efri hæð er skrifstofur sýslumannsembættisins, en á þeirri neðri lögreglustöð, bfla- geymslur og fangaklefar. Að sögn Olafs K. Ólafssonar sýslu- manns er um mikla breytingu að ræða fyrir starfsfólk og viðskipta- vini. Gamla sýsluskrifstofan á Aðal- götu 7 var löngu búin að sprengja ut- an af sér húsnæðið sem var mjög óhentugt, enda ekki ætlað til að hýsa skrifstofur. Það er gamalt íbúðarhús sem byggt hefur verið við. Þetta er í fyrsta skipti í langri sögu embættis- ins að byggt er hús sem eingöngu er ætlað að hýsa skrifstofu embættisins og lögreglu. Það var Framkvæmda- sýsla ríkisins sem hafði umsjón með framkvæmdum fyrir hönd ríkissjóðs og mæddi þar mest á Herði Krist- jánssyni. Bygging er falleg og setur svip á innkomuna í bæinn. Það vekur at- hygli að ekki var flutt inn í húsið fyrr en það var fullfrágengið bæði að inn- an og utan og er sá vinnumáti til fyr- irmyndar. Sýslumaður Snæfellinga er Ölafur K. Ólafsson og hefur hann starfað hér síðan 1992. Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Starfsfólk sýslumannsins í Stykkishólmi stuttu eftir að búið var að flytja og koma sér fyrir í nýja húsnæðinu. Nýja sýsluskrifstofan í Stykkishólini er áberandi og fallegt hús við inn- komuna í bæinn. Teiknistofa Gylfa Guðjónssonar teiknaði húsið. Öllum framkvæmdum var lokið áður en flutt var inn. Auk þess var gengið frá lóðinni með hellulögnum og gróðri. Klukkan á húsinu vekur athygli og hjálpar bæjarbúum að fylgjast með tímanum. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Frá vígslu íþrótta- og æfingasvæðisins í Bolungarvfk. Nýtt íþrótta- o g æfing'a- svæði vígt í Bolungarvík Bolungarvík - Nýtt íþrótta- og æf- ingasvæði var vígt í Bolungarvík sl. laugardag. Hið nýja íþróttasvæði, sem er rétt neðan við knattspyrnu- völl bæjarsins á Skeiði, mun breyta allri aðstöðu til alls konar íþróttaiðk- unar í Bolungarvík. Sóknarprestur Bolvíkinga, séra Agnes Sigurðar- dóttir, flutti blessunarorð og að því loknu afhjúpuðu nemendur í fyrsta bekk Grunnskóla Bolungarvíkur skjöld sem á er letrað: „Þetta íþróttasvæði var byggt á árunum 1996-2000 og vígt laugardaginn 30. september 2000. Knattspymuráð UMFB.“ Undirbúningur að gerð svæðisins hófst fyrir fjórum árum er Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt var fengin til að teikna svæðið og vorið 1997 hóf- ust svo jarðvinnuframkvæmdir. Síð- ustu tvö ár hefur svo verið unnið við að tyrfa svæðið og voru félagar UMFB iðnir við að leggja til vinn- uframlag undir dyggri stjórn knatt- spyrnuráðs félagsins, sem staðið hefur fyiir þessum framkvæmdum. Framlag bæjarsjóðs Bolungarvík- ur til þessa verkefnis er 6,4 milljónir króna, en í ávarpi sem Elías Jóna- tansson, gjaldkeri knattspymuráðs, flutti af þessu tilefni kom fram að verk af þessari stærðargráðu hefði kostað á þriðja tug milljóna ef það hefði verið boðið út. Góðar gjafír bárust Magnús Ólafs Hanson, formaður knattspyrnuráðs UMFB, þakkaði þeim fjölmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem með einum eða öðium hætti lögðu þessu verkefni lið og gat þess jafnframt að Sparisjóður Bolungarvíkur hefði nýlega ákveðið að gefa tvö pör af knattspyrnumörk- um fyrir yngri aldursflokka og eitt par af knattspyrnumörkum í fullri stærð til nota á hinu nýja íþrótta- svæði. Meðal þeima sem ávörp fluttu við þetta tækifæri voru Helga Jónsdótt- ir, formaður Ungmennafélags Bol- ungarvíkur, Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri og Kristinn H. Gunnars- son alþingismaður, en hann er fyrr- verandi formaður knattspyrnuráðs UMFB. Öllu ungu íþróttafólki sem við- statt var athöfnina var afhentur sér- stakur heiðurspeningur sem sleginn var af þessu tilefni og að lokum var efnt til grillveislu á hinu nýja íþróttasvæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.