Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/BFH
Böðvar og Björn í síðdegissólinni, Sellandafjall fylgist með verkinu.
Einu sinni
var Smári
Mývatnssveit - Þeir Böðvar Jónsson
á Gautlöndum og Björn Guðmunds-
son í Hólabraut mættust í haustlit-
unum sunnan undir Sandfelli, suður
frá Stöng í Mývatnssveit, á leið sem
liggur frá Stöng suður hjá Engidal í
Bárðdælahreppi. Þeir hafa margs
að minnast frá liðinni tíð þegar
Björn var framkvæmdasijóri Rækt-
unarsambandsins Smára og Böðvar
stjórnarformaður.
Smári var ræktunarsamband
búnaðarfélaganna í Laxárdal,
Reykjadal og Mývatnssveit, það var
stofnað 1947 og var Pétur Jónsson í
Reynihlíð fyrsti formaður þess. Fé-
lagið eignaðist sína fyrstu jarðýtu
1949 og var hún af Cletrack-gerð.
Smári var með allumsvifamikinn
rekstur vinnuvéla, einkum á ár-
unum 1965 til ’70. Björn
Guðmundsson frá Arkarlæk í Skil-
mannahreppi gekk til liðs við félag-
ið 1955 er hann varð meðeigandi og
framkvæmdastjóri fram til ársins
1971. Böðvar Jónsson var stjórnar-
formaður á árunum 1960-71 þegar
félagið var með sín stærstu verk-
efni, nefnilega við byggingu Kísilið-
junnar með jarðýtur og
skurðgröfukrana. Félaginu var slit-
ið 1988 og eignum skipt milli eig-
enda.
Ræktunarsamböndin komu með
stórvirkari vinnuvélar en áður
höfðu þekkst, einkum til þurrkunar
lands og túnvinnslu. Stærsta tún-
verkefni rs. Smára var Hofsstaða-
heiðin í Mývatnssveit þar sem brot-
ið var mólendi um 70 ha.
Er enn að á lítilli ýtu
Björn á Stöng, eins og hann var
oft nefndur, mun hafa farið 15 ára
að vinna á jarðvinnsluvélum hjá rs.
Flóa og Skeiða. I dag, 54 árum síð-
ar, er Björn enn að, með litla ýtu
sem hann eignaðist 1979. Hann er í
góðum félagsskap með Sigga á
Stöng, Hlöðveri Pétri á Björgnm og
Marteini á Hálsi við að byggja upp
góðan sumarveg suður móana í átt-
ina að Stórási.
Þeir vinna þannig að fyrst aka
þeir mold íhjólförin, sem eru all-
djúpur grafningur, og fylla þau
næstum, síðan setja þeir malarlag
ofan á og er þá kominn góður veg-
ur jafnhár mólendinu og engin
hætta á uppblæstri. Þetta er hið
snyrtilegasta verk, sem þessara
manna er von og vísa.
Leiðin er mjög vel þess virði að
bregða sér um sumardag, því víð-
áttan er mikil og sjónarhornið sér-
stakt. Smám saman reytist úr Fjall-
vegasjóði til lagfæringa á slóðinni,
langur vegur er þó eftir. Mikil þörf
er á að Fjallvegasjóður verði efldur
til að geta annað brýnni þörf fyrir
þokkalegar fjallaslóðir víða um
land. Utanvegaakstur myndi
minnka verulega í óbyggðum ef
grafningsslóðir væru víðar teknar
og byggðar upp á sama hátt og hér
hefur verið gert svo myndarlega.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Horft af Hrísmýrarkletti yfir hið nýja hringtorg.
Nýtt hringtorg
á Suðurlandsvegi
Selfossi - Unnið er við frágang á
hringtorgi á Suðurlandsvegi vestan
Selfoss skammt frá Biskups-
tungnabraut. Af nýja hringtorginu
verður unnt að aka inn í Ár-
bæjarhverfi um Árbæjarveg annars
vegar og hins vegar inn á Hrísmýri
og að athafnasvæði Steypustöðvar
Suðurlands og fleiri fyrirtækja. Hið
nýja hringtorg mun hægja á um-
ferð og auka öryggi vegfarenda.
Það er verktakafyrirtæki Sigurðar
Karlssonar, Verktækni á Selfossi,
sem annast frágang hringtorgsins.
Sýsluskrifstofan í
Stykkishólmi í nýju húsi
Stykkishólmi - Sýslumaður Snæfell-
inga hefur flutt starfsemi sína í nýtt
og glæsilegt hús í Stykkishólmi.
Bygging hússins hefur gengið mjög
vel. Fyrstu skóflustungu að húsinu
tók Þorsteinn Pálsson, þáverandi
dómsmálaráðherra, 28. janúar 1999.
Samið var við Trésmíðaverkstæði
Pálmars Einarssonar í Grundarfirði
um byggingu hússins, en það fyrir-
tæki átti lægsta tilboð í verkið.
Byggingaframkvæmdir hófust á vor-
mánuðum árið 1999 og nú er húsið
tilbúið og starfsemin flutt inn. Húsið
er teiknað á Teiknistofu arkitekta
Gylfa Guðjónssonar og félaga. Húsið
er á tveimur hæðum og alls um 789
fermetrar að stærð. A efri hæð er
skrifstofur sýslumannsembættisins,
en á þeirri neðri lögreglustöð, bfla-
geymslur og fangaklefar.
Að sögn Olafs K. Ólafssonar sýslu-
manns er um mikla breytingu að
ræða fyrir starfsfólk og viðskipta-
vini. Gamla sýsluskrifstofan á Aðal-
götu 7 var löngu búin að sprengja ut-
an af sér húsnæðið sem var mjög
óhentugt, enda ekki ætlað til að hýsa
skrifstofur. Það er gamalt íbúðarhús
sem byggt hefur verið við. Þetta er í
fyrsta skipti í langri sögu embættis-
ins að byggt er hús sem eingöngu er
ætlað að hýsa skrifstofu embættisins
og lögreglu. Það var Framkvæmda-
sýsla ríkisins sem hafði umsjón með
framkvæmdum fyrir hönd ríkissjóðs
og mæddi þar mest á Herði Krist-
jánssyni.
Bygging er falleg og setur svip á
innkomuna í bæinn. Það vekur at-
hygli að ekki var flutt inn í húsið fyrr
en það var fullfrágengið bæði að inn-
an og utan og er sá vinnumáti til fyr-
irmyndar. Sýslumaður Snæfellinga
er Ölafur K. Ólafsson og hefur hann
starfað hér síðan 1992.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Starfsfólk sýslumannsins í Stykkishólmi stuttu eftir að búið var að flytja
og koma sér fyrir í nýja húsnæðinu.
Nýja sýsluskrifstofan í Stykkishólini er áberandi og fallegt hús við inn-
komuna í bæinn. Teiknistofa Gylfa Guðjónssonar teiknaði húsið. Öllum
framkvæmdum var lokið áður en flutt var inn. Auk þess var gengið frá
lóðinni með hellulögnum og gróðri. Klukkan á húsinu vekur athygli og
hjálpar bæjarbúum að fylgjast með tímanum.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Frá vígslu íþrótta- og æfingasvæðisins í Bolungarvfk.
Nýtt íþrótta- o g æfing'a-
svæði vígt í Bolungarvík
Bolungarvík - Nýtt íþrótta- og æf-
ingasvæði var vígt í Bolungarvík sl.
laugardag. Hið nýja íþróttasvæði,
sem er rétt neðan við knattspyrnu-
völl bæjarsins á Skeiði, mun breyta
allri aðstöðu til alls konar íþróttaiðk-
unar í Bolungarvík. Sóknarprestur
Bolvíkinga, séra Agnes Sigurðar-
dóttir, flutti blessunarorð og að því
loknu afhjúpuðu nemendur í fyrsta
bekk Grunnskóla Bolungarvíkur
skjöld sem á er letrað: „Þetta
íþróttasvæði var byggt á árunum
1996-2000 og vígt laugardaginn 30.
september 2000. Knattspymuráð
UMFB.“
Undirbúningur að gerð svæðisins
hófst fyrir fjórum árum er Elísabet
Gunnarsdóttir arkitekt var fengin til
að teikna svæðið og vorið 1997 hóf-
ust svo jarðvinnuframkvæmdir. Síð-
ustu tvö ár hefur svo verið unnið við
að tyrfa svæðið og voru félagar
UMFB iðnir við að leggja til vinn-
uframlag undir dyggri stjórn knatt-
spyrnuráðs félagsins, sem staðið
hefur fyiir þessum framkvæmdum.
Framlag bæjarsjóðs Bolungarvík-
ur til þessa verkefnis er 6,4 milljónir
króna, en í ávarpi sem Elías Jóna-
tansson, gjaldkeri knattspymuráðs,
flutti af þessu tilefni kom fram að
verk af þessari stærðargráðu hefði
kostað á þriðja tug milljóna ef það
hefði verið boðið út.
Góðar gjafír bárust
Magnús Ólafs Hanson, formaður
knattspyrnuráðs UMFB, þakkaði
þeim fjölmörgu einstaklingum og
fyrirtækjum sem með einum eða
öðium hætti lögðu þessu verkefni lið
og gat þess jafnframt að Sparisjóður
Bolungarvíkur hefði nýlega ákveðið
að gefa tvö pör af knattspyrnumörk-
um fyrir yngri aldursflokka og eitt
par af knattspyrnumörkum í fullri
stærð til nota á hinu nýja íþrótta-
svæði.
Meðal þeima sem ávörp fluttu við
þetta tækifæri voru Helga Jónsdótt-
ir, formaður Ungmennafélags Bol-
ungarvíkur, Ólafur Kristjánsson
bæjarstjóri og Kristinn H. Gunnars-
son alþingismaður, en hann er fyrr-
verandi formaður knattspyrnuráðs
UMFB.
Öllu ungu íþróttafólki sem við-
statt var athöfnina var afhentur sér-
stakur heiðurspeningur sem sleginn
var af þessu tilefni og að lokum var
efnt til grillveislu á hinu nýja
íþróttasvæði.