Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Demókratar í Bandarrkjunum hefja nýja auglýsingaherferð gegn George W. Bush
Washington. The Daily Telegraph, Washington Post.
SÍÐUSTU skoðanakannanir fyrir kappræður
bandarísku forsetaefnanna í nótt bentu til þess
að George W. Bush væri að sækja í sig veðrið
og demókratar reyndu að snúa vöm í sókn með
því að beina athyglinni að störfum hans sem
ríkisstjóra Texas síðustu sex árin. Þeir hófu
auglýsingaherferð þar sem áhersla er lögð á
loftmengun í borgum Texas og varaforseti
demókrata, Joseph I. Lieberman, hyggst fara
til ríkisins til að beina athyglinni að vandamál-
um þess.
„Það er ekkert að skjánum ykkar,“ segir í
nýrri auglýsingu demókrata sem sýnd var í
Washington-ríki. „Það sem þið sjáið er versta
mengunarský í Bandaríkjunum. Borgin:
Houston í Texas. Dragið nú djúpt andann og
ímyndið ykkur Seattle-borg með reglugerðir
Bush í umhverfísmálum eins og í Texas.
George Bush. Hann ætti ef til vill að hreinsa til
í Texas áður en hann talar um að hreinsa til í
Washington."
Áætlað er að auglýsingamar kosti nokkrar
milljónir dala og verða þær sýndar í mörgum
ríkjum þar sem lítill munur er á fylgi fram-
bjóðendanna.
í auglýsingunum er vísað til þess að banda-
ríska umhverfisverndarstofnunin skýrði frá því
á síðasta ári að Houston væri orðin reyk-
mengaðasta borg Bandaríkjanna. Texasborg
er einnig efst á lista stofnunarinnar yfir borgir
þar sem mest hætta stafar af skaðlegu ósoni í
andrúmsloftinu.
Þegar faðir Bush, George Bush eldri, atti
kappi við Michael Dukakis, þáverandi ríkis-
stjóra Massachusetts, í forsetakosningunum
árið 1988 fór hann í heimaríki keppinautarins
til að vekja athygli á mengun í höfninni í Bost-
on og háum sköttum í ríkinu. Honum tókst að
lokum að sannfæra bandaríska kjósendur um
að Dukakis væri of vinstrisinnaður til að hægt
Reynt að beina at-
hyglinni að vanda-
málum Texas
væri að kjósa hann forseta. Gore
reynir nú að beita svipaðri aðferð og
sannfæra kjósendur um að Bush
yngri sé of hægrisinnaður og hlið-
hollur iðjuhöldum. Ólíkt Bush eldri
notar hann hins vegar „staðgengla"
sína til að gagnrýna Texas svo hann
geti haldið því fram að hann leggi sig
ekki niður við neikvæðan kosninga-
áróður.
Texas lýst sem „þriðja
heims landi“
Joseph I. Lieberman hyggst
heimsækja nokkra „vandræðastaði í Texas“ í
vikunni og er ferðin kennd við „misheppnaða
forystu". Einn af ráðgjöfum varaforsetaefnis-
ins sagði að markmiðið væri að lýsa Texas,
næststærsta ríki Bandaríkjanna, sem „þriðja
heims landi“ og vara við því að hin ríkin 49 færu
sömu leið ef Bush verður kjörinn forseti.
Lieberman hyggst meðal annars fara til bæj-
arins Jasper, þar sem hvítir kynþáttahatarar
urðu blökkumanninum James Byrd að bana
fyrir tveimur árum með því að binda hann aft-
an í pallbifreið og aka síðan fimm km leið með
manninn í eftirdragi. Markmiðið
með heimsókninni er að vekja at-
hygli á andstöðu Bush við að sett
verði sérstök lög til að stemma
stigu við „hatUrsglæpum“ í Texas
og þeirri ákvörðun hans að heim-
sækja ekki bæinn eftir morðið.
Demókratar hafa einnig reynt
að koma höggi á Bush með því að
benda á að í Texas eru fleiri fangar
og hlutfallslega fleiri aftökur en í
nokkru öðru ríki Bandaríkjanna.
Þeir hafa þó dregið úr þeirri gagn-
rýni þar sem skoðanakannanir
hafa leitt í ljós að þorri kjósenda er hlynntur
því að tekið sé hart á glæpum.
„Mengaðasta
ríki Bandaríkjanna"
Gore hefur haldið því fram að Texas sé
„mengaðasta ríki Bandaríkjanna" og aðstoðar-
menn hans leggja kapp á að birta tölfræðilegar
upplýsingar sem sýna að Texas er neðarlega á
listum yfir fjölda þeirra sem búa í eigin hús-
næði, frammistöðu í menntamálum, útgjöld til
geðheilbrigðismála og sjúkratrygginga.
„Bömin okkar eru að deyja í Houston," sagði
LaNell Anderson sem er í hópi demókrata sem
kallar sig „Sannleikssveit Texas“. „Þau eru
með hár föður síns og augu móður sinnar og
eitur efnaverksmiðjanna í blóðinu.“
Nokkrir demókratar í Texas hafa gagnrýnt
þessa baráttuaðferð og lýst henni sem grófiim
hræðsluáróðri. George Christian, sem var
fjölmiðlafulltrúi í Hvíta húsinu í forsetatíð
Lyndons B. Johnsons, lýsti Bush sem „góðum
ríkisstjóra" og sagði að hann ætti ekki sök á öll-
um vandamálum Texas. „Ég tel ekki að ríkið
eigi það skilið að vera rakkað niður með þess-
um hætti,“ sagði hann. „Við eigum við óvenju-
slæm vandamál að stríða á stöku stað en þau
hófust löngu áður en Bush kom hingað. Og ég
tel að flestir átti sig á þessu.“
Segja Texas hafa tekið
stórfelldum framförum
Repúblikanar benda á að Bush var endur-
kjörinn ríkisstjóri Texas með 38 prósentustiga
mun fyrir tveimur árum en stuðningurinn við
Gore hefur minnkað í heimaríki hans, Tennes-
see, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun.
Bush fór til Tennessee á þriðjudag til að
vekja athygli á þessu og hefur stofnað sérstaka
nefnd, „Stoltir af Texas", sem á að svara full-
yrðingum „Sannleikssveitai-innar". Bush gagn-
rýndi Lieberman fyrir að reyna að „tæta ríkið
okkar sundur“.
Ray Sullivan, talsmaður Bush, lýsti gagn-
rýninni á Texas sem harkalegu örþrifaráði af
hálfu Gore. „Raunin er sú að undir stjórn Geor-
ge W. Bush hefur Texas tekið stórfelldum
framförum í menntamálum, loftið er hreinna
og fleiri böm og fullorðnir hafa aðgang að
sjúkratryggingum. Það er okkur í hag að at-
hyglin beinist að Texas og ferli Bush ríkis-
stjóra."
Hörð bar-
atta a loka-
sprettinum
Bandaríski stjórnmálafræðiprófessorinn
Howard Reiter er sérfróður um forseta-
kosningar í heimalandi sínu. Sigrfður B.
I Tómasdóttir ræddi við hann um hnífjafna
baráttu Bush og Gore.
i ÁRATUGIR eru síðan kosningabar-
átta í bandarísku forsetakosningun-
I um hefur verið jafnjöfn og nú þegar
tæpar fjórar vikur eru til kosninga.
Dr. Howard Reiter er prófessor í
stjómmálafræði við Connecticut-há-
í skóla og hefur beint rannsóknum sín-
um undanfama þrj á áratugi að miklu
leyti að ýmsum hliðum forsetakosn-
[ inga í Bandaríkjunum. Hann hélt er-
indi um kosningamar sem framund-
an em og hvaða áhrif þær myndu að
: öllum líkindum hafa á bandarísk ut-
anríkismál í Háskóla íslands í gær, á
! vegum stjómmálafræðiskorar HÍ og
\ Félags stjómmálafræðinga, og í
| fyrrakvöld talaði hann á fundi í
i ReykjavíkurAkademíunni um for-
! setatíð Bills Clintons sem nú er að
renna sitt skeið á enda.
í Þegar Morgunblaðið náði tali af
Reiter lá beinast við að spyrja hvers
vegna hann teldi að svo lítill íylgis-
munur væri á frambjóðendunum
i tveimur, George W. Bush, frambjóð-
anda repúblikana, og A1 Gore, fram-
bjóðanda demókrata, eins og nýjustu
skoðanakannanir benda til. „Báðir
hafa reynt að sýna fram á að þeir séu
ekki dæmigerðir fyrir sinn flokk til
þess að höfða til sem flestra kjós-
enda. Þeir hafa lagt áherslu á að þeir
séu allt annað en öfgamenn og hafa
leitast við að gera sem minnst úr
þeim atriðum þar sem þá greinir á.
Þeir em varfæmir stjórnmálamenn
og raunar dæmi um stjómmálamenn
sem vilja móðga sem fæsta.“ Hann
sagði að þessi varfæmi og hófsemi
hefði hins vegar haft þær afleiðingar
að þeir Bush og Gore hafa ekki náð
að heilla kjósendur svo um munar.
„Þeir eru báðir frekar litlausir og
hafa ekki náð að vekja áhuga kjós-
enda í stómm stíl.“ Reiter bendir
einnig á að sú skýringu hafi verið
nefnd, að góðærið sem nú ríkir í
Bandarílgunum dragi úr áhuga á
stjómmálum, fólk sjái enga sérstaka
ástæðu til að láta sig stjórnmál
nokkm varða svo lengi sem það hefur
yfir fáu að kvarta efnahagslega og sé
því nokkuð sama um hver beri sigur
úr býtum. Hann segist hins vegar
ekki taka undir þá skýringu af fullum
hug og bendir á að þátttaka í kosn-
ingum hafi minnkað jafnt og þétt síð-
ustu 40 árin. Aðspurður segir Reiter
að það sem muni ráða úrslitum þegar
kemur að forsetakosningunum verði
eflaust samspil margra þátta. „Skoð-
anakannanir sýna að það em einkum
innanríkismál sem skipta máli þegar
Bandaríkjamenn velja sér forseta.
Samspil þeirra mála sem kjósendur
telja skipta mestu máli - svo sem
menntamála, heilbrigðismála og
tryggingamála - kemur sennilega til
með að ráða úrslitum. Þá greinir ekki
á um viðskiptamál svo þau hafa lítið
verið í umræðunni."
Hefðbundinn skoðanamunur
repúblikana og demókrata
Sá skoðanamunur sem er á fram-
bjóðendunum í áðurnefndum málum
.. Reuters
A1 Gore og George W. Bush í fyrstu sjónvarpskappræðum sínum á dögunum. Onnur umferð kappræðnanna átti
að fara fram í gærkvöld, en þær þykja vega þungt vegna þess hve jafnt fylgi keppinautarnir mælast með.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dr. Howard Reiter.
er hefðbundinn skoðanamunur milli
demókrata og repúblikana, að sögn
Reiters. „Gore vill t.a.m. leggja
áherslu á að styrkja ríkisskóla á með-
an Bush hefur verið fylgjandi svok-
ölluðu ávísanakerfi, sem gerir for-
eldrum kleift að velja hvert þeir
senda börnin sín. Það hefur reyndar
verið svo umdeilt að hann er farinn
að forðast að nefna það á nafn. í
tryggingamálum er Bush fylgjandi
rneiri einkavæðingu en Gore sem tel-
ur hana geta verið áhættusama.
Bush er einnig fylgjandi minni ríkis-
umsviíúm og skattalækkunum, eins
og hefðbundið er fyrir repúblikana."
Stefnu forsetaframbjóðendanna í ut-
anríkismálum telja fæstir Banda-
ríkjamenn skipta máli, eingöngu 4%
ef marka má skoðanakönnun sem
Reiter vitnar til. Hún vekur hins veg-
ar áhuga erlendis vegna stöðu
Bandaríkjanna í heimsmálum. Reiter
segir að ekki megi að búast við mikl-
um breytingum á utanríkisstefnu
Bandaríkjanna að loknum kosning-
um, sama hvor sigri. „Þarna er e.t.v.
hægt að tala um áherslumun en það
verður engin róttæk umbylting, né
heldur einangrunarstefna." Reiter
bendir á að þeir hafa óh'ka afstöðu til
hermála, Gore sé tilbúnari að beita
hernum til afskipta af erlendum inn-
anríkismálum líkt og Clinton. Einnig
sé líklegt að Gore yrði viljugri til að
skrifa undir alþjóðlega samninga, t.d.
um umhverfisvernd, en Bush sé t.d. á
móti samningnum um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn (CTBT)
og eitt og annað slíkt megi tína til.
Persónuleiki frambjóðenda
ekki úrslitaatriði
Bush hefur verið legið á hálsi fyrir
að vera illa að sér í utanríkismálum.
Gore, sem sumir segja að sé betur að
sér en Bush hvar sem gripið er niður,
hefur hins vegar verið sakaður um að
tala niður til fólks.
Reiter segir að ýmis atriði á borð
við þetta geti haft einhver áhrif á
lokasprettinum, „þótt ég telji samt að
kjósendur kjósi ekki um persónu-
leika þegar kemur að forsetakosn-
ingum“. Reiter veðjar frekar á að
málefni eins og byssueign og fóstur-
eyðingamál gætu haft úrslitaáhrif.
Gore er fylgjandi hertu eftirliti með
byssum og er frjálslyndari í afstöðu
til fóstureyðinga. „En þetta eru hvort
tveggja svo umdeild mál að þeir hafa
forðast allar öfgar.“ Einnig verður
lögð ofuráhersla á þau ríki þar sem
sýnt er að hvorugur frambjóðandi
hefur náð öruggum meirihluta.
„Þetta eru Miðvesturríki Bandaríkj-
anna, Michigan, Wisconsin, Penn-
sylvanía og svo má ekki gleyma Flór-
ída.“ Reiter segir að allt kapp verði
lagt á það hjá frambjóðendum að
auglýsa sem mest í þessum ríkjum.
„En þetta eru ríki þar sem íbúar eru
mjög blandaður hópur svc> þetta
verður vandasöm barátta. í Penn-
sylvaníu er t.d. mikið af verkamönn-
um sem yfirleitt kjósa demókrata.
Byssueign er hins vegar almenn, sem
kemur Bush til góða.“ Reiter segir að
margt geti spilað inn í baráttuna á
lokasprettinum, sem verði án efa
mjög hörð. Þar á meðal sé frammist-
aða í sjónvai-pskappræðum. „En
einnig gæti eitthvað óvænt komið
upp á sem annar frambjóðandinn
myndi hagnast á.“ Hann bendir á að
frambjóðendur hafi heilan her
manna á sínum snærum sem vinna
skoðanakannanir, tala við kjósendur
og reyna að taka púlsinn. „Lang-
stærstur hluti kjósenda hefur gert
upp hug sinn. En það eru ákveðnir
hópar sem hafa verið óstöðugri en
aðrir og því reyna frambjóðendur
hvað þeir geta til að herja á þá.“
Spáir Gore sigri
Reiter segist ekki búast við að sá
sem fer með sigur af hólmi sigri með
miklum mun, en hverjum skyldi hann
spá sigri? „Ég hef það á tilfinning-
unni að Gore muni vinna, og byggi
það m.a. á rannsóknum bandarískra
stjórnmálafræðinga sem hafa greint
forsetakjör til þessa og sett í sam-
hengi við efnahagsmál. Bush hefur
að vísu komið vel út úr skoðanakönn-
unum undanfarið og því er þetta alls
ekki ljóst ennþá en ég spái Gore
sigri.“