Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 25
ERLENT
Forsætisráðherra skosku
heimastjórnarinnar látinn
Edinborg. Reuters, The Daily Telegraph.
DONALD Dewar, forsætis-
ráðherra skosku heimastjórnar-
innar, lést af völdum heilablæðing-
ar í gær, 63 ára að aldri. Tony
Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands,
sagði þegar hann
vottaði minningu
Dewars virðingu sína
að hann hefði gert
stofnun skoska þings-
ins og heimastjórnar-
innar mögulega.
Dewar var fluttur á
sjúkrahús í fyrradag
eftir að hafa hrasað
við embættisbústað
sinn í Edinborg og
orðið fyrir höfuð-
meiðslum.
„Með mikilli hryggð
verð ég að skýra frá
því að Donald Dewar
er látinn," sagði ráðgjafi hans,
David Whitton, við blaðamenn á
sjúkrahúsi í Edinborg. „Þetta er
sorglegur dagur fyrir Skotland
sem hefur misst mikinn mann.“
Dewar hóf störf að nýju fyrir
nokkrum vikum eftir að hafa
gengist undir hjartaskurðaðgerð í
maí. Hann hrasaði á tröppum fyrir
utan bústað sinn í fýrradag eftir
fund í skosku heimastjórninni.
Hann hélt áfram störfum sinum en
kvartaði seinna yfír
því að sér liði illa og
var fluttur á sjúkra-
hús til rannsóknar.
Heilsa hans versnaði
urn kvöldið og rann-
sóknin leiddi í ljós að
blóðæð í heila hafði
brostið. Hann var þá
fluttur á gjörgæslu-
deild annars sjúkra-
hús en læknum tókst
ekki að bjarga lífi
hans.
Dewar starfaði áð-
ur sem lögmaður og
var leiðtogi Verka-
mannaflokksins í
Skotlandi. Hann varð
forseti fyrsta þings Skotlands frá
árinu 1707 í fyrraþegar landið
fékk takmörkuð sjálfstjórnarrétt-
indi samkvæmt stjórnarskrár-
breytingu bresku stjórnarinnar.
Verkamannaflokkurinn fékk ekki
meirihluta í sögulegum kosningum
til skoska þingsins í maí en Dewar
varð þó forsætisráðherra heima-
stjórnarinnar eftir að hafa náð
samkomulagi um stjórnarsamstarf
við Frjálslynda demókrata.
Dewar var kjörinn á skoska
þingið sem fulltrúi Anniesland-
kjördæmis í Glasgow og sat einnig
á breska þinginu fyrir sama kjör-
dæmi. Hann fór áður með málefni
Skotlands í bresku stjórninni.
„Hann gerði valda-
framsalið mögulegl"
Tony Blair hefur lýst Dewar
sem driffjöðrinni á bak við þá hug-
mynd að veita Skotum aukin völd í
eigin málum til að grafa undan
kröfu skoskra þjóðernissinna um
fullt sjálfstæði.
„Hann gerði valdaframsalið
mögulegt," sagði Blair í gær og
lýsti Dewar sem „manni ráðvendni
og heiðarleika í heimi ráðabruggs
og leynimakks".
„Hann veitti Skotlandi tækifæri
til að koma á nýjum og betri
tengslum við aðra hluta Bret-
lands,“ sagði Blair. „Skoska þingið
er hans afrek, vitnisburður hans,
og hans verður ávallt minnst fyrir
það.“
Donald Dewar
EVRÓPA^
Stækkun ESB
2-3 ríki
hæf til
skjótrar
inngöngu
Brussel. Reuters.
HÁTTSETTUR embættismaður
hjá Evrópusambandinu (ESB)
sagði í gær, að aðeins tvö eða þrjú
af þeim löndum, sem nú sækjast
eftir aðild að sambandinu, væru
hæf til að fá skjóta inngöngu, og að
það yrði að líkindum komið árið
2005 áður en stærri hópi umsókn-
arríkja yrði hleypt inn.
Eneko Landaburu, sem er eins
konar ráðuneytisstjóri yfir þeirri
deild framkvæmdastjórnar ESB
sem sinnir stækkunarmálunum,
sagði hins vegar að enn væri ekki
orðið fullljóst, hvernig farið yrði að
við næstu stækkunarbylgju sam-
bandsins.
Landaburu lét þessi orð falla í
kjölfar þess að Gúnter Verheugen,
sem fer með stækkunarmálin í
framkvæmdastjórninni sjálfri,
sagði að raunhæft væri að þau ríki
sem bezt stæðu sig í undirbúningi
aðildar fengju aðild strax árið
2003.
Evrópusambandið er um þessar
mundir að undirbúa leiðtogafund
sem fara á fram í Nizza í Suður-
Frakklandi í desember, þar sem til
stendur að gengið verði frá þeim
breytingum sem gera þarf á upp-
byggingu sambandsins til að
tryggja að það geti áfram starfað
með skilvirkum hætti þótt ný að-
ildarríki bætist inn í raðir þess.
Ýmsar leiðir
hugsanlegar
„Ýmsar leiðir eru hugsanlegar á
þessu stigi,“ sagði Landaburu á
ráðstefnu á vegum þankabankans
European Policy Centre í Brussel.
Vel sé hægt að sjá tvö til þrjú ríki
fá inngöngu innan tveggja til
þriggja ára. Hitt sé þó líklegra, að
árið 2005 fái stærri hópur ríkja
inngöngu samtímis.
Nóbelsverðlaunin í hagfræði
Greining töl-
fræðigagna um
atferli fólks
Stokkhóimur. AFP, AP.
SÆNSKA vísinda-
akademían veitti í
gær tveimur Banda-
ríkjamönnum, Jam-
es J. Heckman og
Daniel L. McFadd-
en, Nóbelsverðlaun-
in í hagfræði. Eru
verðlaunin veitt fyr-
ir rannsóknir þeirra
á hegðunarmynstri
fólks í lífi og starfi,
sem hafa haft áhrif á
þróun launakerfa,
starfsþjálfunar-
stefnu og samgöngu-
og samskiptakerfa.
í greinargerð
sænsku akadem-
íunnar segir að
framlag tvímenning-
anna til þróunar að-
ferða til greiningar
tölfræðigagna um
atferli fólks sé afar
mikilsvert.
Samtvinnun
fræðanna og
raunveruleikans
Þykir val Heck-
mans og McFaddens
til marks um þá
stefnubreytingu
akademíunnar und-
anfarin ár að beina
sjónum sínum í auknu mæli að
velferðarhagfræði.
Heckman er 56 ára gamall og
lauk doktorsprófi í hagfræði frá
Princeton-háskóla árið 1971.
Hann hefur kennt við Columbia-
háskóla og Yale-háskóla, en er nú
prófessor í hagfræði við Háskól-
ann í Chicago. „Starf Heckmans
er gott dæmi um samtvinnun
fræðanna og raunveruleikans,
einkum hvað varðar stefnumótun
á vinnumarkaði," sagði Jörgen
Weibull, meðlimur vísindaakad-
emíunnar. Weibull benti á að lík-
an Heckmans væri enn notað af
stjórnvöldum við stefnumótun í
atvinnu- og starfsþjálfunarmál-
um. „Með hjálp lík-
ana Heckmans er
hægt að reikna út
hvaða áhrif eins árs
menntun er líkleg til
að hafa á tekjur og
skoða launamun
kynjanna út frá
menntun og aldri,“
sagði Karl Gustav
Jöreskog, annar
meðlimur akad-
emíunnar.
Rannsóknir á
vali á búsetustað
McFadden er 64
ára gamall og hlaut
doktorsgráðu í hag-
fræði frá Háskólan-
um í Minnesota.
Hann hefur meðal
annars kennt við Há-
skólann í Pittsburg,
Yale-háskóla og
Tækniháskóla
Massachusetts, en
gegnir nú prófess-
orsstöðu í hagfræði
við Berkeley-háskóla
í Kaliforníu. Hann
þróaði kenningu um
hvernig einstakling-
ar kjósa sér atvinnu-
og búsetustað, sem
hefur meðal annars
haft áhrif á gerð samgöngu-
mannvirkja í San Fransisco, fjár-
festingar í fjarskiptatækni og
stefnu í húsnæðismálum aldr-
aðra. Að sögn Weibulls tók aka-
demían einnig tillit til þess við
val sitt að kenningar McFaddens
voru notaðar til að meta heildar-
tjónið af olíulekanum frá olíu-
flutningaskipinu Exxon Valdez
við strendur Alaska árið 1989, og
meta hvaða aðgerða ætti að grípa
til eftir slysið.
Nóbelsverðlaunin í hagfræði
eru í ár að verðmæti níu milljóna
sænskra króna, eða 76,5 milljóna
íslenskra króna. Heckman og
McFadden deila verðlaunafénu.
Daniel
McFadden
James J.
Heckman
AUÐUR í krafti kvenna
Virkjum
kraft
kvenna
Ráðstefna á vegum AUÐAR í krafti kvenna fyrir
allar konur sem hafa áhuga á atvinnurekstri
19. október 2000
Grand Hótel Reykjavík
Dagskrá
13:00 Ráðstefna sett.
13:10 Mikilvægi nýsköpunar fyrir íslenskt hagkerfi.
Dr. Cuðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR.
13:30 AUÐUR í krafti kvenna.
Sagan á bak við verkefnið og árangurinn hingað til.
Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri AUÐAR
í krafti kvenna.
14:00 „The care-taker trip that traps women."
joanna Freeman, frumkvöðull og eigandi SWIM. Hún
er leiðbeinandi á vegum Management Centre Europe.
15:00 Kaffi.
15:30 Möguleikar Internetsins.
Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfrœðingur MSc, CPM.
16:00 Með viljann að vopni, erindi frá frumkvöðlum.
íris Cunnarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir.
16:30 Eiginleikar frumkvöðla.
Árelía E.,Cuðmundsdóttir, lektor í viðskiptadeild HR.
16:50 AUÐARverðlaunin.
Ávarp, Guðrún Pétursdóttir, formaðurverkefnastjórnar.
Verðlaunaafhending.
17:20 Ráðstefnu slitið.
Kokteill í boði styrktaraðila AUÐAR.
Fjöldi ráðstefnugesta er takmarkaður við B00
þátttakendur. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með
tölvupósti audur@ru.is (takið fram nafn og kennitölu)
eða í síma 510 6252. Ráðstefnugjald er kr. 3.500.-
í krajjti kvenna V
V
HÁSKÚLINN j REYKJAVfK
R£YKJAViK U«1VERSITV
www.ru.is
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR
www.nsa.is
Deloitte &
Touche
ÍSLANDSBANKI
www.isbank.ls
www.mbl.is