Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 25 ERLENT Forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar látinn Edinborg. Reuters, The Daily Telegraph. DONALD Dewar, forsætis- ráðherra skosku heimastjórnar- innar, lést af völdum heilablæðing- ar í gær, 63 ára að aldri. Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, sagði þegar hann vottaði minningu Dewars virðingu sína að hann hefði gert stofnun skoska þings- ins og heimastjórnar- innar mögulega. Dewar var fluttur á sjúkrahús í fyrradag eftir að hafa hrasað við embættisbústað sinn í Edinborg og orðið fyrir höfuð- meiðslum. „Með mikilli hryggð verð ég að skýra frá því að Donald Dewar er látinn," sagði ráðgjafi hans, David Whitton, við blaðamenn á sjúkrahúsi í Edinborg. „Þetta er sorglegur dagur fyrir Skotland sem hefur misst mikinn mann.“ Dewar hóf störf að nýju fyrir nokkrum vikum eftir að hafa gengist undir hjartaskurðaðgerð í maí. Hann hrasaði á tröppum fyrir utan bústað sinn í fýrradag eftir fund í skosku heimastjórninni. Hann hélt áfram störfum sinum en kvartaði seinna yfír því að sér liði illa og var fluttur á sjúkra- hús til rannsóknar. Heilsa hans versnaði urn kvöldið og rann- sóknin leiddi í ljós að blóðæð í heila hafði brostið. Hann var þá fluttur á gjörgæslu- deild annars sjúkra- hús en læknum tókst ekki að bjarga lífi hans. Dewar starfaði áð- ur sem lögmaður og var leiðtogi Verka- mannaflokksins í Skotlandi. Hann varð forseti fyrsta þings Skotlands frá árinu 1707 í fyrraþegar landið fékk takmörkuð sjálfstjórnarrétt- indi samkvæmt stjórnarskrár- breytingu bresku stjórnarinnar. Verkamannaflokkurinn fékk ekki meirihluta í sögulegum kosningum til skoska þingsins í maí en Dewar varð þó forsætisráðherra heima- stjórnarinnar eftir að hafa náð samkomulagi um stjórnarsamstarf við Frjálslynda demókrata. Dewar var kjörinn á skoska þingið sem fulltrúi Anniesland- kjördæmis í Glasgow og sat einnig á breska þinginu fyrir sama kjör- dæmi. Hann fór áður með málefni Skotlands í bresku stjórninni. „Hann gerði valda- framsalið mögulegl" Tony Blair hefur lýst Dewar sem driffjöðrinni á bak við þá hug- mynd að veita Skotum aukin völd í eigin málum til að grafa undan kröfu skoskra þjóðernissinna um fullt sjálfstæði. „Hann gerði valdaframsalið mögulegt," sagði Blair í gær og lýsti Dewar sem „manni ráðvendni og heiðarleika í heimi ráðabruggs og leynimakks". „Hann veitti Skotlandi tækifæri til að koma á nýjum og betri tengslum við aðra hluta Bret- lands,“ sagði Blair. „Skoska þingið er hans afrek, vitnisburður hans, og hans verður ávallt minnst fyrir það.“ Donald Dewar EVRÓPA^ Stækkun ESB 2-3 ríki hæf til skjótrar inngöngu Brussel. Reuters. HÁTTSETTUR embættismaður hjá Evrópusambandinu (ESB) sagði í gær, að aðeins tvö eða þrjú af þeim löndum, sem nú sækjast eftir aðild að sambandinu, væru hæf til að fá skjóta inngöngu, og að það yrði að líkindum komið árið 2005 áður en stærri hópi umsókn- arríkja yrði hleypt inn. Eneko Landaburu, sem er eins konar ráðuneytisstjóri yfir þeirri deild framkvæmdastjórnar ESB sem sinnir stækkunarmálunum, sagði hins vegar að enn væri ekki orðið fullljóst, hvernig farið yrði að við næstu stækkunarbylgju sam- bandsins. Landaburu lét þessi orð falla í kjölfar þess að Gúnter Verheugen, sem fer með stækkunarmálin í framkvæmdastjórninni sjálfri, sagði að raunhæft væri að þau ríki sem bezt stæðu sig í undirbúningi aðildar fengju aðild strax árið 2003. Evrópusambandið er um þessar mundir að undirbúa leiðtogafund sem fara á fram í Nizza í Suður- Frakklandi í desember, þar sem til stendur að gengið verði frá þeim breytingum sem gera þarf á upp- byggingu sambandsins til að tryggja að það geti áfram starfað með skilvirkum hætti þótt ný að- ildarríki bætist inn í raðir þess. Ýmsar leiðir hugsanlegar „Ýmsar leiðir eru hugsanlegar á þessu stigi,“ sagði Landaburu á ráðstefnu á vegum þankabankans European Policy Centre í Brussel. Vel sé hægt að sjá tvö til þrjú ríki fá inngöngu innan tveggja til þriggja ára. Hitt sé þó líklegra, að árið 2005 fái stærri hópur ríkja inngöngu samtímis. Nóbelsverðlaunin í hagfræði Greining töl- fræðigagna um atferli fólks Stokkhóimur. AFP, AP. SÆNSKA vísinda- akademían veitti í gær tveimur Banda- ríkjamönnum, Jam- es J. Heckman og Daniel L. McFadd- en, Nóbelsverðlaun- in í hagfræði. Eru verðlaunin veitt fyr- ir rannsóknir þeirra á hegðunarmynstri fólks í lífi og starfi, sem hafa haft áhrif á þróun launakerfa, starfsþjálfunar- stefnu og samgöngu- og samskiptakerfa. í greinargerð sænsku akadem- íunnar segir að framlag tvímenning- anna til þróunar að- ferða til greiningar tölfræðigagna um atferli fólks sé afar mikilsvert. Samtvinnun fræðanna og raunveruleikans Þykir val Heck- mans og McFaddens til marks um þá stefnubreytingu akademíunnar und- anfarin ár að beina sjónum sínum í auknu mæli að velferðarhagfræði. Heckman er 56 ára gamall og lauk doktorsprófi í hagfræði frá Princeton-háskóla árið 1971. Hann hefur kennt við Columbia- háskóla og Yale-háskóla, en er nú prófessor í hagfræði við Háskól- ann í Chicago. „Starf Heckmans er gott dæmi um samtvinnun fræðanna og raunveruleikans, einkum hvað varðar stefnumótun á vinnumarkaði," sagði Jörgen Weibull, meðlimur vísindaakad- emíunnar. Weibull benti á að lík- an Heckmans væri enn notað af stjórnvöldum við stefnumótun í atvinnu- og starfsþjálfunarmál- um. „Með hjálp lík- ana Heckmans er hægt að reikna út hvaða áhrif eins árs menntun er líkleg til að hafa á tekjur og skoða launamun kynjanna út frá menntun og aldri,“ sagði Karl Gustav Jöreskog, annar meðlimur akad- emíunnar. Rannsóknir á vali á búsetustað McFadden er 64 ára gamall og hlaut doktorsgráðu í hag- fræði frá Háskólan- um í Minnesota. Hann hefur meðal annars kennt við Há- skólann í Pittsburg, Yale-háskóla og Tækniháskóla Massachusetts, en gegnir nú prófess- orsstöðu í hagfræði við Berkeley-háskóla í Kaliforníu. Hann þróaði kenningu um hvernig einstakling- ar kjósa sér atvinnu- og búsetustað, sem hefur meðal annars haft áhrif á gerð samgöngu- mannvirkja í San Fransisco, fjár- festingar í fjarskiptatækni og stefnu í húsnæðismálum aldr- aðra. Að sögn Weibulls tók aka- demían einnig tillit til þess við val sitt að kenningar McFaddens voru notaðar til að meta heildar- tjónið af olíulekanum frá olíu- flutningaskipinu Exxon Valdez við strendur Alaska árið 1989, og meta hvaða aðgerða ætti að grípa til eftir slysið. Nóbelsverðlaunin í hagfræði eru í ár að verðmæti níu milljóna sænskra króna, eða 76,5 milljóna íslenskra króna. Heckman og McFadden deila verðlaunafénu. Daniel McFadden James J. Heckman AUÐUR í krafti kvenna Virkjum kraft kvenna Ráðstefna á vegum AUÐAR í krafti kvenna fyrir allar konur sem hafa áhuga á atvinnurekstri 19. október 2000 Grand Hótel Reykjavík Dagskrá 13:00 Ráðstefna sett. 13:10 Mikilvægi nýsköpunar fyrir íslenskt hagkerfi. Dr. Cuðfinna S. Bjarnadóttir, rektor HR. 13:30 AUÐUR í krafti kvenna. Sagan á bak við verkefnið og árangurinn hingað til. Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri AUÐAR í krafti kvenna. 14:00 „The care-taker trip that traps women." joanna Freeman, frumkvöðull og eigandi SWIM. Hún er leiðbeinandi á vegum Management Centre Europe. 15:00 Kaffi. 15:30 Möguleikar Internetsins. Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfrœðingur MSc, CPM. 16:00 Með viljann að vopni, erindi frá frumkvöðlum. íris Cunnarsdóttir og Soffía Steingrímsdóttir. 16:30 Eiginleikar frumkvöðla. Árelía E.,Cuðmundsdóttir, lektor í viðskiptadeild HR. 16:50 AUÐARverðlaunin. Ávarp, Guðrún Pétursdóttir, formaðurverkefnastjórnar. Verðlaunaafhending. 17:20 Ráðstefnu slitið. Kokteill í boði styrktaraðila AUÐAR. Fjöldi ráðstefnugesta er takmarkaður við B00 þátttakendur. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti audur@ru.is (takið fram nafn og kennitölu) eða í síma 510 6252. Ráðstefnugjald er kr. 3.500.- í krajjti kvenna V V HÁSKÚLINN j REYKJAVfK R£YKJAViK U«1VERSITV www.ru.is NÝSKÖPUNARSJÓÐUR www.nsa.is Deloitte & Touche ÍSLANDSBANKI www.isbank.ls www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.