Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 27
ERLENT
Evrópska netverzlunin
Boxman gjaldþrota
Kjarnorkuslysið í Tokaimura í Japan
Sex menn handteknir
EVRÓPSKA netverzlunin Boxman,
sem sérhæfði sig í sölu á geisla-
diskum, hefur nú hætt viðskiptum,
eftir að hlutafé fyrirtækisins þvarr.
Er þetta þekktasta netverzlunin
sem lagt hefur upp laupana frá því
„Boo.com" hlaut sömu örlög í maí sl.
í fréttatilkynningu sem Boxman
gaf út í gærmorgun er boðað, að
haldinn verði fundur með hluthöf-
um og lánardrottnum innan hálfs
mánaðar, þar sem stjórn fyrirtækis-
ins muni leggja til að það verði tekið
til gjaldþrotaskipta.
I millitíðinni vonast stjórnendur
Boxman til að kaupandi finnist að
fyrirtækinu, sem hefur verið í
rekstri í þrjú ár, sem þykir langur
tími í þessari tegund rekstrar.
Vefsíðum Boxman var lokað á
mánudagskvöld.
í apríl sl. neyddist fyrirtækið til
að gefa upp á bátinn áform um
skráningu á hlutabréfamarkað
vegna hinnar miklu dýfu sem gengi
hlutabréfa í tæknifyrirtækjum tók í
marzmánuði. Vonir höfðu staðið til
að heildarverðmæti hlutabréfanna
myndi við skráningu nema samtals
yfír 35 milljörðum króna. Frá þess-
um tíma hefur afstaða fjárfesta
breytzt nokkuð gagnvart fyrirtækj-
um á þessu sviði og forsvarsmönn-
um fyrirtækjanna gegnið verr að
telja Qárfestana á að styðja starf-
semina.
Tókýó. AFP, AP.
SEX fyrrverandi starfsmenn og yf-
irmenn kjarnorkuendurvinnslu-
stöðvarinnar í Tokaimura í Japan
voru handteknir í gær. Hafa þeir
verið ákærðir fyrir vítavert gáleysi
er leiddi til leka í stöðinni, sem
varð tveimur mönnum að bana og
olli því að hundruð manna urðu fyr-
ir geislun.
Slysið átti sér stað í september á
síðasta ári, en það er alvarlegasta
kjarnorkuslys sem orðið hefur í
Japan og talið það mesta í heimin-
um frá slysinu í Chernobyl í Úkra-
ínu árið 1986. Saksóknari telur að
orsök slyssins hafí verið sú að ör-
yggisreglur hafi verið virtar að
vettugi og hefur gefið út ákæru á
hendur tveimur yfirmönnum vers-
ins, þremur verkstjórum og einum
starfsmanni. Sexmenningarnir eiga
yfir höfði sér allt að fimm ára fang-
elsisvist auk sektai', verði þeir
fundnir sekir.
Stjórnendur horfðu
framhjá öryggisbrestum
Slysið varð þegar þrír starfs-
menn reyndu að flýta fyrir sér og
helltu of miklu magni af úraníum-
blöndu úr stálfötum í blöndunar-
tank, í stað þess að nota nákvæma
mæla og sérstök ílát. Kom þetta af
stað keðjuverkun sem olli leka
geislavirkra efna úr stöðinni. Tveir
starfsmannanna létust af völdum
geislunar, en sá þriðji er meðal
hinna ákærðu.
Rannsókn leiddi í ljós að starfs-
menn kjarnorkuendurvinnslustöðv-
arinnar virtu öryggisreglur iðulega
að vettugi, og stöðin var svipt
starfsleyfi í mai's síðastliðnum. Jap-
anskir fjölmiðlar hafa birt fréttir
þess efnis að yfirstjórn stöðvarinn-
ar og fyrirtækisins sem rak hana
hafi lagt blessun sína yfir þessi
vinnubrögð til að draga úr kostnaði.
Forstjóri
Firestone
hættir
Detroit, Tókýó. AFP, AP.
FORSTJÓRI Bridgestone-Fire-
stone-stórfyrirtækisins, Masatoshi
Ono, hefur sagt af sér í kjölfar
ásakana um að gallar í hjólbörðum
sem fyrirtækið framleiðir hafi or-
sakað yfir 150 banaslys í umferð-
inni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins vísa
því á bug að afsögn Onos, sem tók
persónulega ábyrgð á málinu við
yfirheyrslur
bandarískra
þingnefnda í síð-
asta mánuði,
standi í tengsl-
um við hjól-
barðahneykslið,
og segja að hann
hafi viljað láta af
störfum fyrir
aldurs sakir og
vegna versnandi heilsu. Ono mun
væntanlega áfram gegna störfum
fyrir móðurfyrirtæki Bridgestone í
Tókýó og sitja í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins.
Grunur vaknaði sl. sumar um að
gallar væru á hjólbörðum frá Fire-
stone, sem notaðir eru í sportút-
gáfur Explorer-jeppa frá Ford.
Málið hefur leitt til þess að yfir 6,5
milljónir hjólbarða hafa verið inn-
kallaðar og varð tilefni til opin-
berra rannsókna í Bandaríkjunum
og Venesúela.
Nýr forstjóri
biðst afsökunar
Einn af aðstoðarforsjórum fyrir-
tækisins, John Lampe, tók við
starfi Onos. Hans fyrsta verk sem
forstjóra var að biðja þá afsökun-
ar, sem hefðu orðið fyrir þjáning-
um eða óþægindum af völdum gall-
aðra hjólbarða, og sagði að
öryggiseftirlit í verksmiðjum fyrir-
tækisins yrði bætt. Lampe lagði
hins vegar áherslu á að rannsókn
málsins væri ekki lokið og að ekki
mætti líta svo á að með afsögn On-
os væri fyrirtækið að taka á sig
fulla ábyrgð.
Bridgestone-Firestone er ásamt
franska fyrirtækinu Michelin
stærsti framleiðandi hjólbarða í
heiminum, en bæði fyrirtækin
höfðu 19,4% markaðshlutdeild á
heimsmarkaði á síðasta ári.
Stjórnarformaðurinn Yoichiro
Kaizaki hefur varað við því að
sölutekjur fyrirtækisins geti lækk-
að um 1,3 milljarða dollara á
næsta ári vegna gallamálsins.
Yfirhylming framleiðslugalla
varði 15 ára fangelsi
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
samþykkti í gær frumvarp, sem
kveður á um að dæma megi for-
svarsmenn fyrirtækja í bifreiða-
iðnaði í allt að 15 ára fangelsi fyrir
að hylma yfir framleiðslugalla sem
valdið geta banaslysum. Óvíst er
þó talið að frumvarpið verði sam-
þykkt í öldungadeildinni.
Masatoshi Ono
$ SUZUKI
**.. ...■"
Komdu í reynsluakstur
Grand Vitara er þekktur sem aflmikill, sterkbyggður jeppi, byggður
á grind og með hátt og lágt drif. I nýjum Grand Vitara eru m.a.
ABS-hemlar með EBD-hemlajöfnun, aukið farþegarými, umhverfis'
vænni vél og fleiri spennandi nýjungar. Líttu við og reynsluaktu
liprum og spameytnum alvöm jeppa.
SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garöabraut 2, slml 431 28 00. Akureyrl: BSA ht, Laufásgötu 9, slmi 4E2 E3 00. SUZUKI BÍLAR HF
Hafnarfjörður:Guðvarður Elfasson, Grænukinn 20,sfmi 555 15 50. Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, sfmi 451 22 30. gkgjfyj^j 17 Sjmj 568 51 00
Isafjörður: Bílagarður ehf., Grænagarði, slmi 45E 30 95. Keflavlk: BG bllakringlan, Grðfinni 8, slmi 421 12 00. www suzuldbilar is
3-dyra: frá 1.840.000,-
5-dyra: frá 2.190.000,-
5-dyra: 23.510,- á mánuði
Dæmi um meðalafborgun miðað við 1.100.000 kr.
útborgun (t.d. bíll tekinn upp 0, í 60 mánuði.