Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 29
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Lóur Heklu Bjarkar Guðmundsdóttur í verkinu Útiímóalóa.
Uti í náttúrunni
MYNDLIST
Ranðavatn
BLÖNDUÐ TÆKNI
17 myndlistarmenn
& 22 unglingar úr
Vinnuskóla Reykjavíkur.
MEÐAL athyglisverðustu til-
raunasýninga þetta sumarið - og
hluti af menningarborg Evrópu ár-
ið 2000 - er sýningin Landslagslist
við Rauðavatn. Svo vill til að enn
standa flest verkin býsna heilleg
þótt ónefndir skemmdarvargar
hafí fundið sig knúna til að stúta
nokkrum þeirra svona eins og til
að minna okkur á það hve seint
það ætlar að takast að losa ís-
lenskt samfélag við tilefnislausa
eyðileggingarhvötina.
Á góðviðrisdögum er fátt jafn-
hollt fyrir andann og það að spáss-
era um grónar grundir lítils vatns
svo sem Rauðavatns og skoða af-
rakstur menningarinnar í náttúru-
legu samhengi kjarrgróðurs og
mosavaxinna grasbala. Gönguferð-
in milli útiverkanna við Rauðavatn
tekur vart meir en hálfan annan
tíma þótt aðeins sé lullað í hæga-
gangi.
Verkin eru öll við og upp af suð-
ur- og austurenda vatnsins þar
sem gróðursældin er hvað mest.
Þannig er bæði hægt að nálgast
þau frá bílastæðunum við þjóðveg-
inn eða eftir vegarspottanum sem
liggur frá vesturenda vatnsins,
fram hjá sumarbústöðunum, að
litlu bílastæði austan við þá. I
þremur verkunum sem liggja næst
þjóðveginum sunnan megin er
áhersla lögð á tengslin við náttúr-
una. Baugur Guðlaugs Valgarðs-
sonar, Skáldskapur skógarins eftir
þær Guðrúnu Veru Hjartardóttur
og Elsu Dórótheu Gísladóttur og
Fuglahús Kristínar Reynisdóttur
eiga það sammerkt að með þeim er
reynt að vinna gegn firringu
mannsins frá náttúrunni.
Svo vill til að verk Vignis Jó-
hannssonar, Tíminn heygður;
Gróðrastöð Eyglóar Harðardóttur
og Útiímóalóa eftir Heklu Björk
Guðmundsdóttur draga öll athygli
vegfarenda frá sjálfri náttúrunni
að mennskri framkvæmd í henni
með tilvísun til þarfa okkar til að
merkja okkur umhverfið með
táknrænum hætti. Þær Guðrún
Gunnarsdóttir - með Einstigi sínu
eða línu í landslagi - og Sólveig
Aðalsteinsdóttir - með Ormateikn-
ingu sinni - leggja báðar áherslu á
að teikna í landslagið með gróð-
ursetningu, þeim efniviði sem
sættir í senn náttúru og menningu
en vísar um leið til þeirra for-
sögulegu hátta mannsins að skilja
eftir sig menningarleg - og trúar-
leg - teikn í náttúrulegum búningi.
Anna Þóra Karlsdóttir með
Norðlingabúð sína, Málfríður Að-
alsteinsdóttir með Laufabrauð sitt
og Ásta Ólafsdóttir með Uppgröft
sinn beina augum okkar til sög-
unnar og hefðarinnar; samfélags
sem er horfið en lifir enn sem
minning og menjar og heldur
áfram að ásækja okkur með sterk-
um og náttúrulegum gildum sín-
um. Endurvakning Sonju Hákan-
son, Sumarhús Borghildar Ósk-
arsdóttur og Norðurljósasæti Erlu
Þórarinsdóttur eru allt verk sem
draga til sín athygli okkar en virka
um leið sem sjónahæðir til að
beina okkur að ákveðnu útsýni og
fyrirbærum jafnt í lofti sem á
jörðu.
Minni Dagmar Rhodius og
Krossgötur Ingu Rósu Loftsdóttur
eru hins vegar minnisvarðar ætl-
aðir til að beina sjónum okkar að
sögulegum staðreyndum sem þær
vilja brýna fyrir okkur. í öllum
sínum margbreytileik eru verkin
við Rauðavatn hvatning til okkar
um að hugleiða umhverfið og
menninguna og áhrif hennar á
náttúruna. Spurningin sem sýning-
in lætur okkur eftir er hvort
menning og náttúra þurfi endilega
að vera þær ósættanlegu andstæð-
ur sem þær eru í hugum okkar. Þá
minnir Landlist við Rauðavatn
okkur á þá ómældu og jákvæðu
virkni sem fólgin er í atorku ís-
lenskra unglinga. Án aðstoðar
þeirra hefðu listaverkin sextán
vart orðið meira en teikningar á
blaði.
Halldór Björn Runólfsson
Jón Bergmann
í galleri(a)-
hlemmur.is
JÓN Bergmann Kjartansson (An-
and Ransu) opnar málverkasýningu í
galleri@hlemmur.is á laugardaginn
14. oktober klukkan 17.
Jón Bergmann vinnur litrík mál-
verk í anda minimalisma og popplist-
ar. Að þessu sinni tekur hann formin
Nike og Adidas og spilar þeim saman
sem andstæðum og samstæðum sem
hann svo stillir inn í sýningarrýmið.
Sýningin stendur til 5. nóvember
og er opin vikulega á fimmtudögum
til sunnudags frá klukkan 14-18.
Vefsíða gallerísins er http://gall-
eri.hlemmur.is
Eitt verka Jóns Bergmanns,
Án titils.
Villibráðahlaðborð í Perlunni
Frá 13. okt. til 15. nóv.
Leyfðu villtustu draumum
bragðlaukanna að rætast
Gestum Perlunnar gefst kostur á aö
smakka eðaldrykki frá Rosemount i
Ástralíu, Villa M T Eden í Californíu og
M.Chapoutier.
Fim. - sun. kr. 4.998
Tilboð: Mán. - miö. kr. 4.390
Borðapantanir í síma 562 0200