Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 31
LISTIR
BÆKUR
1» v il (1 s k á 1 il s a g a
TAUMHALDA SKEPNUM
eftir Magnus Mills. Islensk þýðing
Isak Harðarson. Gutenberg prent-
aði. Bjartur 2000 - 174 sfður.
MAGNUS Mills er ekki einn hinna
lærðu bresku rithöfunda, féll í skóla
og lagði upp frá því stund á mörg
áhættusöm störf. Hann er nú stræt-
isvagnabflstjóri í London sem
kannski er ekki svo hættulegt.
Skáldsaga hans, Taumhald á
skepnum, var tilnefnd til Booker- og
Whitbread verðlauna og segir það
nokkuð um hana.
Óhætt er að fullyrða að hér er á
Sýnir
koparristur
á Blönduósi
NÚ stendur yfír myndlistarsýning
Elínborgar Kjartansdóttur í kaffi-
húsinu Við árbakkann á Blönduósi
þar sem hún sýnir 45 koparristur.
Sýningin stendur til 10. nóvember.
Elínborg vinnur verk sín í mis-
munandi málma, m.a. messing og
kopar. Hún hefur frá 1989 starfað
við hönnun á skartgripum sem sýnd-
ir hafa verið og seldir aðallega í
Bretlandi. Einnig hefur hún gert
veggskúlptúra, portrait koparmynd-
ir, víramyndir og ýmsa nytjahluti.
Verk Elínborgar eru í eigu íslenskra
fyi-irtækja s.s. Granda hf., Lýsingar
hf., Lyfjaverslunar íslands o.fl.
KVIKMYNDflHÁTIÐ I REYKJAVIK
FIMMTUDAGUR
Bíóborgin
Kl. 15.50 Buena Vista Social
Club
Kl. 16.00 In the Mood for
Love
Kl. 17.50 The Straight Story
Kl. 18.00 In the Mood for
Love
Kl. 19.30 Fantasia 2000
Kl. 20.00 Buena Vista Social
Club, In the Mood for Love
Kl. 22.00 The Straight Story,
In the Mood for Love
Háskólabíó
KI. 20.00 Gorilla bathes af
Noon, Une Liaison porno-
graphique
Kl. 22.00 Manifesto, Une
Liaison pornographique
Regnboginn
Kl. 16.00 Onegin, Un Pont
entre deux Rives, Cosy dens
Kl. 18.00 Cody dens,
Crouching Tiger, Hidden
Dragon
Kl. 20.00 Croucing Tiger,
Hidden Dragon, Condo Paint-
ing
Kl. 22.00 Princess Monon-
oke, Ride with the Devil
Laugarásbíó
Kl. 20.00 Legendof 1900
Kl. 22.10 Legend ofl900
Fréttir á Netinu
mbl.is
__ALLTAF eiTTHVAÐ NÝTT
OLJOS MERKING
ferðinni mjög óvenjuleg saga, raun-
sæisleg að yfirborði en líka merkt
fáránleika- og ýkjustfl.
Tilbreytingasnautt líf girðinga-
manna líður hjá með daglegum
áhyggjum og dapurlegum kráarset-
um. Kaupið er lágt og fá tilhlökkun-
arefni.
Gæta þarf þess að strekkja vírinn
rétt: „Strekkibúnaðurinn samanstóð
af vírkrækju og keðjuvindu. Tammi
hóf verkið með því að festa vinduna
við endastólpann í girðingunni. Pað
var traustur tréstólpi grafinn djúpt
niður í jörðina og styrktur með ská-
stoð í fjörutíu og fimm gráðu halla.
Síðan festi hann krækjuna í neðsta
vírinn og strekkti hann
hægt með handfangi sem
sneri keðjunni, hlekk fyrir
hlekk. Þegar hann var
ánægður með strekkinguna
festi hann vírinn við staur-
inn og tók til við þann
næsta. Eftir því sem
Tamma miðaði áfram við
verkið fór girðingin að taka
á sig sína réttu mynd.“ Magnus
Þegar slys verður, ekki hið eina, er
því lýst kaldhæðnislega. Þegar
krækja losnar af vfl- og hittir
McCrindle í gagnaugað segir: „Ég
steig fram til þess að grípa hann og
komst að því hve erfitt það getur
verið að halda einhveijum á
fótunum sem hjálpar ekki til
sjálfur. Ég lagði hann því
upp að girðingunni.
Herra Crindle var mjög
undrandi á svipinn. Augu
hans voru galopin en hann
var, að því er virtist, dauð-
ur.“
Hið ógnvekjandi sem und-
Mills jr þýj. j sögunni gerir hana
spennandi og í lok sögunnar er lesa-
ndinn skyndilega afvopnaður með
íléttu sem gerir Taumhald á skepn-
um sögu í anda fáránleikans og getur
leitt hugann að meisturum hans eins
og til dæmis Ionesco og Beckett.
í viðtali Fríðu Bjarkar Ingvars-
dóttur við Mills í Morgunblaðinu
kveðst hann ekki vita mikið um sögu-
þráðinn fyrr en hann fer að skrifa:
„En það má alveg koma fram að mér
finnst gaman að skrifa á mörkum
hins súrrealíska, það felst í því ein-
hver óljós merking sem gefur skáld-
verki aukið vægi sem lesandinn skil-
ur þegar frá líður. Að öðru leyti held
ég að sterkasti sameiginlegi þráður-
inn í mínum verkum sé þráhyggja af
einhverju tagi“.
Pesónulýsingar Mills eru kannski
ekki djúpar en alls ekki óeftirminni-
legar. Érásagnarlistin sem getur
virst áreynslulítil er helsti kosturinn.
Isak Harðarson miðlar stflnum
með ágætum og þýðing hans er
blessunarlega laus við tilgerð.
Jóhann Hjálmarsson
Merkjavara og tískufatnaður
á 50—80% lægra verði
OUTLET 10 er ný verslun sem selur fatnað
frá tískuvöruverslunum í Reykjavík og erlendis frá á
50—80% lægra verði en upprunalegt verð var.
(Fatnaðurinn er merkjavara frá þekktum framleiðendum).
Opið:
mán.-fim. 11.00-18.00
fös. 11.00-19.00
lau. 11.00-17.00
OPNUM I DAG KL. 11.00
mmna+++
Everlast
Dömur
■
CK Jeans
All Saínts
connectíon
Hudson
Matínique
Obvíous
Paul Smith
Van Gíls
InWear
Nice Girl
BullBoxer
Roobins
Vagabond