Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 34

Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 34
34 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Mannlíf og málefni BÆKUR Sagnfræði SAGA AKUREYRAR Fæðing nútímamannsins 1906- 1918 eftir Jón Hjaltason. III. bindi. 396 bls. Utg. Akureyrarbær. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Akureyri, 2000. Á UNDANFÖRNUM árum hafa flestöll stærri sveitarfélög landsins fengið skráða sögu sína. Svo viða- mikið hefur það verkefni reynst, hringinn um landið, að heita má að það hafi orðið meginviðfangsefni ís- lenskra sagnfræðinga síðasta ald- arfjórðunginn. Nú hefur Jón Hjalta- son sent frá sér þriðja bindið af sögu Akureyrar. Hið fyrsta kom út 1990 og tók yfir þúsund ára tímabil, nánar til tekið 890-1862. Það mátti heita for- saga. Annað bindið, næstum tvöfalt stærra, kom út 1994 og fjallaði um ár- in 1863-1905, afar fróðleg, áhugaverð og vel skrifuð bók. Að mínum dómi var þar á ferðinni besta íslenska fræðiritið sem út kom það árið. Þriðja bindið, sem hér um ræðir, nær yfir tólf ára skeið, það er 1906 -1918. En á þeim tíma óx Akureyri úr litlu þorpi í dálaglegan kaupstað á þeirra tíma mælikvarða. Eins og aðrir, sem skráð hafa sögu kaupstaðanna, fer Jón Hjaltason yfir helstu áfanga í stjómun, atvinnulífi, fjármálum og skipulagsmálum. Fá- tækraframfæri og skólamálum eru sömuleiðis gerð rækileg skil. Allt má kalla það dæmigerð bæjarmál. En í sögu Jóns verður það einungis gmnn- ur undir öðm stærra og meira. Saga sjálfs mannlífsins verður þama fyrir- ferðarmest. Fortjaldi liðna tímans er lyft til fulls. Augunum mæta svipir þeiira sem einu sinni vom en era ekki lengur. Lífi er blásið í sagnaspjöldin og ljóstrað upp því sem gerðist á bak við tjöldin, svo maður líki eftir orðum skáldsins. Af nógu er að taka. Akur- eyri varð snemma staður minnis: stæðra og afdrifaríkra viðburða. í gagnorðum annál segir svo um upp- hafsárið, 1906: »1 janúar er Ung- mennafélag Akureyrar stofnað. Um haustið brenna fimm glæsileg versl- unarhús á Oddeyri. „Mesti húsbruni á íslandi", segja Akureyrarblöðin. I desember vígja góðtemplarar nýtt samkomuhús á Barðsnefi, Hafnar- stræti 57.« Fyrsti áratugur aldarinnar var óslitið framfaraskeið um gervalla Evrópu, Island þá hvergi undanskilið. íbúafjöldi Akureyrar nær þrefald- aðist. Borgaramir gerðust braut- ryðjendur á mörgum sviðum. Þjóðlíf- ið einkenndist af spennu og eftir- væntingu. Stjómmálin vora hörð og miskunnarlaus. Fólk hafði á tilfinn- ingunni að tekist væri á um örlög og íramtíð þjóðarinnar. Landsmálapólitíkin hafði að vísu óveraleg áhrif á bæjarmálapóli- tíkina en þeim mun meiri og margvíslegri á önnur samskipti manna. Uppkastið og kosning- amar 1908 og 1909 skiptu mönnum í and- stæðar fylkingar. Og bannlögin, sem kosið var um fyrra árið, kyntu enn undir tilfinningahit- anum, enda þótt það mál væri ekki beinlínis pólitískt. Höfundur nefnir ýmis dæmi þess að á góðra vina fundi hafi menn varast að nefna stjórnmál ef saman vora komn- ir bæði heimastjórnarmenn og sjálf- stæðismenn. Að öðrum kosti var frið- urinn úti. Og Vigfús, vert á Hótel Akureyri, varð þjóðhetja hjá heima- stjómarmönnum þegar hann neitaði að leigja Bimi Jónssyni ráðherra, sem komið hafði ríðandi að sunnan, herbergi á hótelinu. Varð Stefán skólameistari að skjóta skjólshúsi yfir ráðherrann. Gamli tíminn, sem ein- kenndist af hiki, varfæmi og ótta við hraðar brejdingar, var að víkja fyrir nýjum straumum. Eða eins og Jón Hjaltason kemst að orði: »Sultar- jarmur kynslóðanna hafði skilið eftir ör í sál íslensku þjóðarinnar sem þurfti miklu meira en ein aldaskipti til að afmá.« En framtíðarsýn þeirri, sem við blasti, lýsir hann svo: »Galdur hins nýja tíma fólst í breyttum hugs- unarhætti: þar sem 19. aldar maður- inn hefði látið hugfallast sá aldamóta- maðurinn ívallt vonarglætu.« Meðal meiriháttar viðburða þess- ara ára vora konungskoman og stofn- un Gefjunar 1907, upphaf bílaaldar og lagning vatnsveitu 1914 og stofnun blaðanna Dags og Verkamannsins 1918. Þar með var Akureyri í raun orðin höfuðstaður Norðurlands. Matthías Jochumsson hafði reist hús uppi á Brekkunni sem hann nefndi Sigurhæðir. Vafalaust hefur trúar- vissan ráðið þeirri nafngift. Þó Matt- hías væri hálfsextugur orðinn þegar hann fluttist til Akureyrar átti nafn hans ekki eftir að tengjast öðram stað fremur. Hann hafði flust þangað sem sóknarprestur en sat þar nú í virðu- legri elli á heiðurslaunum. Með per- sónu sinni setti hann svip á bæinn. En heitið Sigurhæðir varð réttnefni í víð- tækari skilningi. Akur- eyringar vora að svipta af sér álagaham þeim sem fátækt og vesöld hafði á þjóðina lagt á undangengnum hörm- ungaröldum. Mannlífsmyndasafn- ið á götum bæjarins hefur sannarlega verið skrautlegt. Sjá mátti af svipmóti og klæðaburði hver maðurinn var og hvar hann stóð í mann- virðingastiganum. Kaupmönnum fór fjölg- andi. Og verslunin fór að sama skapi vaxandi. »Það sem meðal annars gerði Akureyri gimi- legri til búsetu en sveitina, og reyndar ílesta aðra kaupstaði landsins sé farið út í þá sálma, var hinn mikli fjöldi verslana í bænum,« segir höfundur. Hann upplýsir ennfremur að »árið 1910 vora ísfirðingai' litlu færri en Akm-eyringar en urðu að láta sér lynda 27 verslanir þegar Akureyring- ar gátu rápað á milli 46 verslana, stórra og smárra.« Ekkert verslunar- fyrirtæki í höfuðstað Norðurlands átti þó eftir að verða þvílíkt stórveldi sem Kaupfélag Eyfirðinga. Hallgrím- ur Kristinsson stýi’ði því á þessu tímabili. Það kom af sjálfu sér að miðja bæjarins yrði þar sem hann valdi því stað. Þetta var fyrir daga bílaaldar. Menn fóra gangandi húsa á milli en lengri leiðir á hestbaki. Sumir höfðu atvinnu af að aka vöram á hestvögnum. Þeir vora kallaðir keyrarar. Lystikerrur sá- ust líka á götum bæjarins. Og enginn varð þurrður á umræðuefni Frásögn- in af Theódóri Agústssyni, brúðgum- anum á nærbuxunum, minnir á leikrit eftir Dai'io Fo. Nema hvað leikskáldið spann hvaðeina upp í huga sér en brúðkaupssaga Theódórs var dagsönn, þótt ótrúleg væri. Mismunandi efna- hagur setti auðvitað svip á bæjarlífið. Sumir lyftust, sjálfkrafa að því er virt> ist, upp á öldufald gæfunnar en bárast svo jafnharðan ofan í næsta öldudal. Til að mynda segir þama frá manni nokkrum sem hófst upp úr fátækt, varð stóreignamaðm- á unga aldri og endaði sem bankastjóri. Enginn vissi betur en hann rækti þann starfann með sóma. Þar til er von var á aðal- bankastjóranum að sunnan að hann er skyndilega horfinn sjónum eins og jörðin hefði gleypt hann. Allir hugðu hann týndan og tröllum gefinn. Löngu síðar fréttist af honum úti í Noregi. Þaðan fluttist hann svo til Ameríku þar sem hann gerðist góðborgari og lifði langa og farsæla ævi. Sem geta má nærri steig hann ekki framar fæti á Isagrand. Sagan af fjárdrætti hans er auðvitað lítt merkileg. Slíkt hefur gerst bæði fyrr og síðar. En hvemig honum tókst að leynast í bænum, dög- um og vikum saman meðan leitað vai' að honum, og sleppa síðan úr landi, dulbúinn og óséður framhjá vökulu auga nágrannanna! Það mátti svo sannarlega kalla ævintýri líkast. Auð- vitað þjáðist þessi hraðstækkandi bær af vaxtaverkjum fyrsta kastið. Hall- dóra Bjamadóttir, skólastjóri bama- skólans, taldi að betur þyrfti að aga bömin. Bændur og búalið í nágranna- sveitum leit á bæinn sem spillingar- bæli þar sem ungum stúlkum væri stórhætta búin. Og ekki fengust þeir til að stofna húsmæðraskóla með Akur- eyringum nema skólinn stæði í tryggi- legri fjarlægð frá þessari Sódómu freistinganna. Stórbiunar urðu svo tíð- ir að með ódæmum mátti kalla. Þeirra hluta vegna var farið að h'ta með tor- tryggni til Akureyringa. Óhöppin áttu þó sínar skýringar. Allt var byggt úr timbri. Híbýli sín lýstu menn upp með kertum og ohulömpum. Vindla- reykingar vora í tísku. Og þar vora menn sannarlega með eldsglóð í hönd- um. Þar við bættist að branavamir vora bæði framstæðar og vanmáttug- ar. Ekki voru heilbrigðismálin auð- veldari viðureignar. Fólk var að deyja úr kvillum sem nú teljast hættulausir. Vatn vai- lengst af sótt í branna. Þeg- ar taugaveiki blossaði upp þurfti ekki lengra að leita orsakanna. Ætla mætti að hreint vatn sé víðast hvar að hafa á landi hér. Akureyringum gekk þó bæði seint og erfiðlega að afla þess. Hreinlæti var ábótavant. Berklamir tóku að breiðast út eins og hver önnur farsótt. Þar á móti kom að læknamir vora famir að láta til sín heyra og krefjast úrbóta. Höfundur talar um Guðmundartímabihð. Það er orð að sönnu. Guðmundur Hannesson, einn þeirra þriggja, sem báru það nafn, varð héraðslæknir á Akureyri. Hann stóð fast á sínu og kvað sterkt að orði. Eftirmaður hans var Steingrímur Matthíasson, einnig þjóðkunnm-. ■ Hann gerðist heimaríkur þegar annar læknir var settur honum við hhð. ► Steingrímur brýndi fyrir fólki að bæta mataræðið. En þar var úr vöndu að ráða. Þó meginhluti þjóðarinnar starfaði að framleiðslu kjöts og mjólk- ur var hvoragt auðfengið þama í þétt- býlinu. Menn urðu þá að kaupa fé á fæti og slátra því sjálfir. Margir héldu hins vegar kýr til að hafa mjólk til heimilis. Fiskurinn var jafnvel sjald- | séðari. Steingrímur læknir sagði »að það væri auðveldara að fá sardínur | frá Frakklandi í búðum Akm-eyrar- f kaupmanna en íslenskan fisk.« Hins vegar ofbauð Steingrími kaffiþambið. Kvað hann svo að orði að kynt væri undir kaffikatlinum „ ... með undir það eins mikilli árvekni og alvöra og verið væri að kynda undir gufukatli á skipi í sjávarháska“. Undir lok þessa tímabils var bær- inn að fá á sig ímynd þá sem hann hef- ur síðan haldið í vitund þjóðarinnar. Bæjarstæðið þótti hlýlegt. Húsin [; vora reisuleg mörg hver, þar að auki f prýdd ýmiss konar skrauti. I augum þeirra, sem aldir vora upp í lágreist- um torfbæjum, hlutu þau að hta út eins og hallir í ævintýram. Erlendir ferðamenn, sem nokkuð vora teknir að venja komur sínar til Islands, róm- uðu ásýnd bæjarins. Framtakssamir bæjarbúar tóku snemma að gróður- setja tré. Trjágróðurinn átti eftir að setja vaxandi svip á bæinn. Þó kulda- skeiði því, sem Jón Hjaltason kallar j réttilega vott af ísöld, væri síður en | svo lokið, gat Akureyri þó alltént tal- ist til veðursælli staða á landinu. Eins er þá ógetið sem átti vafalaust drjúgan þátt í hröðum vexti og við- gangi bæjarins, en það var síldar- ævintýrið. Síldveiðunum fylgdi hraði, áhætta og uppgrip. Að ekki sé minnst á hfsstílinn sem dró til sín unga fólkið. Kringum síldina var líf og fjör og pen- ingar en - óneitanlega dáhtið slark! t Rrossanesverksmiðjan, sem Norð- fcj menn reistu nokki'u fyiir utan bæinn, p varð í raun stóriðja síns tíma. Rit þetta spannar sem sagt gervallt htróf bæjarlífsins á þessu viðburða- ríka tímabili. Áhrifai'íkast verður það fyrir þá sök hversu höfundi tekst að tvinna saman sögu mannlífs og mál- efna. Jón Hjaltason hefur viðað að sér ótölulegum fjölda heimilda sem hann hefur síðan vegið og metið. Auk þess sem sagan er rakin í meginmáli er geysimikill fróðleikur saman dreginn j í myndatextum. Myndirnar sjálfar 1 segja ennfremur sína sögu. I fáiun orðum sagt: skemmtileg bók, afar vel og skipulega skrifuð. Og stórfróðleg. Erlendur Jónsson Jón Hjaltason ÞAÐ sem ég hefi lesið eftir Vibeke Grpnfeldt era skáldsögur sem gerast í smábæjum utan áhrifasvæðis helstu borga Danmerkur. í sögumiðju er sérstæður einstaklingur og samskipti hans við margvíslegar persónur um- hverfisins. 1990 birtist skáldsagan Títilbjalla (Dpdningeuret, endurprentuð tvíveg- is). Þar segir frá einfaranum Sebasti- an, miðaldra húsgagnasmið, sem er annálaður fyrir hstræna sköpun og endurgerð á sínu sviði. Hann hefur nokkra lærlinga, einnig sækir fyrr- verandi kærasta fast á hann, en hann einangrar sig jafnan. Allskyns frekju- dólgar vaða yfir hann, án þess hann fái rönd við reist. Þessi hlédrægni mannsins eða íhaldssemi birtist í mörgu, t.d. erfir hann happdrættis- miða sem stórvinningur kemur á, en þá mjakar hann honum bara innundir veggfóðrið. Og skýring þessa hugar- fars er smám saman gefin í skyn að nokkra leyti; á unglingsáram var hann saklaus dæmdur og fimgelsaður fyrir morð á ungri stúlku. í samskipt- um þessa feimna einfara við venjulegt fólk umhverfisins virðist það fullkom- lega sturlað, en hann eðlilegur. Flest- ar persónur eru nefnilega einhliða skrípamyndir, en þó sannfærandi. Titillinn vísar til tifs í bjöllu sem ét- ur sig í gegnum harðvið vandaðra smíðisgripa söguhetju, og eyðileggur alla þessa hst fyrr eða síðar. Þetta táknar þá tímans tönn, og hnignun birtist líka í æ fáránlegri hegðun ým- issaaukapersóna. í fyrra birtist löng skáldsaga, Hið rétta (Det rigtige). Hún snýst um konu á miðjum aldri, sem erft hefur Einhliða en sannfær- andi skrípamyndir Vibeke Gr0nfeldt er meðal virtustu skáldsagnahöfunda Danmerkur, segir Öyn Ólafsson. Hún hefur þrjá um fímmtugt, og hefur sent frá sér fímmtán bækur. allstóra gróðrarstöð, sem fjölskyldan hefur rekið í a.m.k. þrjá ætt- liði, hún minnist oft kennslu afa síns um blómarækt og ávaxta. En nú ber stöðin sig ekki lengur, og konan verður að vinna á þvottahúsi til að endar nái saman. Hún rekur samt gróðrarstöðina áfram, en gefur afurð- imar alls konar fólki. Titilíinn vísar til áráttu aðalpersónu að gera rétt, hún er sífellt að gera við sprangur og fúa í gróðrarstöðinni, þótt hún hafi ekkert nema tap af henni. Þessi þráhyggja að gera „hið rétta“ felur þá auðvitað í sér að aðal- persónan leggst alveg undir reglur umhverfisins og væntingar, eins og hún telur þær vera. At- kvæðahtil móðir henn- ar er einskonar líkamn- ingur þessara reglna, en bróðir hennar leggst ýmist í þunglyndisköst eða reynir að rífa sig upp í nýtt líf, yrkir, ger- ist bókavörðui-, kvæn- ist. Alltaf sækir þó í sama farið aftur, og þannig verður hann einskonar forboði ör- laga söguhetju, sem virðast þá þeim mun eðlilegri, óumflýjan- legri. Það sækir nefni- lega æ meir á aðalper- sónuna, að hún er ekki fyrr búin að gefa fólki gjafir eða gera því greiða en hún „sér hvað það er að hugsa um hana; aumingi, ræfill, auli“. Því ræðst hún fyrirvaralaust að alls- konar fólki með óbótaskömmum og Vibeke Granfeldt hótunum. Ekki bætir úr skák að hún verður altekin af ástarþráhyggju til ókunnugs gifts manns, og ofsóknar- óram hennar fylgir æ stjómlausari drykkjuskapur, sem herðir enn á allri þessari upplausn og hnignun. Það má undi'ast hve ánægjulegt er að lesa um svo sorglegt ferh. En þar kemur tvennt til. I fyrsta lagi er þetta vel skrifað eins og annað sem ég hefi séð frá Gronfeldt, og í öðra lagi er þetta eins og í Tifbjöllunni, bara önnur mynd af tímans tönn sem smám sam- an vinnur á öllu, þrátt fyiTr hetjulega baráttu söguhetjunnar gegn eyðing- unni. Sjálf áreynslan í þeirri baráttu fer með konuna, eyðir henni. Það er erfitt að fullyrða um bók- menntaáhrif, en oft varð mér hugsað til Guðbergs Bergssonar þegar ég las þessar sögur, einkum vegna spaugi- legra skrípamynda þeirra af fólld sem þó er venjulegt. Og það er hreint ekki svo fráleitt að hugsa til Guðbergs, hann varð víst vinsæll í Danmörku meðal ungra skálda og sérstakra áhugamanna um bókmenntir þegar Tangasögur hans birtust í danskri þýðingu fyrir aldarfjórðungi. í nýj- ustu skáldsögu Gronfeldt, Hið rétta, er vitnað til Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson, enda er meginefnið svipað, þótt hér virðist geðbilun söguhetju frekar stafa af þeim kröfum sem hún gerir til sjálfr- ar sín fyrir hönd umhverfisins. Samhengi ekki sjáanlegt Eitt sérstæðasta verk Gronfeldt er I dag, sem birtist fyrst fyrir tveimur árum. Þetta er safn smáþátta, sem tfrnasettir era með fáeinna ára milli- bih frá 1952 til 1996. Samhengi er ekki sjáanlegt, hvorki í atburðarás né era hinar mörgu persónur tengdar. Þetta er afar fjölbreytt, skoplegar sögur og sorglegar, hverdagsleg at- vik og áföll, sturlun og dauði, ímynd- uð átök og raunveraleg. Þeim mun merkilegra er að verkið er samstillt heild, svo að sumir gagnrýnendur kölluðu það skáldsögu. Það sem gerir öll þessi margvíslegu brot að heild er að mínu mati ekki fyrst og fremst efn- ið. Vissulega mynda allar þessar ör- lagasögur sveitamanna og smábæjar- búa einskonar yfirsýn um danskt þjóðlíf undanfama hálfa öld, heildar- mynd sem erfitt hefði verið að ná með einni aðalpersónu. En það sem bræð- ir sögumar saman í eina heild er öllu heldur stíllinn, hlutlægni frásagnar- innar. I þessu minnir verkið á helstu rit stórmeistara danskra samtíma- bókmennta, Per Hultberg; Byen og verden (frá 1992), sem hann fékk bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir, og Requiem (frá 1985), sem bæði era samstillt heild sundurlausra texta. En verk Gronfeldt eru fyllilega sjálfstæð sköpun á þessum sameigin- legu vegum. Þetta era sterk verk og vönduð og skipa Gronfeldt í fremstu röð danskra sagnaskálda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.