Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
EFNI í GÓÐA
SÖN GLIST AKONU
Morgunblaðið/Golli
„Björg er sérlega efnileg söngkona, hefur til að bera einstaklega góða
og hljómmikla rödd, er músikölsk og túlkar oft af mikilli nærfærni,"
segir í dómnum.
TðNLIST
S a I u r i n n
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Björg Þórhallsdóttir og
Þórhildur Björnsdóttir
fluttu Ijóðasöngva eftir
Haydn, Schubert, R.Strauss,
Faure og Britten.
Þriðjudagurinn 10. október, 2000.
FYRRUM voru íslendingar
frægir fyrir að yrkja konungum
drápur og flytja þeim og á síðustu
árum hafa íslenskir söngmenn hald-
ið uppi merkjum hinna fornu skálda
með því að fara vítt um lönd og
syngja fyrir þjóðir. Björg Þórhalls-
dóttir hefur í upphafi nýrrar aldar
haslað sér völl sem einsöngvari og
víst er svo, að bæði eru til staðar þau
raddgæði og tónlistarhæfileikar, að
Björg geti orðið frábær söngkona.
Hún hóf Tíbrár-tónleikana í Saln-
um sl. þriðjudag með þremur af svo-
nefndum ensku lögunum, eftir Jos-
eph Haydn, við kvæði eftir Anne
Hunter og „She never told her love“
eftir Shakespeare, sem var mjög fal-
lega flutt. Það er auðheyrt að Björg
leggur áherslu á ljóðasöng en vantar
enn að ná valdi á skýrum textafram-
burði, er upptekin af tónmyndun-
inni, því það vantar skerpu í mótun
samhljóðanna, sem eru ramminn um
sjálfa tónmyndunina og mótandi
fyrir hljómgrunn sérhljóðanna.
Þetta er þjálfunaratriði, sem tekur
tíma og útheimtir vinnu. Þá er ann-
að atriði, sem einnig einkennir söng
Bjargar, en það er veikt tóntak, sem
síðan er styrkt, þannig að flæði lag-
línunnar er að nokkru hindrað, sem
kom sérstaklega fram í lögunum eft-
ir Schubert, en eftir hann söng
Björg fjögur lög, „An die Natur“,
„Frúhlingsglaupe", sem eitt af feg-
urri lögum meistarans, „Náhe des
Geliebten“ og „Rastlose Liebe“, sem
var allt of hratt flutt, jafnvel þótt
túlka eigi eirðarlausa ást.
Næstu verkefnin voru þrjú lög
eftir Richard Strauss, „Du meines
Herzens Krönelein", „Befreit" og
meistaraverkið „Morgen", sem var
sérlega vel flutt. Þar átti píanistinn
einkar fallega mótaðar tónhending-
ar, sérstaklega í hægferðugu for-
spilinu og reyndar öllu laginu, sem
er hrein perla í þremur lögum, eftir
Faure Haust, Leyndarmálinu og
Ástardraumi, sem voru fallega flutt,
vantaði nokkuð á hina frönsku tón-
mýkt. Lieder-snillingarnir Schu-
bert, R. Strauss og Faure vinna sína
söngva út frá stemmningu textans,
þó hver með sínum hætti og verk
þeirra eru viðfangsefni sem krefjast
langrar yfirvegunar og þroska í
túlkun og þar hefur Björg margt
fram að færa en vantar enn að full-
gera um tækniatriði, eins og tón-
mótun og textaframburð. Að því
náðu er Björg líkleg til stórra hluta.
Lokaviðfangsefnin voru svo
nefndir kabarettsöngvar, sem Britt-
en samdi við gamantexta eftir Aud-
en. í þessum lögum er framburður
textans jafnvel mikilvægari en tón-
ferlið og þar vantaði á köflum á
nægilegan raddstuðning til að veik-
ur flutningur textans næði að
hljóma, þótt margt annað væri sér-
lega vel gert. Þarna leikur Britten
sér með píanóið, allt frá ísmeygileg-
um hrynundirleik til hljómikilla til-
þrifa, sem m%a. birtust í áhrifamiklu
„glissando". í heild var píanóleikur
Þórhildar Björnsdóttur mjög vel
framfærður og sampil hennar við
söngkonuna einstaklega gott. Und-
irritaður man ekki til að hafa heyrt
Þórhildi fyrr, þótt vel geti verið, en
hún sýndi það á þessum tónleikum,
að hún er slyngur píanisti.
Björg er sérlega efnileg söng-
kona, hefur til að bera einstaklega
góða og hljómmikla rödd, er músik-
ölsk og túlkar oft af mikilli nær-
fæmi, svo að aðfinnslur þær sem
hér hafa verið tíndar til og eru
„tekniskar" eru því miklvægari, þar
sem Björg er óvenjulega gott efni í
góða sönglistakonu.
Jón Ásgeirsson
Bókaútgáfan Mál og mynd
Reiðleiðir,
gestrisni og
fleiri bækur
EFTIRTALDAR
bækur koma út í
haust á vegum
bókaútgáfunnar
Máls og myndar.
Reiðlciöir uni
ísland eftir Sigur-
jón Björnsson.
Lýst er fjölda reið-
leiða um landið,
sagt frá náttúru
þeirri sem fyrir
augu ber, rifjaðar upp sögur tengd-
ar þeim stöðum sem riðið er um og
lýst stemmningunni meðal sam-
ferðamanna og hesta. I bókarlok eru
viðtöl við nokkra þekkta hestamenn.
Bókin er litprentuð með um 300
glæsilegum ljósmyndum. Þá er í
bókinni fjöldi vandaðra korta af
reiðleiðum.
Gestir og grónar götur eftir Þórð
Tómasson í Skógum. I fyrri hluta
þessarar bókar er fjallað um þá
margvíslegu menningu sem jafnan
fylgdi gestum. í síðari hluta bókar-
innar er svo fjallað um eitt og annað
af öðrum toga svo sem flakkara,
smalareið, ljósmæður, jarðskjálft-
ann 1896, tilbera og síðast en ekki
sist frjósemistákn í fornri trú. Bók-
ina prýðir fjöldi ljósmynda.
Austfirðingaþættir og aðrar frá-
sagnir eftir Gísla Helgason í Skóg-
argerði. Indriði Gíslason bjó til
prentunar. I þessu riti er efni af
ýmsum toga varðandi sögu, ætt-
fræði og þjóðlegan fróðleik.
Að morgni nýrrar aldar eftir
Stuðmenn (textar) og Þórarin Óskar
Þórarinsson(ljósmyndir). Hér birt-
ast allir sönglagatextar Stuðmanna
frá upphafi og fylgja gítargi-ip þeim
öllum. Textunum, sem eru um 120,
fylgja ljósmyndir Þórarins Óskars
Þórarinssonar (Agga) sem fylgt hef-
ur hljómsveitinni um land allt und-
anfarin tvö ár. Inngang skrifar Árni
Þórarinsson.
Kvæðaskapur. Icelandic Epic
Song eftir Hrein Steingrímsson.
Höfundur fjallar um listina að kveða
rímur, þ.e. tónlistina sem tengist
rímunum. Heimildir hans voru upp-
Signrjón
Björnsson
tökur sem gerðar
voru af rímnakveð-
skap á árunum
1958-1974, einkum
á vegum Þjóðm-
injasafns og Stofn-
unar Árna Magn-
ússonar. Þessar
upptökur fylgja
bókinni á geisla-
diski.
Mannslíf í húfi.
Saga Slysavarnafélags íslands
1928-1999 eftir Einar S. Arnalds.
Saga Slysavarnafélags Islands er
hér rakin í máli og myndum.
I þágu mannúðar. Saga Rauða
kross Islands eftir Margréti Guð-
mundsdóttur. í tilefni af 75 ára af-
mæli Rauða kross íslands hefur nú
verið gefið út yfirgripsmikið rit um
áhrifamikla sögu mannúðarstarfs
félagsins hérlendis sem erlendis
1924-1999.
Zoegaætt. Geir Agnar Zoéga. I
bókinni er niðjatal Jóhannesar
Zoéga sem talinn er ættfaðir Zoéga-
ættarinnar hér á landi og konu hans
Ástríðar Jónsdóttur frá Nesi í Vill-
ingaholtshreppi. Alls era í ritinu um
6.000 nöfn og fjölmargar ljósmynd-
ir.
Leikskólakennaratal 1-2. Rit-
stjórar ívar Gissurarson og Steing-
rímur Steinþórsson. Höfundur sögu
Félags ísl. leikskólakennara, Davíð
Ólafsson.
íslandsskógar. Hundrað ára saga
eftir Sigurð Blöndal og Skúla Björn
Gunnarsson. Rakin er saga skóga og
skógræktar á íslandi. í bókinni eru
um 400 ljósmyndir, teikningar og
kort.
Saga Hafnar í Hornafirði. Síðara
bindi eftir Arnþór Gunnarsson.
Rakin saga kauptúnsins frá 1939-
1975. Fjallað er ítarlega um at-
vinnumál, sveitarstjórnarmál, land-
búnaðarrjiál, samgöngur, mennta-
mál, heillbrigðismál, félags- og
menningarlíf o.fl. Rúmlega 400 ljós-
myndir prýða bókina. Sveitarfélagið
Hornafjörður er útgefandi en Mál
og mynd sér um dreifingu.
Nótur Bachs í hættu
Brot úr sögu þjóðar
GESTIR í Landsbókasafni Þýska-
lands virða hér fyrir sér nótna-
bækur þýska tónskáldsins
Johanns Sebastians Bach.
Fjöldi nótnabókanna sem Bach
skráði tónverk sín á liggur nú
undir skemmdum þar sem blekið,
sem tónskáldið notaði á sínum
tíma, er á góðri leið með að éta
sig í gegnum pappírinn.Talið er
að viðgerðar- og viðhaldskostnað-
urinn muni nema um 2,5 milljón-
um marka, eða tæpum 90 milljón-
um króna.
BÆKUR
Sagnfræði
20. ÖLDIN. BROT ÚR
SÖGUÞJÓÐAR
Ritstjóri: Jakob F. Ásgeirsson.
Nýja Bókafélagið 2000.
304 bls., myndir og texti.
SENN líður að lokum 20. aldar, og
er þá miðað við hefðbundinn skilning
Islendinga á því hvenær aldamót
gangi í garð, en það er á fyrsta degi
fyrsta áratugar nýrrar aldar. Öldin,
sem nú er að kveðja, hefur verið við-
burðarík og hér á landi hafa orðið
meiri og hraðari breytingar en á öll-
um fyrri öldum í sögu þjóðarinnar,
að hinni fyrstu þó undanskildri.
Af þessum sökum er vel við hæfi
að í aldarlokin komi út bækur um
sögu lands og lýðs á 20. öld. Undan-
farin ár hafa fræðimenn og rithöf-
undar í flestum nágrannalöndum
okkar keppst við að setja saman rit
um sögu aldarinnar, hver með sínum
hætti. Menn hafa verið að gera öld-
ina upp, ef svo má að orði kveða, rifj-
að upp minnisverða atburði í máli og
myndum, metið og endurmetið at-
burðarásina og freistað þess að
skapa sér heildarmynd af þróun sög-
unnar á þessu skeiði. Bækur um
sögu 20. aldar skipta nú þegar
hundruðum, ef ekki þúsundum, og
fleiri eiga vafalaust eftir að bætast
við á allra næstu árum. Við Islend-
ingar höfum af einhverjum orsökum
tekið næsta lítinn þátt í þessu upp-
gjöri. Á næstliðnu ári komu að vísu
út nokkrar þýddar bækur um 20. ald-
ar sögu, en þær eru flestar almenn
fróðleiks- og uppflettirit, og engin
þeirra tók sérstaklega til sögu Is-
lendinga.
Bókin, sem hér er til umfjöllunar,
bætir í sjálfu sér lítt úr skorti á rit-
uðu máli um íslenska sögu 20. aldar,
en er engu að síður athyglisverð.
Hún er fyrst og fremst myndabók,
gefin út í samvinnu við Stöð 2, og ber
sama heiti og sjónvarpsþáttaröð,
sem sýnd er um þessar mundir. Mun
þetta vera í fyrsta skipti sem þessi
háttur er á hafður hér á landi og hlýt-
ur það að teljast athyglisverð nýjung
í samvinnu fjölmiðlafyrirtækja.
Myndirnar í bókinni munu flestar
eða allar vera úr myndskeiðum
sjónvarpsþáttanna, en í bókinni
hljóta þær að tala sínu eigin máli,
segja sjálfstæða sögu, enda allt ann-
að að skoða myndir á bók í góðu tómi
en að sjá þær líða yfir sjónvarpsskjá,
þar sem þær birtast og hverfa nánast
1 sviphendingu. Engu að síður ættu
áhugasamir lesendur að geta haft
gott gagn af bókinni og texta hennar
um leið og þeir fylgjast með
sjónvarpsþáttunum.
Ekki verður þessi bók með nokkr-
um rétti talin saga íslendinga á 20.
öld, heiti hennar, Brot úr sögu þjóð-
ar, er réttnefni. Myndii’nar bregða
upp brotum úr sögu íslensks þjóðlífs
á öldinni og knappur textinn, hvort
sem eru annálsbrot eða meginmál,
hjálpa lesendum við að átta sig á
myndefninu. Hér er því ekki um
neins konar heildarsögu að ræða og
bókartextinn ræðst að langmestu
leyti af myndefninu.
Myndirnar í bókinni segja margar
mikla sögu og verða vafalaust mörg-
um kærkomið tilefni til rifja upp
liðna atburði. Ýmsar þeirra eru
gamalkunnar, en aðrar hygg ég að
hafi sjaldan eða aldrei sést á prenti
áður. Þær eru flestar prentaðar í
svart-hvítu, allar einkar vel gerðar,
og margar hafa mikið heimildagildi.
Megintextinn fellur vel að myndefn-
inu, hann er gagnorður, lipurlega
saminn og fróðlegur. Á stöku stað
gæth' nokkurrar ónákvæmni, en
hvergi svo að verulegt mein sé að.
Líku máli gegnir um annálinn, sem
þó er sums staðar nánast ofaukið.
Hann fylgir ekki myndefni og megin-
máli beinlínis, en er of stuttaralegur
og knappur til að veita lesendum
verulegar upplýsingar.
Allur frágangur bókarinnar er
með ágætum og í bókarlok er ítarleg
myndaskrá, þar sem getið er höf-
unda og/eða eigenda mynda.
Jón Þ. Þór