Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MINNINGAR
t
Astkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGURÐUR EINARSSON,
Greniteig 9,
Keflavík,
sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðumesja
miðvikudaginn 4. október, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju föstudaginn 13. október kl. 14.00
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Styrktarsjóð Sjúkrahúss Suður-
nesja.
Sigrún Guðjónsdóttir,
Guðjón Sigurðsson, Steinunn Njálsdóttir,
Bjarni Sigurðsson, Hansborg Þorkelsdóttir,
Sigurður Sigurðsson, Árný Þorsteinsdóttir,
Sveinbjörg Sigurðardóttir,Guðsveinn Ólafur Gestsson
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HERMANNSDÓTTIR,
Gerðavegi 2,
Garði,
andaðist á Landspitalanum Fossvogi fimmtu-
daginn 28. september.
Útför hefur farið fram að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir eru sendar öllu starfsfólki Garðvangs, Garði.
Guðmundur Þórarinsson,
Anna María Guðmundsdóttir, Sigfús Dýrfjörð,
Katrín Guðmundsdóttir, Þorsteinn Kristjánsson,
Hermann Guðmundsson, Oddný Ingimundardóttir,
Laufey Guðmundsdóttir, Kristinn Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Astkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI FRIÐRIK JOHNSEN
frá Vestmannaeyjum,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sólvangi, Hafn-
arfirði, sunnudaginn 8. október.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 16. október kl. 15.00.
Ásdís Anna Johnsen, Björn Blöndal,
Hrafn G. Johnsen, Sigurrós Skarphéðínsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ANNA BÁRA SIGURÐARDÓTTIR,
Efstaleiti 81,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstu-
daginn 13. október kl. 16.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Róbert Örn Ólafsson,
Dagmar Róbertsdóttir, Haraldur G. Magnússon,
Ólafúr Ríkharð Róbertsson, Halldóra Jóna Sigurðardóttir,
Kristín Erla Ólafsdóttir,
Anna Helga Ólafsdóttir,
Róbert Örn Ólafsson jr.,
Magnús Pétur Haraldsson,
Margrét Rósa Haraldsdóttir.
t
Útför eiginmanns mín, föður okkar, tendaföður
og afa,
MAGNÚSAR HELGASONAR
stjórnarformanns Hörpu hf.,
Einimel 4,
Reykjavík,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
fimmtudaginn 12. október, og hefst kl..13.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á
Barnaspitalasjóð Hringsins.
Katrín Sigurðardóttir,
Sigurður Gylfi Magnússon, Bryndís íris Stefánsdóttir,
Helgi Magnússon, Arna Borg Einarsdóttir,
Magnús Örn Helgason,
Sunna María Helgadóttir,
Arnar Þór Helgason.
MAGNÚS
HELGASON
+ Magnús Helga-
son fæddist í
Reykjavík 24. nó-
vember 1916. Hann
lést á Landspítalan-
um í Fossvogi 5.
október síðastliðinn
eftir stutta sjúkra-
legu. Hann var son-
ur hjónanna Odd-
rúnar Sigurðar-
dóttur, húsmóður og
Helga Magnússonar,
kaupmanns. Þau
eignuðust tólf börn.
Af ellefu systkinum
Magnúsar eru nú
þrjár systur á lífi: Valgerður,
fyrrv. yfirhjúkrunarkona (f.
1902), Magnea Katrín, fyrrv. skól-
astjóri (f. 1906) og Jóhanna Kat-
rín, fyrrv. tækniteiknari (f. 1920).
Eftirlifandi eiginkona Magnús-
ar er Katrín Sigurðardóttir, hús-
móðir, (f. 1921). Foreldrar hennar
voru Eyríður Arnadóttir húsmóð-
ir og Sigurður Guðbrandsson
skipstjóri. Þau Katrín
og Magnús eignuðust
tvo syni: 1) Helgi (f.
1949), viðskiptafræð-
ingur og löggiltur
endurskoðandi, fram-
kvæmdasljóri Hörpu
hf. Hann er kvæntur
Ornu Borg Einars-
dóttur (f. 1960) hjúkr-
unarfræðingi. Börn
þeirra: Hlín (f. 1987,
d. 1988), Magnús Öm
(f. 1989), Sunna María
(f. 1991) og Arnar Þór
(f. 1996). 2) Sigurður
Gylfi (f. 1957), sagn-
fræðingur í ReykjavíkurAkad-
emíunni og háskólakennari. Unn-
usta hans er Bryndís íris
Stefánsdóttir (f. 1961) jarð-og
landfræðingur, kennari í Verslun-
arskóla Islands. Sonur hennar er
Stefán (f. 1990).
Magnús Helgason lauk verslun-
arprófi frá Verslunarskóla Is-
lands árið 1936 og stundaði nám
næstu árin í verslunarskólum í
Bretlandi, Danmörku og Þýska-
landi. Hann var framkvæmda-
stjóri hjá Helga Magnússyni & Co.
frá 1939 til 1961. Magnús var
framkvæmdastjóri og stjórnarfor-
maður Hörpu hf. árin 1961 til
1992 en starfandi stjórnarformað-
ur fyrirtækisins eftir það til
dauðadags.
Hann átti sæti í stjórnum ým-
issa verslunarfyrirtækja, var um
skeið í stjórn Félags íslenskra
byggingarefnakaupmanna, Kaup-
mannasamtaka íslands og Versl-
unarráðs íslands. Hann átti einnig
sæti í stjórn Knattspyrnufélagsins
Vals, Heimdallar, Sambands ung-
ra sjálfstæðismanna og var for-
maður Lionsklúbbsins Þórs í tví-
gang. Þá átti Magnús sæti í
stjórnskipaðri nefnd um við-
skiptasamninga við Sovétríkin,
ýmist sem fulltrúi Verslunarráðs
eða Félags íslenskra iðnrekenda.
Hann sat í bankaráði
Iðnaðarbankans hf. sem aðal- eða
varamaður á árunum 1974 til 1990
og átti sæti í stjórn Eignarhaldsfé-
lagsins Iðnaðarbankinn hf.
Utför Magnúsar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Góður maður er genginn.
Þegar spurt er, hvað hafi helst
einkennt Magnús Helgason, koma
margir góðir eiginleikar hans í hug-
ann.
I fáum minningarorðum langar
mig að gera tilraun til að svara
spurningunni um hvað hafi helst
einkennt hann. Ég veit að svarið
verður ekki tæmandi - einungis brot
af viðhorfum mínum en ég stóð
nærri og hafði gott tækifæri til að
fylgjast með fóður mínum í hálfa öld.
Én víst er ég ekki hlutlaus.
Það fyrsta sem kemur í hugann er
velvilji hans og hjálpsemi. Hann lét
gott af sér leiða þar sem hann gat því
við komið og reyndist stoð og stytta
fjölskyldu sinnar og vina alla tíð.
Stundum fannst manni að hann
mætti hugsa meira um sjálfan sig en
hann svaraði slíkum ábendingum
með því að hann væri sáttur við sitt
og viðurkenndi helst ekki að hann
væri að leggja einhverjum lið. Magn-
ús var ekki í hópi þeirra sem bera
góðverk sín á torg.
Kristin trú, trúin á lífið sjálft og líf
eftir þetta líf settu sterkan svip á
Magnús Helgason. Hann fór ekki
dult með það að dauðinn værí ein-
ungis upphafið að miklu ferðalagi.
Ég trúi því að margir vinir og vanda-
menn hafi tekið honum opnum örm-
um á nýjum slóðum þegar hann hóf
hinstu ferð þessa lífs í síðustu viku.
Ég hygg að Magnús hafi ekki óttast
dauðann vegna einlægrar trúar á
framhaldslíf. Hann hefur því tekið
undir með Hallgrími Péturssyni:
„Kom þú sæll, þá þú vilt“. Sterk trú á
framhaldslíf veitir fólki hugarró og
gerir það yfirvegað.
í boðun kirkjunnar eru áherslur
þjóna hennar að vonum misjafnar.
Magnús átti sína menn í kirkjunni,
presta sem hann vildi hlusta á og átti
trúarlega samleið með. Hann naut
heils hugar stunda í Dómkirkjunni í
Reykjavík þegar kennimenn eins og
sr. Jón Auðuns og síðar sr. Þórir
Stephensen fluttu Guðs orðið í þess-
um anda. Þeir tveir eru ekki nafn-
greindir til að kasta rýrð á aðra
kirkjunnar þjóna. Þeir voru einungis
í sérstöku uppáhaldi.
Magnús Helgason sýndi fleirum
tryggð en fjölskyldu sinni, vinum og
þjóðkirkjunni. Þar sem hann valdi að
gerast þátttakandi var óhætt að
treysta á liðveislu hans. Magnús stóð
h
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
*-
H
H
H
H
H
H
P E R L A N
Sími 562 0200
XIITTITTXT
með sínum hópi og vann ávallt af
heilindum. Gilti þar einu hvort um
var að ræða afskipti hans af fyrir-
tækjarekstri og atvinnulífi, aðild að
félögum og hreyfingum eins og
Frímúrarareglunni, Lions eða
Knattspyrnufélaginu Val - að ekki
sé nú talað um Sjálfstæðisflokkinn.
Formenn Sjálfstæðisflokksins á
hverjum tíma voru þeir menn sem
hann treysti öðrum fremur - allt frá
Jóni Þorlákssyni og Ólafi Thors til
núverandi formanns, Davíðs Odds-
sonar. Með Magnúsi er gengið eitt
allra öruggasta atkvæði Sjálfstæðis-
flokksins!
Hann var íhaldsmaður í besta
skilningi þess orðs og hann lét sig
miklu varða hvemig hægrimönnum
reiddi af víða um heim. Landamæra-
línan var alls ekki dregin um Island
eitt. Við bræðumir göntuðumst
stundum við hann um það að hann
væri Repúblikani í Bandaríkjunum,
fylgdi Ihaldsflokknum í Bretlandi að
málum, Venstre í Danmörku og
Kristilegum í Þýskalandi svo eitt-
hvað sé nefnt. Hann kunni þessari
hugsun vel. Magnús var einnig
íhaldsmaður í þeim skilningi að hann
var fastheldinn á góða siði og þjóð-
lega menningu. Hann hélt sínu striki
varðandi það sem honum þótti rétt
og viðeigandi. Hann var t.d. einn af
fáum mönnum sem ávallt bám hatt á
höfði, gekk í fötum með vesti og not-
aði vasaúr sem hann geymdi í vestis-
vasa sínum, fest við langa gullkeðju -
barnabörnunum til óblandinnar
ánægju þegar þau vom á sínum
fyrstu áram. Þessi sama lýsing gæti
einnig átt við Helga afa minn. Þann-
ig man ég hann. Þeir feðgar vom
reyndar um margt líkir og mjög
samrýndir. Það er því miður orðið
allt of lítið um svona virðulega menn
í okkar samfélagi.
Menn geta hvort heldur þeir vilja
kallað það íhaldssemi eða stöðug-
leika að Magnús bjó einungis á
tveimur svæðum í Reykjavík alla
sína tíð.
I foreldrahúsum við Bankastræti
6 og síðar 7 en eftir að hann og Kat-
rín móðir min gengu í hjónaband
fluttu þau á Grenimel og bjuggu þar í
17 ár en byggðu svo við Einimel og
hafa búið þar síðan. Með öðmm orð-
um: Það hefur ekki verið mikið rápað
milli hverfa.
Magnús Helgason var tæplega 84
ára þegar hann féll frá hinn 5. októ-
ber sl. Hann var ekki einungis gæfu-
maður í meira en hálfrar aldar
hjónabandi með móður minni, heldur
var hann einnig svo gæfusamur að
geta gengið til starfa sinna með lífs-
gleði og krafti þar til nokkrum dög-
um áður en hann lést. Hann upplifði
þvílíkar breytingar á íslensku samfé-
lagi á lífsskeiðinu og starfsferli sín-
um að með ólíkindum er. Hann var
tveggja ára í Bankastræti 6 þegar
Islendingar fögnuðu fullveldinu neð-
ar í þeirri götu 1. desember 1918.
Hann tók þátt í Alþingishátíðinni ár-
ið 1930 og stofnun lýðveldisins á
Þingvöllum árið 1944. Þetta voru at-
burðir sem mörkuðu djúp spor í líf
Magnúsar og kynslóðar hans. Við
fjölskyldan hans fundum þetta ekki
síst þegar hann skundaði á Þingvöll
árin 1974 og 1994 til að hylla land og
þjóð á stóram stundum. Vegur ís-
lands varð að vera sem mestur.
Magnús var rétt að hefja lífsstarf
sitt eftir Verslunarskólapróf og nám
í þremur löndum þegar síðari heims-
styrjöldin skall á árið 1939. Hann
hafði m.a. dvalið í Berlín þegar ógn-
arstjórn Hitlers var að leggja
granninn að veldi sínu. Magnús
hvarf þaðan skömmu áður en styrj-
öldin brast á. Hér á landi hafði stríð-
ið og hernámið gífurleg áhrif, eftir-
stríðsárin einkenndust af vaxtar-
verkjum þjóðfélags sem var að byrja
að losna úr ánauð kotungsbúskapar
og kreppu. Þá tók við kalda stríðið
með miklum pólitískum átökum hér
á landi og erlendis. Það setti mark
sitt á ungt fólk á þeim tíma. Islend-
ingar bjuggu við höft á öllum sviðum
viðskipta og atvinnulífs uns Við-
reisnarstjórnin hóf ferð þjóðarinnar
inn í nýja tíma á áranum 1958 til
1971. Eftir það hafa tímarnir verið
sveiflukenndir og í seinni tíð bylting-
arkenndir - en sú framvinda er okk-
ur flestum miklu betur kunn. Magn-
ús var áhugasamur og virkur
þátttakandi á öllum þessum skeiðum
sögunnar og hann tók þátt og fylgd-
ist með af áhuga alveg fram á síð-
ustu daga. Þetta er mjög merkilegt
og hefur verið ómetanlegt fyrir okk-
ur sem höfum haft tækifæri til að
hlusta á hann lýsa þessum ótrúlegu
þjóðlífsbreytingum sem gengu yfir á
einni mannsævi.
Ég óttast að með kynslóð Magn-
úsar sé að hverfa ákveðinn virðu-
leiki og sjentilmennska sem mín
kynslóð virðist ekki hafa náð að til-
einka sér. Faðir minn var sterkur
persónuleiki sem einkenndist af
bjartsýni og góðum húmor. Auðvit-
að skiptust á skin og skúrir í lífi
hans eins og allra annarra. En
styrkleiki hans fólst m.a. í því að
hann var fljótur að fyrirgefa og
hann var laginn að gleyma því sem
hann taldi að myndi ekki bæta lífið
og tilveruna. Þeim mun meiri
áherslu lagði hann á að varðveita hið
áhugaverða, merkilega og góða sem
hann miðlaði svo áfram til annarra
og varð þannig jákvæður og upp-
byggilegur í samskiptum. I þessu er
fólgin viss stefna eða lífsspeki sem
ég veit að hefur haft sín áhrif á sam-
ferðamennina. Vissulega er hugsun
af þessu tagi mannbætandi.
Við nánustu ættingjar Magnúsar,
við samstarfsmenn hans í Hörpu og
aðrir góðir vinir og samferðamenn
höfum nú misst mikið. Við munum
öll sakna hans sárt. En minningin
um merkan persónuleika og einstak-
an sómamann mun ylja okkm- - og
gera okkur stolt um ókomin ár.
Blessuð sé minning Magnúsar
Helgasonar.
Helgi Magnússon.