Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 5j.
MINNINGAR
JÓN
SIGURGEIRSSON
+ Jón Sigurgeirs-
son fæddist á
Helluvaði í Mývatns-
sveit 14. apríl 1909.
Hann lést á Hjúkrun-
arheimilinu Seli á
Akureyri 11. septem-
ber síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Akureyrarkirkju
19. september.
Sumarið 1987 brá ég
mér norður til Akur-
eyrar ásamt vinkonu
minni og ætluðum við
að gista hjá foreldrum
hennar. Hún hafði sagt mér svo
margt fallegt af pabba sínum. Ég
vissi að hann væri töluvert eldri en
„hinir“ pabbarnir, að hann þekkti
hálendið sem lófann á sér, að hann
væri hagur og söngelskur. Þegar
þangað kom gekk á móti okkur
gamall maður, afalegur og góðleg-
ur, og flaug Dísa upp um hálsinn á
honum. Það var ró og hlýja yfir
þessum manni, greind-
ur og djúpur og gott
að vera í návist hans.
Fyrr en varði vorum
við saman komin í
kringum orgelið. Jón
settist að spili, gömlu,
hrjúfu hendurnar fóru
svo fallega mjúkum
höndum um lyklaborð-
ið. Við Dísa tókum upp
fiðlu og víólu og svo
komu öll gömlu lögin,
eitt af öðru: Fjárlögin,
Bellmann og svo mörg,
mörg önnur sem ég
hafði aldrei heyrt og
þóttist ég þó nokkuð sjóuð á því
sviði. Það opnaðist fyrir mér nýr
heimur, sá heimur sem var að
hverfa, sá heimur sem lifði með
Jóni við orgelið umkringdum ætt-
ingjum og vinum í spili og söng. Svo
fórum við í sveitina hans. Þar fórum
við á bæi og tókum lagið við orgelið,
Garðar í Lautum tók upp fiðluna
sína og enn bættust við lögin og
textarnir sem ég ekki kunni. Og svo
öll saga fiðlunganna í sveitinni, sem
seinna urðu ritgerðarefni mitt úti í
New York. Á leiðinni var frá mörgu
að segja, Jón kunni sögu og heiti á
hverri hæð og hól, þekkti gamlar
leiðir, fyrri ábúendur, sagði frá
fornum búskaparháttum og minnis-
verðum gestum. Hann sagði okkur
frá breskum skólapiltum sem komu
gangandi að bænum eitt sumarið og
fengu að gista í hlöðunni. Á hverj-
um degi komu þeir að fá lánaðan
blýantsstubb til að skrifa dagbók og
alltaf var honum skilað skilmerki-
lega aftur. Þeir áttu greinilega ekki
of mikið af peningum blessaðir. Það
fór vel á með þeim og Jóni sem not-
aði tækifærið að æfa sig í enskunni.
Loks fór svo að þeir buðu honum til
Englands og þáði hann boðið. Brá
honum heldur en ekki í brún þegar
þangað kom. Þeir áttu heima í höll
þar sem ekki skorti neitt, voru af
gömlum, ríkum ættum og var þetta
uppeldisaðferð þeirrar stéttar. Eitt
er víst að ungu mennirnir hefðu
aldrei þorað að bjóða heim til sín á
slíkt höfðingssetur öðrum en al-
mennilegum og virðingarverðum
manni og þannig var Jón. Á heim-
leiðinni úr sveitinni staðnæmdumst
við á fögrum stað og teyguðum að
okkur fegurð bjartrar sumarnætur-
innar. Þá tók Jón að syngja „Ein
yngismeyja gekk út í skóginn" og
kenndi okkur stelpunum öll erindin.
Síðan hef ég alltaf haldið upp á
þetta lag og tengt það Jóni. Síðasta
kvöldið á Akureyri var hátíð í bæ og
fórum við þá í Lystigarðinn að
horfa á heilmikla flugeldasýningu.
Einhvern veginn komst hún þó ekki
í hálfkvisti við flugeldasýningu
Skaparans, norðurljósin, sem höfðu
skartað sínu fegursta kvöldið áður.
Það var mikil stemmning og margt
um manninn. Ég tók undir arminn
á Jóni og leiddumst við í gegnum
mannþröngina. Nú vorum við orðin
vinir og mikið þótti mér orðið vænt
um hann. Það þurfti ekki að segja,
hann skynjaði það. Það var hálf öld
á milli okkar og svo ólíka ævi höfð-
um við átt, en innra með okkur var
eitthvað eins, sem tengdi, einhver
lífsskynjun af sömu rót.
Fyrir nokkrum árum kom ég aft-
ur á Spítalastíginn ásamt ungri
dóttur minni. Færði Ragnhildur
okkur kaffi og myndarlegt bakkelsi
út á pall og drukkum við þar í blíð-
skaparveðri og sáum út yfir Eyja-
fjörðinn. (I minningunni er ein-
hvern veginn alltaf sólskin í
kringum þau hjón!) Þar var gott að
vera og hefði ég gjarnan viljað búa
nær og geta átt þar fleiri slíkar
stundir. Vinarins góða, Jóns Sigur-
geirssonar, verður sárt saknað. Þar
fór mikill maður og mikill viskur .
brunnur. Elsku Ragnhildur, Dísa,
Solla, Geirfinnur og Gauti, góður
Guð huggi ykkur og styrki. Blessuð
sé minning Jóns.
Svava Bernharðsdóttir.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar- ■!
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
il
Þjónustufulltrúi
- Þjónustuver Símans
Síminn óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í vaktavinnu.
í starfinu felst:
Að starfa í framlínu við að aðstoða viðskiptavini með allt er varðar
Landssímann og þjónustu hans. Um er að ræða framtíðarstarf,
a.m.k. 2 ár.
Hæfniskröfur:
Við leitum að einstaklingi eldri en 25 ára.
Stúdentspróf.
Mikil þjónustulund og metnaður í starfi.
Eiga gott með að starfa í hópi og vera opin(n) fyrir nýjungum.
Tölvureynsla og reynsla af þjónustustörfum er nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 550 6470 frá kl. 14:00 -16:00 alla virka daga. Vinsamlegast sendið
umsóknir til starfsmannaþjónustu, Landssímahúsinu v/Austurvöll, 150 Reykjavík fyrir
18. október nk. merktar „Þjónustufulltrúi - Þjónustuver Símans". Umsóknareyðublöð
má finna á heimasíðu Símans og í starfsmannaþjónustu. Farið er með umsóknir og
fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Síminn, eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins, er hlutafélag í samkeppni ó markaði þar
sem stöðugar nýjungar eru og verða allsráðandi á komandi árum. Fyrirtækið stefnir að
því að vera áfram ífararbroddi á sínu sviði.
Sticks'n'Sushi
Vilt þú vita meira
um sashimi, edía miso?
Sticks'n'Sushi er nýtt alþjóðlegt veitingahús í
Reykjavík sem býður upp á japanskan mat og
þjónustu í vestrænu umhverfi. Við leitum að lífs-
glö3u, duglegu fólki ívinnu, bæ3i í eldhús og í sal.
Þú ert á réttum sta3 ef þú:
hefur þjónustulund og þægilega framkomu
ert áhugasamur um óvenjulegan mat
getur unnií undir álagi
Vi3 bjó3um okkar fólki upp á:
skemmtilegt og frumlegt vinnuumhverfi
möguleika á a3 starfa erlendis íframtíSinni
• gó3 laun
Efþú hefuráhuga,
i
SAMKEPPNISSTOFNUN
Laus staða
Samkeppnisstofnun óskar eftir að ráða fulltrúa
til starfa m.a. við verðkannanir og eftirlit með
verðmerkingum. Æskilegt er að umsækjandi
hafi verslunarpróf eða sambærilega menntun
og starfsreynslu. Umsækjandi þarf að hafa bíl-
próf. Laun eru samkvæmt launakerfi Starfs-
mannafélags rikisstofnana.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist Samkeppnis-
stofnun, Rauðarárstíg 10, pósthólf 5120, 125
Reykjavík, fyrir 26. október nk.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma
552 7422 frá kl. 10 til 12 og kl. 14 til 16.
Samkeppnisstofnun.