Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 55
UMRÆÐAN
Stúdentar mótmæla
aðstöðuleysi
í NÝJU fjárlaga-
frumvarpi er einungis
gert ráð fyrir 30 millj-
óna króna framlagi til
byggingaframkvæmda
við Háskóla íslands.
Þessu hefur Stúdenta-
ráð mótmælt harðlega,
enda hafa stúdentar
margoft bent á að
nauðsynlegt sé að ríkið
komi í auknum mæli að
fjármögnum bygginga-
framkvæmda við skól-
ann. Náttúrufræðihús-
ið hefur nú verið mörg
ár í byggingu og miðað
við núverandi fjárveit-
ingar tekur mörg ár í
viðbót að ljúka því. Á meðan getur
engin frekari uppbygging kennslu-
húsnæðis átt sér stað, þrátt fyrir sí-
vaxandi aðstöðuvandamál.
Stúdentar skrifa undir
Stúdentaráð hefur af þessum sök-
um útbúið póstkort með áskorun á
menntamálaráðherra um að beita
sér fyrir því að Alþingi samþykki
aukafjárveitingu til byggingafram-
kvæmda við Háskóla Islands. Fjöl-
margir nemendur hafa
nú þegar skrifað undir
áskorunina og mun
þeim væntanlega fjölga
enn frekar á næstu
dögum. Póstkortunum
verður fljótlega skilað
til menntamálaráð-
herra.
í kvöld stendur
Stúdentaráð fyrir mál-
þingi um fjárveitingar
til Háskóla Islands.
Tilefni þess er hið
mikla fjársvelti skólans
sem Stúdentaráð hefur
bent á og fer málþingið
fram í hinu ókláraða
Náttúrufræðihúsi. Þar
munu stúdentar, starfsmenn Há-
skólans og alþingismenn ræða um
fjárveitingar til Háskóla íslands.
Málþingið hefst kl. 21 og eru allir
hvattir til að klæða sig vel, mæta og
fylgjast með mikilvægum umræðum.
Fjárlagafrumvarpið vonbrigði
Stúdentaráð hefur margoft bent á
að ótækt sé að Háskóla Islands sé
gert að fjármagna kennsluhúsnæði
nánast alfarið sjálfur. Á meðan nem-
Skorað er á mennta-
málaráðherra, segir
Eiríkur Jónsson, að
beita sér fyrir því
að Alþingi samþykki
aukafjárveitingu til
byggingaframkvæmda
við HI.
endum hefur fjölgað ört, hefur mjög
lítið miðað í byggingaframkvæmd-
um. Skortur á kennsluhúsnæði,
tölvu- og lesaðstöðu verður sífellt al-
varlegri. Ljóst er að þessi vandi
verður ekki leystur nema með aðstoð
ríkisins, enda sjálfsögð skylda ríkis-
ins að sjá til þess að nemendur Há-
skóla íslands búi við þolanlega að-
stöðu. Hið lága framlag til
byggingaframkvæmda sem fjárlaga-
frumvarpið gerir ráð fyrir er óviðun-
andi.
Eiríkur
Jónsson
í
SVCiT
Allra síðustu sýningar!
Miðasala: 568 8000
Mlðasalan er opln td. -13-18 og fram að
sýningu sýningardaga. Sími miðasölu
opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
BORGARLEIKHÚSIÐ
Mjög mikilvægt er að fjárlaga-
frumvárpinu verði breytt í meðför-
um þingsins, þannig að aukið fé verði
sett í byggingaframkvæmdir við Há-
skóla Islands. Að öðrum kosti mun
aðstöðuleysið aukast enn frekar sem
leiðir óhjákvæmilega til verri mennt-
unarvið skólann.
I umræðum um stefnuræðu for-
sætisráðherra sagði menntamála-
ráðherra meðal annars: „Nauðsyn-
legt er að bregðast við óskum
Háskóla íslands um nýskipan á fjár-
veitingum til bygginga á hans vegum
og er það málefni, sem hlýtur að
koma til kasta alþingis." Erfitt er að
gera sér grein fyrir því hvaða þýð-
ingu þessi orð hafa og á hvaða hátt
ráðherra telji að Alþingi eigi að
bregðast við. Það er hinsvegar ósk-
andi að þetta bendi til þess að málið
verði tekið sérstaklega fyrir á Al-
þingi og að ráðherra beiti sér fyrí?^'
aukafjárveitingu til byggingafram-
kvæmda við Háskólann. í þessari
viku skora hundruð háskólanema á
ráðherra að svo verði. Eins og stúd-
entar hafa margoft bent á er ekki
unnt að auka stöðugt námsframboð
og fjölga nemendum án þess að
byggja nýtt húsnæði. Einhvers stað-
ar verður að koma nemendum og
kennurum fyrir.
Höfundur er fornuiður
Stúdentaráðs.
blöndunartæki fyrir heimilið
Morainxx er nýjasta línan frá Mora og fæst
bæði fyrir bað og eidhús
Æ_-liffBJlTnlZ..l>i
T€f1Gl
b---iinriiiur.
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sfmi: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
IVIikið úrval æfingastöðva ásamt mesta úrvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum.
Aðeins topp-merki.
8515 æfingastöð
Fimm stöðvar í einni. Alhliða æfinga-
stöð með yfir 30 æfingamöguleikum.
PressuAogbekkur ásamt þrekstiga
meö tvlvirkum dempurum. Einföld I
notkun, fyrirferðalftil, engar plötu- eða
víraskiptingar. Æfir og stælir allan
líkamann.
Staðgreitt kr. 85.815,
verö kr. 90.332.
Stæröir: L. 145 x br. 94 x h. 188 cm.
ÖRNINNP’
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifunni 11, sími 588 9890