Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Nýirtímar,
iiýjar aðferðir
- eða hvað?
NÚ í aðdraganda
nýrra kjarasamninga
framhaldsskólakenn-
ara er ekki úr vegi að
velta fyrir sér stöðu
ihála.
I síðustu samning-
um voru að nokkru
farnar nýjar leiðir í
kjarasamningum
kennara. Teknar voru
upp nýjar viðmiðanir í
samsetningu vinnu við
hverja kennslustund,
prófavinna var metin
sérstaklega og sam-
setning vinnunnar á
ársgrundvelli var
ákveðin. í því sam-
bandi var tekin upp regla um áætl-
að vinnumagn vegna stjórnunar-
starfa hjá þeim kennurum sem það
átti við um og eins var afmarkaður
^5mi, 130 klst. á ári, sem kennarar
áttu að skila sem vinnu undir sér-
stakri stjórn skólameistara.
Skemmst er frá því að segja að
framkvæmd þessara nýju kjara-
samningsatriða hefur víða verið
erfið og sú reynsla ætti að segja
samningsaðilum að staldra við áður
en lengra er haldið. Hér er þó ótal-
ið að kennarar hafa fæstir enn öðl-
ast þá innsýn í samningana sem
nauðsynlegt er að fólk hafi gagn-
vart sínum eigin kjarasamningi
gem þarf auðvitað að vera gegnsær
og skiijanlegur til þess að traust og
öryggi sé ríkjandi. Líta má svo á að
samningurinn hafi verið tilraun til
að fara nýjar leiðir og reynslutím-
inn sé nú liðinn.
Hinn möguleikinn í samninga-
málum 1997 var að fara inn í nýtt
samningsumhverfi líkt og viðmið-
unarhópar eins og hjúkrunarfræð-
ingar gerðu. Pað hefði á sinn hátt
og á þeim tíma verið róttækari
breyting. Sú leið var ekki valin.
Staðan nú er sú að
þeir hópar sem síðan
hafa samið hafa fengið
verulega kjarabót.
Framhaldsskólakenn-
arar sitja eftir eins og
margoft hefur komið
fram með lægri
grunnlaun, tilrauna-
samning og hefð-
bundna afstöðu ríkis-
ins eins og 1977, 1984,
1989, 1992, 1995 og
1997. Ríkisvaldið virð-
ist gera ráð fyrir að fá
verkfall, sjálfheldu og
síðan lausn í formi
niðurlægjandi miðlun-
artillögu. Miðlunartil-
lagan, sem er eins konar tilboð sem
ekki er hægt að hafna, bindur svo
enda á verkfall og raunverulegar
Framhaldsskólinn
Ráð væri nú á þessum
tímapunkti, segir
Magnús Ingólfsson,
að huga að bráða-
birgðasamningi til
skamms tíma.
kjarabætur, en minnir um leið
óþægilega á hina vafasömu hug-
mynd að sagan endurtaki sig vél-
rænt.
Ráð væri nú á þessum tíma-
punkti að huga að bráðabirgða-
samningi til skamms tíma og nota
síðan næsta hálfa árið til að útfæra
grunn að nýju samningsumhverfi
þar sem hver kennari yrði metinn
réttlátlega og faglega til launa á
grundvelli menntunar, reynslu,
Magnús
Ingólfsson
*
Er framtíð í fræðunum?
Möguleikar fræðimanna á að skapa sér
framtíð í þekkingarsamfelaginu
1
Kynningarfundur um átaksverkefhið UPPÚR SKÚFFUNUM 2000
í hátíðarsal Háskóla íslands 12. október frá kl. 16:00 til 18:00
Oagskrá:
16:00 - 17:00 Framsögur
Ávarp rektors, Páls Skúlasonar
Eiríkur Jónsson, formaður stúdentaráðs
Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri
ReykjavíkurAdemíunnar
Jón Ólafsson, forstöðumaður Hugvísindastofnunar
Inga Þórsdóttir, forstöðumaður
Rannsóknastofu í næringarfræðum
Stefania G. Kristinsdóttir,
kynning á UPPÚR SKÚFFUNUM 2000.
Námskeið og samkeppni
17:00-17:15 Kaffihlé
17:15 -18:00 Pallborð fiumkvöðla úr háskólasamfélaginu
Þátttakendur verða; Magnús S. Magnússon, vísindamaður við
Háskóla íslands, Viðar Hreinsson, sjálfstætt starfandi fræðimaður,
Úlfar Hauksson, meistaranemi.
Fundarstjóri og stjómandi pallborðsumræðna verður Ágúst H.
Ingþórsson, forstöðumaður Rannsóknaþjónustu Háskóla íslands.
Nánari upplýsingar um verkeihið UPPÚR SKÚFFUNUM má finna
á vefsíðu þess www.uppurskuffunum.hi.is og hjá Rannsókna-
þjónustu Háskóla íslands sími 525 4900.
UPPUR SKUFFUNUM
%■»•yt'
Rannsóknaþjónusta
ábyrgðar og umfangs og eðlis
starfs. Þetta mætti líta á sem þró-
unarsamning eða tilraun næsta
samningstímabil og kallaði vænt-
anlega á nýja afstöðu beggja aðila,
gagnkvæma ábyrgð og gagnkvæmt
traust.
Þessu fylgir auðvitað líka það að
endurskoða þyrfti nýlegt reikni-
líkan fyrir rekstur skólanna vegna
breyttra forsendna og kallaði jafn-
framt á nýja stefnumótun varð-
andi verkaskiptingu þeirra og
sameiginlegar skyldur við hinn
breiða nemendahóp framhalds-
skólans. Sérstaka áherslu þarf að
leggja á það, að hér er ekki verið
að leggja til samkeppnismarkað á
framhaldsskólastiginu eða verka-
skiptingu sem veldur svæðis-
bundnu ójafnvægi í námsframboði
heldur hitt að skólar séu reknir á
jafnréttisgrundvelli vegna skyld-
unnar við menntun í landinu og
skyldunnar við hugmyndina um
jöfn tækifæri og jafna aðstöðu til
náms.
Ef brugðið yrði á það ráð að gera
bráðabirgðasamning nú er eðlilegt
frá almennu réttlætissjónarmiði að
sú leiðrétting sem fengist yrði aft-
urvirk. Frumskilyrðið yrði hækkun
grunnlauna sem illu heilli datt út af
borðinu sem forgangsatriði fyrir
þremur árum. Að auki yrði að losa
um hina umdeildu vinnu undir sér-
stakri stjórn skólameistara þannig
að skólastjórnendur fengju það fé
sem til þess er ætlað til ráðstöfun-
ar og þá til skólaþróunar í samráði
við kennarafund. Prófakafla samn-
ingsins þyrfti líka að endurskoða
frá grunni og loks að skýra ná-
kvæmar hvernig útfæra á nýupp-
tekna kjarasamningsgrein um
stjórnunarstörf þeirra kennara
sem gegna jafnframt deildarstjórn
eða fagstjórn.
Umbreyting kjarasamnings
kennara er tímabær en má ekki
vera flýtisverk. Byggja þarf upp
faglegt, hlutlægt og gegnsætt kerfi
sem getur verið grunnur að verð-
gildismati þeirrar menntunar,
reynslu, og fjölþættu ábyrgðar sem
felst í kennarastarfinu. Þannig
hefði nýr kjarasamningur væntan-
lega tvær hliðar, annars vegar vel
útfært stigbundið verðgildismat
menntunar, reynslu, og ábyrgðar
sem krafist er og hins vegar kjara-
samningsatriði hefðbundin og ný
sem tækju til allra þátta skóla-
starfsins. Eftir sem áður verður
hver kennari sem launþegi að geta
treyst því að vera ekki skilinn eftir
sem samningamaður fyrir sjálfan
sig heldur hafi hann ætíð á bakvið
sig þá aðstoð og þann styrk sem
stéttarfélag á að veita í siðuðu lýð-
ræðisþjóðfélagi.
Höfundur er formaður
Kennarafélags Borgarholtsskóla.
Glæsilegir
stálbakkar
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14
Hafið þið
heyrt um
mígreni?
MÍGRENI er mjög
algengur sjúkdómur
sem ekki hefur verið
mikið í umræðunni
undanfarin ár. Það er
þó ekki vegna þess að
fáir séu með mígreni
því um 6% karla og
allt að 18% kvenna fá
mígreni einu sinni eða
oftar á ævinni.
Hvað er mígreni?
Mígreni er sjúkdóms-
ástand þar sem ann-
ars einkennalaus ein-
staklingur fær
höfuðverk sem getur
verið allt frá lítils
háttar verkjaseiðingi
upp í mjög slæman höfuðverk með
fylgieinkennum á borð við ógleði,
uppköst, ljósfælni, hljóðfælni og
Mígreni
Mígreni getur haft mikil
áhrif á líf fólks, segir
María G. Hrafnsdóttir,
og skert lífsgæði þess
verulega.
e.t.v. fleiri einkennum. Sumir fá
ákveðin fyrirboðaeinkenni, sem
kölluð eru ára stuttu áður en höf-
uðverkurinn kemur og aðrir finna
breytta líðan jafnvel einum til
tveim sólarhringum áður en kastið
skellur á. Einkenni árunnar geta
verið mjög mismunandi milli ein-
staklinga en eru oftast einhvers
konar skyntruflanir, t.d. tengd
sjón, heyrn, hreyfingum eða upp-
lifun á eigin líkama. Önnur fyrir-
boðaeinkenni sem ekki teljast til
árunnar en margir finna þó fyrir
eru óljósari, sumir finna fyrir
óvenjugóðu eða slæmu andlegu
jafnvægi síðasta eða jafnvel tvo
síðustu sólarhringana fyrir kast.
Aðrir finna hjá sér löngun í
ákveðnar fæðutegundir, aukna eða
minnkaða kynhvöt og sumum
finnst þeir geta allt og byrja á
stórum eða mörgum verkefnum
síðasta sólarhringinn áður en
mígrenikastið byrjar.
Börn með mígreni
Mígreni er ekki eingöngu sjúk-
dómur fullorðinna því börn á öllum
aldri hafa verið greind með
mígreni. Einkennin hjá börnum
eru oftast önnur en hjá fullorðnum
og er algengast að börn fmni mest
fyrir meltingaróþægindum, maga-
verkjum, ógleði og uppköstum þó
þau geti auðvitað líka fundið fyrir
höfuðverkjum. Yfirleitt færast
verkirnir frá maganum upp til
höfuðsins eftir því sem börnin eld-
ast. Fleira hefur verið tengt við
mígreni hjá börnum, m.a. virðast
þau oftar vera bílveik/ferðaveik en
önnur börn, þau fá frekar óút-
skýrða hitatoppa sem ganga yfir á
sólarhring eða minna, magakveis-
ur eins og búið er að tala um,
skyndileg uppköst og svimaköst.
Mígreniköst barna
eru oft styttri en
mígreniköst - fullorð-
inna og stundum
ganga þau yfir á einni
klukkustund eða jafn-
vel minna.
Greining mígrenis
byggist á viðtali og
skoðun. Lýsing kasts-
ins gefur greininguna
og skoðun er eðlileg
með tilliti til tauga-
kerfisins. Ekki eru til
neinar rannsóknir
sem sýna fram á eða
afsanna mígreni en
stundum telur læknir
rétt að senda sjúkling
sinn í rannsóknir til að ganga úr
skugga um að ekki sé neitt annað
sem veldur einkennunum. Það er
vitað að ýmislegt getur komið
mígrenikasti af stað, þetta eru oft
nefndar kveikjur og geta verið
ákveðnar fæðutegundir, stress,
óregla á svefni eða matmálstímum,
veðurfar eða of mikil líkamleg
áreynsla. Þetta getur stutt grein-
ingu sjúkdómsins.
Bara mígreni?
Er þetta bara mígreni? f huga
þess sem fær mígreniköst er ekk-
ert „bara“ mígreni því mígreni
getur haft mikil áhrif á líf fólks og
skert lífsgæði þess verulega.
Mígrenið hefur áhrif á starfsgetu,
heimilishald og heimilislíf, félags-
líf, skemmtanir og mígreni getur
gert nám mjög erfitt. Það hefur
áhrif á fjármálin bæði vegna lyfja-
kostnaðar og fjarvista frá vinnu
svo eitthvað sé nefnt. Það er því
ekki til neitt sem heitir að vera
bara með mígreni.
Mígreni er í dag ólæknandi
sjúkdómur. Það er hins vegar
hægt að slá á einkenni hans og
gera þannig lífið bærilegra. Lækn-
ar nota fyrst og fremst lyfjameð-
ferð við mígreni þó einnig megi
reyna aðrar aðferðir. Séu mígreni-
köst fleiri en 2-3 í mánuði er hægt
að reyna fyrirbyggjandi meðferð
en hún gagnast ekki öllum. Til að
meðhöndla mígrenikast er nú oft-
ast gripið til svokallaðra Tryptan
lyfja en þau byrjuðu að koma á
markað upp úr 1990. Auk þeirra
eru notuð verkjalyf og lyf til að slá
á fylgieinkenni mígrenis.
Það er ljóst að margt er óþekkt
við þennan sjúkdóm og áframhald-
andi rannsókna er þörf. Úti í heimi
er ýmislegt að gerast eins og kom
fram á alheimsráðstefnu um höf-
uðverki sem haldin var í tilefni ár-
þúsundamótanna í september í
London. Hér á Islandi er að byrja
leitin að mígrenigeninu hjá Þjón-
ustumiðstöð rannsóknarverkefna í
Nóatúni 17 og verður spennandi
að sjá hverju það skilar.
Ég vil að síðustu hvetja fólk til
að líta við á opnu húsi mígren-
samtakanna í tilefni af Norræna
mígrenideginum kl. 17-21 í safnað-
arheimili Háteigskirkju í kvöld.
Höfundur er læknir og ritari
Mígrensnmtakanna.
María G.
Hrafnsdóttir
GOIU-RYU
KARATE
Karatedeild Fylkis
Byrjendanámskeiðin eru hafín
Stundaskra:
Böm byijendun
Mán. og Föstud. kl. 18:15
Fullorðnir byijendun
Mán., mið. og Föstud. kl. 19:15
Upplýsingar í síma:
896 3010 eða 567 6467