Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 57_
‘ANIC
Cr urca
LNiFP,
LmJ?an,cí;
UMRÆÐAN
V aldníðsla
stjórnarinnar
VALDSTJÓRNIN
sem ræður ríkjum hér-
lendis gerir nú krðfur
um stórfellda eigna-
upptöku í Amessýslu.
Það á að taka mikið
land af fjallabæjunum,
þinglýstar eignir og
skerða stórlega rétt
sveitarfélaganna til af-
réttanna. Fyrirhuguð
upptaka lands nemur
um helmingi sýslunnar.
Lögmaður nokkur,
sem virðist reka hat-
ursherferð gegn bænd-
um, mun vera aðal-
höfundur kröfugerðar-
innar, sem er svo vit-
laus að engu tali tekur. Sem dæmi
má nefna að fjármálaráðherra gerir
kröfu til allrar jarðarinnar Hóla í
Biskupstungum, sem var bújörð um
aldir en fór í eyði á fyrri hluta 20.
aldar. Þá keypti Biskupstungna-
hreppur jörðina og varð hreppurinn
þinglýstur eigandi hennar.
Ráðherrann gæti allt eins gert
kröfu til Nesjavallanna eða hverra
annarra þinglýstra eigna sem er.
Það mætti benda erlendum fjár-
festum á að óvíst sé hvort leikreglur
réttarríkja eigi að gilda hérlendis,
svipað stöðu mála í Zimbabwe. Fjár-
festum er illa við að þinglýsingar
eignaheimilda séu ógiltar.
Menn tala um að þessi stórfellda
árás á eignaixétt almennings í Ar-
nessýslu sé kommúnismi. Stalín stóð
fyrir svívirðilegri jarðaupptöku í
Sovétríkjunum. Rökin fyrir þeim að-
gerðum voru að bændurnir ættu
ekki jarðirnar, heldur öll þjóðin.
Þetta voru svipuð rök og nú er beitt í
þjóðlendumálinu. Þó tók steininn úr
þegar Rússar köstuðu kommúnism-
anum fyrir róða og fóru í einkavæð-
ingu eigna almennings.
Hvenær var kommúnismi tekinn
upp í Sjálfstæðisflokknum, eða er
það einkavæðing af rússnesku tagi
sem á að beita? Fyrst eru eignir
teknar af fólki og síðan eru þær af-
hentar fámennum hópi auðmanna til
eignar eða nýtingar fyrir lítið gjald
eða ekkert. Framkvæmd einkavæð-
ingar ríkisfyrirtækja og úthlutun
sérleyfis til nýtingai- örvera í hverum
landsins bendir í þessa átt. Þeir
menn sem nú ráða ríkjum í Sjálf-
stæðisflokknum ættu að athuga sinn
gang. Stendur til að flokkurinn hætti
að sækja fylgi til bænda og annarra
íbúa dreifbýlisins? Getur það verið
að fjárframlög dreifbýlismanna til
flokksins séu ekki næg? Ólafur
Thors og Bjarni Ben. hefðu aldrei
lagt út í slíka aðgerð. Þeir byggðu
flokkinn upp sem flokk allra stétta.
Guðni frá Brúnastöðum deilii' ann-
að slagið á þessa kröfugerð, en Davíð
og Geir segja að hann misskilji þetta.
Óbyggðanefnd muni dæma af
réttsýni. En þeir virðast ekki skilja
alvarleika málsins. Það er um fram-
tíð Guðna í stjórnmálum að tefla.
Hann er í ríkisstjórn sem ætlar að
beita kjósendur hans þjösnaskap og
órétti. Fólkið í sveitunum skynjar
aðgerðina sem stríðsyfírlýsingu.
Þetta mál er ámóta stórt fyrir upp-
sveitir Árnessýslu og ráðherrann
ætlaði að taka þinglýstar eignir af
1-2 þús. fjölskyldum í Reykjavík.
Svo og landeignir Reykjavíkur og
orkuveitu hennar í Blá-
fjöllum, Hengli og Hell-
isheiði. Það getur hver
maður séð að slík gerð
væri pólitískt sjálfsvíg.
Ég vil benda þing-
mönnum kjördæmisins
á að athuga að flest
sveitarfélög á Suður-
landi eru aðilar að af-
réttunum. Þar að auki
veit ég að fólkið sem
býr á fjallabæjunum
hefur mikinn og al-
mennan stuðning í bar-
áttu sinni um allt hér-
aðið til strandar.
Sveitarfélögunum er
fullkomlega treystandi
til þess að fara með stjóm mála á af-
réttum sínum í þágu allrar þjóðar-
innar, eins og verið hefur. Það er frá-
leitt að færa yfirráð þeirra til annars
landshluta, sem mun verða raunin,
þegar meirihluti þings verður frá
höfuðborgarsvæðinu. Þessar aðfarir
eru í fullkomnu ósamræmi við þá
stefnumörkun að færa aukin verk-
efni til sveitarfélaganna.
Þingmenn virðast hafa verið hallir
undir þessa aðgerð, til þess að geta
fært aukin völd til sín. Að vísu telja
margir þingmenn að kröfugerðin sé
ekki í samræmi við vilja þingsins. En
hver var vilji þingsins? Því er erfítt
að svara, þar sem Alþingi afhenti
fjármálaráðherra kröfugerðarvaldið.
Þingmenn dreifbýliskjördæmanna
munu hins vegar finna fyrir málinu,
þegar herferð rangindamanna ráð-
herrans heldur áfram rangsælis um
landið. Hætt er við að sumir lands-
hlutar geti fengið mun verri útreið
en Amessýsla, ef kröfugerð verður
svipuð. Hvernig gæti ki-öfugerðar-
kort litið út í kjördæmi utanríkisráð-
herrans, þar sem víða er stutt milli
strandar og 250 m hæðarlínunnar?
Það gæti verið að mönnum þætti að
sér þrengt milli þjóðlendna til lands
og sjávar. Ekki er víst að kjósendur
ráðherrans verði ánægðir með til-
færslu nýtingar hálendis til sérhags-
munahópa á svipaðan hátt og gert
var með þjóðlenduna í hafinu. Ráð-
herrann varð fyrir árásum vegna
fjölskyldutengsla við kvótakónga
fyrir síðustu kosningar. Honum
sárnaði þetta og taldi að óréttmætt
væri að ræða þessi mál, en ég bendi
honum á að hér er um lífsafkomu
fólksins að ræða.
Varðandi afréttina er málið svo
einfalt að það verður ekki séð að Al-
þingi eða dómstólar hafi neinn rétt til
að breyta því fyrirkomulagi, sem
hefur verið á nýtingu afréttanna um
aldir. Sveitarfélögin hafa alla tíð far-
ið með stjórn mála þar, og íbúar
þeirra nýttu öll gæði þeirra. Þetta er
viðurkennt í þjóðlendulögunum,
enda eiga þau að lýsa því í hverju
nýtingin var fólgin.
Nú vilja sumh' meina að sveitar-
félögin eigi ekki afréttina. Þau eigi
einungis nýtingarrétt, en grunneign-
arréttur að landinu sé ríkisins.
í þessu er ýmsum hundakúnstum
beitt, eins og að landið hafi í upphafi
ekki verið numið nema rétt upp fyrir
efstu bæi, sem nú eru í byggð. Af-
réttirnir hafa verið kenndir við sveit-
arfélögin frá fornu fari, enda voru
þeir alla tíð álitnir vera eign þeirra
eða fylgja jörðunum í hverjum
Páll Ragnar
Steinarsson
Hvenær var kommún-
ismi tekinn upp í Sjálf-
stæðisflokknum, spyr
Páll Ragnar Steinars-
son, eða er það einka-
væðing af rússnesku
tagi sem á að beita?
hreppi. Ríkisvaldið mótmælti ekki
þessum skilningi fyrr en eftir miðja
20. öld. Væntanlega mun síðan verða
mikill þrýstingur á ríkið að svíkja
sveitirnar og rýra nýtingarréttinn.
Almenningur á hefðbundinn og
lögboðinn umferðarrétt um heima-
lönd og afrétti. Skefjalaus áróður er
rekinn gegn bændum og öðrum íbú-
um sveitanna, að þeii' vilji hindra að
fólk geti notið þessa réttar. Ég held
að það sé nær sanni, að það séu aðrir
landeigendur en íbúar sveitanna sem
hafa lokað fyrir umferð fólks um sín
lönd.
Ég sé ekki neina ástæðu til annars
en að Árnesingar taki þennan slag af
fullri einurð og reki landránsmenn af
höndum sér og alla leið út úr sýsl-
unni.
Höfundur er sölumaður frá Hlíð
i Gnúpverjahreppi.
HELENA RUBINSTEIN
9 I
Komið og kjmnist nýju
líkamsvörunum
ART OF SPA.
Upplifðu orku og kraft
Power eða slakandi
áhrif Relaxing Power.
legir haust- og vetrar-
sem breytast
einnig kynntir.
á l^mningu
morgun.
minnum
snyrtivöruverslun
Háholti 14, sími 586 8000
HiPP
OMAN«e
- J'S'ÚLK DrINK
; , * °_W Vfc,t *1 MONTHf, ONWAK0S
Hil P
ORQANI
ANIC
ÍPftÉl
Ellsuhúsið
Lífrænri
barnamatur
* Engin aukaefni.
* Enginn viðbættur sykur.
<* Eins og heimatilbúinn matur.
• Fyrir börn á öllum aldri.
• Gott og spennandi hráefni.
Bragð náttúrunnar
- og ekkert annað
Niko heildverslun hf, sími 568 0945
MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA
www.nordiccomic. com
^mb l.is
ALLTAf= GITTH\SAÐ NÝTl
Þjóðlendur
Sjáðu okkur og Agora Laugardalshöll 11.-13. október
«4*
W
/ið erum í básum
C3: as:
veröi”í.jós
VcrOi Ljós : Nóatun 17 - 105 Roykpvik::
vordiljos.ia :: simi 511,2002
aimbróf 552.1620 :