Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 57_ ‘ANIC Cr urca LNiFP, LmJ?an,cí; UMRÆÐAN V aldníðsla stjórnarinnar VALDSTJÓRNIN sem ræður ríkjum hér- lendis gerir nú krðfur um stórfellda eigna- upptöku í Amessýslu. Það á að taka mikið land af fjallabæjunum, þinglýstar eignir og skerða stórlega rétt sveitarfélaganna til af- réttanna. Fyrirhuguð upptaka lands nemur um helmingi sýslunnar. Lögmaður nokkur, sem virðist reka hat- ursherferð gegn bænd- um, mun vera aðal- höfundur kröfugerðar- innar, sem er svo vit- laus að engu tali tekur. Sem dæmi má nefna að fjármálaráðherra gerir kröfu til allrar jarðarinnar Hóla í Biskupstungum, sem var bújörð um aldir en fór í eyði á fyrri hluta 20. aldar. Þá keypti Biskupstungna- hreppur jörðina og varð hreppurinn þinglýstur eigandi hennar. Ráðherrann gæti allt eins gert kröfu til Nesjavallanna eða hverra annarra þinglýstra eigna sem er. Það mætti benda erlendum fjár- festum á að óvíst sé hvort leikreglur réttarríkja eigi að gilda hérlendis, svipað stöðu mála í Zimbabwe. Fjár- festum er illa við að þinglýsingar eignaheimilda séu ógiltar. Menn tala um að þessi stórfellda árás á eignaixétt almennings í Ar- nessýslu sé kommúnismi. Stalín stóð fyrir svívirðilegri jarðaupptöku í Sovétríkjunum. Rökin fyrir þeim að- gerðum voru að bændurnir ættu ekki jarðirnar, heldur öll þjóðin. Þetta voru svipuð rök og nú er beitt í þjóðlendumálinu. Þó tók steininn úr þegar Rússar köstuðu kommúnism- anum fyrir róða og fóru í einkavæð- ingu eigna almennings. Hvenær var kommúnismi tekinn upp í Sjálfstæðisflokknum, eða er það einkavæðing af rússnesku tagi sem á að beita? Fyrst eru eignir teknar af fólki og síðan eru þær af- hentar fámennum hópi auðmanna til eignar eða nýtingar fyrir lítið gjald eða ekkert. Framkvæmd einkavæð- ingar ríkisfyrirtækja og úthlutun sérleyfis til nýtingai- örvera í hverum landsins bendir í þessa átt. Þeir menn sem nú ráða ríkjum í Sjálf- stæðisflokknum ættu að athuga sinn gang. Stendur til að flokkurinn hætti að sækja fylgi til bænda og annarra íbúa dreifbýlisins? Getur það verið að fjárframlög dreifbýlismanna til flokksins séu ekki næg? Ólafur Thors og Bjarni Ben. hefðu aldrei lagt út í slíka aðgerð. Þeir byggðu flokkinn upp sem flokk allra stétta. Guðni frá Brúnastöðum deilii' ann- að slagið á þessa kröfugerð, en Davíð og Geir segja að hann misskilji þetta. Óbyggðanefnd muni dæma af réttsýni. En þeir virðast ekki skilja alvarleika málsins. Það er um fram- tíð Guðna í stjórnmálum að tefla. Hann er í ríkisstjórn sem ætlar að beita kjósendur hans þjösnaskap og órétti. Fólkið í sveitunum skynjar aðgerðina sem stríðsyfírlýsingu. Þetta mál er ámóta stórt fyrir upp- sveitir Árnessýslu og ráðherrann ætlaði að taka þinglýstar eignir af 1-2 þús. fjölskyldum í Reykjavík. Svo og landeignir Reykjavíkur og orkuveitu hennar í Blá- fjöllum, Hengli og Hell- isheiði. Það getur hver maður séð að slík gerð væri pólitískt sjálfsvíg. Ég vil benda þing- mönnum kjördæmisins á að athuga að flest sveitarfélög á Suður- landi eru aðilar að af- réttunum. Þar að auki veit ég að fólkið sem býr á fjallabæjunum hefur mikinn og al- mennan stuðning í bar- áttu sinni um allt hér- aðið til strandar. Sveitarfélögunum er fullkomlega treystandi til þess að fara með stjóm mála á af- réttum sínum í þágu allrar þjóðar- innar, eins og verið hefur. Það er frá- leitt að færa yfirráð þeirra til annars landshluta, sem mun verða raunin, þegar meirihluti þings verður frá höfuðborgarsvæðinu. Þessar aðfarir eru í fullkomnu ósamræmi við þá stefnumörkun að færa aukin verk- efni til sveitarfélaganna. Þingmenn virðast hafa verið hallir undir þessa aðgerð, til þess að geta fært aukin völd til sín. Að vísu telja margir þingmenn að kröfugerðin sé ekki í samræmi við vilja þingsins. En hver var vilji þingsins? Því er erfítt að svara, þar sem Alþingi afhenti fjármálaráðherra kröfugerðarvaldið. Þingmenn dreifbýliskjördæmanna munu hins vegar finna fyrir málinu, þegar herferð rangindamanna ráð- herrans heldur áfram rangsælis um landið. Hætt er við að sumir lands- hlutar geti fengið mun verri útreið en Amessýsla, ef kröfugerð verður svipuð. Hvernig gæti ki-öfugerðar- kort litið út í kjördæmi utanríkisráð- herrans, þar sem víða er stutt milli strandar og 250 m hæðarlínunnar? Það gæti verið að mönnum þætti að sér þrengt milli þjóðlendna til lands og sjávar. Ekki er víst að kjósendur ráðherrans verði ánægðir með til- færslu nýtingar hálendis til sérhags- munahópa á svipaðan hátt og gert var með þjóðlenduna í hafinu. Ráð- herrann varð fyrir árásum vegna fjölskyldutengsla við kvótakónga fyrir síðustu kosningar. Honum sárnaði þetta og taldi að óréttmætt væri að ræða þessi mál, en ég bendi honum á að hér er um lífsafkomu fólksins að ræða. Varðandi afréttina er málið svo einfalt að það verður ekki séð að Al- þingi eða dómstólar hafi neinn rétt til að breyta því fyrirkomulagi, sem hefur verið á nýtingu afréttanna um aldir. Sveitarfélögin hafa alla tíð far- ið með stjórn mála þar, og íbúar þeirra nýttu öll gæði þeirra. Þetta er viðurkennt í þjóðlendulögunum, enda eiga þau að lýsa því í hverju nýtingin var fólgin. Nú vilja sumh' meina að sveitar- félögin eigi ekki afréttina. Þau eigi einungis nýtingarrétt, en grunneign- arréttur að landinu sé ríkisins. í þessu er ýmsum hundakúnstum beitt, eins og að landið hafi í upphafi ekki verið numið nema rétt upp fyrir efstu bæi, sem nú eru í byggð. Af- réttirnir hafa verið kenndir við sveit- arfélögin frá fornu fari, enda voru þeir alla tíð álitnir vera eign þeirra eða fylgja jörðunum í hverjum Páll Ragnar Steinarsson Hvenær var kommún- ismi tekinn upp í Sjálf- stæðisflokknum, spyr Páll Ragnar Steinars- son, eða er það einka- væðing af rússnesku tagi sem á að beita? hreppi. Ríkisvaldið mótmælti ekki þessum skilningi fyrr en eftir miðja 20. öld. Væntanlega mun síðan verða mikill þrýstingur á ríkið að svíkja sveitirnar og rýra nýtingarréttinn. Almenningur á hefðbundinn og lögboðinn umferðarrétt um heima- lönd og afrétti. Skefjalaus áróður er rekinn gegn bændum og öðrum íbú- um sveitanna, að þeii' vilji hindra að fólk geti notið þessa réttar. Ég held að það sé nær sanni, að það séu aðrir landeigendur en íbúar sveitanna sem hafa lokað fyrir umferð fólks um sín lönd. Ég sé ekki neina ástæðu til annars en að Árnesingar taki þennan slag af fullri einurð og reki landránsmenn af höndum sér og alla leið út úr sýsl- unni. Höfundur er sölumaður frá Hlíð i Gnúpverjahreppi. HELENA RUBINSTEIN 9 I Komið og kjmnist nýju líkamsvörunum ART OF SPA. Upplifðu orku og kraft Power eða slakandi áhrif Relaxing Power. legir haust- og vetrar- sem breytast einnig kynntir. á l^mningu morgun. minnum snyrtivöruverslun Háholti 14, sími 586 8000 HiPP OMAN«e - J'S'ÚLK DrINK ; , * °_W Vfc,t *1 MONTHf, ONWAK0S Hil P ORQANI ANIC ÍPftÉl Ellsuhúsið Lífrænri barnamatur * Engin aukaefni. * Enginn viðbættur sykur. <* Eins og heimatilbúinn matur. • Fyrir börn á öllum aldri. • Gott og spennandi hráefni. Bragð náttúrunnar - og ekkert annað Niko heildverslun hf, sími 568 0945 MYNDASÖGUBLAÐIÐ ZETA www.nordiccomic. com ^mb l.is ALLTAf= GITTH\SAÐ NÝTl Þjóðlendur Sjáðu okkur og Agora Laugardalshöll 11.-13. október «4* W /ið erum í básum C3: as: veröi”í.jós VcrOi Ljós : Nóatun 17 - 105 Roykpvik:: vordiljos.ia :: simi 511,2002 aimbróf 552.1620 :
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.