Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 62
62 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
Böðuðu sig í köldum sjónum
ÞAÐ er ekki laust við að farið hafi hrollur um
þessar akureyrsku ungmeyjar, þar sem þær
voru að baða sig í sjónuin við flotbryggjuna
norðan Torfunefsbryggju. Stúlkurnar sögðu að
svo heitt væri í veðri að nauðsynlegt væri fyrir
þær að kæla sig á þennan hátt. Þær stöllur
voru þó sammála um sjórinn væri rosalega
kaldur. Þeim varð þó ekki meint af kælingunni,
enda hafa þær oft gert þetta áður að eigin
sögn. F.v. Valgerður Hauksdóttir, Helga Jóna
Harðardóttir, Laufey Árnadóttir og Halla
Björg Harðardóttir. Veðrið lék við Akureyr-
inga á föstudag og um miðjan daginn sýndi lög-
giltur mælir Veðurstofunnar á lögreglustöð-
inni 15 gráða hita.
■i
>
VTö
_____LU1‘U
Veislan stendur til sunnudags.
Fullt af frábærum afmælistilboðumí
Heitustu vetrarvörurnar.
Frítt á klifurvegginn.
SJal,akvik
f"Jahátíð
NANOQ+
- lífið er áskomn!
Stuttmynd
gegn ofbeldi
RAUÐI krossinn hefur látið fram-
leiða stuttmynd í tengslum við verk-
efnið Gegn ofbeldi. Takmarkið með
myndinni er að ná til ungs folks og
skapa þannig grundvöll fyrir umræðu
og fá það tii að hugsa um þessi má-
lefni, segir í fréttatilkynningu.
Myndin verður sýnd ungmenna-
hópum um allt land í vetur og henni
fylgja leiðbeiningar fyrir umræðu og
fræðsluefni.
Myndin er framleidd af ONNO ehf.
og er leikstjóri hennar Amar Steinn
Friðbjarnarson. Meðal leikara í
myndinni eru Þorbjöm Emil Kærbo,
Jakob Þór Einarsson, Ingrid Jóns-
dóttir, Atli Viðar Þorsteinsson og
Ragnar Pétursson. Grímur Hákonar-
son skrifaði handritið.
Myndin er nú tilbúin en stefnt er að
því að dreifa henni ásamt fræðsluefni
til Rauðakrossdeilda í byrjun nóv-
ember en þær munu hafa milligöngu
um sýningar fyrir áðumefnda ung-
mennahópa á hverjum stað fyrir sig.
Ráðstefnan
um heilsu og
heilbrigði
RÁÐSTEFNAN Heilsa og heil-
brigði 2000 verður haldin í Fjöl-
brautaskólanum við Armúla dagana
14. og 15. október næstkomandi.
Ráðstefnan verður haldin í tengsl-
um við fyrsta aðalfund nýstofnaðra
Norrænna samtaka sem fékk nafnið
Nordisk Samarbejds Komite for ik-
ke-Konventionell terapy (NSK).
Samtökin nefnast á íslensku Nor-
rænt samstarf um óhefðbundnar
meðferðir.
Þessa helgi verður haldin í
Reykjavík allsherjar kynning á þjón-
ustu og vömm óhefðbundinna með-
ferða og er ætlunin að tileinka hana
heilbrigði og því hvað hægt er að
gera til að öðlast betri heilsu.
Boðið verður upp á fyrirlestra fag-
fólks í ýmsum greinum. Einnig verða
kynntar náttúmafurðir af ýmsum
gerðum sem aðallega em framleidd-
ar hér á landi.
Sorgin eftir
sjálfsvíg
NÝ DÖGUN, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð standa fyrir fyrir-
lestri um sorgina eftir sjálfsvíg, í
kvöld 12 október kl. 20.
Hugó Þórisson sálfræðingur ætl-
ar í umfjöllun sinni að ræða hvern-
ig sorgin birtist þeim sem syrgja
þá, sem fallið hafa fyrir eigin
hendi. Hvernig hún er frábragðin
annarri sorg, hvaða leiðir er hægt
að fara til að ná áttum að nýju og
byggja upp líf sitt og hvaða hlut-
verki fjölskyldan gegnir þegar tek-
ist er á við sorg af þessu tagi. Hann
ræðir einnig hvernig skólinn getur
komið til móts við þá nemendur,
sem hafa misst aðstandanda eða
vin á þennan hátt.
Fyrirlesturinn í kvöld er framlag
Nýrrar dögunar til þeirrar mikil-
vægu umræðu um geðheilbrigði og
sjálfsvíg, sem á sér stað í samfélag-
inu í dag. Hún stuðlar að aukinni
vitund almennings og er liður í því
fyrirbyggjandi starfi, sem halda
þarf á lofti svo draga megi úr tíðni
sjálfsvíga og sorg þeirra sem að
koma, segir í fréttatilkynningu.
Fyrirlesturinn er haldinn í safn-
aðarheimili Háteigskirkju og er öll-
um opinn.Aðgangseyrir er 500 kr.
Opinber
fyrirlestur í
guðfræðideild
HOWARD J. Clinebell, prófessor
við Claremont-háskóla í Kaliforn-
íu, flytur föstudaginn 13. október
opinberan fyrirlestur í guðfræði-
deild. Fyrirlesturinn hefst kl.
12.15 í kapellu Háskólans.
Yfirskrift fyrirlestursins er:
„Counseling for Wholeness in the
21 st Century“ í fyrirlestri sínum
mun prófessor Clinebell horfa til
framtíðar og draga fram lykilþætti
í sálgæslu nýrrar aldar.
„Howard J. Clinebell Ph.D. er
vel kunnur flestum þeim sem
leggja stund á sálgæslu. Hann var
um árabil prófessor í kennimann-
legri guðfræði og sálgæslu við
guðfræðideild Claremont-háskóla í
Kaliforníu,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Móðirin í
bíósal MÍR
KLASSÍSK kvikmynd frá árinu
1926, eitt af frægustu verkum kvik-
myndasögunnar, verður sýnd í bíó-
sal Mír, Vatnsstíg 10, sunnudaginn
15. október.
Þetta er Móðirin, kvikmyndin sem
Vsevolod Púdovkin (1893-1953) leik-
stýrði. Sú útgáfa myndarinnar sem
sýnd verður á sunnudaginn er frá ár-
inu 1968 með tónlist eftir Tikhon
Khrennikov. Aðalleikendur era Vera
Baranovskaja, A. Khristjakov og
Nikolaj Batalov.
Kvilanyndin Móðirin er byggð á
samnefndri skáldsögu eftir Maxím
Gorkí en þó farið frjálslega með sög-
una.
Enskur texti er með myndinni.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis
og öllum heimill.
Minning’arfyr-
irlestur Jóns
Sigurðssonar
Á VEGUM Sagnfræðistofnunar Há-
skóla íslands er árlega haldinn
Minningarfyrirlestur Jóns Sigurð-
sonar. Að þessu sinni verður fyrir-
lesturinn liður í dagskrá Hugvís-
indaþings föstudaginn 13. október
kl. 16.
Þá flytur Solyi Sogner, prófessor í
sagnfræði við Óslóarháskóla, fyrir-
lestur (á norsku), „Ekteskap i
Norge efter reformasjonen," um
þróun hjúskapar og annarra sam-
búðarforma allt frá siðaskiptum til
dagsins í dag.
Fyrirlesturinn fer fram í hátíðasal
Háskóla Islands og er öllum opinn.