Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 66

Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ 66 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 Dýraglens Grettir EG SKAÞ MEG A ÞÖNGONI. VAfi A£> ÞLEIGJA ÞIMEKI Ferdinand Smáfólk I 5UPP05E THERE ARE TIME5 LOHEN YOU CANNOT IMA6INE TRYIN6 TO 60 THR0U6H LIFE UUITHOUT ME„ 9/25/00 Ég geri ráð fyrir að stundum getir þú ekki hugsað þér lífið án mín.. Á hinn bóginn. Hvað er að því að lifa bara lífinu? BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Gott o g illt á víð og dreif Frá Alberti Jenserr. ÞJÓÐFÉLAG okkar er þrátt fyrir smæðina stórt í sniðum og býður ótrúlega fjölskrúðugt lífsmynstur í leik og starfi. Þar bera hátt fjöl- margar söngskemmtanir, alskonar list- og leiksýningar. Arlegii- hljóm- leikar í Skálholti eru þakkarverð sumargjöf góðs tónlistarfólks um leið og notið er hins merka staðar. Sinfóníuhljómsveit íslands, ótrúlega margir frábærir óperu- og dægur- lagasöngarar og leikarar. Mögnuð kóramenning, gróska í lagasmíðum, íslenski dansflokkurinn, fjöldi frá- bærra kvikmyndahúsa og veitinga- staða og stórkostlegar uppfærslur eins og þúsaldarkórinn og raddir Evrópu svo eitthvað sé nefnt sem er á háu plani og líklega á heimsmæli- kvarða. En það er líka boðið upp á að drepa tímann í stað þess að njóta hans. í þeim efnum er fjölbreytnin líka til staðar og á það fólk, sem nýt- ur þess að sjá umkomulausar útlend- ar stúlkur reyna að bjarga sér með því að stríplast utan í rörum, margra kosta völ. Ég tel mig hvorki betri né verri þó ég vorkenni þessum stúlk- um innilega og mér þykir leitt að til skuli vera Islendingar sem maka krókinn með þessum hætti. Hug- myndasnauðir kráeigendur sem bjástra við að græða á hinum lægri hvötum eru óvinir góðra gilda og þeirra betri maður fer í felur af skömm. Aukist hefur að huglaus ill- menni á ýmsum aldri hópi sig saman til að fá útrás á óeðli sínu og lágkúru og berji fólk til óbóta. Ekki er illskan minni hjá eiturlyfjasölunum sem frá mínum bæjardyrum séð eru ekkert annað en ógnvekjandi skemmdar- vargar og morðingjar sem laumast um og byrla börnum og unglingum eitur. Og hætturnar eru víðar því á vegakerfi landsmanna er of mikið af ökuníðingum eða fólki sem skortir reynslu og ábyrgðartilfinningu. All- ir, líka þeir sem keyra með gætni og tillitssemi, mega þakka fyrir hvern dag sem þeir koma heilir heim því það er lífshættulegt að fara út á göt- urnar. Karlmenn fá bílpróf of ungir ef miðað er við að oflátungsháttur þeirra og skortur á ábyrgð er meiri en hjá konum því þeir eru lengur að verða fullorðnir. Líka er kennslu byrjenda t.d. hvað varðar malarvegi og ábyrgð mjög ábótavant. Víða í Dalasýslu hef ég séð ein- breiða vegi sem eru eins og úthugs- aðar dauðagildrur sem farendum er ómögulegt að varast. Á stórhættulegum vegi í Hvols- dalnum þrengdi jeppi smábíl út í skurð, slasaði fólk og hvarf í grjót- hríð. Virðingarleysi fyrir lífi og heilsu annan-a er vissulega áhyggju- efni. Ræsi sem eru mjórri en vegim- ir eru hrein skömm þeim sem málið varða og ættu fyrir löngu að vera horfin. Eitt slíkt er í Bröttubrekku og ótrúlegt að Vegagerðin skuli meta mannslíf svo lítils að láta slíkt á sér hvíla. Vont er þegar þekktir lögfræðing- ar og lærdómsmenn taka frjálsræðið fram yfir öryggi almennings. Ellefta ágúst, daginn eftir að Arnór Péturs- son skrifaði grein í Morgunblaðið og undraðist viðhorf Jóns Steinars Gunniaugssonar í öryggismálum, skrifar lögmaðurinn eins konar svar sem er reiðiþrungið. Meðal annars greinir hann frá lífsskoðun sinni og litist mér hreint ekki á ef hann hefði veruleg áhrif á lagasmíðar Alþingis. Ég hvet menn til að verða sér út um þessa grein en hún heitir: Farsæll leiðarvísir. Afl fyrir Austurlandi sýndi lands- mönnum svo ekki verður um villst, að hjá þeim helgar tilgangurinn meðalið. Ómerkilegum vinnubrögð- um hefur sjaldan verið hampað á svo óskammfeilinn hátt. Forysta virkj- unarsinna leggst svo lágt að fá hóp nytsamra sakleysingja til að gerast félagar í náttúruverndarsamtökum á fölskum forsendum. Gerir fólk sér ljóst hvað menn með slíkan hugsunarhátt væru hættuleg- ir ef þeir kæmust til valda í þjóðfé- laginu? Þeir myndu með brögðum múlbinda alla sem ekki væru þeim sammála. Gera það bara á lýðræðis- legan hátt eins og í þessu tilviki. Löglegt en siðlaust. ALBERT JENSEN, fv. bygg- ingameistari, Háaleitisbraut 129, Reykjavík. Hreppurinn hans Eggerts Haukdal Frá Sigurði G. Marinóssyni: ÞAÐ HEFUR verið gaman að fylgj- ast með máli vinar míns, Eggerts Haukdal, fv. þingmanns. Margir góðir menn hafa komið að máli Egg- erts, góðir og gegnir hver á sínu sviði. Einn er þó, sem ekkert hefur verið fjallað um, en það er Guðbjörn Jónsson, núverandi formaður Landsambands íslenskra fiskiskipa- eigenda, LÍF, sem tók málefni Egg- erts í þau umskipti sem raun ber vitni. Vinir Eggerts fóru á fund Guð- björns í júní og báðu hann að fara yf- ir bókhaldslegan þátt málsins. Guð- björn tók bóninni vel og fékk undirritaður það hlutverk að boða Eggert til borgarinnar í júnímánuði sl. Guðbjörn vann verk sitt af stakri prýði og skilaði til Eggerts fullri greinargerð um málið átta dögum síðar. Guðbjörn sýndi og sagði þá strax að hreppurinn skuldaði Egg- erti en ekki Eggert hreppnum. Það að hafa haft sannleika og heiðarleika sem sinn lífsförunaut gerir Eggert að gæðamanni. Sú niðurstaða sem Hæstiréttur komst að gleður vini Eggerts Haukdal mjög, þó að þeir sem þekkja hann hvað best hafi allt- af vitað í hjarta sínu um sakleysi hans og aldrei efast. Hlutur Guð- björns Jónssonar, formanns LÍF, er ekki lítill í málinu, sem og annarra, og ég óska Eggerti Haukdal til ham- ingju með niðurstöðuna. SIGURÐUR G. MARINÓSSON, Selvogsbraut 37, Þorlákshöfn. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.