Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 66
MORGUNBLAÐIÐ
66 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
Dýraglens
Grettir
EG SKAÞ MEG A ÞÖNGONI.
VAfi A£> ÞLEIGJA ÞIMEKI
Ferdinand
Smáfólk
I 5UPP05E THERE ARE TIME5 LOHEN YOU CANNOT
IMA6INE TRYIN6 TO 60 THR0U6H LIFE UUITHOUT ME„
9/25/00
Ég geri ráð fyrir að stundum getir þú ekki hugsað þér
lífið án mín..
Á hinn bóginn. Hvað er að því að lifa bara lífinu?
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Gott o g illt á
víð og dreif
Frá Alberti Jenserr.
ÞJÓÐFÉLAG okkar er þrátt fyrir
smæðina stórt í sniðum og býður
ótrúlega fjölskrúðugt lífsmynstur í
leik og starfi. Þar bera hátt fjöl-
margar söngskemmtanir, alskonar
list- og leiksýningar. Arlegii- hljóm-
leikar í Skálholti eru þakkarverð
sumargjöf góðs tónlistarfólks um
leið og notið er hins merka staðar.
Sinfóníuhljómsveit íslands, ótrúlega
margir frábærir óperu- og dægur-
lagasöngarar og leikarar. Mögnuð
kóramenning, gróska í lagasmíðum,
íslenski dansflokkurinn, fjöldi frá-
bærra kvikmyndahúsa og veitinga-
staða og stórkostlegar uppfærslur
eins og þúsaldarkórinn og raddir
Evrópu svo eitthvað sé nefnt sem er
á háu plani og líklega á heimsmæli-
kvarða. En það er líka boðið upp á að
drepa tímann í stað þess að njóta
hans. í þeim efnum er fjölbreytnin
líka til staðar og á það fólk, sem nýt-
ur þess að sjá umkomulausar útlend-
ar stúlkur reyna að bjarga sér með
því að stríplast utan í rörum, margra
kosta völ. Ég tel mig hvorki betri né
verri þó ég vorkenni þessum stúlk-
um innilega og mér þykir leitt að til
skuli vera Islendingar sem maka
krókinn með þessum hætti. Hug-
myndasnauðir kráeigendur sem
bjástra við að græða á hinum lægri
hvötum eru óvinir góðra gilda og
þeirra betri maður fer í felur af
skömm. Aukist hefur að huglaus ill-
menni á ýmsum aldri hópi sig saman
til að fá útrás á óeðli sínu og lágkúru
og berji fólk til óbóta. Ekki er illskan
minni hjá eiturlyfjasölunum sem frá
mínum bæjardyrum séð eru ekkert
annað en ógnvekjandi skemmdar-
vargar og morðingjar sem laumast
um og byrla börnum og unglingum
eitur. Og hætturnar eru víðar því á
vegakerfi landsmanna er of mikið af
ökuníðingum eða fólki sem skortir
reynslu og ábyrgðartilfinningu. All-
ir, líka þeir sem keyra með gætni og
tillitssemi, mega þakka fyrir hvern
dag sem þeir koma heilir heim því
það er lífshættulegt að fara út á göt-
urnar. Karlmenn fá bílpróf of ungir
ef miðað er við að oflátungsháttur
þeirra og skortur á ábyrgð er meiri
en hjá konum því þeir eru lengur að
verða fullorðnir. Líka er kennslu
byrjenda t.d. hvað varðar malarvegi
og ábyrgð mjög ábótavant.
Víða í Dalasýslu hef ég séð ein-
breiða vegi sem eru eins og úthugs-
aðar dauðagildrur sem farendum er
ómögulegt að varast.
Á stórhættulegum vegi í Hvols-
dalnum þrengdi jeppi smábíl út í
skurð, slasaði fólk og hvarf í grjót-
hríð. Virðingarleysi fyrir lífi og
heilsu annan-a er vissulega áhyggju-
efni. Ræsi sem eru mjórri en vegim-
ir eru hrein skömm þeim sem málið
varða og ættu fyrir löngu að vera
horfin. Eitt slíkt er í Bröttubrekku
og ótrúlegt að Vegagerðin skuli meta
mannslíf svo lítils að láta slíkt á sér
hvíla.
Vont er þegar þekktir lögfræðing-
ar og lærdómsmenn taka frjálsræðið
fram yfir öryggi almennings. Ellefta
ágúst, daginn eftir að Arnór Péturs-
son skrifaði grein í Morgunblaðið og
undraðist viðhorf Jóns Steinars
Gunniaugssonar í öryggismálum,
skrifar lögmaðurinn eins konar svar
sem er reiðiþrungið. Meðal annars
greinir hann frá lífsskoðun sinni og
litist mér hreint ekki á ef hann hefði
veruleg áhrif á lagasmíðar Alþingis.
Ég hvet menn til að verða sér út um
þessa grein en hún heitir: Farsæll
leiðarvísir.
Afl fyrir Austurlandi sýndi lands-
mönnum svo ekki verður um villst,
að hjá þeim helgar tilgangurinn
meðalið. Ómerkilegum vinnubrögð-
um hefur sjaldan verið hampað á svo
óskammfeilinn hátt. Forysta virkj-
unarsinna leggst svo lágt að fá hóp
nytsamra sakleysingja til að gerast
félagar í náttúruverndarsamtökum á
fölskum forsendum.
Gerir fólk sér ljóst hvað menn með
slíkan hugsunarhátt væru hættuleg-
ir ef þeir kæmust til valda í þjóðfé-
laginu? Þeir myndu með brögðum
múlbinda alla sem ekki væru þeim
sammála. Gera það bara á lýðræðis-
legan hátt eins og í þessu tilviki.
Löglegt en siðlaust.
ALBERT JENSEN, fv. bygg-
ingameistari, Háaleitisbraut 129,
Reykjavík.
Hreppurinn hans
Eggerts Haukdal
Frá Sigurði G. Marinóssyni:
ÞAÐ HEFUR verið gaman að fylgj-
ast með máli vinar míns, Eggerts
Haukdal, fv. þingmanns. Margir
góðir menn hafa komið að máli Egg-
erts, góðir og gegnir hver á sínu
sviði. Einn er þó, sem ekkert hefur
verið fjallað um, en það er Guðbjörn
Jónsson, núverandi formaður
Landsambands íslenskra fiskiskipa-
eigenda, LÍF, sem tók málefni Egg-
erts í þau umskipti sem raun ber
vitni. Vinir Eggerts fóru á fund Guð-
björns í júní og báðu hann að fara yf-
ir bókhaldslegan þátt málsins. Guð-
björn tók bóninni vel og fékk
undirritaður það hlutverk að boða
Eggert til borgarinnar í júnímánuði
sl. Guðbjörn vann verk sitt af stakri
prýði og skilaði til Eggerts fullri
greinargerð um málið átta dögum
síðar. Guðbjörn sýndi og sagði þá
strax að hreppurinn skuldaði Egg-
erti en ekki Eggert hreppnum. Það
að hafa haft sannleika og heiðarleika
sem sinn lífsförunaut gerir Eggert
að gæðamanni. Sú niðurstaða sem
Hæstiréttur komst að gleður vini
Eggerts Haukdal mjög, þó að þeir
sem þekkja hann hvað best hafi allt-
af vitað í hjarta sínu um sakleysi
hans og aldrei efast. Hlutur Guð-
björns Jónssonar, formanns LÍF, er
ekki lítill í málinu, sem og annarra,
og ég óska Eggerti Haukdal til ham-
ingju með niðurstöðuna.
SIGURÐUR G. MARINÓSSON,
Selvogsbraut 37, Þorlákshöfn.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.