Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 67

Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 67 BRÉF TIL BLAÐSINS Fólk í fyrirrúmi Frá Gunnari Vigfússyni: FINNUR Ingólfsson var banka- og iðnaðarráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Sem bankamálaráð- heiTa skipaði hann sjálfan sig seðla- bankastjóra á miðju kjörtímabili. Hann hafði alveg brennandi áhuga á því að Norðmenn reistu hér risaálbræðsluverksmiðju, sagði að það væri svo gott fyrir þjóðina. Val- gerður Sverrisdóttir var gerð að iðn- aðarráðherra og þar með yfirmanni Finns. Hún hefur tekið í arf mikinn áhuga á norsku álbræðslunni. Eitt- hvert hik er hjá Norsurum á að Norsk Hydro félii mikið í áliti hjá nýja ráðherranum, sagði hún frá þessu á opinberum vettvangi. Ekki hafa komið fréttir um það að hluta- bréf í Norsk Hydro hafi fallið í verði við þessi ummæli ráðherrans sem betur fer. Það er nú varla að verkamenn sem væntanlega munu vinna í draumaverksmiðju Framsóknar séu það fólk í fyrirrúmi sem flokkurinn meinar, einhver var að stinga upp á því að það væru bankastjórastöð- urnar sem þeir komu sér í og fleiri feitar stöður. Norðmenn hafa áhyggjur af því hvort við ætlum okk- ur ekki að byggja upp íslenskan iðn- að, sem vonlegt er. Það yrði farsælla fyrir íslensku þjóðina til lengri tíma litið, heldur en að vera eins og rek- ald á vegi þjóðanna, og láta okkur fi-amleiða hráefni sem flutt er út til iðnaðarþjóðanna og láta útlendinga sjá um atvinnuvegina. Eg ráðlegg fólki að kynna sér sögu Rómönsku- Ameríku, þá sér það að það hefur ekki verið mjög gæfulegt að láta út- lendinga sjá um atvinnuvegina. Þeir ætla ekki að gera það enda- sleppt framsóknarráðherrarnir. Nú boðar fonnaður flokksins að hann vilji láta útlendinga eiga með okkur sjávarútveginn og væntanlega tog- ara og stórvirk fískiskip, til að hjálpa okkur á okkar fullkomnu togurum að skafa og slétta botninn á miðun- um kringum Island Nú er þorsk- aflinn 200 þúsund tonn sem íslenskir sjómenn mega veiða á ári og hætt er við að það fari minnkandi á meðan slíkur fjöldi af togurum er á veiðum kringum ísland, að maður tali nú ekki um ef þeim fer fjölgandi. Þá fer aflinn minnkandi án alls efa það væri fljótt að segja til sín ef togurum væri fækkað og línuveiðar teknar upp í staðinn. Þá kæmist afli upp í 500 þúsund tonn sem óhætt væri að veiða á ári. Mikið stóð sú barátta lengi yfir að koma Bretum og öðrum útlending- um út fyrir 200 sjómílna landhelgis- línu. Tímakorn er síðan Hannes Haf- stein, þá sýslumaður á ísafirði, átti í höggi við breska landhelgisbrjóta inni á Dýrafirði, þar var Hannes nærri drukknaður og varð þar manntjón og Islendingar drukkn- uðu. Þessi barátta okkar Islendinga stóð í áratugi og lögðu sjómenn á varðskipunum sig oft á tíðum í lífs- hættu, þeir sem voru á varðskipun- um þá. Það má aldrei gerast að ís- lendingar sleppi eignarhaldi á auðlindinni þótt einhverjir pólitískir, vonandi einnota ráðherrar væru til í það. Það var heppni að Sjálfstæðis- flokkur skyldi halda veigamestu ráð- herraembættunum, svo sem forsæt- is-, fjármála- og sjávarútvegsráðu- neytinu. Hann Halldór Ásgrímsson hefur varla átt nógu sterk orð um það hvað samstarfið með Sjálfstæð- isflokknum hafi verið ánægjulegt og að hann vilji halda því áfram næsta kjörtímabil. Auðvitað væri þó best fyrir hann að sækja um inngöngu í Sjálfstæðisflokkinn með allt sitt lið, það yrði ábyggilega vel tekið á móti fólkinu og því búið pláss hægra meg- in, með því gæti hann haldið fullri reisn - heldur en að bíða næstu kosninga og þola auðmýkjandi fylg- istap. Þetta hafa fleiri flokkar gert, t.d. Borgaraflokkurinn. Eg set nú þessar hugleiðingar á blað vegna þess að mér er ekki sama hvernig farið er með auðlindir þjóð- arinnar á landi og í sjó, vegna kom- andi kynslóða. GUNNAR VIGFÚSSON, Grettisgötu 80, Reykjavík. Hugleiðing um kjör aldraðra Frá Kristlciíi Porsteinssyni: ÞAÐ ER áberandi í umræðum um kjör aldraðra hversu hógværir þeir eru í kröfum sínum. Jafnframt er það eftirtektavert hvernig stjórn- endur landsins, alþingismenn, líta á aldraða sem hóp gustukafólks sem hefur ekki samnigsrétt um kjör sín.Við öll, gamlir og ungir, þurfum að gera okkur grein fyrir því að það sem hið vinnandi fólk er með á milli handanna núna er það sem við hin eldri bjuggum í hendur þess á liðinni tíð. Og það sem vinnandi fólkið er að gera er grundvöllur fyrir ævistarf barnanna sem eiga eftir að taka við af þeim. Öll benimst við sömu leið- i_na frá æsku til elli og erum þegnar Islands. Það er ríkjandi hugsunar- háttur að á meðan vinnugetualdur- inn stendur yfir eigi að taka frá fjár- muni til efri áranna.Það hefur verið framkvæmt á þann hátt að af laun- um fólks er tekið og sett í svonefnda lífeyrissjóði. Þar að auki er öllum frjálst að leggja íýrir það sem hver vill til brúkunar á efri árunum. Svona á þetta ekki að vera. Vinn- andi fólk á að nota öll sín laun til að hlúa að sér og sínum en fá að loknum starfsaldri nægileg laun til að lifa af. Eftirlaunafólk á að semja um þessi laun við stjórnendur landsins og miða þau við þarfir sínar og greiðslugetu ríkissjóðs sem á að gera sér það að skyldu að hafa til- tækan nægan tekjustofn til þess að greiða öllum mannsæmandi laun. I því sambandi má nefna t.d. auð- lindaskatt, erfðafjárskatt, skatt af munaðarvöru o.fl. Þegar stjórnendur fá þroska til eiga börnin að koma inn á þetta launakerfi hjá þeim. KRISTLEIFUR ÞORSTEINSSON frá Húsafelli. NÝ SENDING af gullfallegum minnkapelsum stuttir og síðir Vinsælu /( )J minkahárböndin komin \~y£ / J AKOBS-PELSAR Garðatorgi 7 - sími 544 8880 Opið þriðjud.-föstud. frá kl. 14.00-18.00. Lau.frá kl. 10.30-14.00 KULDASKÓRNIR KOMNIR FYRIR VETURINN! nm>\ Bláir/rauðir, st. 21-27 Svartir/bláir, st. 23-35 Grænir/rauðir/svartir/bláir st. 21-39 Svartir st. 25-39 568 6062 S I 2.000 Fasteignir á Netinu mbUs HLAUPTU - STÖKKTU - HJÓLAÐU - FVRSTIR KOMA FVRSTIR FÁ.. ÞVOTTAVÉLAR ÞURRKARAR OFNAR HELLUBORÐ ÍSSKÁPAR UPPÞVOTTAVÉLAR ELDAVÉLAR GUFUGLEYPIR ATH. TAKMARKAÐ MAGN É á íslandi EXPERT er stærsta heimilis-og raftækjaverslunarkeðja í heiminum - ekki aðeins á Norðurlöndum. RflFTfEKJflWLUN ÍSLRMDS H -ANNO 1929- Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.