Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 72
72 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„ÉG ÆTLA að breyta gallerunu í
hof, alvöru Madonnu-hof. Eg þek alla
veggina með veggmynda- og úr-
klippu safninu mínu sem er ótrúlega^
víðfeðmt.
Hetjudýrkun
Ég klippti út úr blöðum allar þær
myndir sem ég komst yfir af Ma-
donnu alveg frá því að hún byrjaði að
koma fram á sjónarsviðið, svona í
kringum 1983, og þangað til ég komst
á gelgjuna um 1993 en þá hætti ég því
þótti þetta ekki vera töff lengur.
Það voru flestallir sem söfnuðu ein-
hverju á þessum tíma, glansmyndum,
servíettum eða einhveiju svoleiðis en
ég gat safnað átrúnaðargoðinu mínu
og það var stór plús. Ég leitaði allra
leiða til að verða mér úti um myndir
af goðinu, skipti t.d. í gegnum Æsk-
una og við vini og kunningja og fékk
jafnvel lánaðar og ljósritaði þær
myndir sem ég gat ekki eignast.
Ég ætla að fylla galleríið af vegg-
myndum. Svo verður líka hálfgert
altari í horninu og á því verður biblía
'áðdáendanna, ævisaga Madonnu. Þar
tek ég líka flottustu myndina út úr og
set hana fyrir ofan altarið og eins og í
alvöruhofi mun hún eflaust tala til að-
dáendanna. Ég verð líka með nokkur
myndbönd með henni svo fólk geti
líka virt hana fyrir sér „að verki“. Síð-
an verður náttúrlega líka tónlist en
það er hún sem heldur þessu öllu
saman. Fyrir mig er þetta draumur
sem er í fyrsta sinn að verða að veru-
leika því það var alltaf draumur minn
þegar ég var unglingur að herbergið
mitt væri algjörlega helgað Madonnu
og núna er það loksins að rætast.
Þegar ég var að grafa safnið upp úr
kjallaranum gat ég ekki verið annað
en stolt því það er svo ótrúlega stórt
og svo mikill hluti af mér. Þetta var
og er algjör hetjudýrkun.
Það reddast allt
Hrund segist samt aldrei hafa farið
út í það að klæða sig eins og Madonna
þótt margar stelpur hafi gert það á
þessum tíma. „Ég upplifði til dæmis
alltaf að hún væri að syngja tfl mín í
lögunum því mér leið nákvæmleg
eins og hún var að lýsa í textunum,"
viðurkennir Hrand. „Textamir vora
allir svipaðir, allir um að þetta væri
allt í lagi og myndi reddast að lokum.
Því má eiginlega segja að fyrir mér
hafi Madonna verið svona hálfgerður
sálfræðingur. Hún hafði líka réttu
framkomuna, gaf skít í reglur og
predikaði að það væri töff að vera
stelpa, sem var eitthvað sem allar
unglingsstelpur þurfa að heyra.
Svona dýrkun getur Iíka farið út í öfg-
ar og er náttúrlega þegar maður lítur
Morgunblaðið/Ásdís
Hrund Jóhannesdóttir, Ma-
donnu-aðdáandi númer eitt, inni
f hofinu á Skólavörðustíg 22.
til baka hjá sjálfum sér alveg stór-
furðulegt fyrirbæri. Það að geta
dýrkað einhveija lifandi manneskju
svona mikið er alveg ótrúlegt. Þær
öfgar sem maður þekkfl- hvað best
era til dæmis þegar fólk er að taka
þátt í samkeppni um það hver er lík-
ust Marflyn Monroe og þegar fólk fer
að helga líf sitt annarri manneskju
eins og t.d. Elvis Presley. Annars
finnst mér allt í lagi að dýrka á meðan
fólk er ekki skaða sjálft sig eða aðra
með því t.d. að fara í lýtaaðgerðir eða
Madonna eins og hún var þegar Hrund þótti hún ennþá töff.
að þessi dýrkun verður að einhvers
konar áráttu."
Sýningin verður opnuð á föstudag-
inn kl. 20 og þá verður heljarinnar
stuð og tónlistin hennar Madonnu
spiluð á fullu og boðið upp á þann
drykk sem henni finnst bestur sam-
kvæmt ævisögunni. Sýningin verður
síðan opin alla helgina frá 14 til 18.
Allir aðdáendur era velkomnir og líka
þeir sem era forvitnir og vilja kynn-
ast þessum trúai’brögðum betur.
Draumur verður að veruleika
Madonna var minn
sálfræðingur
Madonnu-aðdáendur eiga vísan samastað í Galleríi Nema hvað?,
Skólavörðustíg 22, nú um helgina því Hrund Jóhannesdóttir opnar
þar tilbeiðsluhof til dýrðar einu mesta átrúnarðargoði sínu,
i-----------------------------------
Madonnu. Unnar Jónasson hitti hana í hofínu og hún sagði honum
frá gyðjunni í lífi sínu.
MorguBblaðið/Unnar Jónasson
Haraldur útskýrir fyrir áhorfendum tæknilegu hlið-
ina á gjörningnum.
Bjarni, eða Kokkur Kyrjan Kvæsir eins og hann vill
láta kalla sig þegar hann fer í gjörningahaminn,
sýnir hvað í honum býr.
Sjónarspil
um tungumál
MIKLIR galdrar fóru fnun síðastliðinn
sunnudag í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsinu við Tryggvagötu. Þar var flutt dag-
skráin IVCP og er hluti af Café 9 sem er al-
þjóðleg samvinna menningarborganna 9.
Það voru þijár þeirra sem að stóðu að þess-
ari dagskrá en þetta verkefni er skipulagt
og stjórnað af Haraldi Karlssyni í Reykja-
vík, Juhany Raitanen í Helsinki og Guy van
Belle í Brussel, auk aðstoðarmanna. Það
voru heimatilbúin hljóðfæri í Reykjavík,
Helsinki og Brussel sem voru notuð núna á
sunnudaginn til að móta og bjaga myndir
og hljóð og til þess voru notaðir mjög öflug-
mynd- og hljóðgerflar. í Reykjavík var
það sjónlistaþingmaðurinn Bjarni Þórarins-
son sem flutti gjöming þar sem hann kyij-
aði og fór með vísur á sfnu eigin tunguináli.
Hann stýrði öllu sjónarspilinu með hreyf-
ingum sínum en hann stóð á þrýstinæmri
plötu og allt í kringum hann voru Ijósnæm-
ar kanónur sem skynjuðu hreyfingar hans.
Ollu þessu var svo varpað upp á vegg og
-** Jar gátu áhorfendur notið sjónarspilsins.
Bjarni sljórnar myndinni fyrir aftan sig með þyngd sinni á pallin-
um sem hann stendur á og eins með handahreyfingum.
Listamennirnir.
Morgunblaðið/Ásdís
BÚÐARGLUGGI
í GLUGGUM íslandsbanka í
Bankastræti stendur nú yfir sýn-
ing á innsetningunni Búðargluggi.
Höfundar era myndlistarmenn-
irnir Libia Pérez de Siles de
Castro og Ólafur Árni Ólafsson.
Sýningarrýmið er á vegum
Sævars Karls. Sýningin hófs 30.
september og stendur fram til 20.
október. Hún er opin alla daga,
allan sólarhringinn.
List í búðarglugga.