Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 72
72 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM „ÉG ÆTLA að breyta gallerunu í hof, alvöru Madonnu-hof. Eg þek alla veggina með veggmynda- og úr- klippu safninu mínu sem er ótrúlega^ víðfeðmt. Hetjudýrkun Ég klippti út úr blöðum allar þær myndir sem ég komst yfir af Ma- donnu alveg frá því að hún byrjaði að koma fram á sjónarsviðið, svona í kringum 1983, og þangað til ég komst á gelgjuna um 1993 en þá hætti ég því þótti þetta ekki vera töff lengur. Það voru flestallir sem söfnuðu ein- hverju á þessum tíma, glansmyndum, servíettum eða einhveiju svoleiðis en ég gat safnað átrúnaðargoðinu mínu og það var stór plús. Ég leitaði allra leiða til að verða mér úti um myndir af goðinu, skipti t.d. í gegnum Æsk- una og við vini og kunningja og fékk jafnvel lánaðar og ljósritaði þær myndir sem ég gat ekki eignast. Ég ætla að fylla galleríið af vegg- myndum. Svo verður líka hálfgert altari í horninu og á því verður biblía 'áðdáendanna, ævisaga Madonnu. Þar tek ég líka flottustu myndina út úr og set hana fyrir ofan altarið og eins og í alvöruhofi mun hún eflaust tala til að- dáendanna. Ég verð líka með nokkur myndbönd með henni svo fólk geti líka virt hana fyrir sér „að verki“. Síð- an verður náttúrlega líka tónlist en það er hún sem heldur þessu öllu saman. Fyrir mig er þetta draumur sem er í fyrsta sinn að verða að veru- leika því það var alltaf draumur minn þegar ég var unglingur að herbergið mitt væri algjörlega helgað Madonnu og núna er það loksins að rætast. Þegar ég var að grafa safnið upp úr kjallaranum gat ég ekki verið annað en stolt því það er svo ótrúlega stórt og svo mikill hluti af mér. Þetta var og er algjör hetjudýrkun. Það reddast allt Hrund segist samt aldrei hafa farið út í það að klæða sig eins og Madonna þótt margar stelpur hafi gert það á þessum tíma. „Ég upplifði til dæmis alltaf að hún væri að syngja tfl mín í lögunum því mér leið nákvæmleg eins og hún var að lýsa í textunum," viðurkennir Hrand. „Textamir vora allir svipaðir, allir um að þetta væri allt í lagi og myndi reddast að lokum. Því má eiginlega segja að fyrir mér hafi Madonna verið svona hálfgerður sálfræðingur. Hún hafði líka réttu framkomuna, gaf skít í reglur og predikaði að það væri töff að vera stelpa, sem var eitthvað sem allar unglingsstelpur þurfa að heyra. Svona dýrkun getur Iíka farið út í öfg- ar og er náttúrlega þegar maður lítur Morgunblaðið/Ásdís Hrund Jóhannesdóttir, Ma- donnu-aðdáandi númer eitt, inni f hofinu á Skólavörðustíg 22. til baka hjá sjálfum sér alveg stór- furðulegt fyrirbæri. Það að geta dýrkað einhveija lifandi manneskju svona mikið er alveg ótrúlegt. Þær öfgar sem maður þekkfl- hvað best era til dæmis þegar fólk er að taka þátt í samkeppni um það hver er lík- ust Marflyn Monroe og þegar fólk fer að helga líf sitt annarri manneskju eins og t.d. Elvis Presley. Annars finnst mér allt í lagi að dýrka á meðan fólk er ekki skaða sjálft sig eða aðra með því t.d. að fara í lýtaaðgerðir eða Madonna eins og hún var þegar Hrund þótti hún ennþá töff. að þessi dýrkun verður að einhvers konar áráttu." Sýningin verður opnuð á föstudag- inn kl. 20 og þá verður heljarinnar stuð og tónlistin hennar Madonnu spiluð á fullu og boðið upp á þann drykk sem henni finnst bestur sam- kvæmt ævisögunni. Sýningin verður síðan opin alla helgina frá 14 til 18. Allir aðdáendur era velkomnir og líka þeir sem era forvitnir og vilja kynn- ast þessum trúai’brögðum betur. Draumur verður að veruleika Madonna var minn sálfræðingur Madonnu-aðdáendur eiga vísan samastað í Galleríi Nema hvað?, Skólavörðustíg 22, nú um helgina því Hrund Jóhannesdóttir opnar þar tilbeiðsluhof til dýrðar einu mesta átrúnarðargoði sínu, i----------------------------------- Madonnu. Unnar Jónasson hitti hana í hofínu og hún sagði honum frá gyðjunni í lífi sínu. MorguBblaðið/Unnar Jónasson Haraldur útskýrir fyrir áhorfendum tæknilegu hlið- ina á gjörningnum. Bjarni, eða Kokkur Kyrjan Kvæsir eins og hann vill láta kalla sig þegar hann fer í gjörningahaminn, sýnir hvað í honum býr. Sjónarspil um tungumál MIKLIR galdrar fóru fnun síðastliðinn sunnudag í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar- húsinu við Tryggvagötu. Þar var flutt dag- skráin IVCP og er hluti af Café 9 sem er al- þjóðleg samvinna menningarborganna 9. Það voru þijár þeirra sem að stóðu að þess- ari dagskrá en þetta verkefni er skipulagt og stjórnað af Haraldi Karlssyni í Reykja- vík, Juhany Raitanen í Helsinki og Guy van Belle í Brussel, auk aðstoðarmanna. Það voru heimatilbúin hljóðfæri í Reykjavík, Helsinki og Brussel sem voru notuð núna á sunnudaginn til að móta og bjaga myndir og hljóð og til þess voru notaðir mjög öflug- mynd- og hljóðgerflar. í Reykjavík var það sjónlistaþingmaðurinn Bjarni Þórarins- son sem flutti gjöming þar sem hann kyij- aði og fór með vísur á sfnu eigin tunguináli. Hann stýrði öllu sjónarspilinu með hreyf- ingum sínum en hann stóð á þrýstinæmri plötu og allt í kringum hann voru Ijósnæm- ar kanónur sem skynjuðu hreyfingar hans. Ollu þessu var svo varpað upp á vegg og -** Jar gátu áhorfendur notið sjónarspilsins. Bjarni sljórnar myndinni fyrir aftan sig með þyngd sinni á pallin- um sem hann stendur á og eins með handahreyfingum. Listamennirnir. Morgunblaðið/Ásdís BÚÐARGLUGGI í GLUGGUM íslandsbanka í Bankastræti stendur nú yfir sýn- ing á innsetningunni Búðargluggi. Höfundar era myndlistarmenn- irnir Libia Pérez de Siles de Castro og Ólafur Árni Ólafsson. Sýningarrýmið er á vegum Sævars Karls. Sýningin hófs 30. september og stendur fram til 20. október. Hún er opin alla daga, allan sólarhringinn. List í búðarglugga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.