Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 80

Morgunblaðið - 12.10.2000, Page 80
BEAUTY Komin út á sölumynd- bandi! Traust, íslenska Siðan 1972 Leitið tilboða! murvorur l ii steinpi MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJfwMBLJS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Morgunblaðið/RAX Sigurmarkinu fagnað. Sigur vannst á * N-Irum ÍSLENSKA landsliðið í knatt- spyrnu sigraði lið Norður-íra á Laugardalsvelli í gærkvöld með einu marki gegn engu. Þórður Guðjónsson skoraði markið á 90. ’mínútu. Landsleikurinn er liður í undan- keppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Island fékk sín fyrstu stig í leiknum og er nú í flmmta sæti riðilsins, skammt á eftir þeim þjóðum sem þar eru fyrir ofan. ■ Sigur Íslands/Bl-B8 Kaupás hf. kaupir Hús- gagnahöllina KAUPÁS hf. og eigendur Húsgagna- hallarinnar, Intersport og fasteign- arinnar Bíldshöfða 20 hafa samið um kaup Kaupáss á öllum rekstri og hús- eign íyrrgreindra félaga. Húsið er eitt af þremur stærstu verslunarhúsum á Islandi, alls um 15.000 fermetrar. Hyggst Kaupás, sem rekur verslunarkeðjurnar Nóa- tún, 11-11, KA-verslanir og Kosta- kaup, opna þar blandaðan stórmark- að með matvöru og sérvöru auk þess að reka þær verslanir sem þar eru fyrir. Einnig verða opnaðir veitinga- staðir í húsinu. *■' Afhending eignanna verður um næstu áramót. Núverandi eigendur Húsgagnahallarinnar munu eignast hlut í Kaupási. ■ Nýr/4 Fjölskyldan á Bijánslæk stækkaði til muna þegar þríburar komu í heiminn Tylla ekki tánum á j ör ðina FJÖLSKYLDA Halldóru Ragnars- dóttur og Jóhanns Péturs Agústs- sonar, bænda á Brjánslæk á Barða- strönd, stækkaði til muna á þriðjudag þegar þríburamir þeirra, tveir drengir og stúlka, komu í heim- inn. Meðgangan gekk að sögn Hall- dóru mjög vel og var hún fótafær all- an tímann „og hefði getað labbað sjálf inn á fæðingarstofu þess vegna“. Halldóra og Jóhann Pétur vissu fyrst af fjölda bamanna í sónarskoð- un eftir nítján vikna meðgöngu og sagði Halldóra að fréttimar hefðu komið svo flatt upp á þau að einu við- brögðin hefðu verið óstöðvandi hlát- ur. Tilhugsunin um bömin þrjú hefði svo haldið áfram að vera óraunveru- leg „og það er fyrst nú að við trúum þessu“. Eins og títt er um fjölbura- mæður dvaldi hún síðari hluta með- göngunnar á fæðingardeild Land- spítala - háskólasjúkrahúss. Eftir tæplega 36 vikna meðgöngu ákváðu bömin svo að tími væri til kominn að kveðja móðurkvið og líta á veröld- ina, svo að morgni dags á þriðjudag komu þau eitt af öðru með mínútu millibili, fyrst strákur, þá stelpa og svo aftur strákur. Systkinin hafa ekki fengið nöfn enn og ganga undir nöfnunum Jóhannsson a), Jóhanns- dóttir b) og Jóhannsson c) á vöggu- deildinni, foreldramir munu þó bæta úr þessu bráðlega. Sá elsti þríburanna vó 2144 g við fæðingu og mældist 44 cm á lengd, stúlkan 2600 g og 47 cm og sá yngsti er stærstur bamanna, 49 cm og er jafnþungur systur sinni. Móður og börnum heilsastvel. Fjölburafæðingin er sérstök að því leyti að foreldrarnir nutu engrar aðstoðar frjósemislyfja nema ef vera skyldi frá „heilnæmu sveitaloftinu" sagði Halldóra í samtali við Morgun- blaðið. Tímasetning fæðingarinnar var líka einkar hagkvæm því þar sem hjónin eru fjárbændur þurfti Jóhann Pétur að klára smölun fyrir vestan í tæka tíð fyrir bamsburðinn, sem svo gekk eftir. Samkvæmt töl- um Hagstofu íslands frá 7. janúar þessa árs vora 9 böm á aldrinum 0-5 ára í stijálbýli Patreksfjarðar, svo þessi eina þríburafæðing hækkar þá tölu um 25%. Hjónin á Bijánslæk leggja því sitt af mörkum við að draga úr fólksfækkuninni í heima- byggðinni. Litlu krílin þijú eiga tvo eldri bræður, Markús Inga, 10 ára, og Ágúst Vilberg, tveggja ára, sem að sögn Halldóru „tylla ekki tánum á jörðina fyrir hamingju frekar en pabbi þeirra og við hin“. Þess má geta að í sveitum Barðastrandar var víða fáni dreginn að húni til að fagna fæðingu systkinanna. Morgunblaðið/Kristinn Stolt móðir með þríburana sína í fanginu. Þríburafæðingar fátíðar FJOLBURAFÆÐINGUM hefur að sögn Atla Dagbjartssonar, vöggudeildarlæknis á Landspít- ala - háskólasjúkrahúsi, fækkað nokkuð á undanförnum árum aft- ur, eftir mikla fjölgun, vegna aukins árangurs sem náðst hefur með glasafrjóvgunum. Af þeim 40-50 fjölburafæðing- um sem eiga sér stað árlega á Is- landi eru tvíburafæðingar al- gengastar og sagði Atli I samtali við Morgunblaðið að þríburafæð- ingar væru afar fátíðar og þá sérstaklega þegar engra frjósem- islyfja nyti við. Þóra Fischer, fæðingarlæknir á Landspítalan- um - háskólasjúkrahúsi, tók und- ir orð Atla og sagði að líkurnar á tvíburafæðingu væru um ein á móti áttatíu en líkurnar á þrí- burafæðingu mun minni þar sem þær gerast ekki nema á þriggja til fjögurra ára fresti, þríburafæðing væri því vissu- lega sérstök en alls ekki ein- stök. Foreldrar fjölbura halda úti blómlegum félagsskap og gefur stjórn Tvíburafélagsins m.a. út fréttablað og býður upp á dag- skrá árið um kring og eru allir fjölburar velkomnir í félagið. Forsvarsmenn Norðuráls vil]a stækka álverið á Grundartanga um 150 þúsund tonn Myndi þýða fímmföldun á núverandi framleiðslugetu FORSVARSMENN Norðuráls hf. hafa farið þess bréflega á leit við ís- lensk stjórnvöld að hafnar verði við- ræður um þriðja áfanga álverk- smiðjunnar á Grandartanga, en nú stendur yfir vinna við annan áfanga verksmiðjunnar. Verði af áætlunum Norðuráls þýðir það fimmföldun á núverandi framleiðslugetu fyrirtæk- isins og risavaxið álver með allt að 300 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Morgunblaðið fékk þetta staðfest hjá öllum aðilum málsins í gær, en gert er ráð fyrir að slík stækkun skapi 250-350 ný störf og hið minnsta 500 manns taki þátt í bygg- ingarfr amkvæmdum. Framkvæmdir standa nú yfir við stækkun álverksmiðjunnar á Grand- artanga og verður framleiðslugeta þess 90 þúsund tonn á ári eftir breytinguna, en gert er ráð fyrir að starfsemi í stækkuðu álveri geti haf- ist af fullum krafti næsta vor. Áhugi forsvarsmanna Norðuráls á umtalsverðri stækkun álversins hef- ur legið fyrir í nokkurn tíma og í febrúarmánuði 1996 samþykkti skipulagsstjóri ríkisins mat á um- hverfisáhrifum 180 þúsund tonna ál- vers. Þriðji byggingaráfangi hefur gert ráð fyrir að ráðist verði í bygg- ingu 90 þúsund tonna kerskála við hlið þess sem fyrir er. Forsvars- menn Norðuráls hafa hins vegar í hyggju að ráðast strax í byggingu 150 þúsund tonna stækkunar, þann- ig að heildarstærð álversins verði 240 þúsund tonn. Með nýrri tækni, þar á meðal betri nýtingu á keijum, era síðan áform uppi um að ná fram- leiðsluaukningu til viðbótar upp á 60 þúsund tonn svo að heildarfram- leiðslugetan verði 300 þúsund tonn. Þyrfti að fara í umhverfísmat Þar sem leyfi skipulagsstjóra hljóðar „aðeins“ upp á 180 þúsund tonn er hins vegar Ijóst að 150 þús- und tonna stækkun þyrfti að gang- ast undir mat á umhverfisáhrifum. „Borist hefur formleg beiðni um stækkun álversins," sagði Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta- ráðheraa, í gær. „Það kom í sjálfu sér ekki á óvart, enda gáfu Norður- álsmenn þetta í skyn þegar ráðist var í núverandi áfanga. En þetta myndi þýða verulega stækkun, það er óhætt að segja.“ Tómas M. Sig- urðsson, framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs Norðuráls, segir fulla alvöra á bak við stækkunará- form fyrirtækisins. Tómas telur ljóst að svo stór framkvæmd komi sér vel fyrir ís- lenskt efnahagslíf og telur ekki að áform Norðuráls raski fyrirætlun- um Reyðaráls um álver í Reyðar- firði. ■ Á sjötta hundrað/6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.