Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 80
BEAUTY
Komin út á
sölumynd-
bandi!
Traust,
íslenska
Siðan 1972
Leitið tilboða!
murvorur l
ii steinpi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJfwMBLJS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/RAX
Sigurmarkinu fagnað.
Sigur
vannst á
*
N-Irum
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu sigraði lið Norður-íra á
Laugardalsvelli í gærkvöld með
einu marki gegn engu. Þórður
Guðjónsson skoraði markið á 90.
’mínútu.
Landsleikurinn er liður í undan-
keppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu. Island fékk sín fyrstu
stig í leiknum og er nú í flmmta
sæti riðilsins, skammt á eftir þeim
þjóðum sem þar eru fyrir ofan.
■ Sigur Íslands/Bl-B8
Kaupás hf.
kaupir Hús-
gagnahöllina
KAUPÁS hf. og eigendur Húsgagna-
hallarinnar, Intersport og fasteign-
arinnar Bíldshöfða 20 hafa samið um
kaup Kaupáss á öllum rekstri og hús-
eign íyrrgreindra félaga.
Húsið er eitt af þremur stærstu
verslunarhúsum á Islandi, alls um
15.000 fermetrar. Hyggst Kaupás,
sem rekur verslunarkeðjurnar Nóa-
tún, 11-11, KA-verslanir og Kosta-
kaup, opna þar blandaðan stórmark-
að með matvöru og sérvöru auk þess
að reka þær verslanir sem þar eru
fyrir. Einnig verða opnaðir veitinga-
staðir í húsinu.
*■' Afhending eignanna verður um
næstu áramót. Núverandi eigendur
Húsgagnahallarinnar munu eignast
hlut í Kaupási.
■ Nýr/4
Fjölskyldan á Bijánslæk stækkaði til muna þegar þríburar komu í heiminn
Tylla ekki
tánum
á j ör ðina
FJÖLSKYLDA Halldóru Ragnars-
dóttur og Jóhanns Péturs Agústs-
sonar, bænda á Brjánslæk á Barða-
strönd, stækkaði til muna á
þriðjudag þegar þríburamir þeirra,
tveir drengir og stúlka, komu í heim-
inn. Meðgangan gekk að sögn Hall-
dóru mjög vel og var hún fótafær all-
an tímann „og hefði getað labbað
sjálf inn á fæðingarstofu þess
vegna“.
Halldóra og Jóhann Pétur vissu
fyrst af fjölda bamanna í sónarskoð-
un eftir nítján vikna meðgöngu og
sagði Halldóra að fréttimar hefðu
komið svo flatt upp á þau að einu við-
brögðin hefðu verið óstöðvandi hlát-
ur. Tilhugsunin um bömin þrjú hefði
svo haldið áfram að vera óraunveru-
leg „og það er fyrst nú að við trúum
þessu“. Eins og títt er um fjölbura-
mæður dvaldi hún síðari hluta með-
göngunnar á fæðingardeild Land-
spítala - háskólasjúkrahúss. Eftir
tæplega 36 vikna meðgöngu ákváðu
bömin svo að tími væri til kominn að
kveðja móðurkvið og líta á veröld-
ina, svo að morgni dags á þriðjudag
komu þau eitt af öðru með mínútu
millibili, fyrst strákur, þá stelpa og
svo aftur strákur. Systkinin hafa
ekki fengið nöfn enn og ganga undir
nöfnunum Jóhannsson a), Jóhanns-
dóttir b) og Jóhannsson c) á vöggu-
deildinni, foreldramir munu þó
bæta úr þessu bráðlega.
Sá elsti þríburanna vó 2144 g við
fæðingu og mældist 44 cm á lengd,
stúlkan 2600 g og 47 cm og sá yngsti
er stærstur bamanna, 49 cm og er
jafnþungur systur sinni. Móður og
börnum heilsastvel.
Fjölburafæðingin er sérstök að
því leyti að foreldrarnir nutu engrar
aðstoðar frjósemislyfja nema ef vera
skyldi frá „heilnæmu sveitaloftinu"
sagði Halldóra í samtali við Morgun-
blaðið. Tímasetning fæðingarinnar
var líka einkar hagkvæm því þar
sem hjónin eru fjárbændur þurfti
Jóhann Pétur að klára smölun fyrir
vestan í tæka tíð fyrir bamsburðinn,
sem svo gekk eftir. Samkvæmt töl-
um Hagstofu íslands frá 7. janúar
þessa árs vora 9 böm á aldrinum 0-5
ára í stijálbýli Patreksfjarðar, svo
þessi eina þríburafæðing hækkar þá
tölu um 25%. Hjónin á Bijánslæk
leggja því sitt af mörkum við að
draga úr fólksfækkuninni í heima-
byggðinni.
Litlu krílin þijú eiga tvo eldri
bræður, Markús Inga, 10 ára, og
Ágúst Vilberg, tveggja ára, sem að
sögn Halldóru „tylla ekki tánum á
jörðina fyrir hamingju frekar en
pabbi þeirra og við hin“. Þess má
geta að í sveitum Barðastrandar var
víða fáni dreginn að húni til að fagna
fæðingu systkinanna.
Morgunblaðið/Kristinn
Stolt móðir með þríburana sína í fanginu.
Þríburafæðingar fátíðar
FJOLBURAFÆÐINGUM hefur
að sögn Atla Dagbjartssonar,
vöggudeildarlæknis á Landspít-
ala - háskólasjúkrahúsi, fækkað
nokkuð á undanförnum árum aft-
ur, eftir mikla fjölgun, vegna
aukins árangurs sem náðst hefur
með glasafrjóvgunum.
Af þeim 40-50 fjölburafæðing-
um sem eiga sér stað árlega á Is-
landi eru tvíburafæðingar al-
gengastar og sagði Atli I samtali
við Morgunblaðið að þríburafæð-
ingar væru afar fátíðar og þá
sérstaklega þegar engra frjósem-
islyfja nyti við. Þóra Fischer,
fæðingarlæknir á Landspítalan-
um - háskólasjúkrahúsi, tók und-
ir orð Atla og sagði að líkurnar á
tvíburafæðingu væru um ein á
móti áttatíu en líkurnar á þrí-
burafæðingu mun minni þar sem
þær gerast ekki nema á
þriggja til fjögurra ára fresti,
þríburafæðing væri því vissu-
lega sérstök en alls ekki ein-
stök.
Foreldrar fjölbura halda úti
blómlegum félagsskap og gefur
stjórn Tvíburafélagsins m.a. út
fréttablað og býður upp á dag-
skrá árið um kring og eru allir
fjölburar velkomnir í félagið.
Forsvarsmenn Norðuráls vil]a stækka álverið á Grundartanga um 150 þúsund tonn
Myndi þýða fímmföldun á
núverandi framleiðslugetu
FORSVARSMENN Norðuráls hf.
hafa farið þess bréflega á leit við ís-
lensk stjórnvöld að hafnar verði við-
ræður um þriðja áfanga álverk-
smiðjunnar á Grandartanga, en nú
stendur yfir vinna við annan áfanga
verksmiðjunnar. Verði af áætlunum
Norðuráls þýðir það fimmföldun á
núverandi framleiðslugetu fyrirtæk-
isins og risavaxið álver með allt að
300 þúsund tonna framleiðslugetu á
ári.
Morgunblaðið fékk þetta staðfest
hjá öllum aðilum málsins í gær, en
gert er ráð fyrir að slík stækkun
skapi 250-350 ný störf og hið
minnsta 500 manns taki þátt í bygg-
ingarfr amkvæmdum.
Framkvæmdir standa nú yfir við
stækkun álverksmiðjunnar á Grand-
artanga og verður framleiðslugeta
þess 90 þúsund tonn á ári eftir
breytinguna, en gert er ráð fyrir að
starfsemi í stækkuðu álveri geti haf-
ist af fullum krafti næsta vor.
Áhugi forsvarsmanna Norðuráls á
umtalsverðri stækkun álversins hef-
ur legið fyrir í nokkurn tíma og í
febrúarmánuði 1996 samþykkti
skipulagsstjóri ríkisins mat á um-
hverfisáhrifum 180 þúsund tonna ál-
vers. Þriðji byggingaráfangi hefur
gert ráð fyrir að ráðist verði í bygg-
ingu 90 þúsund tonna kerskála við
hlið þess sem fyrir er. Forsvars-
menn Norðuráls hafa hins vegar í
hyggju að ráðast strax í byggingu
150 þúsund tonna stækkunar, þann-
ig að heildarstærð álversins verði
240 þúsund tonn. Með nýrri tækni,
þar á meðal betri nýtingu á keijum,
era síðan áform uppi um að ná fram-
leiðsluaukningu til viðbótar upp á 60
þúsund tonn svo að heildarfram-
leiðslugetan verði 300 þúsund tonn.
Þyrfti að fara í umhverfísmat
Þar sem leyfi skipulagsstjóra
hljóðar „aðeins“ upp á 180 þúsund
tonn er hins vegar Ijóst að 150 þús-
und tonna stækkun þyrfti að gang-
ast undir mat á umhverfisáhrifum.
„Borist hefur formleg beiðni um
stækkun álversins," sagði Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðheraa, í gær. „Það kom í sjálfu
sér ekki á óvart, enda gáfu Norður-
álsmenn þetta í skyn þegar ráðist
var í núverandi áfanga. En þetta
myndi þýða verulega stækkun, það
er óhætt að segja.“ Tómas M. Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri tækni-
og umhverfissviðs Norðuráls, segir
fulla alvöra á bak við stækkunará-
form fyrirtækisins.
Tómas telur ljóst að svo stór
framkvæmd komi sér vel fyrir ís-
lenskt efnahagslíf og telur ekki að
áform Norðuráls raski fyrirætlun-
um Reyðaráls um álver í Reyðar-
firði.
■ Á sjötta hundrað/6