Morgunblaðið - 26.10.2000, Page 4

Morgunblaðið - 26.10.2000, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 _______________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Byggðasafn Vestfjarða vill gera við Sædfsi ÍS og varðveita á floti Vilja byggða- kvóta til að gera út safngrip BYGGÐASAFN Vestfjarða á ísa- bátsvdl eins og þá sem uppliaflega firði hefur óskað eftir hlutdeild í var í Sædísi og verður hún sett í bát- byggðakvótanum til þess að gera inn. við og varðveita gamlan bát, Sædísi IS, sem safninu hefur áskotnast. Hyggst safnið varðveita bátinn á floti, gera út og verka aflann í Neð- stakaupstað. Sædís er að mörgu leyti merki- Iegur bátur, að sögn Jóns Sigurpáls- sonar, safnstjóra Byggðasafns Vest- fjarða á Isafirði. Báturinn er úr eik og var smíðaður á ísafirði á árinu 1939 af Bárði G. Tómassyni, fyrsta íslenska skipaverkfræðingnum, sem rak slippinn á fsafirði um árabil. Báturinn er einn af sjö Dísum sem Bárður smiðaði í raðsmíðaverkefni fyrir útgerðarfélagið Njörð á ísa- firði. Sædís hefur varðveist ásamt Bryndísi sem enn er gerð út frá fsa- firði en Jón veit ekki til þess að aðr- ir bátar úr þessu raðsmíðaverkefni séu til. Safnvörðurinn telur að ekki séu eftir margir bátar frá þessum árum. Þá segir hann að Sædís hafi varðveist. án umtalsverðra breyt- inga og eigi enn seglbúnað og megnið af veiðarfærunum sem not- uð hafa verið frá upphafi. Sædís hefur ávallt verið gerð út frá höfnum við ís;ifjarðardjúp. Vil- mundur Reimarsson útgerðarmað- ur í Bolungarvík gaf Byggðasafninu bátinn. Hann var tekinn upp í slipp á síðasta ári og gert við það bráð- nauðsynlegasta. Jón segir að þó nokkuð þurfi að gera við bátinn sé það tiltölulega lítið miðað við aldur hans. Skipta þurfi um stýrishús og vél. Svo vill til að safnið á heillega „Hugur okkar stendur til þess að gera bátinn upp í sinni upprunalegu mynd og varðveita hann á floti,“ segir Jón. Þótt ekki þurfi að ráðast í umfangsmiklar viðgerðir er Ijóst að því fylgir töluverður kostnaður að gera bátinn útgerðarhæfan. Sú hugmynd hefur komið upp að fá hlutdeiid í byggðakvótanum til að fjármagna viðgerð Sædísar og varð- veislu á sjó í sinni upprunalegu mynd og umhverfí. Hefur hug- myndinni verið komið á framfæri en ekki liggur fyrir hveijar undirtektir verða. „Það er nauðsynlegt að finna lausn á þeim vanda sem er að fá fjármagn í jafneðlilegan hlut og að varðveita sögu okkar höfuðatvinnu- vegar," segir Jón Sigurpálsson. Sólþurrka fiskinn í Neðstakaupstað Jón telur mikilvægt að hafa Sædísi á sjó. Þannig varðveitist bát- urinn best. Telur hann unnt að hafa margvísleg not af honum, nefnir kennslu og ferðaþjónustu, meðal annars mannflutning, og veiðar í smáum stíl ef kvóti fæst. Safnið er með aðstöðu til fisk- verkunar við safnhúsið í Ncðsta- kaupstað á Isafirði og hefúr sól- þurrkað um eitt tonn af þorski á sumrin. Er það liður í að sýna ferða- fólki gömul vinnubrögð við fisk- verkun. Segist Jón vel geta hugsað sér að margfalda þann tonnafjölda sem safnið verkar. Morgunblaðið/Helgi Bjamason Sextugu Dísirnar, þær tvær sem eftir eru, liggja nú hlið við hlið í ísa- Ijaröarhöfn. Sædís er nær bryggjunni en áhugi er á að varðveita hana á sjó í sinni upprunalegu mynd. Bryndís er enn gerð út. Fleiri flytja frá höfuð- borgarsvæð- inu en til þess ENN dregur úr búferlaflutningum af landsbyggðinni til höfuðborgar- svæðisins og flutningar þaðan út á land eykst. Þetta kemur fram í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar, þar sem vísað er í tölur frá Hagstofu ís- lands en samkvæmt þeim hafa um 12% fleiri llutt frá höfuðborgar- svæðinu en til þess það sem af er árinu. Fyrst vai'ð vart við þessar breyt- ingar á búferlaflutingum lands- manna á öðrum ársfjórðungi ársins og heldur þróunin áfram á þeim þriðja. Bæði á Suðurnesjum og Vestur- landi eru fleiri aðfluttir en brott- íluttir og á Suðurlandi munar ekki miklu. A Vesturlandi eru það Akra- nes og Borgarnes sem bera uppi niðurstöðutölur landshlutans alls en á Suðurlandi eru Selfoss og Hveragerði með fleiri aðflutta en brottflutta innanlands á meðan fækkar á öðrum stöðum. Fleiri flytjast til landsins en frá því í öllum landshlutum nema Aust- urlandi, þar sem ríkir jafnvægi. ------M-*------- Slökkviliðið kallað tvisvar út SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins var kallað út tvisvar í gærkvöldi, i en í hvorugt skiptið var hætta á ferð- um og tjón óverulegt. Laust fyrir klukkan níu var slökkviliðið kallað að Héraðsdómi Reykjavíkur, þar sem kveikt hafði verið í ruslafötu og rúmum hálftíma síðar var það kallað að deild 12A á Landspítalanum við Hringbraut þar sem ísskápur hafði brunnið yfir. Bdkaútgefendur áformuðu að gefa ekki upp leiðbeinandi verð í Bökatíðindum Btíist við hressileg- um „bókajólum“ Vegna breytinga sem orðið hafa á eignarhaldi bókaforlaga á árinu er jólabóka- vertíðarinnar beðið með eftirvæntingu. Talið er að verðstríðið verði ekki minna en fyrri ár og bókatitlum hefur fjölgað. Útgáfustjóri Iðunnar telur leið- beinandi verð í Bókatíðindum skrípaleik en tekur bátt í leiknum, nauðugur viljugur. Björn Jdhann Björnsson ræddi við nokkra bókaútgefendur. útgefenda á dögunum kom til um- ræðu að gefa ekki lengur upp leið- beinandi verð bóka í Bókatíðindum, sem félagið hefur til langs tíma gefið út fyrir hver jól og koma út í næsta mánuði. Ástæða umræðunn- ar var sú að sumir útgefendur töldu reynslu síðustu ára sýna að lítið væri að marka leiðbeinandi verð sökum mikillar verðsam- keppni. Niðurstaðan varð hins veg- ar sú að flestir bókaútgefendur munu gefa leiðbeinandi verð upp, en að sögn formanns Félags ís- lenskra bókaútgefenda, Sigurðar Svavarssonar, verður enginn skyldaður til þess. Að sögn Jóns Karlssonar, útgáfustjóra Iðunnar, stóð til að gefa ekki upp Jeiðbein- andi verð á bókum forlagsins en hætt hefur nú verið við þau áform. „Við ætluðum að gera þetta þar sem mér finnst þetta orðið skrípa- leikur þegar megnið af bókunum er selt á allt öðru verði en gefið er upp. Almennt er ég hlynntur því að verð komi fram í auglýsingum og annars staðar en ég vildi ekki vera að gefa upp falskt verð til að taka þátt í einhverri afsláttarkeppni. Ég ákvað hins vegar í dag [gær] að birta þetta þar sem allir virðast ætla að gera það,“ sagði Jón þegar blaðið ræddi við hann í gær. Sigurður sagðist í samtali við Morgunblaðið eiga von á hressileg- um bókajólum, ekki síst í ljósi breytinga á eignarhaldi útgáfufyr- irtækja þar sem nýir aðilar þyrftu að sýna sig og sanna á markaðnum. Búist er við fleiri bókartitlum en í fyrra, miðað við að bókakynningar í Bókatíðindum eru komnar yfir 500 en voru um 460 í fyrra. Að sögn Sigurðar helst verð á bókum svipað og í fyrra. Þeir bókaútgendur sem Morgunblaðið ræddi við töldu að verðstríð á bókamarkaðnum yrði ekki minna en verið hefur. Fátt benti þó til að það yrði eitthvað meira í ár en fyrri jól. Frá síðustu jólum hafa hræring- ar einmitt átt sér stað innan raða bókaútgefenda. Bókaútgáfan Iðunn sameinaðist Fróða, Mál og menn- ing og Vaka-Helgafell sameinuðust undir merkjum útgáfufyrirtækisins Eddu, Jóhann Páll Valdimarsson frá Forlaginu stofnaði JPV-forlag ásamt fleirum og tveir starfsmenn Máls og menningar gerðust með- eigendur hjá bókaútgáfunni Bjarti. Sigurður Svavarsson sagði að verðsamkeppnin í fyrra hefði verið með eindæmum. Einstakir smá- söluaðilar, einkum stórmarkaðir, hefðu borgað stórar fjárhæðir með bókunum, sem hefðu jafnvel numið hundruðum þúsunda yfir eina helgi. „Það er svo langt frá því að geta talist viðskiptaleg glóra að halda megi áfram með sama hætti. Afram verður reynt að keppa um viðskiptavinina með verðlagningu en það eru smásöluaðilarnir sem eru í verðstríðinu. Bókaútgefendur eru meira í hlutverki heildsala og hafa þá sérstöðu að gefa árlega út Bókatíðindin. Að mati meirihlutans innan félagsins var talið að Bóka- tíðindin myndu missa gildi sitt ef neytendur fengju ekki upplýsingar um verð þar líka,“ sagði Sigurður. Hann starfar sem útgáfustjóri hjá Eddu og sagði það forlag ætla að gefa upp leiðbeinandi verð á bók- j um Máls og menningar og Vöku- . Helgafells. Ekki góður kostur Jóhann Páll Valdimarsson sagði við Morgunblaðið að vissulega væru ákveðnir annmarkar á því að gefa upp leiðbeinandi útsöluverð. En menn hefðu talið það skárri kost að halda áfrarri, þótt sá kostur væri ekki góður. JPV-forlag mundi því gefa upp leiðbeinandi verð. „Við vitum að útsöluverð er og . verður afar mismunandi vegna til- boða og verðsamkeppni. Leiðbein- andi útsöluverð er ekkert annað en viðmiðun fyrir kaupendur. Þetta þarf alls ekki að þýða hið rétta verð í bókabúðum. Við ákváðum að halda okkur við þetta þar sem okk- ur þótti það bagaleg þjónusta gagnvart lesendum Bókatíðinda að fólk fengi enga hugmynd um á hvaða verðbili bækurnar væru. Fólk er orðið það meðvitað í dag urn þessa verðsamkeppni að því er Ijóst að bækurnar munu meira og * minna fást á hagstæðara verði en gefið er upp,“ sagði Jóhann Páll. Snæbjörn Arngrímsson hjá Bjarti sagði að bókaútgáfan myndi halda áfram að gefa upp leiðbein- andi verð. Hann taldi þessa um- ræðu ekki bera vott um meira verðstríð nú en áður. Samkeppnin yrði eftir sem áður mikil. „Þetta verður nákvæmlega sami söngur- inn og í fyrra, sem er að sumu leyti | ágætt en að öðru leyti ekki,“ sagði “ Snæbjörn. EIGNALIFEYRIR N j ó t t u l ífs i H s (II / a ,e v i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.