Morgunblaðið - 26.10.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
PIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 27
Leiðtogar níu Balkanrikja á fundi
Kostumca boðar
betri samskipti
Skopje. AP, AFP, Reuters.
VOJISLAV Kostunica, forseti
Júgóslavíu, hét í gær að beita sér
fyrir nýjum tímum í samskiptum
Balkanríkjanna en leiðtogar þeirra
komu þá saman til dagsfundar í
Skopje í Makedóníu. Megintilgang-
ur fundarins er að vinna að aukinni
samvinnu ríkjanna og stöðugleika á
Balkanskaga nú þegar Slobodan
Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíu-
forseti, hefur verið rekinn burt.
Kostunica sagði, að Júgóslavar
horfðu nú fram á veginn og vildu
bæta samskiptin við nágrannaríkin.
„Balkanríkin þurfa á friði og stöð-
ugleika að halda og Evrópa þarfnast
friðar á Balkanskaga. Látum hend-
ur standa fram úr ermum en ætl-
umst samt ekki til of mikils strax.
Hér bíður okkar mikið verk,“ sagði
Kostunica. Kvað hann Júgóslava
vilja ræða við nágranna sína um þau
hervirki sem unnin hefðu verið í 10
ára stríði á Balkanskaga en gaf í
skyn, að aðrir yrðu einnig að horfast
í augu við sinn hlut í óöldinni.
„Sögulegir tímar“
Mikillar bjartsýni gætir á Balk-
anskaga eftir kjör Kostunica og rík-
in sjá nú fram á aukna efnahagslega
aðstoð og aðgang að vestrænum
stofnunum á borð við NATO og
Evrópusambandið. „Við erum að
upplifa sögulega tíma,“ sagði Boris
Trajkovski, forseti Makedóníu, en
auk hans sátu fundinn fulltrúar
Grikkja, Tyrkja, Búlgara, Rúmena,
Albana, Bosníumanna, Júgóslava og
Króata.
Haft er eftir ónefndum embættis-
mönnum, að leiðtogarnir muni fara
fram á við Evrópusambandið, að
það svari því hvaða möguleika ríkin
hafa á aðild að sambandinu og þeir
vilja einnig, að Rússar leggi sitt af
mörkum við að tryggja stöðugleika.
Eitt viðkvæmasta málið á fundin-
um og á Balkanskaga nú er framtíð
Kosovo en albanski meirihlutinn
þar, Albanir og albanski minnihlut-
inn í Makedóníu vilja, að héraðið
verði sjálfstætt. Trajkovski, forseti
Makedóníu, hvatti í gær til þess, að
Kosovo yrði áfram hluti af Serbíu
og sagði, að það væri forsenda fyrir
stöðugleika á svæðinu. Minnti hann
á ályktanir SÞ til stuðnings því.
Kostunica ætlaði í gær að eiga
fund með Richard Holbrooke,
sendiherra Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Líklegt þótti, að
Kosovo yrði eitt aðalumræðuefnið
en Bandaríkjastjórn hefur lýst yfir,
að héraðið eigi áfram að vera hluti
af Serbíu en með mikilli sjálfsstjórn.
Montesino segist
vilja kyrrlátt líf
Líma. AP.
VLADIMIRO Montesino, fyrrver-
andi yfirmaður leyniþjónustu Perú,
segist eiga þá ósk heitasta að hefja
störf sem lögfræðingur, lifa rólegu
lífi og halda sig frá sviðsljósinu.
Montesino, sem sneri óvænt aftur til
heimalands síns sl. mánudag, er sá
Perámaður sem flestir íbúar lands-
ins óttast, enda er talið að hann og
félagar hans í hernum hafi löngum
stundað mannréttindabrot auk þess
að vera flæktir í eiturlyfja- og vopna-
sölu. Það eru því margir sem taka yf-
irlýsingum hans með fyrirvara.
Stjórnarandstaða Perá dregur
það t.a.m. í efa að hann sé hættur öll-
um tilraunum til að stjórna ríkis-
stjórn forsetans, Alberto Fujimori, á
bak við tjöldin en hún stendur mjög
höllum fæti.
Montesino flúði til Panama í sept-
ember eftir að upp komst um til-
raunir hans til að múta þingmönnum
stjórnarandstöðunnar. I kjölfarið til-
kynnti Fujimori að hann myndi
hætta sem forseti á næsta ári.
Margir leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar hafa sagt að vera Montesino í
Perá bendi til þess að hann sé að
reyna að þrýsta á að hann og fylgis-
menn hans hljóti sakaruppgjöf.
Segist hafa verið í hættu
staddur i Panama
Bandaríkin og ríki S-Ameríku
þrýstu á Panama um að veita Mont-
esino hæli en stjórn ríkisins hefur
hins vegar verið treg í taumi að láta
undan. Montesino heldur því hins
vegar fram að hann hafi orðið að yf-
irgefa Panama vegna þeirrar hættu
sem honum var búin af peráskum
skæruliðum og eiturlyfjasölum sem
hafi verið í hefndarhug vegna að-
gerða hans gegn þeim.
„Ég vil að þið skiljið að ég varð að
snúa aftur vegna þess að þeir ætluðu
að myrða mig - ekki vegna þess að
ég vilji auka á óstöðugleikann,“ sagði
hann í útvarpsviðtali á þriðjudag.
Bandamenn Montesinos stýra
hernum, réttinum, skattheimtunni
og mörgum fjölmiðlum, og því álíta
margir hann valdameiri en Fujimori.
UM H£ LGINfl
STÓRSÝNING
Við frumsýnum
@ LJEXLJS
www.lcxus.is
SIEMENS
sem eiga heima hjá þér!
m fj:
49.900 kr. stgrjJ i
Uppþvottavél
SE 34230
m tm
49.900 kr. stgr)
Bakstursofn
HB 28024
Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi.
Sannkallaður gæðaofn frá Siemens.
(59.900 kr. stgr.
Ný uppþvottavél.
Einstaklega hijóðlát
og sparneytin.
Fjögur þvottakerfi,
tvö hitastig.
C69.900kr.stgr.
Kæli- og frystiskápur
KG 36V20
235 I kælir, 105 I frystir.
Hxbxd = 185x60x64sm
Þvottavél
WM 54060
6 kg þvottavél sem hefur slegið í gegn
hérlendis sem annars staðar. 1000 sn./mín
49.900 kr. stgn)
Helluborð
ET 72524
Keramíkhelluborð með snertihnöppum.
Flott helluborð á fínu verði.
(29.900 kr. stgr.
Þurrkari
WT 21000EU
Tekur 5 kg. Einfaldur í notkun.
Barki fylgir með. Snýst í báðar áttir.
12.900 kr.stgrf)
Þráðlaus sími
Gigaset 3010 Classic
DECT/GAP-staða11. Einstök talgæði.
Treystu Siemens til að færa þér draumasímann.
Cl47.900 kr. stgr.
SCALE0 P70
700 MHz Pentium III örgjörvi, 64 MB vinnsluminni,
10 GB harður diskur, 17" skjár, 16 MB AGPskjákort,
16 bita hljóðkort, 8 hraða DVD-drif, Word 2000,
Works 2000, Windows 98 og margt fleira.
Vönduð tölva frá risanum Fujitsu Siemens Computers.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
i
Opið laugardag kl. 12-16 ogsunnudag kl. 13-16