Morgunblaðið - 26.10.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 65
DAGBÓK
BRIDS
Bmsjón (iuðmundur Páil
Arnarson
SUÐUR er í nokkrum
vanda. Makker opnunar-
doblar eitt lauf og suður
gælir við þá hugsun að passa
með fimmlit í laufi og engan
annan lit. En brestur kjark
og svarar á tígli með þrílit:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
* 4K42
» ÁK6
* AG95
* D7
Suður
* 963
»94
* D107
* K10864
Vestnr Norður Austur Suður
l lauf Dobl Pass 1 tígull
Pass 3 tíglar Pass 3grönd
Pass Pass Pass
Norður gefur styrkinn til
kynna með stökki í þrjá tígla
og suður breytir auðvitað í
þrjú grönd, sem varla er
verri samningur. Út kemur
spaðadrottning og suður
gefur. Spaðatía fylgir í
kjölfarið, sem suður tekur
og hugsar sinn gang.
Hvernig myndi lesandinn
vinna úr þessu?
Eitt er víst: Vestur á tíg-
ulkónginn og ef hægt er að
komast heim til að svína í
tígli eru níu slagir á borðinu.
En það er varasamt að spila
laufdrottningu strax úr
blindum. Vestur mun gefa
og ef spaðinn fellur ekki 3-3
verður engin leið að ná í níu
slagi:
Norðui'
* AK42
»ÁK6
♦ AG95
+ D7
Vestur
+ DG108
» D75
♦ K3
+ ÁG92
Austur
* 75
» G10832
♦ 8642
+ 63
Suður
* 963
»94
♦ D107
+ K10864
Rétta aðferðin er að loka
útgönguleiðum vesturs og
neyða hann til að spila laufi
upp í kónginn.
Fyrsta vers er að gefa
slag á hjarta. Segjum að
vestur taki þann slag og spili
spaða. Það er tekið í blind-
um, ÁK í hjarta spilað og
síðan er vestur sendur inn á
fjórða spaðann. Hann verð-
ur þá að spila laufi frá ÁG
eða tígli frá kóng.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar
um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og
fleira lesendum sín-
um að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrir-
vara virka daga og
þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnu-
dagsblað.
Samþykki afmæl-
isbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðar-
manns og símanúm-
er.
Fólk getur hringt i
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Árnað heilla
Q/A ÁRA afmæli. Nk.
ÖU sunnudag, 29. októ-
ber, verður áttræð María
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Reykjahlíð III í Mývatns-
sveit. Hún tekur á móti ætt-
ingjum og rínum í Hótel
Reynihlíð laugardaginn 28.
október kl. 15-19. María býr
nú í Hvammi, heimili íyidr
aldraða á Húsavík.
/* A ÁRA afmæli. í dag,
UU fimmtudaginn 26.
október, verður sextug Jó-
hanna G. Sigurðardóttir,
Bæjargili 111, Garðabæ.
Eiginmaður _ hennar er
Gunnar J. Árnason. Jó-
hanna verður með heitt á
könnunni í dag.
K /1 ÁRA afmæli. Á
O U morgun, föstudaginn
27. október, verður fimm-
tugur Gottskálk Jón
Bjarnason, bifvélavirki,
Giljaseli 13. Hann tekur á
móti gestum á afmælisdag-
inn kl. 20 í Skipholti 50A.
r A ÁRA afmæli. í dag,
Ovf fimmtudaginn 26.
október, er fimmtug Sess-
elja Steinarsdóttir, Skóla^
túni 4, Bessastaðahreppi. I
tilefni af afmælinu býður
hún fjölskyldu og vinum
veitingar á heimili sínu
Skólatúni 4, milli kl. 19-21 á
afmælisdaginn.
SKAK
Umsjón llelgi Áss
Grótarsson
Hvítur ú leik.
STAÐAN kom upp á 3. al-
þjóðlega mótinu í Þórshöfn í
Færeyjum. Hvitt hafði Jón
Viktor Gunnarsson (2368)
gegn heimamanninum Mart-
in Poulsen (2.074). 32.Hdh2!
Svartur er nú óverjandi mát
en hann hélt ótrauður áfram
ogreyndi 32...Bxc2+ 33.Kal
Bb3 34.Hh8+! Bxh8
35.Hxh8 mát!
Haustmót Taflfélags
Kópavogs verður haldið 26.
október til 28. október.
Mótið hefst fimmtudag-
inn 26. október kl. 20:00
og verða þá tefldar þrjár
umferðir. Sama dagskrá
er föstudaginn 27. októ-
ber og mótinu lýkur
laugardaginn 28. októ-
ber og hefst þá taflið kl.
14:00. Tefldar verða níu
umferðir með atskákfyr-
irkomulagi. Fyrstu verð-
laun 5.000, önnur verð-
laun 3.000, og þriðju
verðlaun 2.000. Ef þátttak-
endur verða fleiri en 20
tvöfaldast verðlaunin.
Nú fer að síga á seinni
hlutann í einvígi Kasparovs
og Kramniks. Ellefta skákin
verður tefld í dag og hefst
taflið klukkan 14. Alls verða
tefldar 16 skákir.
UOÐABROT
FERÐALOK
Ástarstjörnu
yfir Hraundranga
skýla næturský.
Hló hún á himni.
Hryggur þráir
sveinn í djúpum dali.
Greiddi ég þér lokka
við Galtará
vel ogvandlega.
Brosa blómvarir.
Blika sjónstjörnur.
Roðnar heitur hlýr.
Háa skilur hnetti
himingeimur.
Blað skilur bakka og egg.
En anda, sem unnast,
fær aldregi
eilífð að skilið.
Jónas Hallgrímsson.
STJÖRMJSPA
eftir Frances Ilrake
SPORÐDREKI
Þú ert ákafamaður en fólki
þykir þú skipta fulloft um
skoðun til þess að dugnaður
þinn nýtist.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu ekki hlutina fara í
taugarnar á þér og líttu
fram hjá uppátækjum
vinnufélaga þinna. Nú er
lag að hreinsa til á skrif-
borðinu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér líður afskaplega vel um
þessar mundir og mátt ekki
láta neinn hafa neikvæð
áhrif þar á. Vertu örlátur
við vini og vandamenn.
Tvíburar ^
(21. maí - 20. júní) 'Nn.
Einhver orð, sem vinur læt-
ur falla, særa þig djúpt.
Reyndu að bera höfuðið hátt
og skrifaðu málið á reikning
viðkvæmni þinnar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það bætir og kætir að grípa
til nýstárlegra vinnuað-
ferða, þótt einhvern tíma
taki að komast upp á lagið
með þær. Sýndu þolinmæði.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það er of seint að byrgja
brunninn, þegar barnið er
fallið ofan í hann. Láttu mis-
tök þér að kenningu verða
og hugsaðu næsta leik vel.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.)
Gamall vinur birtist óvænt.
Gefðu þér tíma til þess að
ræða við hann og rifja upp
gömul kynni; það mun sýna.
þér margt í nýju ljósi.
Vog m
(23. sept. - 22. okt.)
Þú þarft ekki að vera svona
óvæginn við sjálfan þig.
Enginn er fullkominn og þú
ræður vel við þín verkefni,
þótt þú óttist annað.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Staða þín er sterk í dag og
ekki fyrir aðra að abbast
upp á þig eða vera að agn-
úast út í þín vinnubrögð.
Vertu lítillátur, ljúfur og
kátur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) JtSf
Þú þarft að setja skoðanir
þínar þannig fram, að
áheyrendur þínir gefi þeim
tækifæri en afskrifi þær
ekki strax sem hvert annað
bull.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) áíH
Þótt fortíðin sé liðin geymir
hún oft vegvísa fyrir fram-
tíðina. Kynntu þér gang
mála og þú munt sjá margt
sem nýtist þér núna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður að taka af skarið
og hrinda málum í fram-
kvæmd, þótt vinnufélagar
þínir séu tregir í taumi.
Settu ykkur sameiginlegt
takmark.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú vilt skoða allt og skil-
greina niður í kjölinn. En
það er nú einu sinni svo að
suma hluti er okkur ekki
ætlað að skilja, þótt við
þörfnumst þeirra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
givnni vísindalegra staðreynda.
Pantaðu
jólamyndatökuna
tímanlega
Ljósmyndastofan Mynd sími: 565 42 07
Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 30 20
EIGNAMJÐLUMN
Storfsroenn: Sverrir Kristinsson löog. fosleignosoli, sölustjóri, Þorieifur St.6uJmundsson,B.S{., sölum.,Guimundur Sigurjónsson
lögfr. og lögg.fosteionosoli, skjologerÖ. Stefún Hrafn Stefónsson löafr., sölum., óskar R. HorJorson, sölumoður, Ktarton
Haögeirsson, sölumoour, Jóhomw Valdimorsdóttir, ouglýsingar, gjofökeri, Ingo Honnesdóttir, símovorsla og ritori, Olöf |
Steinorsdóttir, simovarski og öflun skjola, Rokel Dögg Sfgurgeirsoóftir, simovorsla og öflun skjola.
Sími 588 9090 • Kax G88 9095 • SÍAu.mila 2 I
'ÁR
Faxatún - fallegt einbýli
Voaim að fá í einkasölu mjög fallegt 162 fm
einlyft einbýtishús meö bílskúr. Bgnin
skiptist m.a. í stofu, borðstofu, þrjú
herbetgi, (fjögur skv. teikningu), bað-
hérbergí ogJ fataherbergi. Baðhérbergið er
nystandsett. Parket ng fl sar a gólfum og;
vandaðar innréttingar. Falleg og gróin lóð
með tveimur sólpöllum. V. 19,5 m. 9899
Tunguvegur - raðhús. Vorum að fá í einkasölu gott raðhús á tveimur hæðum
auk kjailara, u.þ.b. 130 fm. Endurnýjaö þak. Góð lóð til suðurs. Þrjú svefnherbergi
á efri hæð. Möguieiki á herbergi i kjallara og góðu geymslurými. Mjög góður
staður. V. 12,5 m. 9886
Álmholt - Mosfellsbær - frábært útsýni
Um 193 fm glæsileg efri hæð í parhúsi
með 50 fm innbyggðum bílskúr i útjaðri
byggöar. Eignin skiptist m.a. í 4 herb.,
tvær saml. stofur m. kamínu, snyrtingu,
bað, eldhús, búr o.fl. Frábært útsýni yfir
Leirvoginn, tíl Esjunnar, Snæfeltsnessins
og víðar. V. 18,9 m. 9895
Skógarás Mjög falleg 5-6 herbergja íbúö á tveimur hæðum í litiu
fjölbýlishúsi í Skógarási. Eignin skiptist í hol, fjögur herbergi, sjónvarpshol, stofu,
eldhús, baðherbergi, snyrtingu og búr. Góð eign. V.15,2 m. 9884
Vesturbær - skipti á minni Glæsileg 4ra-5 herb. um 115 fm íbúð á 2. hæð
m. sérinng. í nýlegu húsi. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar. Parket og marmari á
gólfum. Mikil lofthæð í stofum. Útsýni. Fallegur garður. Skipti á minni 4ra herb. íb.
æskileg. V. 16,9 m. 9093
Lyngbrekka - efri sérhæð Mjög góð 4ra-5 herbergja 109,0 fm efri sórhæð.
auk bílskúrs, í tvíbýlishúsi í botnlangagötu. Ibúðin, sem er mjög vel skipulögð,
skiptist í þrjú herbergi, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi. Geymslurts er
yfir íbúðinni. Fallegt útsýni. V. 13,5 m. 9880
Hjarðarhagi Vel skipulögð og björt 88 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýii. Húsið
hefur nýiega verið viðgert og málað.lbúðin lítur vel út, með parketi, sa-svölum og
aukaherbergi í risi. Góð staðsetning, stutt í skóla og ýmiss konar þjónustu.
V. 10,9 m. 9755
Bolholt Mjög falleg „penthouse‘-íbúð með glæsilegu útsýni á 6. hæð I lyftuhúsi.
Eignin skiptist í hol, eldhús, baðherbergi og tvö rúmgóð her-bergi. Ný glæsileg
eldhúsinnrótting og parket og flísar á gólfum. Þú verður að sjá þessa íbúð. V.
10,9 m. 9909
Laugamesvegur Falleg 70 fm 2ja herbergja íbúð á jarðhæð ínýlegu fjölbýli.
[búðin skiptist í hol, geymslu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og stofu með
útgangi út á svalir. Sérþvaðstaða. Parket og vandaðar innréttingar. V. 8,9 m.
9876
MENNTAMAI____
staf fyrlr ataf.