Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 18
18 SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Hræddur um
að verða eldin-
um að bráð
Finnski listamaðurinn Jyrki Parantainen sýnir verk sín
á tveimur stöðum í borginni, í Galleríi i8 og Norræna
húsinu. Ragna Garðarsdóttir hitti hann að máli.
s
SÝNINGARRÝMI i8 er að finna ljós-
myndir, en í Norræna húsinu hyggst
Jyrki sýna ljósmyndaverk í stórum
Ijósakössum.
Jyrki er einn af framsæknustu listamönnum
sinnar samtíðar í Finnlandi og hefur markað
sér sérstöðu innan listaheimsins.
Hann kveður kvikmyndaleikstjóra vera
helstu áhrifavalda sína og er formgerð kvik-
myndarinnar jafnt sem tæknin þar að baki
nærgöngult viðfangsefni listar hans.
Öfgafullar tilfinningar
Hann sagðist finna sér auðar byggingar eða
sviðsetja yfirgefin hýbýli og leggja eld að. Síð-
an tæki hann ljósmyndir af eldinum og bruna-
rústunum. Hann kvaðst einnig endrum og eins
taka mynd af viðkomandi vettvangi áður en
hann hefur orðið eldinum að bráð og gera að
hluta listaverksins. Hann benti á tvær ljós-
myndir, önnur var af yfirgefinni hernaðarbæki-
stöð en hin af þessu sama húsi, séð innandyra, í
ljósum logum. Hann sagðist þó allajafna vilja
láta áhorfanda það eftir að mynda þau tengsl
sem honum eru nærtækust. Jyrki kvaðst hafa
gert eldinn að einskonar uppsprettu listiðkun-
ar sinnar á sínum tíma, en hann varð síðar að
tæki í höndunum á honum til að tjá tilfinningar
á jaðri hins siðferðilega ramma.
Hann sagðist fljótlega hafa áttað sig á því að
eldurinn væri þess megnugur að vekja nægi-
lega öfgafullar tilfinningar með fólki til að hægt
væri að afhjúpa hin óljósu mörk milli valds og
valdaleysis, hræðslu og hrifningar. Fyrst í stað
hafi hann umgengist eldinn sem tákn fyrir sín-
ar eigin róstusömu kenndir og í sömu andrá
sem leið til að losa sig undan fargi fortíðarinn-
ar. Með eldinum hafi hann séð sér fært að gera
hreint fyrir sínum dyrum, brenna fyrri verk og
vangaveltur til ösku og hefja nýjan leik, þótt sá
hafi vissulega einnig verið leikur að eldi. Eftir
því sem hann kynntist eldinum betur og vinnan
með hann varð vanabundnari myndaðist viss
fjarlægð og eldurinn hlaut annarskonar merk-
ingu í huga hans og meðförum. Eldurinn varð
að tæki til að miðla öfgafullum tilfinningum og
ekki síst til að vekja þær með áhorfendum.
Hann segist hafa áttað sig á mikilvægi verka
sinna hvað viðtökur snertir þegar hann fylgdist
með öfgafullum viðbrögðum við verkunum.
Framsetningin á skaðsemi eldsins og fegurð í
bland færi fyrir brjóstið á mörgum, en ákaflega
margir leyfðu sér að hrífast með, þrátt fyrir
grun um siðferðilegan veikleika slíkrar hrifn-
ingar.
Jyrki kvaðst geta bent á höfuðþema verka
sinna, en það væri framsetning á upphafning-
unni („sublirne"). Hann minntist lítillega á
Verk eftir Jyrki Parantainen.
kenningar heimspekinganna Edmunds Burkes
og Immanuels Kants um þetta fyrirbæri og
setti í samhengi við eigin framsetningu. Báðir
lögðu áherslu á óræðni þessa fyrirbæris og
samsvarandi tilfinningar sem það vekur. Burke
lagði ríkt á um að upphafningin samanstæði af
mótsagnakenndum tilfinningum sem engin leið
væri að koma orðum að. Hrollvekjandi ogháleit
viðmið renna saman og skapa með viðtakanda
hræðslu og hrifningu í senn. Jyrki sagði goð-
sagnakennt viðhorfið til eldsins fela í sér slíkan
samruna. Þegar menn stæðu sig að því að hríf-
ast af eyðileggjandi kröftum og vita ekki hvort
þeir ættu að gefa sig hrifningunni eða hræðsl-
unni á vald væru þeir í raun og veru staddir á
jaðri hins siðferðilega ramma og yrðu tilfinnan-
lega varir við eigið stjórnleysi.
Notar sérstakt lím
Til að leikurinn með eldinn færi ekki úr
böndunum, líkt og gerðist við fyrstu tilraunir,
sagðist Jyrki nota sérstakt lím, baneitrað og
eldfimt, undir eldinn. Eldurinn einskorðaðist
þá við yfirborð límsins og breiddist ekki út.
Með því móti gæfist honum jafnframt kostur á
að mynda allskyns mynstur og formgerðir með
eldinum og vinna markvissar með ljós og
skugga en ella. Ein mynda hans sýnir t.a.m.
einskonar súlnagöng búin til úr eldi, sem liggja
um niðumíddar hernaðárbækistöðvar í Eist-
landi. Með þá mynd fyrir augum sagði Jyrki frá
því að hann hefði sótt nokkuð til Eistlands um
yfirgefnar byggingar sem leyfilegt var að
kveikja í, þar sem ekki væri svo mörgum slík-
um byggingum til að dreifa í Finnlandi. íbúar
Eistlands hefðu reyndar tekið vel undir það að
hann brenndi niður mannauðar hernaðarbæki-
stöðvar og meira að segja túlkað þá viðleitni
sem tákn um nýja byrjun. Jyrki bætti því við að
ávallt væri viðbúið að menn legðu trúarlega eða
pólitíska merkingu í verkin, og væri ekkert
nema gott um það að segja.
Undir lok viðtalsins viðurkenndi Jyrki að
sennilega væri komið að lokum þess í listsköp-
un sinni að hann bæri eld að húsum. Hann
sagðist langþreyttur á að búa við stöðuga
hræðslu um að verða eldinum að bráð. Þessi
listiðja útheimti mikla líkamlega áreynslu og
nálægð við hættuleg eiturefni. Hann sagði það
einnig kosta mikla vinnu að leita uppi auðar
byggingar og umhverfi sem óhætt er að leggja
eld að. Reynsluna af eldinum sagði hann þó
hafa markað listiðju sína til frambúðar og að sá
miðill yrði honum ávallt hugleikinn.
Nýjar bækur
• Skáldsagan Blár þríhyrningur
er eftir Sigurð Pálsson. I kynn-
ingu útgefanda segir: „Sagan ger-
ist í Reykjavík
samtímans.
Margar ljóslif-
andi persónur
koma við sögu
en í sögumiðju
eru Benjamín
sem þráir Júlíu
sem þráir Stellu,
konu Benjamíns,
sem þráir hann
... Þau þrjú
dansa krappan dans lífsþorsta og
dauðaþrár. Leit að hlutverki í líf-
inu, ástarþrá, tengsl landsbyggðar
og borgar, náttúru og mannlífs
eru meginþræðir í meistaralega
þéttum söguvef bókarinnar. Sig-
urður Pálsson sló rækilega í gegn
með fyrstu skáldsögu sinni, París-
arhjóli, og staðfestir hér enn frek-
ar tök sín á skáldsagnarforminu.
Hann er löngu viðurkenndur sem
eitt helsta núlifandi ljóðskáld okk-'
ar en hefur á undanförnum árum
sýnt að hann er jafnvígur á ljóð,
leikrit og skáldsögur.“
Útgefandi er JPV-forlagið. Blár
þríhyrningur er 179 blaðsíður,
unnin í Prentsmiðjunni Odda hf.
Hunang gerði kápu. Verð: 3.980
krónur.
Sigurður
Pálsson
Fréttagetraun á Netinu
mbl.is
__ALLTAF eiTTHVAÐ NÝTT