Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.10.2000, Blaðsíða 38
1 ^38 SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÁLFHEIÐUR ERLA ÞÓRÐARDÓTTIR, Kóngsbakka 3, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 22. október. Útförin hefur farið fram. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Adolf Steinsson, Ólafur Adolfsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Svandís Erla Ólafsdóttir, Arnar Steinn Ólafsson, Steinar Adolfsson, Hafrún Jóhannesdóttir, Alexandra Berg, Stefanía Berg, Ama Berg. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, FINNUR FINNSSON kennari frá ísafirði, Árskógum 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala Landakoti mánu- daginn 23. október. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 31. október kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. María Gunnarsdóttir, Auðunn Finnsson, Rita Evensen, Finnur Magni Finnsson, Ingibjörg Baldursdóttir, Viðar Finnsson, Katrín Þorkelsdóttir, Valdís Finnsdóttir, Ólafur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐJÓNS BÖÐVARS JÓNSSONAR tónmenntakennara, Hátúni 4, áður til heimilis í Safamýri 35. Þór Guðjónsson, Guðbjörg Ragnarsdóttir, Börkur Guðjónsson, Ólöf Árnadóttir, Gná Guðjónsdóttir, Eiður Páll Sveinn Kristmannsson, Brjánn Guðjónsson, Sigurlaug Hreinsdóttir, Herdís Brynjarsdóttir og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og iangafi, INGÓLFUR J. ÞÓRARINSSON, Hjallaseli 55, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 22. október sl., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 30. október kl. 15.00. Að ósk hins látna verða ekki birtar minningargreinar um hann, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Dóróthea Daníelsdóttir, Daníel R. Ingólfsson, Olga Ágústsdóttir, < Bjarni Ingólfsson, Erna Agnarsdóttir, Elín Ingólfsdóttir, Örn Ingólfsson, Lovísa Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR frá Ytri-Vík, sem lést á Kristnesspítala laugardaginn 21. október, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju þriðjudaginn 31. október kl. 13.30. Frímann Hauksson, Þorbjörg Elíasdóttir, Anna Hauksdóttir, Ingvar Nielsson, Jóhann Hauksson, Kolbrún Geirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Helgi Þorláksson fæddist í Múla- koti á Síðu 31. októ- ber 1915. Hann lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík 18. októ- ber síðastliðinn. Helgi var sonur hjónanna Þorláks Vigfússonar, f. 27.10. 1879, d. 28.9. 1936, og Helgu Guð- nýjar Bjarnadóttur, f. 18.2. 1884, d. 12.9. 1970. Bræður Helga voru Karl, f. 24.4. 1910, d. 30.5.1910 og Bjarni, f. 7.8. 1911, d. 8. 11. 1975, bóndi í Múlakoti. Helgi kvæntist 4.7. 1942 Gunn- þóru Sigurbjörgu Kristmundsdótt- ur, f. 10.6. 1922, fyrrv. skólaritara og húsmóður. Hún er dóttir Krist- mundar Jóhannssonar og Elínar Aðalbjargar Þorsteinsdóttur úr Vestmannaeyjum. Böm Helga og Gunnþóm era: 1) Þorkell, orkumálastjóri, f. 2.11. 1942, kvæntur Helgu Ingólfsdóttur, semballeikara. 2) Þorsteinn, sagn- fræðingur, f. 16.4. 1946, kvæntur Guðlaugu Magnúsdóttur, félags- ráðgjafa. Þau eiga þijú böm. 3) Þorlákur Helgi, fræðslustjóri, f. 24.9. 1948, kvæntur Krist- jönu Sigmundsdóttur, félagsráðgjafa. Þau eiga fjórar dætur og fimm barnabörn. 4) Þorvaldur Karl, bisk- upsritari, f. 9.4. 1950, kvæntur Þóra Krist- insdóttur, kennara. Þau eiga fjögur böm og eitt bamabarn. 5) Þorgeir Sigurbjöm, jarðfræðingur, f. 13. 10. 1953, kvæntur Laufeyju Tryggva- dóttur faraldsfræðingi. Þau eiga þrjú böra. 6) Þóra Elín, arkitekt, f. 22.2.1962, gift Einari Braga Indr- iðasyni, kerfissljóra. Þau eiga þijú börn. Helgi lauk kennara- og söng- kennaraprófi frá Kennaraskóla Is- lands árið 1938 og stúdentsprófi sama ár. Hann sótti ýmis námskeið í tungumálum, tónlist og kennslu- málum heima og erlendis. Helgi var kennari við Barnaskólann í Vestmannaeyjum 1938-1944 og jafnframt stundakennari við Kvöldskóla iðnaðarmanna þar og Gagnfræðaskólann í Vestmanna- eyjum, Gagnfræðaskólann á Akra- nesi 1944-1946 og settur skóla- stjóri síðari veturinn, kenndi við Gagnfræðaskólann í Reykjavík (síðar Gagnfræðaskóla Austurbæj- ar) 1946-1959, þar af yfirkennari siðustu þrjú árin. Hann var skóla- stjóri Vogaskóla frá stofnun hans 1959 til 1981. Helgi var organisti og söngsljóri við Prestsbakka- kirkju á Síðu frá 1931 og fram að námsárum, við Landakirkju í Vest- mannaeyjum 1942-1944 og við Langholtsprestakall 1952-1962. Hann var tilsjónarmaður með víet- nömskum fjölskyldum frá 1979. Helgi tók þátt í margs konar fé- lagsstarfí; í ungmennafélagshreyf- ingunni á íslandi, sat í sfjórn Hjartaverndar, Ríkisútgáfu náms- bóka, var formaður Landssam- bands framhaldsskólakennara og formaður safnaðamefndar Lang- holtssóknar og átti sæti í mennta- málanefnd þjóðkirkjunnar. Þá rit- aði hann fjölda blaðagreina og flutti erindi í útvarp um skólamál. Helgi var brautryðjandi á ýmsum sviðum skólamála, t.d. með því að taka upp fjölbreytt námsval í Vogaskóla, sem segja má að hafi verið undanfari áfangakerfis á ís- landi. Helgi var sæmdur Riddara- krossi Fálkaorðunnar fyrir störf að kennslu- og uppeldismálum. Útför Helga fer fram frá Lang- holtskirkju í Reykjavík mánudag- inn 30. október og hefst athöfnin klukkan 13.30. HELGI ÞORLÁKSSON Elsku afi minn. Mig langar að segja þér hvað ég sakna þín mikið. Nú ertu farinn frá okkur og allir svo tómir og sorgmæddir. Þegar þú varðst fyrst veikur í fyrra var ég alveg viss um að þér myndi batna. Þú gast lítið talað og ekkert labbað. Síðan liðu vikumar og ekkert breyttist. Með tímanum hættirðu alveg að reyna að tala og í hvert sinn sem ég kom hélstu bara fast í höndina mína. Þú vildir ekki sleppa. Þetta var þín leið að tjá þig og í rauninni var það nóg til að ég skildi þig. Síðasta kvöldið sem þú lifðir kom ég í heimsókn með pabba. Ég settist við hliðina á þér, þú varst svo frið- sæll og svafst djúpum svefni. Ég var ekki viss hvort þú heyrðir í mér þannig að ég tók bara í höndina þína eins og þú hafðir alltaf gert við mig. Þegar mamma kom daginn eftir og sagði mér að þú værir dáinn vildi ég ekki trúa því. Ég skildi það ekki fyrr en ég kom inn í herbergið þitt um kvöldið og sá þig. Ég varð svo leið, ég hef aldrei verið jafn sorg- mædd á allri ævi minni. Nú ertu kominn til himna og ég sakna þín afskaplega mikið. Ég vil bara að þú vitir það að þú hefur haft mikil áhrif á mitt líf og eflaust á marga aðra. Mér þykir svo vænt um þig, afi minn, og ég vona að við hittumst á ný. Þín, Hildur. Með þessum orðum langar mig að minnast Helga afa míns í Akurgerð- inu eins og við systkinin kölluðum hann ávallt. Þegar ég sest niður og hugsa um afa er ýmislegt sem kem- ur upp í huga mér. Þegar hann sat við píanóið í Akurgerðinu um jólin og fjölskyldan söng saman jólalög. Hann hafði svo gaman af því að syngja og spila á orgelið og svo þeg- ar hann hélt þessa fínu ræðu í brúðkaupi okkar hjóna. En það sem mun aldrei fara úr huga mér eru tveir síðustu dagar í lífi afa. Hinn 17. október sat ég ásamt fjölskyldu minni og ömmu og vakti yfir afa, mikið er lífið furðulegt hugsaði ég mér. Þarna sátum við og vöktum yf- ir afa en jafnframt vorum við líka að bíða eftir frumburði okkar hjóna. Hvern hefði grunað að þessir tveir atburðir áttu eftir að gerast á sama degi. Hinn 18. október fengum við þær fregnir á fæðingastofuna að afi minn væri látinn, nákvæmlega tveimur klukkutímum síðar eignuð- umst við hjónin frumburð okkar, lít- inn dreng. Elsku amma, á þessum erfiðu tímum er gott að eiga svona stóra og góða fjölskyldu og mundu bara að ef þú verður mjög einmana þá getur þú alltaf komið til Njarðvíkur og hjálpað mér með þvottinn. Guð blessi þig amma og minning- una um afa. Ingibjörg og Jón Júh'us. Mig langar að minnast afa míns Helga í nokkrum orðum. Afi var hlýr og góður maður. Einna sterk- ustu minningar mínar um hann eru hversu vel hann tók alltaf á móti mér þegar ég kom í heimsókn. Al- veg fram á allra síðustu ár tók hann utan um mig og lyfti mér upp þegar ég kom til hans. Því hætti hann ekki þótt ég stækkaði með árunum, en þegar þrótturinn minnkaði var kveðjan jafnhlýleg; hann tók þétt- ingsfast í báðar hendurnar á mér og faðmaði mig að sér. Ég held að eng- inn sem þekkti afa gleymi heldur brosunum hans sem voru svo inni- legoggóðleg. Afi var líka sérstaklega duglegur og ákveðinn maður. Með þraut- seigju lauk hann því sem hann tók sér fyrir hendur. Ágætt dæmi um það var þegar við heimsóttum þau ömmu í sumarbústaðinn þeirra, Brekkukot, fyrir nokkrum árum. Þá var afi farinn að missa máttinn í annarri hendinni en hafði þó tekist að koma þungri þvottavél upp þrep og út í gegnum allan bústaðinn. Þetta hefði átt að vera erfiðisvinna fyrir tvo fullsterka menn, en með þolinmæði og útsjónarsemi hafði honum tekist að mjaka henni smátt og smátt út. Ég kveð afa minn með miklum söknuði. Mér er þó ofar í huga þakk- læti til hans fyrir þær fallegu minn- ingar sem hann hefur gefið mér. Ég veit að afi brosir niður til okkar það- an sem hann er núna og hlakkar til að hitta okkur aftur þegar þar að kemur. Tryggvi. Elsku afi. Ég vildi skrifa þér nokkur kveðjuorð nú þegar þú ert farinn. Það sem stendur upp úr þegar ég hugsa til baka er hvað þú varst merkilegur, ljúfur og góður maður. Ég man aldrei eftir að hafa séð þig reiðan, þú brostir alltaf þínu breið- asta þegar maður kom í heimsókn. Allir sem þekktu til þín og vissu hver þú varst töluðu um það hvað þú varst góður kennari og það kemur mér ekki á óvart. Ég kveð þig með söknuði og veit að á móti þér taka margir opnum örmum. María Þóra. Afi Helgi er dáinn. Þá er kominn tími til að læra að allt breytist. Mér fannst að það væri eins konar náttúrulögmál að ég ætti tvær ömmur og tvo afa en svo er ekki, heldur hitt, að fólk deyr. Afi var búinn að vera mjög veikur og við í fjölskyldunni sáum smám saman á eftir þeim manni sem við þekktum. Hann var tilbúinn til þess að kveðja, í sumar fannst mér eins og hann sæti bara og biði, með sinni frægu þolinmæði og þrautseigju. Amma annaðist hann ótrúlega vel í veikindunum. Ég á margt að þakka afa og því bý ég að, þó hann sé farinn. I gegnum afa tengdist ég landinu. Hann og amma gerðu sveitina fyrir austan að minni sveit. Hann tengdi mig líka við fortíðina. Afi bjó fyrstu ár ævi sinnar í torfbæ og ólst upp í sveitinni sem ég þekki svo vel. Hann átti mikið af forvitnilegum gömlum hlutum sem hafði dagað uppi í hans fórum, óhultir fyrir endurnýjun nú- tímans. Þannig er einmitt litli bú- staðurinn undir Múlanum, þar stendur tíminn kyrr, undir tíma- lausum fjöllunum. Ég á margar góðar minningar um afa minn. Þessi hláturmildi maður með stríða skeggið var yndislegur afi fyrir litla stelpu. Það var alltaf gaman og spennandi að koma í Ak- urgerði, sérstaklega þegar við frænkurnar fengum að gista þar. Fyrir austan man ég hvernig hann leiddi förina upp á Múlann, og áfram upp á fjallið, með rösklegu fasi sem minnti 4 forna íslenska af- reksmenn. Þessi mynd af afa mínum með kaskeiti og göngustaf í hönd, að stíga fjallið, hún er óbreytanleg, eins og fjöllin austur á Síðu og allar minningarnar um þennan góða mann. Þakka þér fyrir allt elsku afi. Hjördís. Deyr fé, deyjafrændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Góður, mikilhæfur maður er genginn. Helgi Þorláksson var fyrsti skólastjóri í Vogaskóla í Reykjavík. Voga- og Heimahverfin voru þá í uppbyggingu. Meirihluti íbúa var ungt fólk með börn sem var að koma sér upp heimili. Vogaskóli stækkaði því fljótt og varð fjöl- mennasti grunnskóli landsins með um 1.700 nemendur. Grunnskóli á þeim tíma skiptist í barnaskóla og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.