Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 21

Morgunblaðið - 29.10.2000, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 21 LISTIR Slóð fíðrildanna í Bandarikjunum Geislandi saga hæfileikaríks höfundar Útgáfufyrirtækið Random House hefur nú sent sérstaka kynn- ingarútgáfu af skáld- sögu Olafs Jóhanns Ólafssonar, Slóð fíðr- ildanna, til fjölmiðla í Bandaríkjunum en bókin mun koma út vestra 21. nóvember næstkomandi. I kjölfar þeirrar dreifingar bók- arinnar hafa tveir fyrstu dómarnir birst í fagtímaritum sem dæma bækur áður en þær koma á almennan markað. Library Journal mælir eindregið með bókinni og Booklist segir að sagan sé „geislandi" og „vitnisburður um hetjudáðir lífsins“. Þá hefur stærsta bókabúðakeðja Bandaríkj- anna, Barnes & Noble, valið Slóð fiðrildanna í flokk bóka sem sér- staklega verða kynntar í verslunum fyrirtækisins á næstu mánuðum. Hnitmiðaður stfll I Library Journal er að finna umsagnir sem bókasöfn í Banda- ríkjunum taka mið af við pantanir á bókum. Þar segir að Slóð fiðrild- anna sé „kunnáttusamlega skrifuð" og síðar: „Ólafur Jóhann er hæfi- leikaríkur höfundur. Hann víkur frásögninni hnökralaust á milli nú- tíðar og fortíðar... í þessari áleitnu sögu um sterka og margbrotna konu.“ Tímaritið Booklist fer meðal ann- ars til bókaverslana og bókasafna í Bandaríkjunum og er þar að finna lofsamlega umsögn um Slóð fiðrild- anna sem fær sérstakan sess í rit- inu, svonefna „stjörnu-umfjöllun". Þar segir að skáldsagan sé „geisl- andi“. „Hnitmiðaður stíll Ólafs Jó- hanns og hreinskilnin í frásögn Dísu draga lesandann inn í hugar- heim hennar. Sagan er beinskeytt undir hljóðu yfirborði og yfirþyrm- andi í ásetningi sínum. Þessi kyrr- láta saga er vitnisburð- ur um hetjudáðir lífs- ins.“ Barnes & Noble, stærsta bókabúðakeðja Bandaríkjanna, hefur valið Slóð fíðrildanna í flokk bóka sem kynntar eru undir yfirskriftinni: „Uppgötvaðu fram- úrskarandi, nýja rithöf- unda.“ Það þýðir alla jafna að bókinni verður stillt fram á besta stað í búðum keðjunnar víðs vegar um Bandaríkin og starfsmenn verslan- anna munu mæla sér- staklega með henni við viðskiptavini. Útgáfurétturinn á Slóð fiðrild- anna hefur nú verið seldur til Bret- lands, Þýskalands, Frakklands, ít- alíu og Spánar, auk Bandaríkjanna. Bókin var upphaflega gefin út af Vöku-Helgafelli um síðustu jól. Slóð fiðrildanna er fimmta skáld- saga Ólafs Jóhanns Ólafssonar en auk þeirra hefur hann sent frá sér smásagnasafn og skrifað leikrit. ----------------- Háskóla- tónleikar í Norræna húsinu AÐRIR háskólatónleikar vetrarins verða í Norræna húsinu á miðviku- dagkl. 12.30. Þá leikur Kawal-kvartettinn, þau Björn Davíð Kristjánsson, Ki-istrún Helga Björnsdóttir, Maria Ceder- borg og Petrea Óskarsdóttir, Ski- Symphonie eftir Faustin JeanJean, A Scai-borough Affair eftir Edward J. Chance og Quartett eftir Fried- rich Kuhlau. Ólafur Jóhann Ólafsson Verk Þórarins B. Þorlákssonar, Stórisjór og Vatnajökull, frá 1921. Ný listaverkakort frá Listasafni Islands LISTASAFN Islands gefur út í ár fjögur litprentuð listaverkakort af verkum Þórarins B. Þorláks- sonar (1876-1924), Ásgríms Jóns- sonar (1876-1958) og Hreins Friðfinnssonar (1943). Tvö kortanna eru af verkum Þórarins, sem fyrir hundrað árum varð fyrstur íslenskra listmálara til að halda opinbera sýningu á verkum sínum í Reykjavík, en þeirra ti'mamóta er nú minnst með umfangsmikilli yfirlits- sýningu á verkum hans í Lista- safninu. Verk Þórarins á kortunum eru Stórisjór og Vatnajökull, frá 1921 og Hvítá, frá 1903. Á hinum kortunum tveimur eru Elliðaárvogur, vetur, 1928-30, eft- ir Ásgrím Jónsson og Blákoma, 1989, eftir Hrein Friðfinnsson. Öll kortin eru tvöföld í stærð- inni 16x24 cm. Kortin eru til sölu í Listasafni Islands, Fríkirkjuvegi 7. SIEMENS jækj sem eiga heima hjá þér! 49.900 kr. stgr) Uppþvottavél SE 34230 Ný uppþvottavél. Einstaklega hljóölát og sparneytin. Fjögur þvottakerfi, tvö hitastig. (69.900 kr. stgr. Kæli- og frystiskápur KG 36V20 235 I kælir, 105 I frystir. H x bxd = 185x60 x 64 sm. 49.900 kr. stgr.) Bakstursofn HB 28024 Fjölvirkur bakstursofn með létthreinsikerfi. Sannkallaður gæðaofn frá Siemens. (59.900 kr. stgr. Þvottavél WM 54060 6 kg þvottavél sem hefur slegið í gegn hérlendis sem annars staðar. 1000 sn./mín. 49.900 kr. stgrf) WKœsmmsm Helluborð ET 72524 Keramíkhelluborð með snertihnöppum. Flott helluborð á fínu verði. m (29.900 kr. stgr. Þurrkari WT 21000EU Tekur 5 kg. Einfaldur (notkun. Barki fylgir með. Snýst í báðar áttir. ws$m ' 12.900 kr. stgr.) Þráðlaus sími :— Gigaset 3010 Classic DECT/GAP-staðall. Einstök talgæði. Treystu Siemens til að færa þér draumasímann. Tölvur Við bjóðum vandaðar tölvur frá risanum Fujitsu Siemens Computers. Verið velkomin (tölvudeild okkar. SMITH & NORLAND Nóatúni 4-105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.