Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 51

Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000 51, DAGBOK BRIDS Umsjón Uuðmundur Páll Arnarson HVERSU vel er hægt að treysta andstæðingunum? Þetta er oft áleitin spurn- ing, en meginreglan er sú að því betri sem spilarinn er, því meiri ályktanir er hægt að draga af spila- mennskunni. Austur er verulega góður spilari. Með það veganesti fer lesandinn af stað, en viðfangsefnið er að spila sex grönd í tví- menningi. Suður gefur; AV á hættu. Norður A KD954 vDG8 ♦ f)6 + A85 Suður A Á83 v ÁK1074 ♦ K5 + K102 Vestur Norður Austur Sudur - - - llyarta Pass lspaði Pass 2grönd Pass Pass 6grönd Pass Pass Vestur kemur út með tíg- ultíu, þú lætur lítið úr borði og færð að eiga fyrsta slag- inn á tígulkóng. Hver er áætlunin? Ef spaðinn skilar sér upp á fimm slagi eru þrettán í húsi, sem er væntanlega toppur. Tæknilega sinnað- ur spilari myndi leggja af stað með spaðaás til að geta ráðið við fimmlit í vestur. Sálfræðilega sinnaður spil- ari færi öðruvísi að. Hann spyrði sig þeirrar spurning- ar hvers vegna austur hefði gefið fyrsta slaginn. Það er dýrt spaug að brenna inni með ás í tvímenningi og austur má vita að suður á fimm slagi á hjarta og ör- ugglega þrettán slagi ef spaðinn skilar sér. Það skyldi þó ekki vera að aust- ur vissi eitt og annað um spaðann: Norður * KD954 v DG8 ♦ ]?6 * A85 Vestur Austur <k 6 * G1072 v 53 v 982 ♦ 1098732 ♦ ÁG4 + DG73 * 964 Suður 4> Á83 v ÁK1074 ♦ K5 + K102 Það þarf kjarkmikinn spilara til að gera ráð fyrir þessari legu, en fyrsti slag- urinn er sterk vísbending. Ef landið liggur svona, vinnst slemman með því að taka fyrst öll hjörtun. Aust- ur verður að henda laufi og tígulgosa. Síðan spilar sagnhafi spaðakóng og spaða að Á8. Ef austur dúkkar, er áttan látin duga! En missi austur kjarkinn og stingi upp tíu, þá er drepið með ás, tveir efstu í laufi teknir og austur send- ur inn á blankan tígulás til að spila upp í D9 í spaða. Kannski langsótt, en mjög fagurt. Ast er... ... að leggja sjálfs- elskuna til hliðar. Arnað heilla Q rt ÁRA afmæli. Nk. ÖU þriðjudag 31. októ- ber verður áttræður Jón G. Bergmann, fv. aðalgjald- keri. Hann og eiginkona hans, Ágiísta Bergmann, taka á móti gestum í Ymi, húsi Karlakórs Reykjavíkur að Skógarhlíð 20, milli kl. 17 og 20 á afmælisdaginn. Ljósmynd/Skugginn BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. september sl. í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Þórhalli Heimissyni Ágústa ísleifsdóttir og Sveinn Matthíasson. Hlutavelta Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 2.346 og 12 norskum krónum til styrktar Rauða kross íslands. Þær heita Surya Mjöll Agha Khan og Margrét Guð- mundsdóttir. SKAK ( llmsjón Helgi Áss Grctarsson STAÐAN kom upp á 3. al- þjóðlega mótinu í Þórshöfn í Færeyjum. Annar af efstu mönnum mótsins, Ruslan Ponamariov (2630), stýrði hvítu mönnunum gegn enska kollega sínum Stuart Conquest (2529). Ponamar- iov er meðal þeirra yngstu sem orðið hafa stórmeistar- ar en skákstíll hans h'kist að mörgu leyti stíl Fischers þar sem frá- bær tækni og nákvæmir út- reikningar eru í fyrirrúmi. Síðamefndi hæfileikinn hefur án efa komið að góð- um notum í stöðunni: 32. Hxe6! Bxel 33. He7+ Kd8 34. Bc7+ Kc8 35. De5! b5 36. Bd8! Ba5 37. Hc7+! Kb8 38. Hxc6+ og svartur gafst upp enda grátt leikinn. Haustmót Tafifélags Reykjavlkur í hraðskák haldið 29. október kl. 14 að félagsheimili þess Faxafeni 12. Skákfélag Akureyrar heldur einnig sitt haust- hraðskákmót sama dag, en teflt verður í húsakynnum félagsins. Atskákmót Reykjavíkur haldið 30. október og 6. nóv- ember kl. 20 bæði kvöldin í félagsheimili taflfélagsins Hellis. Svartur á leik. LJOÐABROT UM HANA SYSTUR MÍNA Sáuð þið hana systur mína sitja lömb og spinna ull? Fyrrum átti ég falleg gull. Nú er ég búinn að bijóta og týna. Einatt hefur hún sagt mér sögu. Svo er hún ekki heldur nízk. Hún hefur gefið mér hörpudisk fyrir að yrkja um sig bögu. Hún er glöð á góðum degi, - glóbjart liðast hár um kinn, - og hleypur, þegar hreppstjórinn finnur hana á förnum vegi. Jónas Hallgrímsson. STJORNUSPA eftir Franres Drake SPORÐDREKI Afmælisbarn dagsins: Forvitniþín ogframtaks- semi gefur lífí þínu fjöl- breytni, en þú mátt vera mildari við sjálfan þig. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Það er fræðandi að kynnast fólki af framandi slóðum og sjálfsagt að notfæra sér þau atriði, sem unnt er, til að auðga lífið heima fyrir. Naut (20. apríl - 20. maí) Láttu vera að taka áhættu í peningamálum í dag, slíkt er líklegra til að hefna sín frekar en hitt. Sýndu líka fyrirhyggju á öðrum svið- um. Tvíburar (21. maí - 20. júní) A'A Taktu ekki umtal um þig á vinnustað nærri þér, uppi- staðan í því er öfund, og þessar raddir munu þagna, þegar árangur þinn sýnir sig.___________________ Krabbi (21. júní - 22. júlí) Finnist þér aðrir sækja um of í þig skaltu hikstalaust loka að þér. Það er engan veginn á þinni könnu að tryggja hamingju alira. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) s* Þegar um margt er að velja er um að gera að láta sjálfs- elskuna ekki ná tökum á sér. Þannig er líklegt að skynsamlega verði valið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) ofcL Það er hverjum manni nauðsynlegt að losna við og við undan oki hversdagsins. Lyftu þér upp og fáðu þér orkuforða til framtíðarinn- ar. v°s XVX (23. sept. - 22. okt.) Orð eru lítils virði ef þeim fylgja ekki athafnir. Leggðu þitt af mörkum í starfi og þá muntu öðlast virðingu þeirra sem þú metur svo mikils. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Ekki er allt sem sýnist svo þú skalt ganga hægt um gleðinnar dyr þótt allt virð- ist vera í fínasta lagi. Var- færni á við á öllum sviðum. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) AO Þú kemst langt á léttu við- móti þínu, en gættu þess að ganga ekki svo langt að fólk misskilji þig og haldi til- ganginn annan en raun er á. Steingeit — (22. des. - 19. janúar) émB Þessi leiðindi sem grípa þig eru alfarið á þína ábyrgð. Skoðaðu líf þitt og breyttu til í stað þess að kenna allt- af öðrum um alla hluti. Vdtnsberi (20. jan. -18. febr.) _ Loksins kemst hreyfing á mál sem þú hefur lengi baksað við að ýta úr vör. Taktu með hógværð við því hrósi, sem þú ert ausinn. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það er engin ástæða til þess að leggja árar í bát þótt ein- hver hafi gripið tækifæri sem þér stóð líka til boða. Það gengur bara betur næst. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Mikið úrval af brúðarkjólum fyrir dramótin Einnig alltfyrir herra Fataleiga Garðabæjar, sími 565 6680. Opið virka daga frá kl. 10 til 18, laugardaga kl. 10 til 14. Til viðskiptavina Þökkum frábærar móttökur r i ly öld HÁRSNYRTISTDFA Búðagerði 10, 108 Reykjavík, sími 533 5050. Vilborg Bryndís Adda Erla Bjóðum Betu og Ingunni velkomnar til starfa Elísabet Kemp Ingunn Ericsdóttir Bókhaldsnám Örfá sæti laus á 120 kennslustunda námskciði sem byrjar 1. nóvember og lýkur 16. desember. Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 18-22 og laugardögum kl. 9-13. Efni sem tekið er fyrir )■ Verslunarreikningur - 24st. - Tvíhliða bókhald - 36st. - Tölvubókhald - 42st. - Launabókhald - 12st. - Bókhaldslög og vsk. uppgjör - 6st. - --------—----------—---------- Upplýsingar og innritun í símum 544 4500 og 555 4980 0- ntv Nýi tölvu- & viðskiptaskólinn Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Slmi: 555 4980 - Fax: 555 4981 Hllðasmára 9- 200 Kópavogi - Simi: 544 4500 - Fax: 544 4501 Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimaslða: www.ntv.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.