Morgunblaðið - 29.10.2000, Page 56
56 SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Söluvænleg heild
Tonllst
G e i s • I a d i s k u r
ÍSLENSKI DRAUMURINN
Plata með tónlist úr kvikmyndinni
Islenski draumurinn eftir Róbert I.
Ðouglas. Lengd: 50 mínútur. Út-
gefið af Kvikmyndafélagi íslands.
Umsjón með tónlist: Jóhann Jó-
hannsson. Fram koma: Páll Rósin-
krans, Védís Hervör Árnadóttir,
Sara Guðmundsdóttir, Sóldögg, Ut-
angarðsmenn, Land og synir, Sálin
hans Jóns, Örlygur Smári, Geð, Sál-
in, Jóhann Jóhannsson og Lhooq.
NÚ ER ÚT komin tónlistin úr ís-
lonska drauminum, gamanmynd Ró-
berts I. Douglas, en umsjón með
henni hefur Jóhann Jóhannsson.
Þessi plata hefur öll mjög séríslensk-
an blæ og minnir nánast í heild sinni
á söngkeppni framhaldsskólanema,
sveitaböll, kvöldskemmtanimar ár-
vissu 17. júní og önnur slík hormóna-
lyktandi fyrirbæri í menningu okkar.
Fyrstu fjögur lögin af þrettán eru
endurgerðir erlendra laga með ís-
lenskum texta eftir Þorstein Egg-
ertsson. Fyrst koma þrjú lög, útsett
og hljóðrituð af Jóhanni, en lag núm-
er fjögur „Hef ekki augun af þér“ er
útsett og hljóðritað af Hafþóri
Guðmundssyni. Útsetningar Jó-
hanns þrjár gerir hann fyrir þrjá
mismunandi söngvara, þau Pál Rós-
inkrans (,,Silja“), Védísi Hervöru
Amadóttur („Fyrrum ég, fyrrum
þú“) og Söru Guðmundsdóttur („Eitt
einasta sinn“). Útsetningarnal• em
hreinar og beinar, hvorki finnst blett-
ur né hrukka á hljóðfæraleiknum,
söngurinn góður, framburðurinn
skýr o.s.frv. En samt sem áður hefur
tónlistin einhvem veginn dáið á
vinnsluferlinu. Ég kem ekki fingrin-
um á það hvar nákvæmlega, en í það
minnsta er hún flatneskjuleg og lítt
grípandi í flesta staði. Það má vera að
sú sé einmitt ætlunin, þ.e. að tónlistin
eigi beinlínis að hljóma svona til þess
að ná fram áðurnefndum séríslensk-
um blæ, og ef svo er hefur það tekist
prýðilega. Annars finnst mér söngv-
aramir halda þessum lögum á floti,
Páll Rósinki’ans er náttúrlega þunga-
vigtarmaður í tilfinningasveiflunum.
Og stelpumar, sem báðar syngja
Stevie Wonder-lög, eru mjög góðar,
með gott vald á röddinni. Sara er
kraftmikil og Hervör ómþýð og ljúf-
sár. Þær em náttúrlega hvorki Stev-
ie né Wonder en þær skila sínu afar
vel. Einnig ber að nefna mjög mús-
íkalskan orgelleik Jóhanns í laginu
„Fyrrum ég, fyrrum þú“, en leikur-
inn sýndi að þegar kemur að orgelinu
er Jóhann augljóslega á heimavelli.
Útsetning Hafþórs Guðmundsson-
ar á laginu „Hef ekki augun af þér“
fyrir hljómsveitina Sóldögg var aftur
á móti í hæsta veldi ósmekkleg. Ný-
breytnin í þessaii útsetningu (t.d.
loðinn filter á röddinni og voðalega
púkó rafhljóð) blandast illa við það
upprunalega í laginu, t.d. brass-
hljóðfærin sem em látin halda sér.
Hlutverk hvers hljóðfæris raðast illa
við öll hin hljóðfærin, svo þetta
hijómar allt eins og illa samstillt
naglasúpa, og ekki bætti úr skák afar
litlaus og leiðigjam söngur Berg-
sveins Arelíussonar.
Þorsteinn Eggertsson, sem annars
kemst mjög vel frá textasmíð fyrri
laganna þriggja, stígur hressilega í
það með textanum við þetta lag, frá
mínum bæjardymm séð. Lagið hefur
fengið mikla spilun í útvarpi, en þykir
mér það í hæsta máta undarlegt að
Morgunblaðið/Jim Smart
Túlkun Védísar Hervarar Árna-
dóttur á lagi Stevie Wonders er
ómþýð og ljúfsár.
það hafi fengið nokkra spilun yfir-
leitt. A.m.k. er mín hylli ekki svona
ódýrt keypt.
Lög 5-13 em alíslensk að upprana
og mjög fjölbreytt. Mestmegnis em
þetta baliöður, misrokkaðar. En lög-
in „Sumarlag (Dí dí dí)“ sem Heiða (í
Unun) syngur, „Sinister urge“ með
Lhoog, „Þú átt mig ein“ eftir Jóhann
sem Páll Rósinkrans syngur og „Am-
eríski draumurinn“ eftir Jóhann Jó-
hannsson brjóta þó upp þessa lýs-
ingu. ,Ámeríski draumurinn" er
ósungin mjög skýr lýsing á ameríska
drauminum á tónmáli. „Sumarlag (Dí
dí dí)“ er lítið, létt og rólegt lag sem
lætur vel í eyra og ekki spillir ansi
smellinn texti fyrir. Ég skil ekki al-
veg lagið „Þú átt mig ein“, en kýs að
afgreiða það með þeirri vafasömu al-
hæfingu að það eigi eiginlega ekki
rétt á sér nema sem hluti af kvik-
mynd „Sinister urge“ er afslappað
lag að hætti Lhoog. Það inniheldur
flest þau brögð sem hægt er að beita
til þess að gera það afar svalt.
Hin lögin af þessum síðari átta
vora misgóð. Utangarðsmannalagið
„Islenski draumurinn" sem Bubbi
syngur er eins og dálítið harðir Bíó-
dagar á bragðið.
„Ástfangi" með Landi og sonum
hjálpar mikið upp á séríslenska heild-
armynd sem svona verslunarmanna-
helgarinnlegg, rokkballaða með sí-
gildum rokkgítar en skemmtilega
djörfum trommum. Annars fékk ung-
æðislegur texti og móður og másandi
söngur Hreims mig til að roðna og
svitna á víxl, eins og japanskar
teiknimyndafígúrur gera þegar þær
verða vandræðalegar. „Sól, ég hef
sögu að segja þér“ er dæmigert lag
frá Sálinni hans Jóns míns, sem legg-
ur líka til gamla smellinn „Hvar er
draumurinn?" á þessari plötu. Þetta
nýlega hljóðritaða lag er sæmileg
ballaða í nokkuð exotískri útsetningu
af Sálar-lagi að vera. Það gerir meðal
annars fjölbreyttara slagverk og
þéttofin motta af hljóðfæram og
hljóðum með hárri tíðni sem syngja
yfir restinni.
Platan í heild sinni er nokkuð sölu-
vænleg heild, enda er hún hluti af
markaðssetningu íslenska draums-
ins. Hún er rammíslensk og þónokk-
uð hallærisleg en lítill fugl hvíslar því
að mér að þessi séríslenski blær sé
hugsanlega með ráðum gerður til
þess að styðja efni og boðskap kvik-
myndarinnar. Hversu eiguleg platan
er verður aftur hver og einn að gera
upp við sjálfan sig.
Ólöf Helga Einarsdóttir
Litaöu tilveruna
^Zsjstör
Heildsölubirgöir: ísflex s:588 4444
Í<
HUGSKOT
ó*%vv 6 *■ ** ^ * o
Pielhyl 2, s. 587 8044
Kanada Hús ehf.
Allt efni til bygginga
Leitið tilboða
Verðdæmi:
150 fm hús með bílskúr 4.200.000 kr.
Innifalið er allt efni fyrir húsið fyrir utan
innréttingar og gólfefni.
www.kanadahus.is
info@kanadahus.is
sími 555 7177 fax 555 7178
[ Moggabúðinni eru margar skemmtilegar vörur. Þú getur m.a.
keypt derhúfur, töskur, klukkur o.fl. beint af Netinu með öruggum
hætti. Þú skoðar vörurnar og pantar á mbl.is og færð þær sendar
heim til þín eða á vinnustaö.
EINFALT OG ÞÆGILEGT!
Þú getur líka komið við hjá okkur í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1, skoðað
vörurnar I sýningarglugganum og verslað.
Nýjar vörur í
MOGGABÚÐINNI
MOGGABÚÐIN Á
mbl.is